Morgunblaðið - 15.05.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018
en gengur og gerist. Í öllum íbúðum
eru mjög vönduð rafmagnstæki og
hreinlætistæki. Sömuleiðis eru gólf-
efni, flísar og allt efnisval og frá-
gangur af mjög vandaðri gerð,“ segir
Þorvaldur og leggur áherslu á að
staðsetningin sé einstök. Íbúðirnar
séu góð fjárfesting.
„Þetta er einstakt tækifæri. Það
verður ekki meira byggt á þessum
stað. Þetta er í hjarta miðbæjarins
og inni í þessum nýja hluta miðbæj-
arins sem mun gjörbreyta miðbæj-
arstemningunni í Reykjavík. Að
mínu mati vantaði slíkan klasa í
miðbæinn. Þá ekki síst til að styðja
við og draga fram Hörpuna. Allt
þetta svæði mun taka mið af henni.
Þetta er svipað og í stórborgum víða
erlendis. Þar eru víða miklar og ráð-
andi glæsibyggingar eins og óperu-
hús. Það má segja að Harpa sé okkar
óperuhús.“
Bílastæðamálin í skoðun
Þorvaldur segir mögulegt að
kaupa bílastæði með íbúðunum.
Undir Hafnartorginu og Austur-
höfninni sé „stærsti bílakjallari
landsins“ með 1.100 til 1.200 stæð-
um. Útfærslan sé í vinnslu. Það sé
ekki ólíklegt að farin verði svipuð
leið og í nýjum íbúðaturni í Bríet-
artúni 9-11. Þar eru stæðin leigð.
„Þetta verður líflegt svæði og
mikið mannlíf í átt við það sem fólk
þekkir frá erlendum stórborgum.
Þar þykir vinsælt og eftirsóknarvert
að eiga íbúðir við ákveðnar götur þar
sem verslun, veitingahús og þess
háttar þjónusta er til staðar. Við
erum að vinna út frá svipaðri hug-
mynd. Þetta hefur heppnast gríðar-
lega vel í öðrum borgum. Þar má til
dæmis nefna Ósló, Stokkhólm, Hels-
inki og Kaupamannahöfn.“
Umhirðan í hæsta gæðaflokki
Þorvaldur segir umhirðu og
hreinsunarstarf í hæsta gæðaflokki.
Íbúar muni njóta þess að Reykja-
víkurborg og rekstraraðilar á jarð-
hæð munu taka þátt í þrifum á sam-
eiginlegu rými.
„Það verður tryggt að öll þjónusta
og umhirða verður til fyrirmyndar á
svæðinu. Hún er samtengd á öllum
lóðunum, þar með talið Hörpu,“ seg-
ir Þorvaldur og vísar til Hafnartorgs
og Austurhafnar. Varðandi þrif á
íbúðum segir hann til skoðunar að
bjóða kaupendum að kaupa þrif.
Samhliða íbúðunum eru samtals
6.100 fermetrar af skrifstofurými til
leigu í tveimur húsum sem snúa að
Arnarhóli. Þorvaldur segir mikinn
áhuga fyrir skrifstofurýmum á
svæðinu. Nú þegar séu í gangi við-
ræður um útleigu á stórum hluta
þeirra. Að auki eru verslunar- og
þjónusturými á jarðhæð allra sjö
bygginganna á svæðinu.
Morgunblaðið/RAX
Hafnartorg Skrifstofur eru Arnarhólsmegin en íbúðir vestanmegin.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN
AF ÖLLUM STÆRÐUM, HVORT SEM ER Í VEISLUSAL
OKKAR, Í AÐRA SALI EÐA Í HEIMAHÚSI
Veitingar af öllum
stærðum, hvort sem er í
veislusal okkar, í aðra sali
eða í heimahúsi.
Nánar á veislulist.is
Erfidrykkja
Veislusalur okkar er bjartur og fallegur salur
á jarðhæð, gott aðgengi.
Öll þjónusta, kaffi og gos eru innifalin
í verði þegar erfidrykkja er í sal.
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Toppar
Kr. 4.990
7 litir
Str. S-XXL
Laugavegi 178 • 105 Reykjavík • Sími 555 1516 (póstsendum)
Opið virka daga kl. 11-18 og laugardaga kl. 11-15.
Mikið af myndum á facebook
Flottir
sumarkjólar
Verð 6.900 kr.
• mörg mynstur og litir
• stærð 36-46
Félagsstofnun stúdenta og Bjarg
íbúðafélag verkalýðshreyfingarinnar
hafa fengið vilyrði fyrir lóðum til að
byggja 260 leiguíbúðir fyrir stúdenta
og félagsmenn verkalýðshreyfing-
arinnar í Skerjabyggð við Skerjafjörð.
Skipulagssamkeppni var haldin um
skipulag í Skerjafirði og er deiliskipu-
lagstillaga unnin á grundvelli hennar.
Svæðið sem um ræðir er landsvæði
sem opnaðist sem byggingarland er
litlu flugbrautinni var lokað. Er þar
gert ráð fyrir byggð með um eitt þús-
und íbúðum.
Bjarg fékk vilyrði fyrir lóð fyrir 100
íbúðir og Félagsstofnun stúdenta fyrir
lóð fyrir 160 íbúðir.
Leiguíbúðir verkafólks og
stúdenta í Skerjafirði
Samkomulag Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri, Guðrún Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri Félagsstofnunar
stúdenta, og Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, skrifa undir.
Útblástur koltví-
sýrings frá skip-
um í Faxaflóa-
höfnum jókst um
14% milli áranna
2016 og 2017 og
útblástur niturox-
íðs um 32%, þrátt
fyrir að umferð
um hafnirnar hafi
minnkað um 3%
milli ára. Ástæða
þessa að því er
fram kemur í skýrslu sem Faxaflóa-
hafnir létu vinna er að umferð
skemmtiferða- og gámaskipa, sem
eru stærsti mengunarvaldurinn,
jókst á tímabilinu. Skýrslan var unn-
in af sænsku umhverfisrannsókn-
arstofnuninni og þar kemur fram að
Reykjavíkurhöfn hafi verið eina
höfn Faxaflóahafna þar sem út-
blástur skipa jókst ekki á tímabilinu,
segir í frétt á mbl.is.
Líkt og árið áður komu flest
gáma- og skemmtiferðaskip í Sunda-
höfn, en þau skip sem þar leggja að
bryggju bera ábyrgð á meira en
helmingi þeirrar útblástursmeng-
unar sem mælist frá skipum á svæð-
um Faxaflóahafna. Engu að síður
segja skýrsluhöfundar að það hafi
tekist að draga úr útblæstri í Sunda-
höfn með því að tengja skip við raf-
magn er þau liggja við bryggju.
Minni umferð en
meiri mengun í
Faxaflóahöfnum
Mengun Skip í
Sundahöfn.