Morgunblaðið - 18.04.2018, Side 16
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ný súrefnis- og köfnunarefnisverk-
smiðja ÍSAGA, sem Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra, vígði í gær við hátíð-
lega athöfn í Vogum á Vatnsleysu-
strönd, er sú allra nýjasta í hópi um
400 súrefnisverksmiðja þýska risa-
fyrirtækisins Linde Group, eiganda
ÍSAGA, um allan heim. Öllum verk-
smiðjunum 400 er fjarstýrt frá Sví-
þjóð. „Þetta er svipað og ef flugfélag
fjarstýrði öllum flugvélaflotanum frá
sama stað,“ segir Bernd Eulitz
framkvæmdastjóri málefna Evrópu,
Mið-Asíu og Afríku hjá Linde Gro-
up, sem var viðstaddur vígslu verk-
smiðjunnar, í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann segir að fyrirtækið hafi fjar-
stýrt verksmiðjunum síðastliðin 15
ár, með góðum árangri. Hámarks
hagkvæmni náist með þessum hætti,
enda sé mikil sérfræðiþekking til
staðar í stjórnstöð móðurfyrirtæk-
isins.
Margar risastórar verksmiðjur
Þó að nýja verksmiðjan sé stór á
íslenskan mælikvarða, þá eru hún
dvergvaxin við hlið margra annarra í
eigu fyrirtækisins. „Nýja verksmiðj-
an framleiðir 40 tonn á dag af súr-
efni og köfnunarefni, og eingöngu
fyrir íslenska viðskiptavini ÍSAGA.
Verksmiðjan mun hafa um 30%
meiri framleiðslugetu en gamla
verksmiðjan við Breiðhöfða í
Reykjavík, og vegna þessarar auknu
framleiðslugetu munum við getað
minnkað innflutning á efnum, eins
og við höfum þurft að gera undan-
farin ár. Þá er verksmiðjan hönnuð
til að geta tvöfaldast að stærð í fyll-
ingu tímans,“ segir Eulitz.
Til útskýringar segir Eulitz að
Linde Group reki til dæmis verk-
smiðju sem framleiðir um 800 þús-
und tonn á dag. „Annað dæmi er
verksmiðja í Mexíkó sem þjónustar
olíuiðnaðinn, sem framleiðir 50 þús-
und tonn af köfnunarefni á dag. En
það sem er mikilvægt hér á landi er
að verksmiðjan er hönnuð til að
mæta þörfum viðskiptavina okkar.
Við vildum byggja réttu verksmiðj-
una til að mæta þeirra framtíðar-
vexti.“
Viðskiptavinirnir íslensku sem
Eulitz talar um eru í fiskeldi, kísil-
málmvinnslu, kæli- og frystiflutn-
ingum, endurvinnslu áls, heilbrigð-
isþjónustu og hefðbundnum iðnaði.
Hann segir að vonir standi til að
tvöföldun nýju verksmiðjunnar gæti
orðið innan nokkurra ára, samfara
auknum uppgangi í fyrrnefndum
atvinnugreinum. Slík stækkun gæti
kostað um 500 milljónir króna að
hans sögn.
„Ég hef grandskoðað íslenska
markaðinn og íslenskan iðnað síðan
ég kom til landsins fyrir tveimur
dögum, og ég sé að Ísland hefur
mjög áhugaverða vaxtarmöguleika,
og stöðugt umhverfi, auk þess sem
menn eru að fjárfesta hér í ýmsum
geirum. Við sjáum áframhaldandi
vöxt hér á landi, og erum mjög
ánægð með að hafa náð þessum
áfanga. Fjárfesting upp á 2,5 millj-
arða er umtalsverð fyrir þennan iðn-
að hér á landi, og við erum þess full-
viss að fjárfestingin skilar sér í
framtíðarvexti og mun borga sig.“
Læra af fiskeldinu
Hvaða lærdóm getur Linde Group
dregið af íslenska markaðnum?
„ÍSAGA er hluti af þessu stóra
alþjóðlega fyrirtæki, og við deilum
þekkingu og reynslu frá öllum
starfsstöðvum um allan heim, við-
skiptavinum til heilla. Hér er til
dæmis fiskeldi mjög sterkur iðnaður
og margt hægt að læra af því hvern-
ig við þjónustum fiskeldisfyrirtæk-
in,“ segir Eulitz, en hann segir að
súrefni frá ÍSAGA sé til dæmis dælt
inn í eldiskvíar með sérstakri tækni
til að bæta vöxt og heilbrigði
fiskanna í kvínni. Þá sé hægt að nota
köfnunarefni fyrirtækisins á seinni
stigum við að frysta fiskinn. „Þessi
miðlun á þekkingu og reynslu milli
landa er kosturinn við að vera í
stórri fyrirtækjasamsteypu.“
Stórfyrirtækið Linde Group fram-
leiðir margskonar efni um allan
heim, og eitt af þeim er vetni. Eulitz
minnist á nýtt þróunarverkefni
fyrirtækisins í Þýskalandi, en þar
mun fyrirtækið sjá um að knýja 14
nýjar farþegalestar með vetni. Lest-
arnar sem nú er í prófunum þar
ytra, verða þær fyrsta sinnar teg-
undar í heiminum. Blaðamaður spyr,
í ljósi mikillar umræða um rafmagn í
orkuskiptaumræðu samtímans,
hvort að vetnið sé enn jafn sterkt
inni í myndinni og áður sem framtíð-
arorkugjafi. „Við erum að sjá vetn-
issamfélagið í miklum vexti núna.
