Morgunblaðið - 18.04.2018, Side 25

Morgunblaðið - 18.04.2018, Side 25
Eina minningin af dapurlegri stund frá þessum tíma var þegar við höfðum dröslast heim með kettlinga sem við fundum í verk- smiðjunni og amma leyfði okkur ekki að eiga, enda voru þeir víst nokkrir. Amma var langt á undan sinni samtíð með áherslu á hollt mat- aræði. Hún var alltaf með ávexti og grænmeti á borðum og sæl- gæti var sjaldséður lúxus á Mið- brautinni, nema þá helst þegar afi kom í land og dekraði við okk- ur. Amma minntist þess of með mikilli gleði þegar önnur okkar hafði sagt við hana einhvern tím- ann að hún væri hollustuamma en ekki sælgætisamma. Það þótti henni vænt um. Amma undi sér vel á Dalnum okkar og allra best þótti henni að hafa sem flesta í kringum sig. Hún var einstaklega flink að elda góðan, hollan mat og vílaði ekki fyrir sér að halda matnum heitum klukkutímunum saman til að gefa svöngum ferðalöngum gott í gogginn. Við minnumst þess að amma hafi verið nánast allan dag- inn í eldhúsinu þegar margt var um manninn á Dalnum. Amma elskaði svartan húmor og fíflagang og var alltaf til í að taka þátt í gríni og glensi. Þær eru ófáar myndirnar sem eru til af henni í alls konar furðufötum og höfum við fjölskyldan yljað okkur við að skoða þessar myndir eftir andlát hennar. Íslenskt mál og málnotkun var henni mjög of- arlega í huga og eru þau ófá skiptin sem hún góðlátlega leið- rétti okkur þegar við fórum ekki rétt með. Gaman var að hringja í þau afa þegar við vorum í námi og vorum í vafa um málnotkun. Hlusta á þau rökræða, fá leið- beiningar og hugmyndir frá þeim um það sem best var að þeirra mati. Amma hugsaði vel um sjálfa sig og var alltaf vel til fara. Fór aldrei út úr húsi nema vera vel til höfð og með varalit. Hún hafði mjög gaman af því að fara í búðir og kaupa sér eitthvað fallegt. Minnumst við þess þegar afi lá veikur á spítala sumarið 2014, að amma fór ekki til hans á sjúkra- beðinn nema klædd pilsi og á háum hælum, svo langflottust af öllum. Nú eru hún og afi sameinuð á ný sem er gleðiefni því ekki verð- ur annað sagt um þau en að sam- rýmd og samstiga voru þau í sínu hjónabandi alla tíð. Elsku amma okkar, við þökkum fyrir allt sem þú varst okkur, hvíldu í friði. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. (Halldór Jónsson frá Gili.) Þínar Heiðbjört og Margrét Elísa. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Eflingar - stéttarfélags 2018 Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags 2018 verður haldinn á Grand Hótel fimmtudaginn 26. apríl 2018. Fundurinn hefst kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni að Sætúni 1 / Guðrúnartúni 1 Reykjavík frá og með miðvikudeginum 18. apríl nk. Félagar mætið vel og stundvíslega. Stjórn Eflingar - stéttarfélags Aðalfundur Landssambands sumarhúsaeigenda Verður haldinn, mánudaginn 30. apríl í SÍBS-húsinu, Síðumúla 6 , Reykjavík, kl. 20:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Gestur fundarins; Fulltrúi frá nefnd um gróðurelda-brunavarnri í sumarhúsabyggð. Kaffi. Stjórnin. Aðalsafnaðarfundur Aðalsafnaðarfundur Grafarholtsprestakalls verður haldinn í Guðríðarkirkju, fimmtudaginn 3. maí 2018. kl. 18:00. Dagskrá fundarins:  Lögbundin aðalfundarstörf.  Kosning í Kjörnefnd –í stað þeirra sem hætt hafa.  Önnur mál. Íbúar Grafarholts og Úlfarsárdals eru hvattir til að mæta. Sóknarnefnd Fyrirtæki Til sölu bílaleiga Sem sérhæfir sig í útleigu lítilla innréttaðra bíla með svefnaðstöðu. Alls 48 bílar, heimasíða og símanúmer. Góð afkoma og auðvelt að auka við veltuna með fjölgun bíla til að anna vaxandi eftir- spurn. Nú þegar er fjöldi bókana fyrir suma- rið. Sjá nánar á heimasíðunni: snail.is Áhugasamir hafið samband við Björgvin í síma 8920667 eða arsalir@arsalir.is Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 opin vinnustofa kl. 9 og foreldramorgnar eru kl. 10.30. Prjónahópur hittist kl. 13 í sófunum hjá okkur og söngstund við píanóið er kl. 13.45. Hrafn Jökulsson kemur til okkar með bókaspjallið góða kl 15. Hlökkum til að sjá ykkur! Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl.12 og léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl.13 - 16. Stólaleikfimi kl. 13.30. Að því loknu rifjum við upp gamlar ferða- sögur og fáum okkur kaffi og með því. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógar Handavinna með leiðb. kl. 9-16. Smíðastofan er lokuð. Stóladans með Þórey kl. 10. Söngstund með Helgu. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535 2700. Boðinn Handavinnustofa opin frá 9-15. Harmonikkuspil og söngur kl. 13.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30. Leshópur kl. 15. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Myndlist kl. 9-12. Morgunkaffi 10-10.30. Boccia kl. 10.40-11.20. Börn frá leikskólanum Stakkaborg koma í heimsókn kl. 13. Glerlist kl. 13-16. Spiladagur, frjáls spilamennska 12.30-15.50. Opið kaffihús 14.30-15.15. Breiðholtskirkja Eldri borgarastarf í Breiðholtskirkju kl. 13.15. "Maður er manns gaman" kveður veturinn þar sem við syngjum skemmtileg lög, Sigurbjörn Þorkelsson kemur og les fyrir okkur úr bókum sínum og fáum okkur gott með kaffinu. Allir hjartanlega vel- komnir. Bústaðakirkja Í dag ætlum við að kveðja veturinn með stæl og gæða okkur á íslenskri kjötsúpu. Herlegheitin byrja kl 12.30 og kostar 1.500 kr. inn. Félagsstarfið heldur svo áfram eftir hádegismatinn, séra Arnaldur Bárðarson verður með hugleiðingu og bæn og Séra Arna Ýrr Sigurðardóttur heldur erindið, Draumar-spegill sálarinnar. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl.10.20. Boccia kl.13.30. Kaffiveitingar kl.14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband 9-13, handavinna 9-12, tölvu- og snjallsímakennsla fellur niður í dag! Bókband 13-17, frjáls spila- mennska 13-16.30, myndlist 13.30-16.30. Dansleikur með Vitatorgs- bandinu frá 14-15, kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Verið öll velkomin til okkar í dag, síminn er 411 9450. Furugerði 1 Vinnustofa opin frá 10-16. Sitjandi leikfimi og öndunar- æfingar kl. 11. Ganga kl. 13 og Boccia kl. 14. Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512 1501. Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Vatnsleikfimi Sjál. kl. 7.40/15.15. Kvennaleikfimi í Sjál kl. 9.30. Kvennaleikfimi í Ásg. kl. 10.40. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Gerðuberg Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurðurm/ leið- beinanda kl. 9-12. Útskurður / Pappamódel m/leiðb. kl 13-16. Félagsvist kl. 13-16. Leikfimi Helgu Ben kl. 11.15-11.45. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9, handavinna, kl. 9.10 byrjenda-Boccia, kl. 9.30 glerlist, kl. 13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun. Grensáskirkja Samverstund eldri borgara í Grensáskirkju kl. 14- 15.30. Helgistund, fræðsla, skemmtiefni o.fl. Kaffi í lokin. Guðríðarkirkja Félagsstarf eldriborgara í dag kl. 13. Hittumst í kirkjunni kl. 13, sameinumst í bíla og förum í ævintýralega skemmti- ferð í Árbæjarsafn og skoðum gömul hús. Síðan verður komið aftur í Guðríðarkirkju og fengið sér kaffi og með því, kr. 500.- Gullsmári Myndlist kl 9. Ganga kl 10. Postulínsmálun /Kvennabridge /Silfursmíði kl 13. Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, zumbadans og líkamsrækt kl. 9 hjá Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá Ca- rynu. Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall, hádegismatur kl. 11.30. Handavinnuhópur kl. 13, línudans kl. 13.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, upplestrarhópur Soffíu kl. 9.45, ganga kl. 10, línudans með Ingu kl. 10, Zumba dans leikfimi með Auði kl. 13, tálgun í ferskan við með Valdóri kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Upplýsingar í síma 411 2790. Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum og inni í Egilshöll, hópsöngur með Jóhanni Helgasyni kl. 13 í dag. Sumarlögin og upphitun fyrir afmælishátíðina deginum eftir, allir velkomnir. Norðubrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 14, ganga m.starfsmanni kl. 14, bónusbíllinn kl. 14.40, heimildarmyndasýning kl.16. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og handavinnuhópurinn kemur saman kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30–15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568 2586. Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilisins Suðurströnd kl. 9 og 13. Leir, Skólabraut kl. 9. Botsía, Gróttusal kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn, Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna, Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30 stjórnandi Gylfi Gunnarsson. Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Ræðumaður Kjartan Jónsson. Allir velkomnir Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl 20.00. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is ÝmislegtBílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Heima er bezt tímarit - 2. tölublað 2018 Þjóðlegt og fróðlegt www.heimaerbezt.net Til sölu smið? Þú finnur allt á FINNA.IS Vantar þig Eldari Mána, sem þú elskaðir svo mikið. Elsku Breki okkar, við eigum öll eftir að sakna þín mikið. Þú átt stóran hluta af hjörtum okk- ar, við hugsum til þín með hlýju, elsku vinur og frændi. Það var alltaf svo yndislegt þegar við hittumst að þú heilsaðir alltaf með faðmlagi og kvaddir líka með fallegum orðum. Við elskum þig og vitum að það verður tekið vel á móti þér, elsku strákurinn okkar. Guð varðveiti þig og elsku Hauk bróð- ur þinn, þið voruð yndislegir. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar elsku fjölskylda, Addi, Dóra, Eldar Máni, Helga Brá, Þórunn Dögg og fjölskyldur. Áslaug og Grétar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.