Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
Dönsk hönnun
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Þátttaka Íslendinga í peningaspilum
jókst umtalsvert eftir efnahagshrun-
ið 2008. Tvær rannsóknir sem Daníel
Þór Ólason, prófessor við sálfræði-
deild Háskóla Íslands, og samstarfs-
fólk hans gerðu, sýna þetta. Hann
segir að niðurstöðurnar gefi mikil-
vægar upplýsingar um hugsanleg
áhrif efnahagsþrenginga á spila-
hegðun og spilavanda þjóða.
Daníel Þór hefur rannsakað al-
gengi spilavanda Íslendinga og þátt-
töku þeirra í peningaspilum. Hann
segir að meginmarkmið rannsókn-
anna hafi verið tvíþætt. Annars veg-
ar að fá greinargóða þekkingu á
spilahegðun og spilavanda fólks og
hins vegar að kanna hugsanlega
áhættuþætti spilavanda. Greint er
frá þessu í viðtali við Daníel Þór í
Tímariti Háskóla Íslands.
Daníel Þór segir þar að niðurstöð-
ur beggja rannsóknanna sýni í meg-
indráttum að þátttaka í peningaspil-
um hafi aukist umtalsvert eftir
efnahagshrunið. Það átti sérstaklega
við um peningaspil eins og Lottó,
bingó, flokkahappdrætti og skaf-
miðahappdrætti. Hins vegar varð
ekki breyting á þátttöku fólks í
íþróttaveðmálum og það dró veru-
lega úr notkun á spilakössum.
Nánari skoðun á áhrifum efna-
hagshrunsins sýndi að þeir sem áttu
við verulegan fjárhagsvanda að
stríða eftir hrunið voru mun líklegri
til að kaupa lottó- eða skafmiða en
þeir sem ekki voru í fjárhagsvanda.
Engar breytingar urðu á algengi
spilavanda, samkvæmt svokallaðri
langsniðsrannsókn en marktæk
aukning sást í niðurstöðum endur-
tekinna þversniðsrannsókna. Nánari
skoðun sýndi að ástæða aukningar-
innar var fyrst og fremst meiri þátt-
taka ungra karlmanna í peningaspil-
um á netinu, aðallega í netpóker.
Daníel Þór sagði í samtali við
Morgunblaðið að rannsóknir sýndu
að þeir sem ættu í spilavanda væru
líklegri til að glíma við áfengis- og
eiturlyfjavanda en þeir sem spiluðu
án vandkvæða. „Við sjáum líka
tengsl við streitu. Þeir sem eru með
spilavanda eru líklegri til að upplifa
mikla streitu, vera óánægðari með líf
sitt og stríða frekar við þunglyndi og
kvíða,“ sagði Daníel Þór. Ekki er
ljóst hvort streitan veldur spila-
vanda eða öfugt.
Hvatvísi og rangar ályktanir
Greina má tengsl spilavanda við
hvatvísi. Hvatvísir eiga oft erfitt með
að sjá fyrir afleiðingar gjörða sinna
og eru líklegri en aðrir til að stríða
við spilavanda. Daníel Þór benti á að
hvatvísi væri eitt af þremur megin-
einkennum athyglisbrests og of-
virkni (ADHD). „Við sjáum að þeir
sem hafa einkenni athyglisbrests og
ofvirkni eru 7-8 sinnum líklegri til að
stríða við spilavanda en þeir sem eru
einkennalausir,“ sagði Daníel Þór.
Það að draga rangar ályktanir
virðist einnig stuðla að spilavanda.
Það er t.d. þegar fólk telur sig geta
spáð fyrir um eða fundið á sér um
niðurstöðu sem byggist á tilviljun.
„Fólk sem stríðir við spilavanda er
margfalt líklegra en aðrir til að
draga rangar ályktanir meðan það er
að spila,“ sagði Daníel Þór. Þekkt-
asta rökvilla spilafíkilsins er að trúa
því að líkur á vinningi aukist eftir því
sem hann tapar oftar í peningaspili;
Önnur dæmi um slíkar rökvillur eru
að vinningslíkur í lottói aukist ef
hann velur sínar eigin tölur eða ef
hann getur stoppað hjól spilakassans
sjálfur til að fá niðurstöðu.
Mæld var 21 tegund peningaspila í
rannsóknunum. Þau peningaspil
sem virtust hafa sterkustu tengslin
við spilavanda iðkenda spilanna voru
spilakassarnir. Þar næst kom póker
og svo peningaspil á netinu. Daníel
Þór sagði að það sem einkenndi þessi
spil væri mikill hraði, tíð endurgjöf
þ.e. að oft fást litlir vinningar á með-
an spilað er og loks að spilaranum
finnst hann hafa stjórn á spilinu.
„Það skiptir máli hvað þú spilar og
það skiptir máli hver þú ert,“ sagði
Daníel Þór um niðurstöðu rannsókna
á tengslum spilavanda og iðkenda
hinna ýmsu peningaspila.
Hrunið hvatti til peningaspila
Þátttaka í peningaspilum jókst umtalsvert eftir efnahagshrunið Spilarar mynda sterk tengsl við
spilakassana Hvatvísir lenda frekar í vanda vegna spila en aðrir Spilafíklar draga rangar ályktanir
Morgunblaðið/Ómar
Sálfræði Daníel Þór Ólason er
prófessor við Háskóla Íslands.
