Morgunblaðið - 15.05.2018, Síða 13
stuðningi leikstjóra og erum
bjartsýnar á framhaldið,“ segir
Ásta sem hefur enn ekki áttað sig
á því hvað verðlaunin þýði fyrir
hana. Flestir líta á þetta sem
mikla virðingu og viðurkenningu
á störfum í kvikmyndaiðnaðinum
og góða leið til þess að kynna
sig,“ segir Ásta sem starfað hefur
í Noregi í átta ár og rekið Ma-
keup design studio ásamt Dimitru
Drakopoulou síðastliðin tvö ár.
„Ég var búin að vinna í 15 ár
í kvikmyndageiranum á Íslandi
þegar efnahagshrunið skall á og
það var lítið um verkefni í kjölfar-
ið. Mig hafði lengi dreymt um að
búa og starfa erlendis og valdi því
á milli Svíþjóðar þar sem ég lærði
og Noregs þar sem ég bjó sem
barn en ég er fædd í Vestmanna-
eyjum,“ segir Ásta og bætir við
að Noregur hafi orðið fyrir valinu
þar sem Ásta taldi að minni sam-
keppni væri í gervihönnunargeir-
anum og því meiri starfsmögu-
leikar fyrir hana.
„Það leið samt rúmt ár þar til
ég fékk fyrsta verkefnið mitt og
þá ákvað ég að flytja til Noregs,“
segir Ásta sem telur að hún hafi
verið fyrsti Íslendingurinn sem
útskrifaðist með þriggja ára há-
skólanám sem gervahönnuður.
„Gervahönnuður gerir meira
en sminka eða förðunarfræðingur.
Gervahönnun nær allt frá hálsi og
upp úr, með skeggi, hárkollum og
öllu.“
Ásta segir hark að sjá fyrir
sér sem gervahönnuður og ekki
verði fólk ríkt í þeim geira. En að
fá að skapa í vinnunni séu forrétt-
indi sem ekki öllum bjóðist og
hún upplifi það á hverjum degi í
vinnunni.
Fjarvera frá fjölskyldunni
„Ég sem einstæð móðir tví-
bura á 7. aldursári væri ekki á
þeim stað sem ég er á í dag nema
vegna ómetanlegrar hjálpar móð-
ur minnar, Þórunnar Óskars-
dóttur,“ segir Ásta og bætir við
að starfinu fylgi mikil fjarvera.
Algengt sé að myndir og þættir
séu teknir upp í Austur-Evrópu
þar sem allur kostnaður við gerð
leikmynda og launakostnaður sé
lægri, auk þess sem vinnuafl á því
svæði sé tilbúið að vinna lengri
vinnudag en Norðmenn.
Ásta hrósar norska velferðar-
kerfinu sem hún segir styðja vel
við bakið á einstæðum foreldrum
og hún lifi betra lífi í Noregi sem
einstætt foreldri heldur en á Ís-
landi.
„Ég hugsa samt um það á
hverjum degi að flytja heim aftur
og kannski kemur að því einhvern
daginn að ég fái verkefni í hend-
urnar sem ég get unnið á Ís-
landi,“ segir Ásta sem tekur það
fram að í Noregi líði fjölskyldunni
vel, börnin séu í góðum skóla og
sumarið og sólin komin. Hún seg-
ir það mikilsvert að í Noregi geti
hún óskað eftir því að starfa sem
launþegi við verkefni með tilheyr-
andi öryggi og réttindum þrátt
fyrir að reka sitt eigið fyrirtæki.
Framundan hjá Ástu er
gervahönnun í sænskri kvikmynd
og mynd um hina þekktu sögu-
persónu í Noregi, Askeladen, auk
syrpu sem sýnd verður á HBO
sem er sambærilegt við Netflix. Í
seríunni leika íslenskir, norskir,
finnskir og sænskir leikarar.
„Í Askeladen sé ég um gerva-
hönnunina en tek ekki þátt í að
setja upp gervin á tökustað.“
Flóttamannaaðstoð
Árið 2015 var lítið að gera
hjá Ástu og mikil umræða um
flóttamannastrauminn til Evrópu.
