Morgunblaðið - 18.04.2018, Side 10

Morgunblaðið - 18.04.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is fyrir heimilið Æðisleg húsgögn frá Recor í háglans og eik Fást í mörgum stærðum Veggfastir skápar: Verð frá 149.000 kr. Sjónvarpsskenkur: Verð frá 153.700 kr. Fallegar vörur Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Ég tók áhættuna, ákvað að trúa á þessa hugmyndafræði og að bati væri raunverulegur – raunverulegur fyrir alla, líka fólk eins og mig. Á því eina og hálfa ári sem ég hef verið í Hugarafli hef ég kynnst stórkost- legu fólki. Ég fékk meðal annars stuðning í Hugarafli til þess að ljúka BA-námi í sálfræði og brautskráðist með fyrstu einkunn,“ sagði Fanney Björk Ingólfsdóttir, formaður Ung- huga, ungliðahóps innan Hugarafls, samtaka notenda geðheilbrigðis- þjónustunnar á Íslandi. Ummælin lét hún falla á borgara- fundi um stöðu Hugarafls og geð- heilsu- og eftirfylgdarteymis (GET), sem starfað hefur innan Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins síðast- liðin 15 ár, en til stendur að leggja teymið niður og draga úr stuðningi við Hugarafl. Fundurinn var haldinn í Borgartúni í gær og var húsfyllir. Fanney Björk er með geðhvarfa- klofa og eru einkennin t.a.m. ofsjón- ir, ofheyrnir, ranghugmyndir og persónuleikabreytingar. Hún segir starf Hugarafls skipta sig miklu. „Hugarafl býður upp á valdefl- ingu, raunverulega batamiðaða nálgun, stuðning fyrir aðstandend- ur, jafningjagrundvöll og fleira. Hugarafl gefur fólki eins og mér tækifæri til að eiga alvöru líf og framtíð á okkar forsendum og á okk- ar eigin persónulega hátt. Fyrir mér er mikilvægi þessarar starfsemi al- gerlega augljós,“ sagði hún. Leggja traust sitt á þingið Málfríður Hrund Einarsdóttir er formaður Hugarafls. Hún segir virka félaga þar vera á bilinu 150 til 200. „Á hverjum degi koma til okkar 40 til 70 manns. Við erum því með mjög stóran hóp fólks sem er að sinna sinni endurhæfingu hjá okkur og þau munu náttúrlega glata því fari svo að við missum húsnæði okk- ar,“ segir Málfríður Hrund í samtali við Morgunblaðið, en að óbreyttu mun Hugarafl missa húsnæði sitt 1. september næstkomandi. Aðspurð segist hún vera ánægð með mætingu á fundinn, yfir 100 manns, en bendir um leið á að fjórir stólar hafi staðið auðir allan tímann. „Þeir voru fráteknir fyrir velferð- arráðuneytið, Embætti landlæknis og heilsugæsluna. Fulltrúum þeirra var boðið að koma og taka þátt í pallborðsumræðum, en enginn þeirra mætti,“ segir Málfríður Hrund. „Þetta eru mjög skýr skila- boð. Það sem blasir við nú er að halda áfram pólitískum þrýstingi og treystum við á velferðarnefnd Al- þingis.“ Húsfyllir var á borgarafundi um stöðu Hugarafls og GET Morgunblaðið/Kristján Fundur Vel var mætt á fund Hugarafls sem haldinn var í Borgartúni í gær. Fjórir stólar stóðu þó auðir, en þeir voru fráteknir fyrir fulltrúa frá velferðarráðuneytinu, Embætti landlæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.  Hugarafl gefur fólki tækifæri til lífs og framtíðar, sagði formaður Unghuga Mús varð til þess að ung kona keypti sér lottómiða í Skeljungi í Hveragerði í ágúst síðastliðnum, sem hún síðan vann 20 milljónir á. