Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 21

Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 ✝ Lára Valsteins-dóttir fæddist 27. júní 1929 á Þórsnesi í Eyja- firði. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Sunnuhlíð 7. apríl 2018. Foreldrar henn- ar voru Ólöf Tryggvadóttir hús- móðir, f. 29. janúar 1896, d. 26. september 1982, og Valsteinn Jónsson, útvegsbóndi á Þórs- nesi, f. 11. september 1890, d. 8. júní 1974. Lára var sjöunda í röð tíu systkina, systkini hennar eru: 1) Jón Júlíus, f. 13. júlí 1919, d. 13. mars 1920, 2) Jóna Júlía, f. 28. júlí 1920, d. 29. janúar 2005, 3) María, f. 11. ágúst 1921, d. 26. janúar 2017, 4) Jó- hanna, f. 27. janúar 1923, d. 23. ágúst 2016, 5) Birna Friðrika, f. 31. júlí 1924, d. 2. apríl 1942, 6) Hermann, f. 16. desember 1926, d. 18. nóvember 2011, 7) Tryggvi, f. 28. nóvember 1930, 8) Jenný Ólöf, f. 4. janúar 1933, og 9) Haraldur, f. 27. nóvember 1934, d. 14. janúar 2017. þeirra: Róbert Leó, f. 14. mars 2013, c) Stefán Jóhann, f. 27. apríl 1988, sambýliskona Stein- unn Guðmundsdóttir, f. 20. apr- íl 1989, og d) Elín Dröfn, f. 8. september 1990, sambýlismað- ur Hjalti Pálsson, f. 6. júní 1991. 2) Jóhannes Stefán, starfsmaður hjá Toyota, f. 10. desember 1959. 3) Sigurlaug Jóhanna kennari, f. 27. janúar 1963, maki Karl Gauti Hjalta- son alþingismaður, f. 31. maí 1959, börn þeirra: a) Alexand- er, f. 28. janúar 1994, b) Krist- inn, f. 29. janúar 1997, d. 11. apríl 1997, og c) Kristófer, f. 29. janúar 1997. Lára sótti nám utan úr Þórs- nesi í barnaskólann í Glerár- þorpinu á Akureyri og eftir að skólagöngu lauk vann hún á Ljósmyndastofu Eðvarðs Sigur- geirssonar á Akureyri. Lára fór til Reykjavíkur þeg- ar Akureyrarveikin gaus upp haustið 1948 og fyrir sunnan kynntist hún manni sínum Stef- áni og hófu þau fljótlega bú- skap og við tóku húsmóður- störf. Þau bjuggu flest sín búskaparár í Kópavogi eða yfir 50 ár, hann sem bifreiðarstjóri á BSR, en hún vann fyrst hjá ORA, í Álafossi og síðast hjá Efnalauginni Snögg. Útför Láru fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 18. apríl 2018, og hefst athöfnin klukk- an 15. Lára giftist 6. mars 1953 Stefáni Jóhannessyni bif- reiðarstjóra, f. 10. ágúst 1918 á Val- þjófsstöðum í N- Þingeyjarsýslu, d. 18. nóvember 2001. Foreldrar Stefáns voru Sigurlaug Halldórsdóttir, húsfreyja á Einars- stöðum í Núpa- sveit, f. 16. apríl 1892 á Val- þjófsstöðum, d. 31. október 1976, og Jóhannes Kristinn Þorleifsson, bóndi og kennari, f. 4. desember 1891 á Syðstabæ í Svarfaðardal, d. 18. ágúst 1926. Börn þeirra eru: 1) Ólöf hjúkrunarfræðingur, f. 8. júní 1952, maki Jón A. Jóhannsson læknir, f. 13. apríl 1949, börn þeirra: a) Lára Sif, f. 1. maí 1976, maki Ólafur Pétursson, f. 7. febrúar 1972, börn þeirra: Jón Smári, f. 23. maí 1999, Ólöf Rut, f. 23. júlí 2004, og Vikt- oría Fjóla, f. 3. febrúar 2010, b) Sonja Rut, f. 10. júlí 1979, sam- býlismaður Eiríkur Áki Egg- ertsson, f. 14. apríl 1977, barn Elskuleg móðir okkar. Við kveðjum þig með þessu ljóði: Mamma, elsku mamma, man ég augun þín. Í þeim las ég alla, elskuna til mín. Mamma, elsku mamma, man ég þína hönd. Bar hún mig og benti, björt á dýrðarlönd. Mamma, elsku mamma, man ég brosið þitt. Gengu hlýir geislar, gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, mér í huga skín. Bjarmi þinna bæna, blessuð versin þín. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best. Hjartað blíða, heita, hjarta er ég sakna mest. (Sumarliði Halldórsson) Minning þín lifir. Ólöf, Jóhannes og Sigurlaug. Komið er að kveðjustund. Til moldar verður í dag borin tengda- móðir mín, Lára Valsteinsdóttir frá Þórsnesi við Eyjafjörð. Mér er efst í huga þakklæti fyrir ljúfar samverustundir. Lára var fyrst og fremst hús- móðir, það fyrsta sem hún hugs- aði um var að allir fengju eitthvað í svanginn. Þannig var það þegar ég kynntist dóttur þeirra hjóna, að þessi grindhoraði stauli, sem mættur var inn á eldhúsgólfið hjá þeim, yrði að fá vel útilátið á disk- inn sinn. Á því varð ekkert lát, þrátt fyrir að undirritaður hlæði utan á sig eftir því sem árin liðu. Það var alltaf notalegt að koma til þeirra í Skólagerðið og síðar í Lautasmárann og tók hún öllu spaugi tengdasonarins létt og lagði gott eitt til. Sjálf mátti Lára muna tímana tvenna því hún hafði unnið langa vinnudaga við ýmis verkakvenna- störf, ung vann hún í síld á Siglu- firði og síðar í fiski hjá Barðanum í Kópavogi. Síðar rétt um sextugt og með annarri vinnu stóð hún í uppvaski langt fram á nótt í Veit- ingahöllinni. Aldrei kvartaði hún og ef þurfti að mála heimilið var hún byrjuð fyrr en nokkurn varði. Þegar við, upp úr 1980, buðum Stefáni og Láru með okkur í sumarbústað tóku þau því fagn- andi og næstu tuttugu árin fórum við næstum á hverju sumri í þessa árlegu ferð og þau nutu þess í botn. Barnabörnin bættust í hóp- inn og þessar ferðir færðu þeim augljóslega mikla gleði. Lára vildi þó helst sjá um öll verkin og þurfti að bægja henni frá ef aðrir vildu leggja hönd á plóginn. Lára var löngum með hugann við æskuslóðir sínar á Þórsnesi við Akureyri og síðustu misserin var hún oftar en ekki með hugann þar í grænni náttúru við sjóinn, bíðandi eftir föður sínum sem var að sækja björg í bú. Eftir að hafa fengið alvarlegt hjartaáfall fyrir rúmum tíu árum tók heilsu Láru að hraka, en hún naut áfram samvista við sína nán- ustu og ört stækkandi hóp barna- barna og langömmubarna. Ég kveð með þakklæti. Karl Gauti Hjaltason. Mig langar til að minnast með fáum orðum tengdamóður minn- ar, sem lést eftir stutta dvöl á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Hún hafði átt við langvarandi veikindi að stríða um árabil eftir alvarlegt hjartaáfall. Þessi veik- indi skertu mikið lífsgæði hennar, en það var aðdáunarvert að sjá, hversu vel henni tókst að breyta lífi sínu á jákvæðan hátt, þrátt fyrir skert líkamlegt atgervi. Hún fékk mörg ár í viðbót og gat hún því fylgst með fólkinu sínu og séð afkomendur sína vaxa úr grasi. Hún hafði jafnframt mikla ánægju af því að taka þátt í sem flestu með stórfjölskyldunni. Hún var alltaf tilbúin til að taka í spil, jafnt við börn sín og barnabörn og kenna barnabörnum sínum að spila. Hún gat verið hrókur alls fagnaðar á gleðistundum hjá stór- fjölskyldunni. Hún fylgdist vel með dægurmálum og var óhrædd við að taka þátt í umræðum og lá ekki á skoðunum sínum um menn og málefni. Hún hafði yndi af því að ferðast innanlands, en skemmtilegast fannst henni að heimsækja æskuslóðirnar á Þórs- nesi við Eyjafjörð, sem er skammt frá Akureyri og rifja upp gamlar minningar. Hún naut sín vel í árlegum sumarbústaðaferðum með fjöl- skyldum dætra sinni víða um landið og þá var glens og gaman og allir hlökkuðu til þessara ferða ár hvert. Hún var alla tíð heimakær og henni varð að ósk sinni að fá að vera heima hjá sér eins lengi og stætt var með dyggri aðstoð barna sinna. Að leiðarlokum þakka ég sam- fylgdina í áratugi. Blessuð sé minning hennar og megi hún hvíla í friði. Jón Aðalsteinn Jóhannsson. Elsku amma okkar er nú fallin frá. Það eru margar minningarn- ar sem við eigum um þig, þó flest- ar á síðustu árum þegar við bjuggum í bænum. Þú varst virki- lega hress manneskja, alltaf mik- ill hlátur og bros í kringum þig. Við bræður munum vel eftir því þegar við bjuggum í Vestmanna- eyjum og komum í heimsókn upp á land, þá tókst þú alltaf vel á móti okkur með heitum grjónagraut eftir langt ferðalag um land og sjó. Þú passaðir alltaf upp á það að enginn færi svangur frá þér og bauðst upp á allskyns kræsingar. Hjá ömmu var alltaf mikið um spil og munum við bræður eftir að hafa spilað við þig ófá spilin. Við fórum með þér í mörg ferðalög um landið sem enduðu oft með eftirminnilegri bústaðardvöl. Síð- ustu ár voru erfið fyrir þig og von- um við að þér líði vel á nýjum stað. Minningin um þig lifir, elsku amma. Alexander Gautason og Kristófer Gautason. Elskuleg amma okkar er nú fallin frá. Margar skemmtilegar minningar koma upp í huga okkar um ömmu. Lára amma, eins og við kölluðum hana alltaf, var ljúf og góð amma. Það var ætíð mikill samgangur okkar á milli og gam- an að koma til Láru ömmu og spjalla við hana um allt milli him- ins og jarðar. Hún fylgdist vel með því sem var að gerast í kring- um hana og var ætíð áhugasöm um okkar hagi og fjölskyldna okk- ar. Amma var ekki bara einstak- lega ungleg í útliti með sitt þykka og fallega hár, hún var líka ung í anda. Hún var alltaf til í að gera eitthvað með okkur, hvort sem það var að fara út í búð saman, kaffihús, bíltúr, horfa á sjónvarpið eða fara í ferðalag. Alla tíð var mikið spilað á spil heima hjá ömmu og afa og var oft mikið stuð. Þegar við vorum börn var alltaf gaman að gista hjá Láru ömmu því dekrað var við ömmubörnin á allan hátt. Hún hafði líka gaman af því að horfa á sjónvarpið langt fram eftir og það leiddist okkur ekki. Við eigum eftir að sakna Láru ömmu mikið enda er hún bú- in að vera stór hluti af fjölskyld- unni og það var alltaf hægt að skjótast til ömmu í heimsókn þar sem hún tók á móti okkur með bros á vör. Hún var alltaf til stað- ar fyrir okkur. Það hafa verið mikil forréttindi að alast upp og eiga ömmu, hvað þá fram á full- orðinsár. Elsku Lára amma, við kveðjum þig með söknuði en með hjartað fullt af þakklæti fyrir allan tímann sem við áttum saman. Hvíldu í friði, elsku amma. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Megi Guð styrkja og hugga systkinin Ólöfu, Jóhannes og Sillu en missir þeirra er mikill. Þín ömmubörn, Lára Sif, Sonja Rut, Stef- án Jóhann og Elín Dröfn. Elsku besta langamma okkar. Mikið var nú gaman að vera með þér og við munum sakna þess að koma ekki í heimsókn til þín og hlæja með þér. Þú varst svo góð langamma og góð við okkur. Við hugsum til allra samverustund- anna sem við áttum með þér og nú eru það dýrmætar minningar. Nú ertu komin til Stefáns langafa og líður vel og það huggar okkur. Takk fyrir allt, elsku langamma okkar. Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ breið þú blessun þína á barnæskuna mína. (Páll Jónsson) Þín langömmubörn, Jón Smári, Ólöf Rut, Viktoría Fjóla og Róbert Leó. Lára Valsteinsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Minningargreinar Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi, ÁGÚST KAREL KARLSSON, fv. forstjóri og vélstjóri, Bjarmalandi 17, Reykjavík, lést á líknardeild í Kópavogi laugardaginn 14. apríl í faðmi fjölskyldunnar. Unnur Ágústsdóttir Magnús Arnarsson Helgi Þór Ágústsson Elsa M. Finnsdóttir Ármann Eggertsson Unnur Karlsdóttir Úlfur Þ. Ragnarsson Kara Magnúsdóttir Ágúst Karel Magnússon Tinna Magnúsdóttir Arnar Ingi Helgason Rakel Helgadóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN THEODÓRSSON, Boðaþingi 1, Kópavogi, lést sunnudaginn 15. apríl. Þökkum starfsfólki Landspítalans góða aðhlynningu. Kristín H. Þorsteinsdóttir Morten Praem Sigurður Þorsteinsson Guðrún Guðbjörnsdóttir Kolbrún G. Þorsteinsdóttir Sigurður Andrésson Theodóra S. Þorsteinsdóttir Ólafur Viggósson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdarfaðir, afi, langafi og langalangafi, INGIBJÖRN HALLBERTSSON frá Veiðileysu, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn 14. apríl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 26. apríl klukkan 13. Ragnhildur Hafliðadóttir Jóhann Ingibjörnsson Árni Ingibjörnsson Kolbún Kristjánsdóttir Kristmundur Ingibjörnsson Anna Margrét Kristjánsdóttir Sigríður Ingibjörnsdóttir Friðfinnur Skaftason Ólafur Ingibjörnsson Kristín Hrönn Árnadóttir Hlíf Ingibjörnsdóttir Friðgeir Axfjörð barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir, tengdafaðir og afi, ODDGEIR KRISTJÁNSSON, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 13. apríl. Ingibjörg G. Haraldsdóttir Kristján Oddgeirsson Hólmar Freyr Oddgeirsson Heiðar Ingi Oddgeirsson Bryndís Ósk Efetayan Oddgeirsd. Hope Efetayan Kristján Oddgeirsson barnabörn og systkini Ástkær bróðir okkar, ÞRÁINN HLEINAR KRISTJÁNSSON frá Neskoti, Fljótum, lést á hjúkrunarheimilinu Barmahlíð, Reykhólum, þriðjudaginn 17. apríl. Stefanía Kristjánsdóttir Björk Kristjánsdóttir Sigurlaug Jakobsdóttir Lára Kristjánsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og mágkona, GUÐRÚN ERLA INGVADÓTTIR kennari, lést á Landspítala Kópavogi laugardaginn 14. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Heiðar Pétur Guðjónsson Emma Guðrún Heiðarsdóttir Jón Gabríel Lorange Sæunn Sif Heiðarsdóttir Jónína Ingvadóttir Jóhann Hjartarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.