„Það varð algjör sprenging í
fjölda flóttamanna og ástandið
heltók mig. Í stað þess að sitja á
rassinum og fylgjast með fréttum
langaði mig að leggja mitt af
mörkum,“ segir Ásta sem hafði
samband við Díönu Karlsdóttur
sem bjó í Noregi og þær ákváðu
að fara saman í fyrstu ferðina.
„Í þeirri ferð áttaði ég mig á
því að það var ofboðslega mikið af
sjálboðaliðum og margir sem
völdu hvaða aðstoð þeir vildu
veita. Ég hugsaði um það sem
þurfti að bæta í innviðunum og
enginn var að gera og setti af
stað þvottaverkefnið,“ segir Ásta
en það hafði verið venja að henda
blautum fötum flóttamannanna og
ullarteppum í þúsundatali sem
UNICEF hafði útvegað og notuð
höfðu verið í einn til tvo daga.
„Í stað þess að halda áfram
að henda, söfnuðum við saman
fötum og teppum og sömdum við
efnalaug á staðnum. Við gátum
þannig nýtt teppin aftur og látið
nýja flóttamenn fá föt sem þeir
þekktu og komið í veg fyrir um-
hverfisspjöll. Verkefnið er enn í
gangi en ég kem ekki að því leng-
ur,“ segir Ásta og bætir við að
fólk þurfi ekki að fara í ferð til
fjarlægra landa til að hjálpa til.
„Það er hægt að aðstoða fjöl-
skyldur sem setjast að í ókunnum
löndum. Í Noregi er mjög góður
stuðningur. Ég hef fylgst með því
hvernig almenningur á Íslandi
styður við flóttamenn og það er
gert á mjög góðan hátt.“
Ásta sem býr sig undir kom-
andi verkefni segir að margra ára
basl sé að skila sér í aukinni virð-
ingu fyrir greininni.
„Það var mjög þekktur leik-
myndahönnuður sem ég vann með
á síðasta ári sem svaraði þegar
hann var spurður hver áætlun
hans væri með útlit myndar sem
hann vann við. Hann sagði að
fyrst tæki fólk eftir andliti fólks,
svo sæi það hverju fólk klæddist
og loksins tekur það eftir um-
hverfinu. Þetta sýnir mikilvægi
gervahönnunar,“ segir Ásta sem
lítur björtum augum til framtíðar.
Fjölskyldan Ásta með börnin sín Tuma og Unu sem eru sex ára. Ásta segir
móður sína Þórunni Óskarsdóttur hafa verið ómetanlega hjálp.
Samstarfskonur Ásta og Dimitra Drakopoulou vinna saman í gervahönnun
í kvikmyndageiranum og reka saman fyrirtækið Makeup design studio.
„Gervahönnuður gerir
meira en sminka eða
förðunarfræðingur.
Gervahönnun nær allt
frá hálsi og upp úr, með
skeggi, hárkollum og
öllu.“
arstöðvum í Bandaríkjunum, sem
bjóða upp á jóga með nígerískum
dverggeitum. Ætla mætti að jóga
af því taginu sé með svipuðu sniði
víðast hvar. Á Honey Sweetie ekr-
um er hámarksfjöldi þátttakenda
tuttugu manns, en ekki getið um
hversu margar geiturnar eru. Áður
en leikar hefjast er þátttakendum
veitt innsýn í háttalag geitanna:
„Geiturnar leggjast kannski við
hliðina á þér á mottunni, setjast í
kjöltu þína eða stökkva upp á bak-
ið á þér. Þær geta nartað í bolinn
þinn eða kroppað í sandalana þína
- þær muna rannsaka þig.“ Goat
Yoga, eða geitajóga með þessari
tilteknu geitategund fór fyrst að
láta á sér kræla svo heitið gæti
fyrir réttu ári og síðan hefur hálf-
gert æði gripið um sig ef marka
má umfjöllun, sem víða má finna
um fyrirbærið á netinu. Ljósmynd-
ari AFP fréttaveitunnar fangaði
stemmninguna á Golden Road
kránni í Los Angeles, og lét fylgja
sögunni að jóganámskeið af þess-
ari gerð séu jöfnum höndum haldin
á krám, sveitabæjum og samkomu-
sölum víðs vegar um Bandaríkin.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Cocoa Mint 2554 umgjörð
kr. 12.900,-