Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 29

Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði. Frá og með 1. apríl 2018 tók Fastus alfarið yfir umboðið fyrir Figgjo á Íslandi. Af því tilefni bíður Fastus 20% afs 20% AFSLÁTTUR Í APRÍL FIGGJO BORÐBÚNAÐUR látt af öllum Figgjo vörum út apríl. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur margvíslega hæfileika og átt auðvelt með að gera margt í einu. Jafnframt áttu gott með að gera hæfileika þína og kunn- áttu að tekjulindum. 20. apríl - 20. maí  Naut Hálfnað er verk þá hafið er. Hafðu þetta hugfast þegar þú ráðstafar tíma þínum. En ef þú gefur þér góðan tíma ættir þú að finna bestu lausnina á vandamálum þínum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki dagdrauma spilla fyrir ár- angri þínum í dag. Ef eitthvað vex þér í augum skaltu ýta því frá þér og koma að því síðar því þá hefurðu öðlast nýja og betri sýn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er ýmislegt sem þig langar til þess að kanna og þú ættir að athuga möguleikana á að láta það eftir þér. Hamingjan helst í hendur við nýjar upplifanir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Samræður við vini öðlast aukið mikilvægi á næstu vikum. Gættu þess bara að framkoma þín skapi ekki óþarfa andstöðu við sjónarmið þín. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Betri er krókur en kelda og þess vegna skaltu taka þér allan þann tíma sem þú þarft til þess að ganga frá hlutunum. Samræður við yfirboðara af einhverju tagi gætu skipt máli. 23. sept. - 22. okt.  Vog Láttu fara lítið fyrir þér í dag, því öll óþarfa athygli fer illa í þig. Sýndu sveigjanleika þegar allir virðast vilja breyta öllu í kringum þig. Mundu að kurteisi kostar ekkert. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þetta gæti orðið eitthvað skrýtinn dagur í vinnunni því fólk er langt frá því að vera samvinnuþýtt. Gættu þín, þú gætir skotið þeim sem þekkja þig ekki vel skelk í bringu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er rangt að reyna að þröngva fram breytingum sem þú vilt berjast fyrir. Margar lausnir virðast vera fyrir hendi en flýttu þér hægt því aðeins ein er rétt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hefur einstaka einbeitingu og þegar þú íhugar gerast ótrúlegir hlutir. Vertu raunsæ og varastu að láta óskhyggjuna taka öll völd. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú átt auðvelt með að sjá í gegnum aðra en vertu sanngjarn því aðrir geta líka séð í gegnum þig. Ekki útiloka þá sem eru á önd- verðum meiði. 19. feb. - 20. mars Fiskar Forðastu að hrekja aðra út í horn þar sem lygin er eina björgun þeirra. Það tekur á taugarnar þegar þeir sem manni eru kærir sýna þrjósku og afneita staðreyndum. Hallmundur Guðmundsson yrkir„Reynsluljóð“ á Boðnarmiði: Hann orðbragðið setti í sáldið þá sjatnaði bullið nú dáldið. Þess þurfti víst með því það hafði skeð að kjaftæði skáldaði skáldið. Hér koma „Stefjamál“, fallegar braghendur eftir Gunnar J. Straumland: Ef vaknar þú á vondum stað í veröldinni, finndu þína sól í sinni, sálarbirtan er þar inni. Glitrandi í gráum skýjum geymist forð- inn, lífsins vatn svo lifnar storðin líkt og þegar vakna orðin er finna má í fylgsnum huga og fögur ljóma og staldra við er stuðlar hljóma. Stefjamál í fossum óma. Kötturinn Jósefína Meulengracht Dietrich lætur fara vel um sig: Önnum kafin er í dag, enda bíður