Morgunblaðið - 15.05.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
15. maí 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 101.76 102.24 102.0
Sterlingspund 138.26 138.94 138.6
Kanadadalur 79.62 80.08 79.85
Dönsk króna 16.354 16.45 16.402
Norsk króna 12.721 12.795 12.758
Sænsk króna 11.842 11.912 11.877
Svissn. franki 101.87 102.43 102.15
Japanskt jen 0.9285 0.9339 0.9312
SDR 145.61 146.47 146.04
Evra 121.86 122.54 122.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.4321
Hrávöruverð
Gull 1324.8 ($/únsa)
Ál 2272.5 ($/tonn) LME
Hráolía 77.55 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Tölvunarfræðideild Háskólans í
Reykjavík og sprotafyrirtækið Travelade
hafa skrifað undir samstarfssamning
sem felur í sér að nemendur HR muni
vinna meistaraverkefni í samvinnu við
Travelade.
Fyrsta verkefnið er að nota gervi-
greind til þess að stinga upp á afþrey-
ingu fyrir ferðamenn hér á landi. Útbúið
verður meðmælakerfi byggt á hegð-
unarmynstri notenda Travelade.
Travelade er upplýsinga- og bók-
unarvefur fyrir ferðamenn sem stofn-
aður var síðasta sumar af þeim Andra
Heiðari Kristinssyni og Hlöðveri Þór
Árnasyni. Félagið lauk 160 milljón króna
fjármögnun í desember síðastliðnum,
leidda af Crowberry Capital.
Tölvunarfræðinemar HR
og Travelade í samstarf
STUTT
● Hagnaður Reita
á fyrsta ársfjórð-
ungi var 1.197 millj-
ónir króna, en til
samanburðar var
hagnaður félagsins
1.475 milljónir
króna á sama
fjórðungi í fyrra.
Leigutekjur
námu 2.754 millj-
ónum króna og juk-
ust um 4,4% frá fyrra ári. Rekstrar-
hagnaður, NOI, var 1.858 milljónir
króna, en var 1.792 milljónir króna á
sama tímabili 2017.
Matshækkun fjárfestingareigna nam
1.256 milljónum króna, en var til sam-
anburðar 900 milljónir króna í sama
fjórðungi í fyrra.
Eigið fé í lok fyrsta ársfjórðungs var
49,4 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall
var 34,8%.
Guðjón Auðunsson forstjóri segir í
afkomutilkynningu til Kauphallar að
fyrstu mánuðir ársins hafi verið við-
burðaríkir hjá Reitum og rekstrar-
niðurstaða fyrsta ársfjórðungs sé í takt
við áætlanir.
Reitir högnuðust um 1,2
milljarða janúar til mars
Guðjón
Auðunsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð-
ingur Íslandsbanka, segir hækkandi
olíuverð geta haft víðtækari afleið-
ingar en birtast í bensínverðinu. Það
geti t.d. bitnað á flugfélögunum.
„Hækkandi heimsmarkaðsverð á
eldsneyti er þeg-
ar farið að hafa
áhrif á eldsneyt-
isverð hér á landi.
Verð á bensíni og
díselolíu hérlend-
is hefur hækkað
um ríflega 3% að
jafnaði frá byrjun
apríl samkvæmt
okkar mælingum.
Eldsneytisverð
vegur rúm 3% í
vísitölu neysluverðs, og því jafngild-
ir þessi hækkun 0,1% heildaraukn-
ingu á neysluútgjöldum heimilanna
undanfarnar vikur.“
Veldur kostnaðarþrýstingi
„Áhrif af hækkun eldsneytisverðs
á verðlag eru þríþætt. Fyrst koma
bein áhrif á dæluverðið á innlendum
bensínstöðvum. Þau áhrif skila sér
að mestu á 1-3 mánuðum. Því næst
koma áhrif á ýmsa liði þar sem elds-
neyti vegur þungt í kostnaði, eins og
til dæmis flugfargjöld. Loks skilar
hækkun eldsneytisverðs sér í al-
mennum kostnaðarþrýstingi vegna
hærri flutningskostnaðar á innflutt-
um vörum og kostnaðarauka við
samgöngur almennt. Heildaráhrifin
koma að stærstum hluta í gegn á
hálfu ári eða svo og geta orðið tals-
vert meiri en þau beinu áhrif sem við
finnum fyrir á eldsneytisdælunni.“
Jón Bjarki segir dýrari olíu geta
dregið úr eftirspurn eftir flugi.
