Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 23

Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 23
tektarvert var hversu mikil væntumþykja, vinskapur og virðing ríkti á milli þeirra alla tíð. Þau voru bestu vinir og gengu samstíga í gegnum lífið, hönd í hönd. Hvernig hann passaði upp á Mæju sína og sinnti í veikindum hennar var einnig aðdáunarvert og til eft- irbreytni. Með ótrúlegu æðruleysi nálgaðist hann lífslokin. Hann horfði raunsæjum augum á það sem koma skyldi. Lokaverkefn- ið gekk hann í eins og önnur verk sem þurfti að takast á við. Og með sterkri rödd svaraði hann iðulega að hann hefði það „bara fínt“ þrátt fyrir mikil veikindi og harða baráttu. Hann var ekkert að velta sér upp úr hlutunum. Svona var þetta bara. Sannarlega hefði hann viljað fá meiri tíma með börnum sínum og barnabörnum sem hann var einstaklega ná- inn, bæði mikill vinur og félagi. Þau kölluðu hvert annað „Oll- ana“ sína, Malli og krakkarnir í fjölskyldunni, en það voru ófáar stundirnar sem þau horfðu saman á íþróttaviðburði með af- anum. Og allir höfðu sterkar skoðanir á frammistöðu leik- manna svo og dómgæslu. Þarna áttu allir margar góðar og dýr- mætar samverustundir. Malli sá alltaf til þess að yfir áhorfi væri til einn kaldur á línuna og þannig deildu þau sameiginlegu áhugamáli og skemmtu sér saman. Hann var ekki bara afi þeirra, heldur félagi, vinur og jafningi. Fram til hinsta dags hafði hann skoðun á því sem í kring- um hann var og stýrði því sem hann hafði mátt til. Og í faðmi fjölskyldunnar kvaddi hann okkur öll sem næst honum stóðu með þéttu faðmlagi þrátt fyrir þverrandi mátt með orð- unum „verið góð hvert við ann- að“ rétt eins og hann var við alla aðra. Hann kvaddi sáttur við allt og alla, vitandi það að við tæki annar heimur. Hann vissi af Mæju sinni í ljósinu hinu meg- in. Og með það að leiðarljósi gerði hann okkur hinum auð- veldara að kveðja. Elsku Dúddi minn, Kolla, Lóa og fjölskyldur, missir ykk- ar er mikill en minning um góð- an mann lifir. Með miklum söknuði og þökkum fyrir allt kveð ég elskulegan og einstakan tengdaföður. Hans verður sárt saknað. Hann var góð fyrir- mynd. Kletturinn. Höfðinginn. Fríður María Halldórsdóttir. Nú kveðjum við elsku afa Malla. Hann var okkar allra besti maður og besti vinur okk- ar allra. Þegar við hugsum til baka er gleði, hlátur, virðing og ómæld ást það sem kemur í hugann. Stundirnar þurftu ekki alltaf að vera merkilegar til að vera góð- ar en oft voru þær að sitja og hlæja yfir sjónvarpinu, segja hetjusögur eða öskra á fótbolt- ann. Alltaf var gleðin við völd og sögurnar skrautlegar, hversu sannar þær voru skipti ekki alltaf öllu máli. Þegar við vorum yngri vor- um við fljót að læra að við átt- um griðastað hjá ömmu og afa, það var gott að flýja þangað ef okkur líkaði t.d. ekki matseðill- inn heima. Þegar við urðum eldri breyttist það ekki, við vissum að við áttum alltaf nota- legan stað í stóru góðu þykku höndunum hans afa Malla. Barnabarnabörnin voru einnig fljót að læra að gott væri að koma til langafa Malla, svo átti hann líka alltaf ís í skúffunni. Afi þjálfaði fótboltalið og var það þekkt að