Morgunblaðið - 18.04.2018, Síða 27
fararstjórn í Landinu helga. Hann
hefur barist fyrir forgangi mann-
réttinda, fram yfir trúarlegar
kreddur, hefur talað fyrir kven-
réttindum, réttindum samkyn-
hneigðra og umhverfisvernd.
Hann hefur ritað fjölda greina og
tjáð sig víða opinberlega um þau
mál: „Eftir dvöl mína í Jerúsalem
þar sem trúarbrögðin mætast og
svo margir telja sig eina hafa
höndlað allan sannleikann, varð
mér ljóst að okkar æðri máttur
nær einungis að verka þar sem
umburðarlyndi og víðsýni ríkir.
Guð sjálfan er ekki að finna í
neinni trúarjátningu, kirkjuhefð
eða trúarbrögðum. Sjálfur Jesús
setti manngildið ofar allri lögmáls-
eða bókstafshyggju. Aðeins í
þeirri fögru nálgun er ljósið að
finna.“
Hjörtur var kjörinn maður árs-
ins á Suðurnesjum, m.a. af Víkur-
fréttum, fyrir framúrskarandi
prestsstörf víða á Reykjanesskag-
anum 1991.
Fjölskylda
Kona Hjartar Magna er Ebba
Margrét Magnúsdóttir, f. 13.12.
1967, fæðingar- og kvensjúkdóma-
læknir og formaður læknaráðs
Landspítalans. Foreldrar hennar
eru hjónin Magnús Lárusson og
Svanhildur Gunnarsdóttir.
Sonur Hjartar Magna frá fyrra
hjónbandi og Guðlaugar Þráins-
dóttur er Aron Þór Hjartarson, f.
7.10. 1986, MSc í rafmagnsverk-
fræði, búsettur í Zürich.
Börn Hjartar Magna og Ebbu
Margrétar eru: 1) Ágústa Ebba
Hjartardóttir, f. 8.7. 1991, að ljúka
námi í læknisfræði; 2) Magnús Jó-
hann Hjartarson, f. 21.4. 1998, að
ljúka námi við VÍ og margfaldur
unglingameistari í borðtennis, og
Rut Rebekka Hjartardóttir, f.
13.3. 2004, nemi og hefur leikið,
sungið og dansað í leiksýningunum
Billy Elliot og Bláa hnettinum í
Borgarleikhúsinu.
Systkini Hjartar Magna eru
Bjarnfríður, f. 16.2. 1946, sjúkra-
liði í Garðabæ; Jóhann G., f. 24.11.
1948, fyrrv. forstöðumaður
Útlendingastofnunar, búsettur í
Garðabæ; Málfríður, f. 16.9. 1956,
fóstra og kennari.
Foreldrar Hjartar Magna voru
hjónin Sigríður Jónsdóttir, f.
25.10. 1924, d. 20.3. 2010, hús-
freyja í Keflavík, og Jóhann
Hjartarson, f. 30.1. 1921, fyrrv.
trésmíðameistari.
Hjörtur
Magni
Jóhannsson
Ágústa Sigurjónsdóttir
húsfr. í Keflavík
Jón Sigurðsson
verkam. í Keflavík Sigríður Bjarnadóttir
húsfr. í Þórukoti
Sigurður Jónsson
b. í Þórukoti í Njarðvík, sonur Jóns
Sigurðssonar alþm. í Tandraseli á Mýrum
Guðrún Lilly
Steingrímsdóttir
húsfr. í Keflavík
Ísleifur Jónsson
útfararstj. í Rvík
Gunnhildur
Sigurjóns
dóttir húsfr.
í Rvík
Björgvin
Halldórsson
söngvari
Halldór Baldvinsson
stýrim. í Hafnarfirði
Helga Jónsdóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Jóhanna Arnbjarnar
dóttir húsfr. í Rvík
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. í Keflavík
Ólafur Stephensen
framkv.stj. FA
Þóra
Daníelsdóttir
Stephensen
húsfr. í Rvík
Þórir Ó. Stephensen
fyrrv. dómkirkjupr. og
staðarhaldari í Viðey
Daníel
Arnbjarnarson
b. og sjóm. á
Stokkseyri
Málfríður Magnúsdóttir
húsfr. og kirkjuvörður Fríkirkjunnar í Rvík í þrjá áratugi
Jens Johnson
frá Danmörku
Magnea Jensdóttir
húsfr. í Keflavík
Hjörtur Þorkelsson
sjóm. í Hlíðarhúsum á Akranesi,
síðar netagerðarm. í Keflavík
Jórunn Guðrún Oddsdóttir
heilari og miðill á Selfossi
Oddur Halldór Ólafsson
b. í Prestshúsum í Kjós
Jórunn Helgadóttir
húsfr. á Fellsenda í
Miðdal í Dölum
Þorkell Sigurðsson
lengst af búsettur í Kanada
Úr frændgarði Hjartar Magna Jóhannssonar
Jóhann Hjartarson
húsgagna og
húsasmíðam.
