Morgunblaðið - 15.05.2018, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Garðabær Ráðhústurninn á Garðatorgi er eitt þekktasta kennileiti bæjarins. Á Garðatorgi hefur verið nokkur
uppbygging bæði íbúða og atvinnuhúsnæðis síðustu ár, sem íbúar lýsa yfir ánægju með.
síðum Fréttablaðsins í liðinni viku
ætluðu rúmlega sex af hverjum tíu
Garðbæingum sem tóku afstöðu að
kjósa flokkinn.
Sveitarfélagið stendur sterkt
fjárhagslega, skuldahlutfallið er 85%
og meðallaun íbúa í Garðabæ eru
hærri en íbúa á höfuðborgarsvæðinu
í heild sinni. Þá er útsvarsprósentan
13,7% og eru Garðbæingar því ásamt
Seltirningum þeir íbúar höfuðborg-
arsvæðisins sem greiða minnstan
hluta tekna sinna til sveitarfélagsins.
Íbúar í Garðabæ sem Morgun-
blaðið ræddi við lýstu flestir yfir
ánægju með það að búa í Garðabæ
og hrósuðu þjónustu sveitarfélags-
ins. Sérstaklega minntust íbúar á að
bærinn væri að gera vel í skóla-
málum, íþrótta- og æskulýðsstarfi og
umönnun aldraðra.
En húsnæðismál og þá sér-
staklega húsnæðismál ungs fólks í
Garðabæ komu einnig upp og er talið
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Fjórir flokkar bjóða fram til bæjar-
stjórnar í Garðabæ að þessu sinni,
Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkur-
inn, Framsóknarflokkurinn og
Garðabæjarlistinn. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur haft tögl og hagldir í
Garðabæ um áratuga skeið og lítil
breyting virðist ætla að verða á því,
en samkvæmt könnun sem birtist á
barst að þeim málaflokki voru ekki
allir jafn ánægðir, því að þrátt fyrir
töluvert mikla húsnæðisuppbygg-
ingu í Garðabæ á kjörtímabilinu sem
nú er að ljúka segja íbúar að ungu
fólki hafi reynst erfitt að finna íbúðir
á viðráðanlegu verði innan bæjar-
markanna, þar sem fáar litlar íbúðir
eru í boði í Garðabæ.
Íbúðir á uppsprengdu verði
Hárgreiðslukonan Guðrún
Sverrisdóttir rekur sína eigin hár-
greiðslustofu á Garðatorgi. Hún hef-
ur búið í Garðabæ í 51 ár og blaða-
maður fékk ábendingu um að þar
væri á ferðinni „gallharður Garðbæ-
ingur“ sem lægi ekki á skoðunum
sínum. Það reyndist rétt.
„Þetta er bara svo uppsprengt
verð á þessu hjá þessum verktökum
sem eru að byggja þetta að það er
náttúrlega bara ekki í lagi,“ segir
Guðrún um húsnæðismál unga fólks-
Skortir íbúðir fyrir unga
Garðbæingar segjast ánægðir með þjónustu bæjarins en
nefna að litlar íbúðir vanti Gróska í íþróttastarfinu
Skúli Guðbjarnarson veitingamaður
hefur búið á Álftanesi í sextán ár og
líkað vel. Undanfarin tvö og hálft ár
hefur hann ásamt Sigrúnu Jóhanns-
dóttur, konu sinni, rekið kaffihúsið og
veitingastaðinn Álftanes Kaffi.
„Það hefur gengið vel, alveg sam-
kvæmt áætlun ef svo má segja. Mað-
ur var að þessu til að geta lifað af því
og það hefur tekist,“ segir Skúli.
Hann segir Álftnesinga vera sinn
stærsta kúnnahóp, en íbúar úr öðrum
hverfum Garðabæjar og nágranna-
sveitarfélögunum eru einnig reglu-
legir gestir.