andstæðingurinn var stundum hræddur við þenn- an kall á hliðarlínunni sem öskraði allan leikinn, en þekkti ekki faðminn sem tók á móti þegar leik var lokið og stappaði í okkur stálinu, sama hvernig fór. Það var eins almennt í líf- inu, hann gat alveg gefið okkur orð í eyra ef þurfti en við viss- um að það tæki fljótt enda og þá var faðmurinn opinn. Afi var vinamargur enda sá mesti höfðingi sem við þekkj- um. Hann þekkti alla og var vel liðinn, maður fann það að hvert sem hann kom var mikil virðing borin fyrir honum. Minningarn- ar með honum á Reynis- vellinum eru litaðar af því að hann var aðalmaðurinn á svæð- inu og lét vel í sér heyra, sumt misfallegt. Svo átti hann líka alltaf klink í vasanum til að fara með í sjoppuna. Hann var okkur frábær fyr- irmynd og gerði allt sem hann gat fyrir okkur og alla aðra. Hann hafði alltaf mikinn áhuga á að vita hvað við vorum að gera hverju sinni og var dug- legur að fylgjast með. Með til- komu Snapchat sá hann vel hvað við vorum að fást við hverju sinni og fannst honum mjög gaman að geta fylgst með okkur og barnabarnabörnunum þar. Afi var harður Arsenal-mað- ur og vorum við strákarnir svo heppnir að fá að fara með hon- um út á Arsenal-leik. Það var frábær upplifun að sjá hann fara á völlinn í fyrsta skipti og minningarnar úr þeirri ferð eru okkur mjög dýrmætar. Hann var duglegur og kenndi okkur að maður á ekki að geyma til morguns það sem hægt er að gera í dag. Þegar á þurfti að halda var hann mætt- ur með pensla og rúllur til að hjálpa okkur við að mála, enda mikill fagmaður. Það endaði nú oftast þannig að hann málaði allt sjálfur þar sem við vorum yfirleitt bara fyrir. En þó að afi hafi kennt okk- ur margt í gegnum lífið lærðum við kannski mest af honum núna síðustu vikur og daga. Það var ótrúlegt að sjá barátt- una, styrkinn, gleðina og æðru- leysið hjá honum fram á síðustu stundu. Hann var alltaf að hugsa um okkur og lagði okkur reglurnar að vera góð við hvort annað, sem er það mikilvæg- asta. Svo núna kveðjum við þig Olli í síðasta sinn og segjum „Ollivollivoll, túday“. Kristján, María, Marel, Magnþór, Ragnheiður, Markús, Tómas, makar og börn. Hann afi var mikill höfðingi. Og ef dyggðirnar sjö eiga við um einhvern mann sem við þekkjum þá eiga þær við um hann afa. Það fylgdi honum mikill kærleikur, við vorum alltaf velkomin í heimsókn, og ávallt var vel tekið á móti manni með kræsingum og alúð. Hann lét verkin tala og rétt- læti var honum mikilvægt, nema þegar það kom að bin- góinu á ættarmótunum, þá kenndi hann okkur snemma hvernig best væri að svindla pínulítið og fá þannig bestu vinningana. Já, hann var skemmtilegur hann Malli afi, annað verður ekki sagt um hann. Hann var sterkur og hug- rakkur og lokasprettur hans sýndi það sérlega vel hvaða mann hann hafði að geyma. Æðrulaus og hugrakkur horfði hann framan í dauðann og tók á móti þessum örlögum sínum með von, trú og kærleik, en ein af lokaóskum var hans að við stórfjölskyldan stæðum saman og værum góð hvert við annað. Honum var umhugað um okkur og hann vissi hvað fjölskyldan skiptir miklu máli í lífinu. Hann fylgdist með okkur barnabörn- unum í