Morgunblaðið - 18.04.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 18.04.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar streymi tókst á flug um miðjan fyrsta áratug aldarinnar og sprakk út árið 2010,“ sagði Chris Baumann, fræðimaður hjá háskólanum í Stokkhólmi, fyrir skemmstu í sam- tali við sænska flugblaðið Scandi- navian Traveller. „Þá breytti það hreinlega lífi fólks,“ bætti hann við. Tímamótin má rekja til þess þegar Netflix setti fyrstu röðina af Spilaborg eða House of Cards í sýningu í heilu lagi. En Baumann Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Eitt kvöldið settist þessiáhorfandi niður við sjón-varpið og naut breskssakamálaþáttar á nor- rænni sjónvarpsstöð. Hann var grípandi og vel gerður, persónu- sköpun og atburðarás listilega und- irbyggð og þegar honum lauk var aðeins eitt að: Bíða þurfti í heila viku eftir framhaldinu. Fyrir nokkrum árum þótti slíkt ekkert tiltökumál. Áratugum saman höfðu heilu fjölskyldurnar safnast saman fyrir framan viðtækin og horft á vinsælar sjónvarpsseríur á því sem nú er kallað „línuleg dag- skrá“, þætti eins og Húsbændur og hjú, Matador, Dallas, Twin Peaks eða Bráðavaktina. Fólk skipulagði líf sitt, matartíma og vinnu, sam- kvæmi og símtöl, út frá sjónvarps- dagskránni til að missa ekki af því sem það vildi sjá. Því ef maður missti af þá missti maður af. Út- sendingin var ekki afturkræf. Allur þessi veruleiki er nú ann- ar, eftir að tímaflakk og ekki síst streymisveitur á borð við Netflix, HBO, Hulu, Amazon og Viaplay fóru að dæla út til heimsbyggðar- innar nýrri þáttaframleiðslu sem fólk neytir í lotum og horfir kannski á 10-20 þætti í röð yfir helgi. Þróunin hefur verið leifturhröð síðasta áratug eða svo. „Sjónvarps- bendir á að sá markaður sem þá leystist úr læðingi eigi sér rætur mun fyrr eða þegar þáttaraðir komu út á VHS-spólum, síðar DVD- pökkum. Þar er upphafsreitur lotu- áhorfsins. Netflix-byltingin Netflix hóf einmitt starfsemi sína árið 1997 sem DVD-leiga og bauð upp á heimsendingu diska í pósti. Stofnandinn, Reed Hastings, komst þó fljótlega að því að þetta virkaði ekki nógu vel og hóf ári síð- ar áskriftarþjónustu. Fyrir fasta upphæð á mánuði gat fólk fengið eins marga DVD-diska og það vildi. Það gekk betur, en um 2010 tók DVD-markaðnum að hnigna. Hast- ings sá að nýir tímar voru í aðsigi: Streymistæknin var komin til sög- unnar. „Til að streyma sjónvarps- efni þurfti háhraðatengingu,“ sagði Hastings í samtali við tímaritið Fortune árið 2009, og þess vegna gat þessi þróun ekki hafist fyrr. Um leið og breiðbandstæknin kom til sögunnar gátum við látið til skar- ar skríða. Innviðirnir voru til stað- ar. Eins og margir muna var fátt um fína drætti í efnisframboði hinn- ar nýju tæknileiðar fyrst í stað. Framleiðsla á eigin efni til að full- nægja eftirspurn þótti of dýr á meðan markaðurinn tók sín fyrstu skref. En fyrirmyndin var til þá þegar: Kapalstöðin HBO frumsýndi árið 1999 mafíuseríuna The Sopran- os sem markaði tímamót í gerð vandaðs sjónvarpsefnis. Áskrif- endum HBO fjölgaði ört og fram- leiðendur og sjónvarpsstöðvar sáu svart á hvítu hversu mikill og vax- andi markaður var fyrir hágæða sjónvarpsefni sem svaraði ekki að- eins sömu kröfum um gæði, útlit og efni og bíómyndirnar heldur jafnvel meiri. Dæmi: The West Wing, Six Feet Under, The Wire. Hið sveigj- anlega form seríanna, lengd og fjöldi þátta, gerði höfundum kleift Heimabíó um allan heim Streymisveitur eru ekki aðeins tæknibylting í sjónvarpsáhorfi. Þær hafa blásið nýju listrænu lífi í gerð leikins efnis um allan heim, kvikmynda- gerðarfólki og áhorf- endum til óblandinnar ánægju og skotið hefð- bundinni bíómyndafram- leiðslu ref fyrir rass. Fólk skipulagði líf sitt, matartíma og vinnu, samkvæmi og símtöl, út frá sjónvarpsdag- skránni til að missa ekki af því sem það vildi sjá. Því ef maður missti af þá missti maður af. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon „Línuleg dagskrá“ Íslensk fjölskylda horfir á Kanasjónvarpið árið 1961. Áratugum saman hafa fjölskyldur safnast saman fyrir framan sjónvarpið og horft á vinsælar sjónvarpsseríur á því sem nú er kallað „línuleg dagskrá“. Blundar listamaður í þér? Ef svarið er já, er kjörið tækifæri fyrir þig að taka þátt í myndasögusamkeppni Borgarbókasafnsins og Myndlista- skólans í Reykjavík sem haldin er í samstarfi við Nexus þetta árið. Þema keppninnar er kynjaverur og þátttakendur mega vera á aldr- inum tíu til tuttugu ára. Hámarks- lengd hverrar sögu er tvö A4-blöð eða eitt A3 og aðferðin er frjáls. Skilafrestur er til mánudagsins 30. apríl. Verðlaun eru í boði fyrir þrjár bestu sögurnar og verða úr- slit tilkynnt kl. 15 laugardaginn 5. maí um leið og opnuð verður sýn- ing í Borgarbókasafninu, Grófinni, á völdum sögum sem berast í keppnina. Sýningin mun standa yf- ir í mánuð. Nexus gefur þremur þátttak- endum teiknisett og -blokkir og fyrstu verðlaun eru teikninámskeið hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Þátttakendur skulu senda myndasöguna sína á Borgar- bókasafnið, Grófinni, Tryggvagötu 15, í umslagi merktu „Kynjaverur“. Borgarbókasafnið og Myndlistaskólinn í Reykjavík Kynjaverur með frjálsri aðferð í myndasögusamkeppni Sýning Skilafrestur er 30. apríl og verða valdar sögur síðar á sýningu í Grófinni. Námskeið í japanskri mosaboltagerð, eða Kokedama, eins og það heitir á frummálinu, verður haldið kl. 21 í kvöld, miðvikudaginn 18. apríl, í sal Garðyrkjufélags Íslands, Síðumúla 1. Námskeiðið er á vegum Álfagarða, sem eru sölu- og dreifningaraðilar á hnoðramottum (Sedum-þökum) frá Hollandi. Kokedama mosaboltagerð þróaðist út frá Bonsai, hinni aldagömlu jap- önsku plöntugerðarlist. Kokedama er þó mun fljótlegra og auðveldara í framkvæmd en Bonsai og er hægt að gera nokkra Kokedama eða mosa- bolta á einu kvöldi. Skráning á Facebook-síðu Álfta- garða: www.facebook.com/ elfgardens. Japönsk plöntugerðarlist Punt Kokedama í mörgum útgáfum. Kokedama mosaboltagerð Kjallarabandið leikur miðviku- djass kl. 21 til miðnættis í kvöld, miðvikudaginn 18. apríl, í Stúdenta- kjallaranum. Liðs- menn munu tvinna litríka samba-ryþma og almenna gleði inn í grámóskulegt há- skólasamfélagið og bjóða alla vel- komna að stíga fram í sviðsljósið og syngja, dansa eða spila á hljóðfæri. Endilega … … hlýðið á miðvikudjass

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.