Við höfum þróað tæknina í meira en
20 ár og nú er þetta komið á gott
skrið. Ég er mjög spenntur yfir
stöðunni, því þetta er framtíðin.“
Hann segir til frekari útskýringar
að vetnið hafi þann góða eiginleika
að hægt sé að þjappa því vel saman
til geymslu, öfugt við rafmagnið,
sem erfiðara sé að geyma í stórum
stíl. „Ef notaðar hefðu verið rafhlöð-
ur í vetnislestina, þá hefðu það þýtt
35 tonn af batteríum. Það hefði ekki
gengið upp. En með vetninu gengur
þetta upp. Samspil vetnis og græns
rafmagns er rétta leiðin fram á við.
30% af rafmagninu sem notað er til
að framleiða vetnið í lestinni er gert
með vindorku.“
Ein 400 fjarstýrðra súrefnis-
verksmiðja Linde Group
Vígsla Nýja verksmiðjan er staðsett við Heiðarholt í Vogum á Vatnsleysu-
strönd. Gamla verksmiðjan að Breiðhöfða 11 í Reykjavík er 40 ára gömul.
Kostaði 2,5 milljarða króna 500 milljónir kostar að tvöfalda verksmiðjuna
Framleiðsla
» Loft er kælt niður fyrir
-200°C til að framleiða köfn-
unarefni og súrefni.
» Verksmiðjan framleiðir
1.200 rúmmetra á klukku-
stund, en notar samt minni
orku en gamla verksmiðjan.
» Eini útblástur verksmiðj-
unnar er lyktarlaus vatns-
gufa.
» ÍSAGA var stofnað árið
1919 í samstarfi við sænska
fyrirtækið AGA.
» Með kaupum á AGA eign-
aðist Linde Group ÍSAGA en
samsteypan er stærsta gas-
fyrirtæki heims í dag með
starfsemi í yfir 100 löndum.
» 28 starfa hjá ÍSAGA.
Morgunblaðið/RAX
Efnaframleiðsla Bernd Eulitz sér
mikil vaxtartækifæri á Íslandi.
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Hagnaður Brim-
borgar dróst
saman um 458
milljónir króna á
milli ára og nam
260 milljónum
króna árið 2017.
Velta félagsins
jókst um 15% á
milli ára og var
20,7 milljarðar.
Árin 2015 og 2016
var vöxturinn 38-39% hvort ár fyrir
sig, að því er fram kemur í ársreikn-
ingi félagsins.
Lagt er til að arður til hluthafa
nemi 20% af hagnaði eða 52 millj-
ónum króna.
Arðsemi eigin fjár var 12% á árinu
og eiginfjárhlutfall var 20% við árs-
lok.
Í ársuppgjöri segir að minni fram-
legð megi að að mestu rekja til nei-
kvæðrar verðþróunar hjá bílaleigu í
eigu Brimborgar, m.a. vegna nei-
kvæðra gengisáhrifa og aukinnar
samkeppni á markaði, sérstaklega í
útleigu bíla en einnig í sölu notaðra
bíla og ýmissar þjónustu.
Árið var mjög gott fyrir Brimborg
á bílamarkaði, segir í uppgjörinu, en
á árinu voru nýskráðir 3.586 bílar af
merkjum Brimborgar sem er 22,4%
vöxtur frá fyrra ári.
Egill Jóhannsson, forstjóri Brim-
borgar, á 27% hlut í fyrirtækinu.
Dregur úr
hagnaði
Brimborgar
Egill
Jóhannsson
18. apríl 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 98.71 99.19 98.95
Sterlingspund 141.36 142.04 141.7
Kanadadalur 78.54 79.0 78.77
Dönsk króna 16.388 16.484 16.436
Norsk króna 12.685 12.759 12.722
Sænsk króna 11.722 11.79 11.756
Svissn. franki 102.56 103.14 102.85
Japanskt jen 0.9215 0.9269 0.9242
SDR 143.74 144.6 144.17
Evra 122.06 122.74 122.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.7705
Hrávöruverð
Gull 1344.4 ($/únsa)
Ál 2358.0 ($/tonn) LME
Hráolía 71.94 ($/fatið) Brent