hinum og þessum æv- intýrum og ferðalögum, hvort sem þau voru stutt eða löng, yf- ir götuna, fótboltavöllinn eða fljúgandi yfir hálfan hnöttinn, og þótt það hafi oft verið langt á milli vissum við að við áttum bakland hjá afa. Og eftir langar ævintýraferðir var oft komið við eftir lendingu í Keflavík og sagt frá ævintýrunum undir dýrindis kræsingum. Ef einhver væri með há- skólagráðu í að blóta þá væri það hann afi okkar Malli, við lærðum allavega snemma þá setningu „á ég að lemja ykkur í hausinn?“ sem var auðvitað sögð í ákveðnu gríni, og síðar var það „Helvíti maður“, en enginn sagði það jafnvel og hann, og þá sérstaklega á loka- sprettinum þegar við barna- börnin sátum inni hjá honum eitthvað að grína og kvarta yfir deginum og veginum, þá heyrð- ist frá honum hálfsofandi, „ja helvíti maður!“ og auðvitað sprungu allir úr hlátri. Hann var alltaf svo hress og lífsglaður og gat alltaf komið manni til að hlæja. Eftir að amma dó bar hann höfuðið hátt og hélt áfram sinni lífsgöngu þrátt fyrir mikinn söknuð til hennar. Þau tvö voru svo sannarlega sálufélagar og bestu vinir, og sýndu það í verki hvað sönn ást og væntumþykja væri. Þau voru svo góð hvort við ann- að og hugsuðu svo vel um hvort annað. Þessar síðustu vikur og daga beið hann nú bara eftir að fá að komast til ömmu Mæju, og auðvitað er það yndislegt að hann hafi fengið að fara til hennar. Við hin kveðjum hann á sama tíma með söknuði og sorg. Elsku afi okkar, þín verð- ur sárt saknað. Einar, Maríanna, Hall- dór, Katrín og Magnús Þórðarbörn. Í dag er elskulegur bróðir okkar, Marel, borinn til grafar. Marel var aldrei kallaður annað en Malli bróðir í okkar hópi. Hann var alltaf allra manna hressastur og aldrei lognmolla í kringum hann. Hann var senni- lega sá háværasti í hópnum og er þá mikið sagt. Malli bróðir var duglegur og fylginn sér í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, hvort sem það var að þjálfa börn, atast í garðinum og á heimilinu eða við að aðstoða afkomendur sína. Hann var ákafur knattspyrnuaðdáandi og var Reynismaður í gegn. Nær- vera hans á leikjum leyndi sér aldrei. Hann var líka afar hugul- samur og nærgætinn þegar það átti við, sem kom m.a. fram í því hvernig hann reyndist öldr- uðum tengdaföður sínum og elskulegri eiginkonu sinni Mar- íu í erfiðum veikindum hennar. Að leiðarlokum þökkum við af alhug samfylgdina og biðjum guð að blessa minningu Strandamannsins Malla bróður. Við vottum börnum hans og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Fyrir hönd systkinanna frá Háafelli á Drangsnesi, Bjarni Andrésson. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíl í friði, kæri vinur, með kærri þökk fyrir allt. Karl Ottesen, Sig- urjóna Þórhallsdóttir og fjölskylda. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 ✝ Sigrún ÓlöfSveinsdóttir fæddist á Raufar- höfn 26. september 1930. Hún lést í Reykjavík 5. apríl 2018. Foreldrar henn- ar voru Guðný Þórðardóttir, f. 1899, d. 1993, og Sveinn Guðjóns- son, f. 1885, d. 1973. Systkini hennar eru Sig- urbjörg Sveinsdóttir, f. 1926, d. dísar Þorsteinsdóttur eru Guð- mundur Gíslason, f. 1975, og Helga Sigrún Gísladóttir, f. 1976. 