Morgunblaðið - 18.04.2018, Qupperneq 13
að byggja upp sögur og persónur
sem voru marglaga, dýpri og
áhrifameiri en margar 90 mín-
útna bíómyndir. Listrænt frelsi
varð smám saman meira, til
dæmis varðandi kynlíf, nekt og
ofbeldi. Áhorfendur urðu háðir
efninu og vildu meira og
meira.
Norræna
byltingin
Þessi þróun
náði til Norður-
landanna um miðjan
fyrsta áratug aldar-
innar. Í grein Nyk-
änen Andersson er
haft eftir danska
framleiðandanum Piv
Bernth, sem margir
telja eiga stóran hlut í
þeirri velgengni sem yf-
irmaður leikins efnis
hjá danska ríkissjón-
varpinu, DR: „Góðir
höfundar fengu áhuga á sjónvarpi
vegna þess að þegar maður hefur
10-12 klukkustundir til að skapa
sögu og persónur er hægt að gera
hvort tveggja flóknara.“
Bernth, sem kom að gerð
bæði Forbrydelsen og Borgen,
segir að þegar Sören Sveistrup
skrifaði fyrrnefndu þættina
hafi orðið bylting: Eitt sakamál
og margar persónur fengu svig-
rúm í tuttugu þáttum í stað eins.
„Svo kom Borgen og síðan höfum
við í Danmörku framleitt gæðaefni
sem sýnt hefur verið um allan
heim.“
Hún segir að líkt og bíómynd-
irnar hafi í öndverðu þurft að sanna
sig gagnvart leikhúsinu hafi sjón-
varpið þurft að sanna sig gagnvart
bíómyndunum. Leikið sjónvarpsefni
varð að vinna sér inn gæðastimpil.
Og þar voru handritshöfundar í
lykilstöðu.
„Fyrir DR er mikilvægast að
segja sögur sem enginn annar er að
segja. Þegar allir fara í sömu átt
förum við í aðra. Við þurfum að
vera öðruvísi, segja sögur sem
vekja umræður og spurningar.
Þetta er einn mælikvarðinn sem
DR beitir þegar höfundar kynna
hugmyndir sínar. Og leiðin frá
slíkri kynningu til frumsýningar
getur tekið tvö ár.“
Og hvað svo?
Þótt markaður fyrir leikið
sjónvarpsefni virðist óseðjandi um
þessar mundir eru blikur á lofti.
Framleiðslukostnaður vex, gæða-
kröfur aukast og áhugi áhorfenda
er hvikull og óútreiknanlegur. Að-
stöðumunurinn er töluverður: Net-
flix hefur þannig ákveðið að verja
7-8 milljörðum dollara á þessu ári
til framleiðslu á meðan DR hefur
aðeins 580 milljónir dollara milli
handa í alla dagskrárgerð sína. Til
að mæta nýjum veruleika hefur
Netflix hækkað áskriftarverð og
aflað aukins fjár á hlutabréfamark-
aði en norrænu sjónvarpsstöðv-
arnar bindast samtökum um sam-
eiginlega framleiðslu gæðaefnis.
Piv Bernth telur möguleika á
að toppnum sé náð. „Það verður
alltaf þörf fyrir góðar sögur. En
núna er svo mikið í boði, bæði frá-
bært efni og ekki svo frábært efni.
Það síðarnefnda mun víkja. Þátta-
raðir munu styttast, langhundar
hverfa. Viðmiðunin verður fjórir til
átta þættir. Ástæðan? Fólk hefur
almennt ekki tíma til að horfa á
meira og fjármögnun verður of
þung.“
David Wells, yfirmaður Net-
flix, sagði nýlega á ráðstefnu í New
York, að hin nýja dreifing sjón-
varpsefnis færi fólk í öllum heims-
hornum nær hvert öðru sem aftur
kalli á sögur víðs vegar að, ekki
bara bandarískar eða evrópskar.
Undir þetta tekur Chris Baumann í
Stokkhólmi. Sjónvarpið sameinar
enn á ný. Nú eru það ekki aðeins
fjölskyldur í einu landi sem koma
saman til að horfa á eftirlætis
þáttaröðina sína, heldur fólk í öllum
heiminum. Sjónvarpið streymir
samtímis yfir öll landamæri.
