Morgunblaðið - 15.05.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
Í fréttum í gær var sagt aðborgarstjórinn hefði lofað
hagsmunaaðilum lóðum. Það er
hróssefni hversu nýtnir menn eru
á gömul loforð, þótt verra sé að
einungis samfelld svik geri nýtn-
ina mögulega.
En við bætist sákostur að það
er hægt að nýta
sama gamla góða
glærusjóið í
áróðurinn.
Á rándýrumveltiskiltum bryddar Dagur
svo skyndilega upp á því loforði
að „að setja Miklubrautina í
stokk.“ Þá brellu hafði auðkeypt-
ur ómerkingur boðað fyrir fáein-
um vikum og notað tækifærið til
að fara með fleipur um látinn
sómamann.
En þetta loforð um stokkinner athyglisvert af fleiri
ástæðum. Síðustu misserin hefur
verið eytt vel á annan milljarð í
gagnslitlar breytingar á Miklu-
brautinni m.a. með því að dunda
mánuðum saman við að hrauka
grjóti í vírgirðingu meðfram
henni.
Varla hefur nokkur verið aðhugsa þá stundina um
„stokk“ utan um brautina sem
kostar margfalda þá fjárhæð.
Það eru augljóslega frumlegirmenn í trúmálum sem láta
múslíma fá fría lóð undir mosku
en rukka Hjálpræðisherinn, sem
unnið hefur óeigingjarnt starf í
þágu þeirra sem minnst mega sín
í borginni í meira en öld.
Og svo koma óvænt nýjar vís-bendingar um að núverandi
borgaryfirvöld trúi ekki á neitt
nema stokk og steina.
Dagur B.
Eggertsson
Ofloforð er svikráð
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 14.5., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 7 rigning
Akureyri 9 skýjað
Nuuk -1 skýjað
Þórshöfn 9 léttskýjað
Ósló 25 heiðskírt
Kaupmannahöfn 23 heiðskírt
Stokkhólmur 25 heiðskírt
Helsinki 26 heiðskírt
Lúxemborg 19 léttskýjað
Brussel 19 þoka
Dublin 15 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 18 heiðskírt
París 13 súld
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 24 heiðskírt
Berlín 22 heiðskírt
Vín 19 skýjað
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 18 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 19 léttskýjað
Róm 17 skýjað
Aþena 24 léttskýjað
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 20 heiðskírt
New York 14 þoka
Chicago 18 þoka
Orlando 22 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:12 22:37
ÍSAFJÖRÐUR 3:52 23:07
SIGLUFJÖRÐUR 3:34 22:51
DJÚPIVOGUR 3:36 22:12
Verjendur í Chesterfield-málinu svo-
nefnda (CLN-málinu), fengu í gær
frest til 12. júní nk. til þess að kynna
sér ný gögn Björns Þorvaldssonar,
saksóknara í málinu, sem lögð voru
fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í gær.
Björn telur að gögnin séu fullnægjandi
með tilliti til þeirra athugasemda sem
Hæstiréttur gerði þegar dómur hér-
aðsdóms í málinu var ómerktur í haust.
Þannig geti aðalmeðferð í héraðsdómi
farið fram að nýju.
Málið var höfðað gegn Hreiðari Má
Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra, Sig-
urði Einarssyni, fyrrverandi stjórnar-
formanni, og Magnúsi Guðmundssyni,
fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúx-
emborg, en þeir voru ákærðir fyrir
umboðssvik með því að hafa misnotað
aðstöðu sína hjá bankanum og stefnt fé
hans í verulega hættu með því að fara
út fyrir heimildir til lánveitinga.
Verjendur
fá frest
fram í júní
„Það er búið að ganga frá öllu og við
sameinum fyrirtækin formlega á
morgun [í dag],“ segir Rannveig
Grétarsdóttir, framkvæmdastýra
Eldingar, en Hvalaskoðun Akureyri
ehf., fyrirtæki í eigu Eldingar, og
hvalaskoðunarfyrirtækið Ambassa-
dor hafa ákveðið að sameinast.
Rannveig telur áhuga á hvalaskoðun
ekki fara dvínandi en hún segir þó
ekki pláss fyrir tvö stór hvala-
skoðunarfyrirtæki á Akureyri.
„Þessi rekstur er fremur árstíða-
bundinn og það er einfaldlega ekki
nóg um ferðamenn á Akureyri á vet-
urna til að halda rekstri beggja
fyrirtækja áfram.“ Ástæðan fyrir
samruna fyrirtækjanna sé því ein-
faldlega hagræðing.
Spurð um áhrif fyrirhugaðra veiða
Íslendinga á langreyðum segir
Rannveig: „Hrefnuveiðar í Faxaflóa
eru í raun það sem skemmir mest
fyrir okkur þar sem hrefnurnar eru
þeir hvalir sem við sjáum helst í
hvalaskoðuninni í Reykjavík. Veiðar
á langreyðum eru ímyndarlega séð
miklu erfiðari þar sem þar er um að
ræða dýr í útrýmingarhættu vegna
ofveiða á suðurhvelinu. Í Eyjafirð-
inum sjáum við aðallega hnúfubak
svo veiðarnar hafa ekki bein áhrif á
hvalaskoðun á Akureyri. Hvalveiðar
hafa þó slæm áhrif á ímynd Íslands
og á samskipti okkar á alþjóðavett-
vangi.“ ragnhildur@mbl.is
Sameining í hvalaskoðun á Akureyri
Hvalaskoðunarfyrirtækin Elding og Ambassador ganga í eina sæng
Morgunblaðið/ Eggert
Hvalaskoðun Rannveig Grétars-
dóttir stýrir Eldingu.
Bæði kyn skimuð
Í viðtali í Morgunblaðinu í gær við
Höllu Þorvaldsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Krabbameinsfélags
Íslands, sagði frá undirbúningi að
skimun fyrir krabbameini í ristli og
endaþarmi. Er skimunin ætluð fyrir
bæði karla og konur, en ekki bara
karla, eins og missagt var í grein-
inni. Beðist er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT