Morgunblaðið - 18.04.2018, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Dómsdagsmálmur, „doom metal“
upp á enskuna, er ein af mörgum
undirgreinum þungarokksins og
verður henni gert hátt undir höfði
á morgun, sumardaginn fyrsta, í
Bíó Paradís þar sem heimildar-
mynd um hana, Doom Doc, verður
sýnd og á föstudagskvöld þegar
þrjár dómsdagsmálmssveitir leggja
Gaukinn undir sig. Sá sem veit allt
um málið er Hörður Jónsson, með-
limur í dómsdagsmálmssveitinni
Morpholith en hún og hljómsveitin
Godchilla, sem einnig helgar sig
dómsdagsmálmi, standa fyrir komu
þriðju sveitarinnar sem ættuð er
frá Sheffield á Englandi en ber þó
japanskt heiti, Kurokuma. Kuro-
kuma verður einmitt nýkomin úr
tónleikaferð til Japans þegar hún
þrumar yfir gestum á Gauknum.
Engin öskur
En hvað er dómsdagsmálmur?
„Það má segja að þetta sé hæg tón-
list en hávær, eins og ef þú settir
blús á stera. Hægur og rólegur
blús en spilaður sérstaklega hátt
og gerður drungalegur,“ svarar
Hörður og er í framhaldi spurður
að því hvort ekki sé erfitt að greina
um hvað textarnir fjalli. „Það er
alla vega einfaldara en í flestum
öðrum „extreme“ tónlistarstefnum
eins og svart- og dauðamálmi,“
svarar Hörður. „Við notum hreinan
söng í efninu okkar, erum ekki með
öskur eins og almennt þekkist í
dauða- og svartmálminum. Þannig
að það eru greinilegri textabrotin.“
–Og það er væntanlega ákveðin
neikvæðni eða bölsýni nauðsynleg í
textasmíðinni?
„Að vissu leyti, jú, ákveðin böl-
sýni á heiminn,“ segir Hörður og
hlær.
–Þið eruð þó vonandi ekki á því
að heimsendir sé í nánd?
„Nei, því miður,“ svarar Hörður.
Meðlimir Kurokuma tóku þátt í
framleiðslu og gerð heimildar-
myndarinnar Doom Doc og er
myndin ekki komin í almennar sýn-
ingar heldur aðeins prufusýningar.
Hún verður því bara sýnd einu
sinni í Bíó Paradís og víðar um
Evrópu áður en kemur að kvik-
myndahátíðum.
Hörður segir að myndin fjalli um
dómsdagsmálmssenuna og þá eink-
um í Sheffield. „Hún kemur inn á
tónleikahald, hljómsveitir sem spila
þar og hvernig þessu er háttað hjá
þeim. Það er auðvelt að bera þetta
saman við íslensku senuna og
hversu svipað þetta er að miklu
leyti,“ segir Hörður.
En er þessi tónlist, dómsdags-
málmur, vinsæl á Íslandi? „Já, hún
er að vissu leyti eins og popptónlist
„extreme“ tónlistarinnar. Það er
meiri melódía í þessu og greinilegri
og þetta er aðgengilegasta öfga-
tónlistin, að vissu leyti, á meðan
vissir kimar af henni eru líka óað-
gengilegri en nánast allt annað,
eingöngu hávaði og læti og „drone“
sem er sérstaklega erfitt að komast
inn í. En mjög mörg bönd í þessari
stefnu spila þannig tónlist að hún
er vel aðgengileg og dregur meira
frá gruggi tíunda áratugarins en
einhverri „extreme“ öfgatónlist,“
svarar Hörður.
Hann segir dómsdagsmálmssen-
una hafa stækkað mikið hin síðustu
ár. „Það hefur orðið ákveðin
sprenging í þessari tónlistarstefnu
og það hefur aldrei verið jafnmikið
framboð á hljómsveitum,“ segir
hann. Senan í Sheffield sé sterk
sem megi að stóru leyti þakka því
að margar dómsdagsmálmssveitir
hafi viðkomu í borginni.