Kaffi Álftanes stendur við Breiðu-
mýri og frá veitingahúsinu er útsýni
yfir til Bessastaða. Það mun hins veg-
ar að öllum líkindum breytast þar
sem deiliskipulagstillögur gera ráð
fyrir lágreistum fjölbýlishúsum í
grenndinni. Undirskriftasöfnun
stendur þó yfir á Álftanesi til að fá
sveitarfélagið til að falla frá þessum
uppbyggingaráformum.
„Ég verð að segja það að ég mun
sakna útsýnisins, því ég missi útsýnið
til Reykjavíkur og Bessastaða og
fjallasýnina,“ segir Skúli, en annars
segist hann jákvæður fyrir því að
byggt verði á þessu svæði, það hafi
verið viðbúið og að auknum mann-
fjölda muni fylgja aukið líf og fjör á
Álftanesinu.
Vill að svæðið verði fallegt
„Það verða þeir sem verða í þessum
blokkum sem snúa að Bessastöðum
sem hafa útsýni, aðrir missa það og
þannig er það með skipulagningu
hverfa, það var náttúrlega alltaf vitað
að þarna kæmi eitthvað. Auðvitað
verður viss söknuður að útisvæð-
unum, en allavega hérna næst mér eru
þetta mikið tún og skurðir,“ segir
Skúli.
Aðalmálið við þessar breytingar
segir hann vera að svæðið verði fal-
legt. Þá verði hann sáttur. Annars seg-
ir hann þjónustu við íbúa á Álftanesi
hafa verið góða allt frá sameiningunni
við Garðabæ.
„Maður sér það að umhirða úti-
svæða er mun betri. Ég tek alveg sér-
staklega eftir því, það er kannski af
því að ég var einu sinni garðyrkju-
verktaki og þá sér maður þetta,“ segir
Skúli. athi@mbl.is
Mun sakna þess að hafa útsýni
yfir Bessastaði út um gluggann
Morgunblaðið/Valli
Álftnesingur Skúli segist jákvæður fyrir fjölgun íbúa í hverfinu.
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Starfshópur Garðabæjar og Golf-
klúbbs Kópavogs og Garðabæjar
(GKG) hefur undanfarna mánuði
unnið að skipulagi og legu golfvallar
innan skipulagssvæðis í landi Vífils-
staða. Nokkur kurr var á meðal fé-
lagsmanna GKG eftir að niðurstöður
samkeppni um nýtt aðalskipulag
Garðabæjar voru kynntar, en þar er
m.a. gert ráð fyrir fjölnota íþrótta-
húsi á því svæði sem golfklúbburinn
hefur haft til umráða.
„Þetta var náttúrlega alveg
svakalegt þegar þetta byrjaði en við
erum bara að ná mjög góðu sam-
komulagi,“ segir Guðmundur Odds-
son, formaður GKG. Fundur verður
haldinn á fimmtudag þar sem félags-
mönnum GKG verða kynnt drög að
nýjum níu holu velli sem teygir sig í
átt að Vífilsstaðavatninu.
Guðmundur segist spenntur yf-
ir nýja vellinum og að samstarfið við
bæjaryfirvöld eftir að kylfingar
lýstu yfir áhyggjum sínum hafi
gengið vel. „Við höfum bara reynt að
leggja okkur fram við að ná góðri
niðurstöðu, þeirra yfirlýsta markmið
var að við fengjum betri völl heldur
en við höfðum og mér sýnist það
stefna alveg í það.“
Skipulagsbreytingarnar á
svæðinu munu þó hafa áhrif á æf-
ingasvæði golfklúbbsins og það segir
Guðmundur að leysa þurfi með ein-
hverjum hætti.
„Við missum þarna verulegt
Sættir nást milli
bæjarins og GKG
Golfvöllur víkur fyrir íþróttahúsi
GARÐABÆR
VEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þúað skilgreining
á sótthitabreytist eftir aldri?
Thermoscaneyrnahita-
mælirinnminnveit það.“
Braun Thermoscan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7