Morgunblaðið - 15.05.2018, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 5. M A Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 113. tölublað 106. árgangur
ÍSLENSKUR
GERVAHÖNNUÐUR
VERÐLAUNAÐUR
SARA ÞÝSKA-
LANDSMEISTARI
ÖÐRU SINNI
AÐ DEYJA MEÐ
TILÞRIFUM
Í KLUKKUTÍMA
ÓSTÖÐVANDI ÍÞRÓTTIR STRÍÐ RAGNARS KJARTANSSONAR 30ÁSTA HAFÞÓRSDÓTTIR 12
Magnús Heimir Jónasson
Guðni Einarsson
Til átaka kom við landamæri Ísraels og Palestínu
á Gaza-svæðinu í gær í kjölfar mótmæla Palest-
ínumanna vegna opnunar Bandaríska sendiráðs-
ins í Jerúsalem. Að minnsta kosti 55 Palestínu-
menn voru skotnir til bana af ísraelskum
hermönnum og særðust um 2.700 manns í átök-
unum. Sendiherra Palestínumanna hjá Sameinuðu
þjóðunum sagði að átta börn undir sextán ára aldri
væru meðal þeirra sem létust í átökunum sem eru
þau mannskæðustu síðan 2014. Samkvæmt breska
ríkisútvarpinu BBC, voru um 40.000 mótmælend-
ur á landamærunum en mótmælin voru hluti af
sex vikna mótmælum sem eru skipulögð af Ha-
mas-samtökunum. Frekari mótmæli eru skipu-
lögð í dag. Að sögn Ísraelsmanna kom til átaka á
13 stöðum við öryggisgirðinguna á landmærum
landanna tveggja.
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels,
sagði eftir átökin að hvert land væri skyldugt til að
verja landamæri sín og sagði Hamas bera ábyrgð
á átökunum. Forseti Frakklands Emmanuel Mac-
ron fordæmdi ofbeldi Ísraelshers gegn mótmæl-
endum og þá sakaði Recep Tayyip Erdogan, for-
seti Tyrklands, ísraelsk stjórnvöld um
þjóðarmorð.
Raj Shah, talsmaður forsetaembættisins í
Bandaríkjunum, sagði á blaðamannafundi í Hvíta
húsinu að Hamas-samtökin bæru ábyrgð á dauðs-
föllunum. „Hamas er vísvitandi að ögra til að fá
fram þessi viðbrögð,“ sagði hann. „Ísrael hefur
rétt til að verja sig.“
Mannskæð átök á Gaza
AFP
Átök Svartur reykur var yfir svæðinu er mótmælendur kveiktu í dekkjum. Ísraelsher svaraði með táragasi og skothríð er þeir nálguðust landamærin.
55 Palestínumenn létu lífið á Gaza-svæðinu í gær Átta börn undir sextán ára
meðal þeirra látnu Um 2.700 aðrir eru særðir Frekari mótmæli skipulögð
MBlóðug átök vegna opnunar … »17
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG
verks, segir að á Hafnartorgi verði
nýr gæðaflokkur í íbúðum á Íslandi.
Fermetraverðið verði hæst vel á
aðra milljón króna. Samkvæmt því
mun 440 fermetra þakíbúð sem snýr
að Hörpu kosta 400-500 milljónir.
Alls 69 íbúðir verða á Hafnartorgi
og þar af níu þakíbúðir. Þorvaldur
segir arkitekta og innanhúshönnuði
hafa unnið að hönnun þakíbúðanna.
Niðurstaðan sé íbúðir í gæðaflokki
sem standist samanburð við lúxus-
íbúðir í erlendum stórborgum. Það
verði sérstaklega mikið lagt í stóru
þakíbúðina á Geirsgötu. Þar verði
fjórar íbúðir sameinaðar í eina.
Munu fyrst bíða kaupanda
„Íbúðin er þeirrar gerðar að við
förum ekki alla leið nema kaupandi
hafi fundist. Efnisval og efnisnýting
er skörinni ofar en fólk á að venjast.
Slíkt er ekki hægt að kaupa í búðum.
Við sjáum þetta til dæmis í nýjum
verkefnum í London, New York og á
Miami. Þetta er tilraunaverkefni.
Við höldum því opnu að geta fjölgað
íbúðunum aftur,“ segir Þorvaldur.
Hann segir íbúðirnar hannaðar
frá a-ö. Hægt sé að fá þær afhentar
með húsgögnum.
Sýningaríbúð fyrir Hafnartorg
verður tilbúin um mánaðamótin.
Þorvaldur segir mikinn áhuga á
íbúðunum. Söluverðmæti þeirra er
7-8 milljarðar. »10-11
Morgunblaðið/RAX
Hafnartorg Dýrasta þakíbúðin er í húsinu lengst til hægri á myndinni.
Þakíbúð á rúmar
400 milljónir króna
Íbúðir á Hafnartorgi fara í sölu
Lagt er til í stjórnarfrumvarpi um
lögheimili og aðsetur sem lagt var
fram á Alþingi fyrir rúmum tveimur
mánuðum en er óafgreitt að þing-
lýstur eigandi fasteignar beri
ábyrgð á að skráning lögheimilis
einstaklinga sem hafa fasta búsetu í
húsnæði hans sé rétt. Jafnframt ber
Þjóðskrá Íslands að tilkynna eig-
endum fasteignar um þá sem skrá
lögheimili sitt í fasteign hans.
Þessar nýju reglur flýta því að
Þjóðskrá fái til meðferðar upplýs-
ingar um ranga lögheimilisskrán-
ingu. Um 2.000 slík mál koma upp á
ári hverju og eru sum þeirra þung í
vinnslu, meðal annars vegna þess
hversu erfitt er að ná í fólk til að
leita eftir sjónarmiðum þess og and-
mælum. »4
Morgunblaðið/Golli
Finnbogastaðaskóli Deilur eru í
fámenninu í Árneshreppi.
Eigendur
fái til-
kynningu
Frumvarp í þingi
„Þetta er bara svo uppsprengt
verð á þessu hjá þessum verktökum
sem eru að byggja þetta að það er
náttúrlega bara ekki í lagi,“ segir
Guðrún Sverrisdóttir, hárgreiðslu-
kona á Garðatorgi.
Íbúar sem Morgunblaðið ræddi
við í Garðabæ segjast almennt
ánægðir með þjónustu sveitarfé-
lagsins og sérstaklega var talað já-
kvætt um skólamálin en þó kom
upp að bærinn mætti beita sér fyrir
uppbyggingu ódýrari búsetukosta
og þá sérstaklega fyrir ungt fólk.
Fjórir flokkar bítast um atkvæði
Garðbæinga þessar síðustu vikur
fram að kosningum og í Morgun-
blaðinu í dag er rætt við íbúa í
sveitarfélaginu um það sem á þeim
brennur. »14-15
Húsnæðiskostir
hamli því að unga
fólkið búi í Garðabæ
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Garðabær Gleði í Ásgarðslaug sem nýlega
var opnuð eftir þónokkrar endurbætur.