2) Guðný Guðmunds- dóttir, f. 1954, börn hennar og Magnúsar Vals Albertssonar eru Albert Þór Magnússon, f. 1976, Berglind Magnúsdóttir, f. 1979, Sigrún Ýr Magnúsdóttir, f. 1983, og Magnús Árni Magn- ússon, f. 1994. 3) Kristinn Guð- mundsson, f. 1957, börn hans eru Hörður Kristinsson, f. 1977, Gísli Rúnar Kristinsson, f. 1983, Davíð Hafþór Krist- insson, f. 1992, og Eva Dögg Kristinsdóttir, f. 1993. Barna- barnabörnin eru orðin 18. Sigrún Ólöf verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 18. apríl 2018, klukkan 15. 2007, Helga Krist- rún Sveinsdóttir, f. 1928, d. 1935, Andri Páll Sveins- son, f. 1932, og Helga Sveinsdóttir, f. 1936. Maki hennar var Guðmundur Júlíus Gíslason, f. 1930, d. 1983 Börn Sigrúnar og Guðmundar eru: 1) Gísli Guðmundsson, f. 1952, d. 1979, börn hans og Ás- Það ríkti alltaf eftirvænting þegar von var á „frænkunum“ í heimsókn, þær voru svo flottar og fínar systurnar hans pabba, Sigrún og Helga. Og þær komu ekki bara til að tala við full- orðna fólkið, þær breiddu út ástríkan faðminn öllum börnum til handa. Sigrún var blíð, kærleiksrík og afar skemmtileg kona. Hún varð fyrir þungum áföllum á lífsleiðinni en stóð alltaf keik við stýrið í óveðrum lífsins, sannfærð um að fram undan væri bjartara líf. Við hjónin, börnin okkar, tengdabörn og barnabörn minnast ótal skemmtilegra stunda að leið- arlokum. Elsku Guðný, Kiddi og barnabörnin öll, söknuður fyllir nú hjörtu ykkar, en minnist allra gleðistundanna, þær eru dýrmætar og munið að hún lifir alltaf í hjörtum ykkar. Andri og Guðrún. Sigrún Ólöf Sveinsdóttir Mér brá óneitan- lega við þá fregn að gamall vinur og samherji væri lát- inn, skömmu eftir að við höfðum hist, þá reyndar eftir nokkurt hlé í samskiptum. Það eru nánast 40 ár frá því fundum okkar bar fyrst saman. Við höfðum báðir verið í harmonikkunámi hjá Karli Jónatanssyni, þeim mikla hugsjónamanni um að halda merki harmonikkunnar á lofti. Karl fékk þá snilldarhugmynd að stofna félag um þetta magn- aða hljóðfæri, sem á þessum ár- um hafði orðið að lúta í lægra haldi fyrir gítarnum og hljóm- borðinu eða tískustraumum í tónlistarsögunni. Félag harmon- ikkuunnenda í Reykjavík varð að veruleika 8. september 1977, þar sem Bjarni var kosinn for- maður. Bjarni var réttur maður til að bera þann kyndil og koma boðskap þessa töfrahljóðfæris til almennings, enda varð stofnun félagsins til þess að kveikja áhuga um allt land, hvert félagið af öðru var stofnað í ýmsum landshlutum. Samvinna okkar hófst þarna strax í upphafi. Varð undirritaður fljótlega for- maður skemmtinefndar, en hún hafði það hlutverk að fá hina ýmsu harmonikkuleikara til að koma fram og skemmta. Maður líkir þessu oft við byltingu svo magnaðar viðtökur og gleði spratt út af þessu öllu saman. Á sjö fyrstu árum félagsins var Bjarni formaður, á þeim tíma tókst honum að koma á fram- færi með blaðagreinum til hvers var ætlast með félagsstofnun- Bjarni Marteinsson ✝ Bjarni Mar-teinsson fædd- ist 30. desember 1942. Hann lést 20. mars 2018. Útför Bjarna fór fram 6. apríl 2018. inni, gefin var út hljómplata, komið fram í sjónvarpi, við tókum á móti