Ýtti undir vöxt ferðaþjónustu
„Það hefur verið talið samband
milli þess hvað olíuverðið féll hratt,
úr 100 dölum tunnan í 30 frá miðju
ári 2014 til ársbyrjunar 2016 annars
vegar og uppgangs lággjaldaflug-
félaga hins vegar í flugi yfir hafið.
Þetta er langt flug og eldsneytis-
kostnaður vegur töluvert í heildar-
kostnaði. Lágt eldsneytisverð hefur
því gert WOW air, Norwegian og
öðrum lággjaldaflugfélögum kleift
að keppa út frá sterkari grunni með
tiltölulega lágum flugfargjöldum.“
Jón Bjarki segir aðspurður að
dæmið sé að snúast við. Þessi áhrif
bætist við hátt verðlag á Íslandi
mælt í erlendri mynt.
Jón Bjarki segir afleiðinguna þá
að verð flugmiða muni væntanlega
hækka. Það geti aftur dregið úr
eftirspurn eftir stuttum ferðum
ferðamanna sem millilenda á Íslandi
á leiðinni yfir hafið. Samandregið
telur Jón Bjarki horfur á minni vexti
ferðaþjónustunnar. Það muni aftur
hægja á hagvexti og vexti kaupmátt-
ar. Áhrifin skýrist næstu mánuði.
Stór hlutinn kominn fram
Gústaf Steingrímsson, hagfræð-
ingur í Hagfræðideild Landsbank-
ans, segir verð á Norðursjávarolíu
hafa farið lægst í 46 dali í fyrra.
„Síðan hefur það hækkað nokkuð
jafnt og þétt og var komið upp í 73
dollara í apríl sl. Verðhækkunin
nemur 58%. Á þessu tímabili hefur
útsöluverð á bensíni og díselolíu hér
á landi hækkað um 11,4%. Ástæðan
fyrir þessum mismun í hækkun ligg-
ur að hluta til í því að á þessu tíma-
bili hefur gengi krónu styrkst aðeins
gagnvart dollar. Meginástæðan er
þó sú að hið opinbera leggur tölu-
verð föst krónutölugjöld ofan á
hvern lítra. Þess vegna verða verð-
breytingar á útsöluverði eldsneytis
ávallt mun minni en sem nemur
verðbreytingum á heimsmarkaðs-
verði olíu.
Í apríl hækkaði heimsmarkaðs-
verð á olíu um 10% og má gera ráð
fyrir að stór hluti þeirrar hækkunar
sé þegar kominn fram í útsöluverði
hér á landi en breytingar á heims-
markaðsverði skila sér jafnan nokk-
uð hratt í bensínverð hér á landi. Á
síðustu árum hafa verðbreytingar á
hráolíu skilað sér inn í bensínverð í
sama mánuði eða mánuð á eftir. Í
dag vega eldsneytiskaup íslenskra
heimila um 0,32% af neyslukörfu
þeirra. Þessar hækkanir á eldsneyti
á undanförnum mánuðum hafa því
ekki haft mikil áhrif á kaupmátt ís-
lenskra heimila.“
Hækkandi olíuverð
gæti haft afleiðingar
Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir þróunina geta bitnað á
hagvexti í ár Dýrari olía gæti dregið úr eftirspurn eftir flugi
Morgunblaðið/Ómar
Hátt verðlag Dýrari flugmiðar gætu haft áhrif á fjölda farþega sem stoppa stutt á leið yfir hafið.
Vísitala verðs á
flugvélaeldsneyti
Frá 12. maí 2017 til 11. maí 2018
Árið 2000=100250
230
210
190
170
150
130
12.5.2017 11.5.2018
Heimild: IATA
Jón Bjarki
Bentsson
Morgunblaðið/RAX
Keflavíkurflugvöllur Meðan flugfarþeginn líður um loftið blátt eru ótal
hendur á jörðu niðri að undirbúa komu hans í áfangastað.