í Keflavík og
umsjónarm. í Rvík
Karl
Steinar
Guðna
son
kennari
og alþm.
Keflavíkí
Edda Rós
Karls
dóttir
hagfræð
ingur og
sérfr. hjá
Alþjóða
gjald
eyris
sjóðnum
í Wash
ington
DC Gunnar
Guðna
son
verkam.
við
Kefla
víkur
flugvöll
Guðni
Gunnars
son
lífsráð
gjafi
Karó
lína
Krist
jáns
dóttir
húsfr. í
Kefla
vík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Keflavík, frá
Akri í Njarðvík
Sigurjón Arnbjörnsson
sjóm. í Keflavík, systursonur Gísla í Steinskoti, langafa Þorsteins
Gíslasonar fiskimálastj. og Eggerts Þorsteinssonar ráðherra, og
bróðursonur Jóhanns, langafa Egils Ólafssonar söngvara og leikara
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
Bragð af
vináttu
• Hágæða gæludýrafóður
framleitt í Þýskalandi
• Bragðgott og auðmeltanlegt
• Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna
Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi.
Magnús Kristjánsson fæddistá Akureyri 18.4. 1862, son-ur Kristjáns Magnús-
sonar, húsmanns þar, og k.h., Krist-
ínar Bjarnadóttur.
Eiginkona Magnúsar var Dóm-
hildur Jóhannesdóttir húsfreyja og
eignuðust þau Magnús og Dómhild-
ur sex börn.
Magnús nam beykisiðn á Akur-
eyri og síðar í Kaupmannahöfn á ár-
unum 1878-82 og lauk prófi í þeirri
grein í Kaupmannahöfn. Hann sinnti
verslunarstörfum á Akureyri 1882-
93, setti þá sjálfur á fót verslun og
sjávarútgerð þar og starfrækti hvort
tveggja til 1917, jafnframt því sem
hann var afgreiðslumaður Eim-
skipafélagsins á árunum 1914-20.
Magnús var skipaður yfirfiskmats-
maður á Akureyri 1913, var forstjóri
Landsverslunarinnar 1918-27 og
starfrækti jafnframt útgerð í
Reykjavík frá 1924.
Magnús var skipaður fjármála-
ráðherra í ríkisstjórn Tryggva Þór-
hallssonar 1927, en það var fyrsta
ríkisstjórn Framsóknarflokksins og
í raun fyrsta „vinstristjórnin“ hér á
landi. Magnús sat í stjórninni, ásamt
Tryggva og Jónasi frá Hriflu. Hann
gegndi embætti fjármálaráðherra til
æviloka.
Magnús var alþm. Akureyringa
1905-1908 og 1913-23 og landskjör-
inn alþm. 1926-28. Hann var forseti
sameinaðs þings 1922 og 1923.
Framan af sat hann á þingi fyrir
Heimastjórnarflokkinn en gekk í
Framsóknarflokkinn við stofnun
hans, varð einn af forystumönnum
flokksins og var formaður mið-
stjórnar frá 1926. Hann sat í bæjar-
stjórn Akureyrar 1902-1905, 1908-11
og 1913-18 og átti sæti í bankaráði
Íslandsbanka frá 1927.
Um Magnús segir Magnús Storm-
ur í riti sínu, Ráðherrum Íslands:
„Magnús var greindur maður og
merkur um margt, fylginn sér og
sjálfstæður í skoðunum. Hann var
málstirður og fremur lítill fyrir
mann að sjá en reyndist meiri fyrir
sér en ætla mætti við fyrstu sýn.“
Magnús lést 8.12. 1928.
