Morgunblaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Kór Neskirkju kemur fram á tón- leikum í Kristskirkju í kvöld, mið- vikudag, klukkan 20. Þar frumflytur kórinn nýtt verk í tólf þáttum eftir stjórnandann, Steingrím Þórhalls- son. Verkið kallar hann Harpa kveð- ur dyra - Tólf blik og tónar og er það samið við tólf ljóð eftir Snorra Hjartarson. Flutningur hvers þáttar hefst á ljóðalestri Gunnars Þor- steinssonar, þýðanda og þular. Steingrímur segir einn kórfélag- ann, sem lengi hefur haldið fram skáldskap Snorra, hafa fyrir löngu stungið að sér þeirri hugmynd að semja lög við einhver ljóðanna. „Ég náði mér loksins í safnbók með ljóð- um Snorra, fór að lesa í haust og þá hreinlega streymdu lögin fram,“ segir hann. „Ég ætlaði fyrst bara að semja eitt kórlag en allt í einu voru þau orðin sjö og grunnur kominn að enn fleirum! Ég vinn alltaf þannig að ég sem lög og fæ kórnum þau strax á næstu æfingu, og stundum samdægurs því ég á til að vinna hratt,“ segir hann og brosir. „Svo kom sú hugmynd að rétt eins og grísku ljóðin þá ætti þetta að vera verk í tólf þáttum og með það í huga settist ég aftur við í janúar og samdi restina. Ég henti þá nokkrum – ætli ég hafi ekki byrjað á sextán eða sautján lögum en þau urðu tólf. Ég fór þá líka að sjá þetta fyrir mér sem heila tónleika, þessi tólf augnablik og tóna, sem vísað er til í titlinum, og yfirskriftin er síðan „Harpa kveður dyra“, sem er heiti síðasta ljóðsins og vísar til árstím- ans þegar sumarið er nú að koma.“ Hyggjast gefa út á nótum Steingrímur segir kórinn hafa fengið endanlegar nótur að verkinu fyrir tveimur vikum og síðan hafa verið stífar æfingar. Þetta sé ekki atvinnumannakór en samt gerir hann ríkulegar kröfur til hans og segir kórinn mjög þéttan og góðan. „Kórinn hefur frá upphafi verið með í þessu verkefni á skemmtilegan hátt, þetta hefur verið mjög lífrænt hjá okkur. Tónskáldið getur líka alltaf breytt hlutum á staðnum ef þarf. Nú höfum við sett þetta saman í nótnahefti og vonandi getum við, með hjálp góðra aðila, gefið þetta út á næsta ári.“ Í ljóðum Snorra Hjartarsonar eru miklar náttúrustemningar og marg- víslegir litir í ljóðmálinu. Stein- grímur segist taka mið af því. „Ég lít á ljóðin hans sem hálfgerð málverk. Þetta eru oft myndir og stemningar, og gífurlega miklar og djúpar tilfinningar sem ég tengi beint við. Oft mikil birta.“ Hann bætir við að lögin við ljóðin séu mis- erfið en hann nýti kórinn til hins ýtr- asta, tvískipti honum oft og þá myndist „mjög þykkur vefur sem lit- ar stemninguna. Sumt af þessu er nú með því erf- iðasta hljómfræðilega sem kórinn hefur gert síðan ég tók við honum,“ segir hann. Þess má geta að Stein- grímur hefur stjórnað Kór Nes- kirkju í nær fimtán ár og eru um sextíu söngvarar í kórnum. Til Þýskalands í sumar Þegar spurt er hvort það sé ekki lúxus fyrir tónskáld að hafa heilan kór sem hljóðfæri að æfa sig með, segir Steingrímur það vissulega rétt. „Nú eru um sex ár síðan kórinn fór reglubundið að takast á við nýrri verk sem reyna meira á, til að mynda með því að tvískipta rödd- unum, og ég hef laumað að þeim mörgum verkum – sem þeim finnast sum skemmtilegri en önnur.