Morgunblaðið - 15.05.2018, Side 13

Morgunblaðið - 15.05.2018, Side 13
stuðningi leikstjóra og erum bjartsýnar á framhaldið,“ segir Ásta sem hefur enn ekki áttað sig á því hvað verðlaunin þýði fyrir hana. Flestir líta á þetta sem mikla virðingu og viðurkenningu á störfum í kvikmyndaiðnaðinum og góða leið til þess að kynna sig,“ segir Ásta sem starfað hefur í Noregi í átta ár og rekið Ma- keup design studio ásamt Dimitru Drakopoulou síðastliðin tvö ár. „Ég var búin að vinna í 15 ár í kvikmyndageiranum á Íslandi þegar efnahagshrunið skall á og það var lítið um verkefni í kjölfar- ið. Mig hafði lengi dreymt um að búa og starfa erlendis og valdi því á milli Svíþjóðar þar sem ég lærði og Noregs þar sem ég bjó sem barn en ég er fædd í Vestmanna- eyjum,“ segir Ásta og bætir við að Noregur hafi orðið fyrir valinu þar sem Ásta taldi að minni sam- keppni væri í gervihönnunargeir- anum og því meiri starfsmögu- leikar fyrir hana. „Það leið samt rúmt ár þar til ég fékk fyrsta verkefnið mitt og þá ákvað ég að flytja til Noregs,“ segir Ásta sem telur að hún hafi verið fyrsti Íslendingurinn sem útskrifaðist með þriggja ára há- skólanám sem gervahönnuður. „Gervahönnuður gerir meira en sminka eða förðunarfræðingur. Gervahönnun nær allt frá hálsi og upp úr, með skeggi, hárkollum og öllu.“ Ásta segir hark að sjá fyrir sér sem gervahönnuður og ekki verði fólk ríkt í þeim geira. En að fá að skapa í vinnunni séu forrétt- indi sem ekki öllum bjóðist og hún upplifi það á hverjum degi í vinnunni. Fjarvera frá fjölskyldunni „Ég sem einstæð móðir tví- bura á 7. aldursári væri ekki á þeim stað sem ég er á í dag nema vegna ómetanlegrar hjálpar móð- ur minnar, Þórunnar Óskars- dóttur,“ segir Ásta og bætir við að starfinu fylgi mikil fjarvera. Algengt sé að myndir og þættir séu teknir upp í Austur-Evrópu þar sem allur kostnaður við gerð leikmynda og launakostnaður sé lægri, auk þess sem vinnuafl á því svæði sé tilbúið að vinna lengri vinnudag en Norðmenn. Ásta hrósar norska velferðar- kerfinu sem hún segir styðja vel við bakið á einstæðum foreldrum og hún lifi betra lífi í Noregi sem einstætt foreldri heldur en á Ís- landi. „Ég hugsa samt um það á hverjum degi að flytja heim aftur og kannski kemur að því einhvern daginn að ég fái verkefni í hend- urnar sem ég get unnið á Ís- landi,“ segir Ásta sem tekur það fram að í Noregi líði fjölskyldunni vel, börnin séu í góðum skóla og sumarið og sólin komin. Hún seg- ir það mikilsvert að í Noregi geti hún óskað eftir því að starfa sem launþegi við verkefni með tilheyr- andi öryggi og réttindum þrátt fyrir að reka sitt eigið fyrirtæki. Framundan hjá Ástu er gervahönnun í sænskri kvikmynd og mynd um hina þekktu sögu- persónu í Noregi, Askeladen, auk syrpu sem sýnd verður á HBO sem er sambærilegt við Netflix. Í seríunni leika íslenskir, norskir, finnskir og sænskir leikarar. „Í Askeladen sé ég um gerva- hönnunina en tek ekki þátt í að setja upp gervin á tökustað.