Upphafsmenn þungarokksins
Upphaflegur trommari hljóm-
sveitarinnar Black Sabbath kemur
mikið við sögu í Doom Doc, enda
bjó sú sveit til dómsdagsmálminn,
að sögn Harðar. „Þeir bjuggu til
þungarokkið, má segja, á sinni
fyrstu plötu og bjuggu til dóms-
dagsmálminn á sama tíma og í
rauninni á þessi tónlist meira skylt
við uppruna þungarokksins en aðr-
ar stefnur,“ bendir hann á, „þar
sem enn er verið að spila tiltölu-
lega hægt.“ Sé miðað við þann
hraða sem færðist í málminn með
Metallicu sé dauðamálmurinn hæg-
ur og textarnir líka svipaðir og hjá
Black Sabbath á sínum tíma. „Þeir
eru algjörlega guðfeður okkar tón-
listar og engin doom-bönd, nánast,
sem kenna sig ekki að neinu leyti
við Black Sabbath. Það eru alltaf
einhver áhrif,“ segir Hörður að lok-
um.
Dómsdagur í byrjun sumars
Heimildarmynd um dómsdagsmálm
sýnd í Bíó Paradís og þrjár dómsdags-
málmssveitir leika á Gauknum
Kurokuma Félagarnir frá Sheffield
halda frá Japan til Íslands.
Godchilla Liðsmenn dómsdagsmálmssveitarinnar Godchilla á tónleikum í Iðnó fyrr á þessu ári.
Morpholith Hljómsveitarmeðlimir virða fyrir sér væna Marshall-stæðu.
Hipphopp-tónlistarmaðurinn R.
Kelly hefur enn eina ferðina verið
kærður fyrir að brjóta kynferðis-
lega gegn konum og að þessu sinni
af fyrrverandi kærustu sem segir
að hann hafi þvingað hana til sam-
fara og smitað hana viljandi af
kynsjúkdómi, að því er fram kemur
á vef BBC.
Brotið á að hafa átt sér stað í
Dallas. Konan átti í 11 mánaða
sambandi við Kelly og segir í frétt-
inni að Kelly hafi reynt að fá kon-
una til að ganga í kynlífssöfnuð
þann sem sex konur sögðu fjöl-
miðlum frá í fyrra. Þá var Kelly
sakaður um að hafa heilaþvegið
konur, lokað þær inni á heimili
sínu, skipað þeim fyrir verkum,
komið í veg fyrir að þær gætu haft
samband við umheiminn og neytt
þær til kynmaka.
Lögreglan í Dallas segist vera að
kanna hvort fótur sé fyrir ásökun-
um konunnar, sem var aðeins 19
ára þegar þau Kelly áttu í sam-
bandi, en hann er orðinn 51 árs.
Lögmaður konunnar, Lee Merrit,
segir Kelly hafa sýnt af sér villi-
mannslega hegðun og beitt konuna
valdi auk þess að gefa henni áfengi
og eiturlyf.
Kelly hefur oftar en einu sinni
verið lögsóttur af konum fyrir að
hafa haft samræði við þær þegar
þær voru á táningsaldri auk þess
að vera ákærður fyrir að búa til
barnaklám með því að taka upp
myndbönd af sér og stúlkum undir
lögaldri í samförum. Í öllum þeim
dómsmálum sem höfðuð hafa verið
á hendur Kelly hefur hann sloppið
við refsidóma, ýmist greitt ákær-
endum bætur eða þá að dómsmál
hafa verið látin niður falla vegna
skorts á sönnunargögnum.
R. Kelly sakaður enn á ný um að brjóta
kynferðislega gegn táningsstúlku
Margkærður Þrátt fyrir fjölda alvarlegra
ásakana um að beita konur ofbeldi og
þvinga þær til kynmaka við sig, starfar R.
Kelly enn sem tónlistarmaður.
ICQC 2018-20
ÍSLANDSMÓTIÐ
íPepsí-deild karla og kvenna í knattspyrnu
sumarið 2018
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir mánudaginn 23. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569 1105
–– Meira fyrir lesendur
27. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um
SÉRBLAÐ