“ Kór Neskirkju er á leið í tónleika- ferð til Þýskalands í júní og heldur ferna tónleika. Kórfélagarnir völdu efnisskrána sjálfir og þar á meðal eru nokkur lög eftir Steingrím. Nýtt hljómsveitarverk í maí Steingrímur hefur auðheyrilega verið upptekinn við að semja ný verk því 13. maí mun Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna frumflytja eftir hann nýtt hljómsveitarverk, fyrir kór, einsöng, drengjakór, og hljómsveit við ljóð Huldu, Unnar B. Bjarklind. „Verkið heitir Hulda og er samið við tvö ljóð hennar, „Segðu af móður minni“ og Ljáðu mér vængi“. Ég er að norðan og finnst að þar mætti gefa gömlum sem nýjum listamönnum meira pláss en gert er, og hvað þá þegar um er að ræða merka konu eins og Huldu, sem var að semja sín góðu ljóð á fyrri hluta 20. aldar, þegar konur áttu að vera að gera allt annað en að vera í ein- hverju listabrasi. Þetta verk er óður til kvenna sem voru að berjast í slíku. Ég tileinka verkið líka þeim konum sem hafa haft mest áhrif á mig,“ segir Steingrímur. „Miklar og djúpar tilfinningar“  Kór Neskirkju frumflytur á tónleikum í Kristskirkju í kvöld nýtt kórverk í tólf þáttum eftir Stein- grím Þórhallsson, stjórnanda kórsins  Steingrímur segir lögin hreinlega hafa streymt fram Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hörpuljóð Kór Neskirkju æfði í Kristskirkju í gær undir stjórn tónskáldsins, Steingríms Þórhallssonar, nýtt verk hans við ljóð Snorra Hjartarsonar. Hinn þrítugi bandaríski rapp- tónlistarmaður Kendrick Lamar hreppir Pulitzer-verðlaunin fyrir tónlist í ár. Valið á fjórðu plötu Lamar, „Damn“, vakti hvað mesta athygli þegar tilkynnt var í fyrra- kvöld hverjir hlytu hin virtu verð- laun sem veitt eru árlega í Banda- ríkjunum fyrir blaða- og fréttamennsku og listsköpun af ýmsu tagi. Þetta er í fyrsta skipti sem Pulitzer-verðlaunin fyrir tón- list falla ekki í skaut tónlistarmanni eða tónskáldi á sviði djass eða klassíkur. Plata Lamars fór á topinn þegar hún kom út vestanhafs og vakti at- hygli fyrir tök hans á persónu- legum sem pólitískum viðfangs- efnum, þar á meðal um átök kynþáttanna, trúarbrögð og þær byrðar sem frægðin setur á lista- manninn. Valnefnd verðlaunanna hrósaði meistaralegu úrvali laga á plötunni þar sem brugðið er upp svipmyndum úr flóknu lífi afrísks Bandaríkjamanns í dag. Pulitzer-verðlaunin fyrir bestu gagnrýnina í prentmiðlum hlaut Jerry Saltz, myndlistarrýnir New York Magazine, fyrir óvænt og á tíðum djörf sjónarhorn á stefnur og strauma í myndlistinni. Less eftir Andrew Sean Greer var valin besta skáldsagan en hún fjallar um rit- höfund sem þiggur hikandi boð um að sækja bókmenntahátíðir í hinum ýmsu löndum. Sagan hefur hlotið mikið lof, meðal annars sagði rýnir The New York Times hana þá fyndnustu og mannlegustu sem hann hefði lesið í nokkur ár. Cost of Living eftir 33 ára pólsk- an innflytjanda í Bandaríkjunum, Martyna Majok, hlaut Pulitzer sem besta leikritið og The Gulf: The Making of an American Sea, eftir Jack E. Davis, hreppti verðlaun sem besta sagnfræðiritið. Pulitzer fyrir bestu ævisöguna hreppti bók Caroline Fraser, Prai- rie Fires: The American Dreams of Laura Ingalls Wilder, sem fjallar um höfund sagnanna Húsið á slétt- unni. Þá var Half-light: Collected Poems 1965-2016 eftir Frank Bid- art valin besta ljóðabókin og Pulit- zer fyrir „nonfiction“ hreppti Lock- ing Up Our Own: Crime and Punishment in Black America, eftir James Forman Jr. Lamar fyrstur dægurtónlistarmanna og rappara til að hreppa Pulitzer-verðlaun Vinsæll Kendrick Lamar hreppti Pulitzer- verðlaun fyrir fjórðu plötu sína. HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R og og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.