Morgunblaðið - 15.05.2018, Side 10

Morgunblaðið - 15.05.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Leður strigaskór Verð: 11.995 Stærðir 36-42 Eigum úrval af strigaskóm úr leðri að innan sem utan. Mjúkur leðurinnsóli sem gerir skóna einstaklega þægilega. Akureyrarbær fær 600 milljóna kr. framlag frá ríkinu til menningar- mála á næsta þremur árum, skv. samningi sem Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra mennta- og menningar- mála, og Eiríkur Björn Björgvins- son bæjarstjóri undirrituðu í gær við Amtsbókasafnið. Markmið samningsins er m.a. að efla Akureyri sem þungamiðju öfl- ugs menningarstarfs utan höfuð- borgarsvæðisins og atvinnu- mennsku á sviði lista. Með fjöl- breyttum menningarkostum fyrir íbúa og listafólk ætla ríki og bær að leggja sín lóð á þær vogarskálar að efla búsetukosti á Norður- og Aust- urlandi, eins og það er orðað. Nefnd eru þau meginverkefni sem samningur ríkisins beinist að: Starf- semi atvinnuleikhúss undir merkj- um Leikfélags Akureyrar; starfsemi sinfóníuhljómsveitar undir merkjum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands; að efla menningarhúsið Hof sem vettvang sviðslista og tónlistar og að starfsemi Listasafnsins á Akureyri. Framlag ráðuneytisins er 195 milljónir í ár, rétt tæpar 200 á næsta ári og tæpar 205 milljónir 2020. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Menningarsól Lilja Alfreðsdóttir og Eiríkur Björn Björgvinsson í gær. Menningin blómstri  600 milljóna kr. framlag ríkisins til menningar á Akureyri á þremur árum BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við finnum fyrir mjög miklum áhuga. Það eru viðræður í gangi um nokkrar íbúðir, þótt þær séu ekki komnar í form- lega sölu,“ segir Þorvaldur Giss- urarson, forstjóri og eigandi ÞG verks, um nýjar íbúðir á Hafnar- torgi í miðborg Reykjavíkur. Áformað er að hefja sölu íbúða í júní og afhenda í árslok. Alls eru þetta 69 íbúðir í fimm hús- um. Samkvæmt nýjum söluvef, Hafnartorg.is, er meðalstærð 60 íbúða um 102 fermetrar. Stærð 9 þakíbúða er ekki gefin upp. Það eru þrjár þakíbúðir í tveimur húsum, Geirsgötu 2-4, og tvær í hverju húsi á Tryggvagötu 21-25. Að sögn Þorvaldar eru hugmyndir um að sameina fjórar þakíbúðir í húsinu G1 í eina. Hann segir þak- íbúðirnar sambærilegar við sérbýli hvað varðar stærð og gæði. Á bilinu 7-8 milljarðar Fram hefur komið að samanlagt eru íbúðirnar um 7.900 fermetrar. Miðað við að fermetrinn kosti að meðaltali 800 þús. er söluverðmæti íbúðanna alls 6,3 milljarðar. Með hliðsjón af verði þakíbúða er þetta hóflegt mat. Líklegra er að verð- mætið sé 7-8 milljarðar. Með því er verkefnið eitt það stærsta sinnar tegundar í miðborginni. Spurður um fermetraverð segir Þorvaldur að það sé ekki frágengið. Nokkur munur verði milli hæða. Það hækki eftir því sem ofar dregur. Á aðra milljón króna Hann staðfestir hins vegar að fer- metraverð í þakíbúðum verði vel á aðra milljón. Samkvæmt því gæti 440 fermetra þakíbúð í G1 kostað rúmar 400 milljónir. „Við höfum tek- ið frá hluta af íbúðunum á efstu hæð og endurhannað þær, stækkað og sameinað,“ segir Þorvaldur og stað- festir að þetta sé gert að ósk vænt- anlegra kaupenda. Hann segir íbúð- irnar í hæsta gæðaflokki. „Hönnun og frágangur á íbúðum verður í hæsta klassa sem þekkist hérlendis. Það er sérstaklega vandað til innréttinga sem eru sérsmíðaðar. Í öllum íbúðum er loftræstikerfi sem tryggir betri innivist, sömuleiðis þráðlaus kerfisstýring fyrir ljós og búnað. Í flestöllum íbúðum eru tvö baðherbergi og þá er meiri lofthæð Íbúðir á Hafnartorgi Teikning og heimild: hafnartorg.is Byggingar við Geirsgötu Byggingar við Tryggvagötu Bygging G1 Bygging G2 Bygging T1 Bygging T2 Bygging T3 Íbúð* m2 Íbúð* m2 Íbúð* m2 Íbúð* m2 Íbúð* m2 201 110 206 120 209 78 205 78 201 84 202 82 207 113 210 81 206 78 202 81 203 125 208 125 211 93 207 87 203 100 204 118 209 118 212 86 208 78 204 94 205 118 306 120 309 78 305 78 301 81 301 107 307 113 310 81 306 79 302 81 302 82 308 125 311 93 307 94 303 100 303 125 309 118 312 86 308 78 304 94 304 118 406 119 Alls** 676 Alls** 651 Alls** 715 305 118 407 112 401 107 408 125 402 82 409 117 403 125 506 120 404 122 507 112 405 119 508 125 501 108 509 117 502 83 Alls** 1.896 503 126 504 119 505 119 Alls** 2.212 Geirsgata Tryggvagata LÆ K JA R G AT A ARNARHÓLL HARPAN T4 L1 Fjöldi íbúða án þakíbúða: 60 6.150 m2 Heildarfjöldi íbúða (byggingar G1-G2 og T1-T3): 69 Alls: 7.895 m2 Þjónusta og verslun (allar byggingar): 9.160 m2 Skrifstofurými (byggingar L1 og T4): 6.817 m2 Heildarstærð með bílakjallara: 28,077 m2 Hafnartorg samanstendur af sjö mismunandi byggingum. Bílastæði, 4.205 m2, eru neðanjarðar og tengjast Hörpunni. **Til viðbótar við heildar- fermetratölu hverrar byggingar kemur jarðhæð (þjónusta og verslun) og íbúðir á þakhæðum (stærð þeirra hefur ekki verið gefin upp) *Þakíbúðir eru ekki taldar með *Þakíbúðir eru ekki taldar með  ÞG verk hefur sölu á 69 íbúðum í júní  Forstjóri ÞG verks segir íbúðirnar í sérflokki á Íslandi  Verð íbúða fer eftir hæðum  Þær dýrustu eru þakíbúðir sem munu kosta hundruð milljóna Þorvaldur Gissurarson Morgunblaðið/RAX Nýr miðbær Nýjar götur verða til á Hafnartorgi. Hér er horft til Hörpu. Setja lúxusíbúðir á Hafnartorgi í sölu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.