Merkir Íslendingar
Magnús Kristjánsson
104 ára
Guðný Baldvinsdóttir
90 ára
Salbjörg H.G. Norðdahl
85 ára
Sigurður Bjarni
Jóhannesson
80 ára
Ásdís Kvaran
Þorvaldsdóttir
Eyjólfur G. Jónsson
Kjell Folke Ingemar Friberg
Ólafur Ármannsson
Sigurður Þór Ólafsson
Þuríður Antonsdóttir
75 ára
Ólafur Kristófersson
70 ára
Alda Traustadóttir
Guðfinna Jónsdóttir
Helga Magnúsdóttir
Katrín Albertsdóttir
Marta G.
Sigurðardóttir
Pétur Kristinsson
Sólveig Stefánsson
60 ára
Bryndís Bjarnadóttir
Hálfdán Sigurður Helgason
Hjalti Njálsson
Hjörtur Magni Jóhannsson
Ína Traube
Óskar Tryggvi
Gunnarsson
Páll Kári Pálsson
Randver Þ. Randversson
Rúnar Antonsson
Sigurjóna H.
Guðmundsdóttir
Valgerður Þ. E
Guðjónsdóttir
Wojciech Stanislaw
Piotrowski
Þórarinn Ingólfsson
Þórarinn Már Þórarinsson
50 ára
Arnbjörn Elfar Elíasson
Ágústa L. Kristjánsdóttir
Einar Bjarki Sigurjónsson
Kristjón Grétarsson
Soffía Valdimarsdóttir
40 ára
Björn Ásbjörnsson
Dariusz Czyzynski
Dögg Stefánsdóttir
Halldór Guðnason
Hrönn Ívarsdóttir
Ingibjörg Á.
Halldórsdóttir
Jurgita Navickiene
Kristijan Mjertan
Mikael Sindri Guðnason
Piotr Marek Kozuch
Rakel Breiðfjörð Pálsdóttir
Rúnar Guðnason
Sólveig Rolfsdóttir
Steinþór Jakobsson
Valdís M. Gunnlaugsdóttir
Zoran Palangetic
Þór Sigurðsson
30 ára
Bjartur Viðarsson
Eleanor May Crawley
Elísa Örk E. Wellings
Guðbjörg Perla Jónsdóttir
Hallveig Karlsdóttir
Hlynur Kristjánsson
Hörður Már Kolbeinsson
Ingvi Smári Hrafnsson
Kamil Konrad Kozlowski
Katrín Melkorka Hlynsdóttir
Kristinn Gunnarsson
Margrét R. Þórarinsdóttir
Monica Carol Tumusiime
Sigrún Baldursdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Þóra Kristín býr í
Reykjavík, er að ljúka ML-
prófi í lögfræði og hefur
verið hárgreiðslukona,
lögreglumaður og flug-
freyja.
Maki: Davíð Gunnarsson,
f. 1982, prentsmiður.
Foreldrar: Sigurður Rún-
ar Ragnarsson, f. 1951,
sóknarpr. í Neskaupstað,
og Ragnheiður Kristín
Hall, f. 1955, skrifstofu-
maður hjá Síldar-
vinnslunni.
Þóra Kristín
Sigurðardóttir
30 ára Salka ólst upp í
Kópavogi, býr í Reykjavík,
var í Suzukiskólanum,
lauk BA-prófi í leiklist fyrir
hljóðfæraleikara frá Rose
Bruford í London og er
rappari, tónlistarkona og
dagskrárgerðarmaður.
Maki: Arnar Freyr Frosta-
son, f. 1988, rappari og
viðskiptafræðingur.
Foreldrar: Guðbjörg Lóa
Ólafsdóttir, f. 1964, og
Hjálmar Hjálmarsson, f.
1963.
Salka Sól
Eyfeld
30 ára Karen býr í
Reykjavík, lauk prófi í við-
skiptafræði frá HÍ og
starfar hjá Arion banka.
Maki: Hafsteinn Unnar
Hallsson, f. 1988, verk-
stjóri hjá Sorpu.
Börn: Heiða Sól og
Nökkvi Reyr Hafsteins-
börn, f. 2016.
Foreldrar: Heiðar Frið-
jónsson, f. 1964, löggiltur
fasteignasali, og Bryndís
Kristín Kristinsdóttir, f.
1964, leikskólakennari.
Karen
Heiðarsdóttir