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að konan hafi verið á ferðinni í nágrenni Hveragerðis þegar hún fékk símhringingu þar sem hún var beðin um að koma við í næstu verslun sem seldi músagildrur og kaupa eina slíka. Í versluninni heyrði hún fólk ræða risastóran lottópott sem dreginn yrði út um næstu helgi og hún ákvað að koma við í Skeljungi og kaupa lottómiða, en þetta var í fyrsta skiptið sem hún keypti sér einn slíkan. Miðinn reyndist sannkallaður lukkumiði, því hún var ein af fjórum sem skiptu með sér 1. vinningi, sem var rúmar 80 millj- ónir, og varð hlutur ungu kon- unnar því rúmar 20 milljónir. Þrír vinningshafanna gáfu sig fljótlega fram en unga konan gerði það ekki fyrr en nýverið. Í tilkynningunni segir að þegar hún var spurð að því var svarið: „Ég hef bara ekki átt leið í bæ- inn fyrr og var nú eiginlega bara búin að gleyma þessu,“ sagði unga konan sem hyggst nota vinninginn til að kaupa sér hús- næði. Músagang- ur leiddi til vinnings Lottó Músin reyndist sannkallað happamerki fyrir ungu konuna.  Hafði aldrei áður keypt lottómiða Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, er formaður velferðar- nefndar Alþingis. Á fundinum sagði hún geðraskanir vera helstu orsök örorku á Íslandi. „Það er því ljóst að þörfin fyrir vönduð og fjölbreytt úrræði er mjög mikil. Þjónusta GET og Hugarafls er ekki dýr í stóru myndinni og þjónar mjög stórum hópi notenda. Ég mun því halda áfram að hvetja ráðherra til að stíga varlega til jarðar og raska ekki þjónustu fólks sem hefur hjálpað fjölda fólks í gegnum ár- in, fyrr en nýtt úrræði hefur sýnt og sannað að ekki sé þörf á þessu.“ Þá sagðist Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ekki skilja hvers vegna skerða ætti starfsemi Hugarafls og GET. Stigið verði varlega til jarðar VELFERÐARNEFND ALÞINGIS Stefán Jörgen Ágústsson gerva- hönnuður lést á heimili sínu hinn 8. apríl síðastliðinn, 41 árs að aldri. Stefán Jörgen var fæddur í Reykjavík 24. mars árið 1977. Foreldrar hans eru Ágúst Böðvarsson og Þorgerður Niel- sen. Systkini Stef- áns Jörgens eru Ragna Hjördís, Óli Böðvar og Óskar Logi. Stefán lagði stund á hönnunarnám við Iðnskólann í Hafnarfirði á árunum 1993-1995. Þá lærði hann og starfaði undir handleiðslu gervahönnuðarins og óskarsverðlaunahafans Dick Smith og lauk prófi frá bréfaskóla hans árið 1995. Stefán var að miklu leyti sjálfmenntaður en hann sótti og kenndi einnig ótal vinnustofutengd námskeið í listinni hér heima. Þá sótti hann einnig námskeið og vinnustofur í Lundúnum. Þar lærði hann m.a. hárkollugerð, hárvinnu og hárgötun. Stefán gerði mörg þeirra verka sem prýða Sögusafnið. Þá var hann einnig frumhönnuður að persón- unni Glanna glæp í þáttunum um Latabæ. Hann hannaði einnig leik- föng og sparibauka fyrir Latabæ árið 1990. Þá hannaði hann og gerði hand- brúðurnar Búbbana fyrir Stöð 2 árið 2006. Hann vann einnig að gervahönnun fjölda kvikmynda á árunum 1990-2014 bæði hér heima og erlendis. Má þar m.a. nefna mynd- irnar Myrkrahöfð- inginn, Letters from Iwo Jima, Flags of our Fath- ers, A little Trip to Heaven, Mýrin, Köld slóð, Reykjavík Rotterdam, Algjör Sveppi, Leitin að Villa, Wolfman, Roklandi, Djúpið, The Good Heart, Algjör sveppi og töfraskápurinn og Austur fyrir fjall. Stefán hlaut Edduna árið 2011 fyrir gervi ársins í myndinni The Good Heart. Stefán hélt einnig fjölda mynd- listarsýninga. Síðustu sýninguna setti hann upp á vettvangi Hugar- afls haustið 2017 en þangað sótti hann mikinn stuðning vegna erfiðra veikinda sem hann átti við að stríða á síðustu árum. Andlát Stefán Jörgen Ágústsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.