Morgunblaðið - 15.05.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018
Gervahönnun Ásta lagar útlit leikara í myndinni the 12th Man.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
V
erðlaunin sem ég fékk
eru sambærileg við
Emmy-verðlaunin sem
einungis eru veitt fyr-
ir sjónvarp,“ segir
Ásta Hafþórsdóttir sem fyrir
stuttu hlaut norsku Gullruten-
verðlaunin ásamt Ida Astero
Welle og Solveig Aksnes fyrir
gervahönnun og búninga í sjón-
varpsþáttunum Stories from
Norway.
„Það eru veitt verðlaun í
sama flokki fyrir gervahönnun og
búninga. Konur í norskum kvik-
myndaiðnaði berjast fyrir því að
verðlaun verði veitt fyrir förðun
annars vegar og búninga hins
vegar,“ segir Ásta sem barðist
fyrir því sama með Eddu-
verðlaunin á Íslandi sem skilaði
þeim árangri að verðlaunin eru nú
veitt hvor í sínum flokki. Eddan
er ólík Gullruten þar sem á Edd-
unni eru veitt verðlaun bæði fyrir
sjónvarps- og kvikmyndagerð.
Góð leið til að kynna sig
„Ég fékk Edduna þegar hún
var veitt í annað sinn ásamt Stef-
áni Jörgen sem er nýfallinn frá og
ég hef einu sinni áður fengið til-
nefningu í Gullruten,“ segir Ásta
sem er vongóð um að barátta fé-
lags norskra kvenna í kvikmynda-
iðnaði skili árangri bæði hvað
varðar að slíta í sundur sameigin-
lega verðlaunaveitingu fyrir bún-
inga og gervahönnun og virkt
jafnrétti kynjanna í kvikmynda-
gerð.
„Við finnum fyrir góðum
Vann Gullruten-
verðlaun í Noregi
Ásta Hafþórsdóttir gervahönnuður hlaut norsku Gullruten-verðlaunin í flokki
förðunar og búninga fyrir norsku sjónvarpsþættina Stories from Norway. Hún er
búsett í Noregi ásamt 6 ára tvíburum. Ásta hefur komið víða við í kvikmyndageir-
anum ásamt því að taka þátt í hjálparstarfi í Grikklandi þar sem hún kom á fót
þvottaverkefni sem er umhverfisvænt og endurnýtir fatnað og teppi flóttafólks.
Verðlaun Ásta ávarpar á norsku þegar hún tekur við Gullruten-verðlaunum
fyrir gervahönnun í sjónvarpsþáttunum Stories from Norway.
Nemendur í ljósmyndavali við
Menntaskólann í Hamrahlíð á vor-
önn 2018 halda sýningu á afrakstri
annarinnar í fræðsluhúsinu Líkn á
Árbæjarsafni. Ljósmyndasýningin
verður opnuð kl. 15 í dag, þriðjudag-
inn 15. maí, og mun standa til 21.
júní.
Nemendur sýna myndir að eigin
vali og því gætir töluverðrar fjöl-
breytni í myndefninu. Sum verkin
eru ljóðræn, önnur grafísk eða ab-
strakt. Portrettið er með sem og
matarmyndir og arkitektúr. Um-
hverfismál og náttúra eru einnig á
boðstólnum. Áhorfendur fá tækifæri
til að skyggnast inn í ýmsar að-
stæður, lönd og staði. Í ljósmyndaá-
fanganum var leitast við að nem-
endur kynntust helstu grunn- og
tækniatriðum í ljósmyndun til að
þeir gætu síðan nýtt þekkingu sína
til sjálfstæðra vinnubragða. Fjallað
var um myndbyggingu, tæknina sem
tengist ljósmyndavélinni, ljósop,
hraða og ljósnæmi, eiginleika ljóss
og ljósmælingu og reynt að virkja
nemendur til skapandi vinnubragða.
Farið var í heimsókn í Ljósmynda-
safn Reykjavíkur og fjölmargar ljós-
myndaferðir þar sem nemendur
fengu kennslu í verklegri vinnu
Ljósmyndasýning í fræðsluhúsinu Líkn í Árbæjarsafni
Áfanginn Nemendur fengu verklega leiðsögn og innsýn í ljósmyndasöguna.
Lífið með augum MH-inga
Ferðafélag Íslands stendur
fyrir fræðandi örgöngum
um Kópavog þrjá þriðju-
daga í röð, 15., 22. og 29.
maí.
Lagt verður af stað alla
dagana kl. 19. Í dag verður
gengið frá bílastæðinu við
Álfhólsskóla við Álfhólsveg
að Álfhól og álfasögur rifj-
aðar upp. Síðan haldið að
bæjarstæði gamla Digra-
nesbæjarins og sagt frá
búsetu manna þar. Gangan
endar svo í álfabyggðinni í
Einbúa.
Þriðjudaginn 22. maí verður gamli þingstaðurinn við Þinghól m.a. skoðaður
og sagt frá Kópavogsfundinum árið 1662 og þriðjudaginn 29. maí verður geng-
ið um svæðið þar sem hernámslið Breta og Bandaríkjamanna kom upp að-
stöðu og setti niður herbúnað.
Endilega …
Morgunblaðið/Eggert
Álfabústaður Álfhóll er um 3 m hár, jökulsorfinn
klapparhóll og þekktasti bústaður álfa í Kópavogi.
… rifjið upp álfasögur
„Á jóganámskeiðum munið þið
hitta nígerískar dverggeitur; hafra,
huðnur og kiðlinga, sem eru vina-
leg og forvitin dýr. Geiturnar okkar
bíta hvorki né stanga. Þær njóta
þess að hoppa milli fólks og vera
hluti af jógaupplifuninni. Við erum
aðeins með geitur sem eru fæddar
og aldar á Honey Sweetie Acres.
Við förum mjög vel með geiturnar
okkur og væntum þess sama af
ykkur.“
Þessar upplýsingar eru á vefsíð-
unni www. honeysweetieacres.com,
sem er ein af mörgum heilsurækt-
Nýjasta líkamsræktaræðið í Bandaríkjunum
Jóga með nígerískum
dverggeitum
AFP
Alvöru bónstöð þar sem bíllinn er
þrifinn að innan sem utan,
allt eftir þínum þörfum.
Frábær þjónusta – vönduð vinnubrögð.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Bónstöð opin virka daga frá 8-19,
Alþrif verð frá 14.500,- (lítill fólksbíll)
Bónstöð Pantið tíma í síma577 4700