erlendum hljóm- sveitum o.fl. Þessi fyrstu ár skiptu sköpum í uppbygg- ingu þessa fé- lagsskapar. Trú- lega höfðu hin glæsilegu hjón Bjarni og kona hans Guðborg Kristjánsdóttir með það að gera hve vel var eftir okkur tekið. Bjarni Marteins er fyrsti for- maður félags um harmonikkuna þar sem keppst er um að hún haldi velli í tónlistarflóru lands- ins og hefur það svo sannarlega tekist. Ungir sem eldri leika nú stoltir fyrir landslýð við ýmis tækifæri á það sem við getum kallað þjóðarhljóðfærið. Fyrstu árin í sögu félags okkar með Bjarna Marteins í fararbroddi skópu þann stíl sem enn hefur að mestu verið í hávegum hafð- ur varðandi uppbyggingu fé- lagsins. Skemmtifundir og dansleikir héldu fram eftir ár- um uppi blómlegu starfi. Sú starfsemi hófst einmitt á upp- hafsárunum og er enn við lýði. Ég minnist oft góðs samstarfs með Bjarna, hann var sveigj- anlegur en umfram allt metn- aðarfullur fyrir velferð félags- ins. Í nóvember 2017 var haldin stórveisla til að minnast stofn- unar félagsins fyrir 40 árum. Þá voru menn og konur heiðruð og Bjarni Marteins gerður heiðurs- félagi. Hann gat ekki verið við- staddur vegna veikinda en nokkrir félagar heimsóttu þau hjónin á heimili þeirra að Merkinesi og þökkum við Guð- borgu fyrir yndislegar móttökur og gestrisni. Við í félaginu sam- hryggjumst henni og fjölskyld- unni af heilum hug. Fyrir hönd FHUR þakka ég farsælt sam- starf. Megi nafn Bjarna Mar- teins lifa um ókomin ár. Hilmar Hjartarson. Genginn er um Gjallarbrú stórvinur frá menntaskóla, Bjarni Marteinsson arkitekt. Hann kom úr miðbænum, ég úr Kleppsholti. Einhvern veginn æxlaðist það svo að við dróg- umst hvor að öðrum eins og seglar og varð fljótt til vina. Þetta voru góðir dagar við leik, gleði, frelsi og áhyggjuleysi. Bjarni skar sig fljótt nokkuð frá, manni fannst sem hann gæti allt, léttur, kátur, listhneigður og lið- tækur í fimleikum og bolta- íþróttum. Hin sanna hetja af sama meiði og Kjartan, Gunnar á Hlíðarenda, Kári Sölmundar- son og ýmsir aðrir. Vel hagur og fyrir lá framhaldsnám í arkitekt- úr í Noregi. Mín leið var lækn- isfræði og eftir stúdentspróf fer taumurinn að lengjast á milli okkar. Alltaf héldust þó vina- böndin. Kærasta á arminn, síðar barneignir og þessar venjulegu athafnir. Bjarni reyndist svo hinn ágætasti harmonikkuleikari og starfaði um tíma mikið í þeim hópi. Hann var og mikill nátt- úruunnandi og endaði á ættar- óðalinu, eins og ég kallaði það, í Merkinesi, Höfnum. Þar held ég að hann hafi fundið friðinn. Eftir því sem árin liðu hrönnuðust og vandamálin upp. Við félagar tók- um stundum glímur allstórar við áður þekktan grískan skógar- mann sem skellti mönnum oft nokkuð harkalega og illa. Ein- hvern veginn gekk Bjarna verr en mér að kveða Bakkus niður og við það lengdist enn í milli- taumnum. Slitnaði þó aldrei og að leikslokum er hann einn sá al- besti vinur sem ég hef átt. Nú lýk ég þessu með orðum skáldsins. Nú er ég aldinn að árum. Um sig meinin grafa. Senn er sólarlag. Svíður í gömlum sárum. Samt er gaman að hafa lifað svo langan dag. (MS) Guðbrandur Kjartansson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.