mikið starf. Ég geng í það með glæsibrag að geispa og lúra eins og þarf. Pétur Stefánsson orti: Á mig svífur áfengið, innvortis mér hlýnar. Alltaf svona við og við væti ég kverkar mínar. Reir frá Drangsnesi bætti við að bragði: Mest af öllu metur hann mildan lýsis sopa – nammi bragð að nýju fann nýbúinn að ropa. Hallmundur Kristinsson segir að þetta sé „að líkindum aðeins eitt er- indi úr löngum bálki, sem aldrei hefur verið ortur“: Mennirnir hafa um aldir og ár útilokunum beitt örvasa ræfla með titrandi tár sem tilbiðja alls ekki neitt. „Stríðsríma 1914“ eftir Hesiodus byrjar svo: Nú er margur horskur haus horfinn í dauðans móðu: andskotinn er orðinn laus, ekki er von á góðu. Og lýkur svo: Vonum allir vargöld stáls verði endir fundinn, í hinstu myrkrum heljar áls herdjöfullinn bundinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af kjaftæði, sálar- birtu og ketti „HVAÐ HEFUR HANN VERIÐ LENGI ÞARNA ÚTI?“ „ÞÚ HLÝTUR AÐ HAFA LÁTIÐ HANA BLOTNA!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... ekki allt saman, heldur það eina. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann SLURP MÚHAHAHAHAHA! HANN SKIPTI Í DÖKKAR KAFFI BAUNIR. ÞVÍLÍK ILLSKA. Í DAG ER DAGURINN! NÚ HÆTTI ÉG AÐ VERA GÓÐI GÆINN! ÞÚ ÞARFT AÐ SINNA HÚSVERKUNUM! ÞÚ LOFAÐIR AÐ HÆTTA AÐ DROLLA! ÉG HÆTTI ÞVÍ! NÚ ER ÉG AÐ ÍHUGA HVAÐ BEST SÉ AÐ GERA! Víkverji heimsótti um helginahraunsetrið á Hvolsvelli. Hann var ekki viss um við hverju hann ætti að búast en getur ekki annað sagt en að safnið hafi komið honum skemmti- lega á óvart. Í safninu er fjallað um jarðsögu Íslands með sérstakri áherslu á eldvirkni og jarðskjálfta. Sérlega vel hefur tekist að gæða efn- ið lífi. Gagnvirkni er lykilorðið og áhersla er á myndræna framsetn- ingu. Reynt er að virkja sem flest skilningarvit. Gólfið leikur á reiði- skjálfi og gengur á með drunum. Hægt er að sjá hvernig Ísland varð til og á skjáum má síðan lesa um hin ýmsu afbrigði gosa og sjá síðan með því að draga fingur eftir skjá hvernig þau eiga sér stað. Í einu herberginu er líkan af kvikurásinni sem liggur frá möttli jarðar upp að Íslandi. Þetta er nokkuð sláandi, ef ekki ógn- vekjandi sjón. Ísland er eins og kork- tappi ofan á þessari voldugu kviku- rás og virðist sáralítið þurfa til að hann skjótist upp úr stútnum þannig að það er eins gott að spenna beltin. x x x Eina athugasemd Víkverja viðhraunsetrið er nafngiftin. Setrið heitir sem sagt Lava Center. Því miður eru nafngiftir á ensku ekki einsdæmi á öld ferðamennskunnar. Nægir að nefna Icelandair og Air Iceland Connect. Það er þó engin málsvörn. x x x Sólarupprás er nú rétt fyrir klukk-an sex í höfuðborginni en upp úr fimm á Djúpavogi. Hún sest um klukkan níu í höfuðborginni en upp úr hálfníu á Djúpavogi. Ef farið yrði að vilja þeirra sem vilja flýta klukk- unni væri sólarupprás klukkustundu fyrr á þessum árstíma. Það myndi litlu breyta fyrir flesta, þar sem þeir eru sofandi. Hins vegar væri farið að dimma klukkustundu fyrr og flestir fyndu fyrir því. x x x Það fer ekkert á milli mála. Sum-arið nálgast. Blóm gægjast upp úr mold og græn grös upp úr grænni sinu. Sumardagurinn fyrsti er á morgun. Víkverji er þó ekki kominn í stuttbuxurnar. vikverji@mbl.is Víkverji Því að af náð eruð þið hólpin orðin fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka. Það er Guðs gjöf. (Efesusbréfið 2.8)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.