“ Flóttamannaaðstoð Árið 2015 var lítið að gera hjá Ástu og mikil umræða um flóttamannastrauminn til Evrópu. „Það varð algjör sprenging í fjölda flóttamanna og ástandið heltók mig. Í stað þess að sitja á rassinum og fylgjast með fréttum langaði mig að leggja mitt af mörkum,“ segir Ásta sem hafði samband við Díönu Karlsdóttur sem bjó í Noregi og þær ákváðu að fara saman í fyrstu ferðina. „Í þeirri ferð áttaði ég mig á því að það var ofboðslega mikið af sjálboðaliðum og margir sem völdu hvaða aðstoð þeir vildu veita. Ég hugsaði um það sem þurfti að bæta í innviðunum og enginn var að gera og setti af stað þvottaverkefnið,“ segir Ásta en það hafði verið venja að henda blautum fötum flóttamannanna og ullarteppum í þúsundatali sem UNICEF hafði útvegað og notuð höfðu verið í einn til tvo daga. „Í stað þess að halda áfram að henda, söfnuðum við saman fötum og teppum og sömdum við efnalaug á staðnum. Við gátum þannig nýtt teppin aftur og látið nýja flóttamenn fá föt sem þeir þekktu og komið í veg fyrir um- hverfisspjöll. Verkefnið er enn í gangi en ég kem ekki að því leng- ur,“ segir Ásta og bætir við að fólk þurfi ekki að fara í ferð til fjarlægra landa til að hjálpa til. „Það er hægt að aðstoða fjöl- skyldur sem setjast að í ókunnum löndum. Í Noregi er mjög góður stuðningur. Ég hef fylgst með því hvernig almenningur á Íslandi styður við flóttamenn og það er gert á mjög góðan hátt.“ Ásta sem býr sig undir kom- andi verkefni segir að margra ára basl sé að skila sér í aukinni virð- ingu fyrir greininni. „Það var mjög þekktur leik- myndahönnuður sem ég vann með á síðasta ári sem svaraði þegar hann var spurður hver áætlun hans væri með útlit myndar sem hann vann við. Hann sagði að fyrst tæki fólk eftir andliti fólks, svo sæi það hverju fólk klæddist og loksins tekur það eftir um- hverfinu. Þetta sýnir mikilvægi gervahönnunar,“ segir Ásta sem lítur björtum augum til framtíðar. Fjölskyldan Ásta með börnin sín Tuma og Unu sem eru sex ára. Ásta segir móður sína Þórunni Óskarsdóttur hafa verið ómetanlega hjálp. Samstarfskonur Ásta og Dimitra Drakopoulou vinna saman í gervahönnun í kvikmyndageiranum og reka saman fyrirtækið Makeup design studio. „Gervahönnuður gerir meira en sminka eða förðunarfræðingur. Gervahönnun nær allt frá hálsi og upp úr, með skeggi, hárkollum og öllu.“ arstöðvum í Bandaríkjunum, sem bjóða upp á jóga með nígerískum dverggeitum. Ætla mætti að jóga af því taginu sé með svipuðu sniði víðast hvar. Á Honey Sweetie ekr- um er hámarksfjöldi þátttakenda tuttugu manns, en ekki getið um hversu margar geiturnar eru. Áður en leikar hefjast er þátttakendum veitt innsýn í háttalag geitanna: „Geiturnar leggjast kannski við hliðina á þér á mottunni, setjast í kjöltu þína eða stökkva upp á bak- ið á þér. Þær geta nartað í bolinn þinn eða kroppað í sandalana þína - þær muna rannsaka þig.“ Goat Yoga, eða geitajóga með þessari tilteknu geitategund fór fyrst að láta á sér kræla svo heitið gæti fyrir réttu ári og síðan hefur hálf- gert æði gripið um sig ef marka má umfjöllun, sem víða má finna um fyrirbærið á netinu. Ljósmynd- ari AFP fréttaveitunnar fangaði stemmninguna á Golden Road kránni í Los Angeles, og lét fylgja sögunni að jóganámskeið af þess- ari gerð séu jöfnum höndum haldin á krám, sveitabæjum og samkomu- sölum víðs vegar um Bandaríkin. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Cocoa Mint 2554 umgjörð kr. 12.900,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.