Ekki er langt síðan streymis-
veitur á borð við Netflix, Hulu,
HBO og fleiri fóru að dæla út til
heimsbyggðarinnar nýrri þátta-
framleiðslu sem fólk neytir í lot-
um og horfir kannski á 10 til 20
þætti í röð yfir helgi.
The Wire.
Breaking Bad.
Stranger Things.
The West Wing.
House of Cards.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Stýrðu birtunni heima hjá þér
MYRKVA GLUGGATJÖLD
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is
Garðar landsmanna eru óðum að
taka stakkaskiptum þessa dagana og
garðeigendur margir hverjir alveg í
essinu sínu við að
gera garða sína
sem fegursta.
Einn mikilvægasti
þátturinn í garð-
rækt og skógrækt
er trjáklippingar.
Þegar ráðast er í
slíkar fram-
kvæmdir er ekk-
ert vit í öðru en að
fara að ráðum sérfræðinga. Bókin
Trjáklippingar eftir Stein Kárason
garðyrkjufræðing, sem Garðmeistar-
inn ehf. gefur út, getur þar komið að
góðum notum, en hún hefur nú verið
endurútgefin í þriðja sinn. Í bókinni,
sem er með skýringarmyndum, er
fjallað um klippingu á um 140 al-
gengum trjá- og runnategundum og
fáeinum blómum auk þess sem nefnd
eru um 50 rósaafbrigði sem vænleg
eru til ræktunar hér á landi.
Sérstaklega er fjallað um hvernig
klippa skal epla- og perutré, kirsu-
berja- og plómutré, vínvið, tómata,
gúrkur, melónur og papriku.
Fram kemur að klippi fólk tré og
runna árlega á markvissan hátt náist
betri ræktunarárangur og að hægt sé
að stýra vexti, hæð, blómgun og um-
fangi trjáa og runna með klippingu.
Trjáklippingar eru vandasamt verk en
góður árangur næst með æfingu og
haldgóðri þekkingu á hverri tegund.
Aðalklippingatíminn er að vetri með-
an gróðurinn er í mestri hvíld, enda
er þá hægast að átta sig á vaxtarlag-
inu. En einnig þarf að klippa að vori,
sumri og hausti, allt eftir tegundum
og aðstæðum. Í bókinni er m.a. sér-
kafli um lífrænar varnir gegn mein-
dýrum og drepið á þýðingarmikla
þætti er varða lífræna ræktun.
Vorverkin í garðinum
Allt sem garðeigendur þurfa að
vita um trjárækt og -klippingar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Garðvinna Trjáklippingar eru
vandasamt en gefandi verk.
Ljóðakvöld dauðans verður haldið á
Loft hostel í Bankastræti kl. 20 í
kvöld, miðvikudagskvöldið 18. apríl.
Lesnir verða textar sem fjalla um
dauða, sorgir, einsemd og tilvistar-
vanda. Á milli ljóðalestra kemur fram
Hljómsveit dauðans, sem skipuð er
einhverjum af skáldum kvöldsins auk
Uglu Egilsdóttur. Hljómsveitin flytur
tónlist með textum sem hæfa þem-
anu; sungið verður um dauða, biturð,
hatur, hótanir, svefnleysi, brjálæði og
týpuálag manneskjunnar.
Skáld dauðans eru Bragi Ólafsson,
Atli Sigþórsson, Þórdís Gísladóttir,
Kristín Ómarsdóttir, Hermann Stef-
ánsson og Kristín Svava Tómasdóttir.
Skáld dauðans Skáldin Kristín
Ómarsdóttir og Atli Sigþórsson.
Ljóðakvöld
dauðans
Tilvistarvandi af ýmsum toga
Mörgum þykir gongslökun endurnær-
andi og auk þess hjálpa þeim að öðl-
ast meiri hugarró. Milli kl. 19 og
19.30 í dag, miðvikudaginn 18. apríl,
mun Arnbjörg Kristín jógakennari
leika á gong á Ylströndinni Nauthóls-
vík og því er tilvalið fyrir þá sem vilja
njóta þess að hvíla líkama, huga og
sál við hafið að líta þar við.
Gongslökun
er hugarró
Jógakennari Arnbjörg Kristín
Konráðsdóttir í slökun á ströndinni.
Ylströndin í Nauthólsvík