Morgunblaðið/Kristinn
Spilakassar Af 21 tegund peningaspila sem tekin var með í rannsóknunum virtust spilararnir mynda sterkustu
tengslin við spilakassana sem gefa strax niðurstöðu í spilið. Þar næst kom póker og svo peningaspil á netinu.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Stofnvísitala þorsks er 5% lægri
núna heldur en hún var samkvæmt
meðaltali árin 2012-2017 þegar vísi-
tölur voru háar. Þetta er meðal þess
sem fram kemur í niðurstöðum tog-
araralls eða stofnmælingu botnfiska
á Íslandsmiðum. Verkefnið hefur
verið framkvæmt með sambærileg-
um hætti ár hvert frá 1985 og fór nú
fram í 34. sinn.
Tillögur um aflamark í júní
„Niðurstöður stofnmælingar í
mars eru mikilvægur þáttur árlegr-
ar úttektar Hafrannsóknastofnunar
á ástandi nytjastofna við landið.
Þær benda til stöðugs ástands
helstu botnfisktegunda. Mat á
stofnstærð helstu tegunda botnfiska
og tillögur Hafrannsóknastofnunar
um aflamark fyrir næsta fiskveiðiár
verða kynntar í júní,“ segir í
skýrslu um verkefnið.
Stofnvísitala þorsks hefur hækk-
að nær samfellt frá árinu 2007, sam-
kvæmt frétt á heimasíðu Hafrann-
sóknastofnunar. Vísitalan er nú
lægri en undanfarin þrjú ár, en þó
með þeim hæstu frá upphafi rann-
sóknanna.
Hækkun stofnvísitölunnar frá
2007 má einkum rekja til aukins
magns af stórum þorski og í ár
fékkst mikið af 60-100 cm þorski.
Minna mældist hins vegar af 50-60
cm þorski sem rekja mátil lítils ár-
gangs frá 2013. Árgangar 2014 og
2015 mælast nú nálægt meðaltali í
fjölda. Niðurstöður staðfesta fyrra
mat að 2016 árgangur þorsks sé lé-
legur, en árgangur 2017 virðist vera
nálægt meðallagi.
Loðna var helsta fæða þorsks og
ýsu eins og ávallt á þessum árstíma.
Áberandi breyting hefur orðið á út-
breiðslu loðnu undanfarin ár, ef
miðað er við magn loðnu í þorsk-
mögum. Í ár fékkst mikið af loðnu í
mögum þorsks við norðanvert land-
ið.
Ýsa nálægt meðaltali
Vísitölur ufsa, gullkarfa, löngu og
langlúru eru háar miðað við síðustu
þrjá áratugi. Vísitölur ýsu, stein-
bíts, keilu, skarkola, þykkvalúru og
grásleppu er nú nálægt meðaltali
tímabilsins, en stofnar hlýra, tindas-
kötu og skrápflúru eru í sögulegu
lágmarki.
Stofn skötusels fer minnkandi og
nýliðun í stofninn hefur verið léleg
frá árinu 2008 borið saman við árin
1998-2007. Útbreiðsla ýmissa teg-
unda hefur breyst á tímabilinu, t.d.
ýsu og skötusels, en stofnmælingin í
ár bendir til að útbreiðsla skötusels
sé farin að líkjast því sem var fyrir
aldamót þegar stofninn var lítill.
Rannsóknaskipin Árni Friðriks-
son og Bjarni Sæmundsson og tog-
ararnir Hjalteyrin EA og Ljósafell
SU, og alls um100 starfsmenn, tóku
þátt í verkefninu að þessu sinni.
Vísitala þorsksins mæl-
ist lægri en síðustu ár
Stöðugt ástand helstu botnfisktegunda á Íslandsmiðum
Morgunblaðið/RAX
Þorskur Mikið fékkst af stórum
fiski, sem var yfirleitt vel haldinn.
Niðurstöður rannsókna Daníels Þórs Ólasonar prófess-
ors og samstarfsfólks hans á spilahegðun Íslendinga
hafa verið birtar í tveimur vísindagreinum. Önnur rann-
sóknin byggðist á endurteknu þversniði en þá voru
breytingar í spilahegðun og spilavanda metnar yfir tíma
með því að bera saman tíðni spilahegðunar og spila-
vanda milli faraldsfræðilegra rannsókna sem gerðar
voru 2005, 2007 og svo aftur 2011. Spurningarnar voru
ekki lagðar fyrir sama hóp fólks í þessum rannsóknum.
Hin rannsóknin var langsniðsrannsókn en þá var sami hópur spurður,
fyrst árið 2007 og svo aftur árið 2011. Í báðum rannsóknunum voru því
kannaðar breytingar á spilahegðun og spilavanda fyrir hrun og eftir efna-
hagshrunið.
Rannsökuðu fyrir og eftir hrun
SPILAHEGÐUN ÍSLENDINGA
Fátt var um fína drætti á Vest-
fjarðamiðum þegar Eiríkur Jóns-
son, skipstjóri á Akurey AK, stefndi
skipi sínu þangað í leit að þorski í
gær.
„Það var lokun við suðurströnd-
ina vegna hrygningar þorsksins og
ég ákvað því að reyna fyrir mér á
Vestfjarðamiðum. Það reyndist
vera fýluferð og þorskurinn var
eitthvað vant við látinn þessa dag-
ana,“ lét Eiríkur hafa eftir sér á
heimasíðu HB Granda í gær.
Þar kemur einnig fram að þorsk-
veiði hafi almennt gengið illa á tog-
araslóð síðustu daga. Þannig hafi
Helga María AK og Engey RE einn-
ig reynt fyrir sér á Vestfjarða-
miðum með takmörkuðum árangri.
Þá berist einnig fréttir af því að lít-
ið sé um þorsk í afla togara fyrir
austan.
Þorskurinn lætur bíða eftir sér fyrir vestan