Morgunblaðið - 15.05.2018, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur Tölvubíla hf
verður haldinn í fundarsal Hreyfils á 6. hæð,
Fellsmúla 26, þriðjudaginn 29. maí kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins.
3. Kosning stjórnar, skoðunarmanna
og löggilds endurskoðanda.
4. Önnur mál.
Reikningar félagsins afhentir við innganginn.
Stjórnin.
Tilboð/útboð
*Nýtt í auglýsingu
*20732 Rekstrarvörur fyrir speglun fyrir
LSH. Ríkiskaup fh. Landspítala óska eftir tilboðum
í rekstrarvörur fyrir speglun LSH/ Endoscopy
consumables. Nánari upplýsingar í útboðs-
gögnum sem eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is. Opnun tilboða 15. júní 2018
kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum.
*20724 Mála- og skjalakerfi fyrir Háskóla
Íslands. Ríkiskaup, fyrir hönd Háskóla Íslands,
óska eftir tilboðum í málaskrár- og skjalakerfi.
Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem eru
aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is.
Opnun tilboða 15. júní 2018 kl. 13:00 hjá
Ríkiskaupum.
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leið-
beinanda kl. 12.30-16. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir
innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Botsía kl. 10.30. Brids og kanasta kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Yngingar jóga kl. 9, hjúkrunarfræðingur kl. 11,
leshópur Hjördísar kl. 10.30, botsía kl. 10.40 -11.20, Bónusrútan kl.
14.40, leshópur kl. 13, göngutúr kl. 13.30, léttur göngutúr um hverfið.
Erum með sumarstuð hjá okkur fimmtudaginn 24. maí frá kl. 16-18,
ljóðaupplestur, hljómsveitin Piparkorn spilar, snittur, gos og húllum
hæ, allir velkomnir, kostar 2500 krónur, nánari uppl. í síma 535-2760.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12, eftir stundina er boðið upp
á súpu og brauð á vægu verði. Félagsstarf eldri borgara byrjar kl. 13,
það verður söngur og gleði, spil, spjall og gaman. Hlökkum til að sjá
ykkur og allir eru velkomnir.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverkstofa kl. 13. Landið
skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveitingar kl. 14.30. Velkomin!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bútasaumshópur hittist kl. 9-12, glerlist
kl. 9-13, hópþjálfun / stólaleikfimi kl. 10.30-11.15, litaklúbbur í handa-
vinnustofu kl. 13-14.30. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30, félagsvist í
sal kl. 13-15.30, kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Verið öll velkomin til
okkar á Vitatorg, síminn hjá okkur er 411-9450.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Meðlæti með
síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.30. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 8.20 /
15.15. Qi gong Sjálandi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10.
Botsía Sjálandi kl. 11.40. Karlaleikfimi Sjálandi kl. 13. Bónusrúta fer frá
Jónshúsi kl. 14.45.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl. 9-
12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Leikfimi Maríu kl. 10-
10.45. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl.
10.30. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl.
13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar, kl. 16 dans.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, ganga kl. 10, málm- og silfur-
smíði / kanasta kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11, 500 kr. skiptið eða 1305 kr.
mánuðurinn, allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl.
12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga hjá Ragnheiði kl.
9, útvarpsleikfimi kl. 9.45. Hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnu-
stofu og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Vorferð á Bessastaði miðvikudag-
inn 16. maí, nánari upplýsingar á skrifstofunni eða í síma 535-2720.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-16, leikfimihópur; ganga kl. 10,
brids kl.13, enskunámskeið tal kl. 13, bókabíll kl. 14.30, Bónusbíll kl.
14.55, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri, nánari í síma
411-2790. U3A kl. 17.15.
Norðubrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11. Opin listasmiðja með
leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, botsía, spil og
leikir kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Pútt í Risinu Eiðistorgi kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfi-
landi kl. 12. Brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimili
kirkjunnar kl. 14. Ath. Móttaka á munum fyrir handverkssýninguna
sem verður á Skólabraut dagana 25., 26. og 27. maí er í fullum gangi.
Stangarhylur 4 Skák kl. 13. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar 569 1100
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hótelvörur
Ýmis tæki fyrir veitingarekstur.
Eldavél
Uppþvottavél
Kæliborð
Kúluvél
og margt fleira
Upplýsingar í síma 820-8206,
María.
aðarfundir hafi orðið þegar þau
loksins sameinuðust á ný.
Anna litla.
Það var engin fyrirferð í henni
ömmu. Þvert á móti var hún hóg-
vær og hljóðlát – nett sem hún
var. Hún var mjög umhyggju- og
hugulsöm, hafði góðan húmor og
var mjög hreinskilin. Við, afkom-
endur hennar, eigum öll góðar og
(allavega eftir á) kómískar sögur
af hreinskilnum athugasemdum
frá henni. Hún var víðlesin og
klár, ferðaðist víða og var góður
briddsspilari. Hún fylgdist vel
með því sem ég tók mér fyrir
hendur og alltaf var hægt að leita
til hennar með ýmis mál. Að taka í
spil við eldhúsborðið, með for-
drykk við hönd, á meðan matur
mallaði í pottum var klassík á
heimili ömmu. Þar voru málin
rædd, ráð gefin og veislur skipu-
lagðar. Ferðasögur voru sagðar
og bókadómar féllu.
Amma aðstoðaði við heimanám
ef með þurfti, hún prjónaði á börn-
in mín eftir pöntun. Hún var til
staðar fyrir fólkið sitt, hélt trúnað
og var góður hlustandi. Þegar ég
var flutt að heiman hringdi hún
gjarnan til að athuga hvað ég ætl-
aði að hafa í matinn eða hvort ég
vildi kannski bara koma til hennar
í mat. Hún vildi vera viss um að ég
nærðist ekki á einhverju rusli.
Hún hringdi líka alltaf ef eitthvað
stóð til hjá mér og gleymdi aldrei
að spyrja um framvinduna.
Amma hélt þeim afa afar vina-
legt, fallegt og hlýlegt heimili,
lengst af í Hvassaleitinu, síðar á
Grandaveginum. Hún eldaði mjög
góðan mat og hafði yndi af því að
halda elegant matarboð og stórar
veislur. Hún var enda mjög vin-
mörg, frændgarðurinn var stór og
þau afi mjög dugleg að rækta vin-
skap. Þar var því gjarnan gest-
kvæmt mjög enda öllum tekið
opnum örmum, hvort sem var til
lengri eða skemmri tíma. Þangað
var alltaf gott að koma, hvort sem
ég var ein eða til að hitta eitthvað
af þeim óteljandi gestum sem áttu
leið um. Á heimili þeirra var ég
velkomin öllum stundum, óvænt
eða ekki, ein eða með allar vinkon-
ur mínar með mér. Og ég sótti
þangað mikið. Hvort sem var í
morgunmat, kvöldmat, einn fyrir
svefninn eða bara til að leggja
mig. Því þrátt fyrir tíð veisluhöld
var svo einstök ró yfir heimili
þeirra sem var svo gott að sækja í.
Þau voru líka dugleg að sækja
tónleika og aðra menningarvið-
burði sem og veislur hjá vinum
sínum. Þegar við systkinin feng-
um bílpróf eitt af öðru fengum við
gjarnan bíl að láni hjá afa gegn því
að skutla þeim á slíka sósjal við-
burði. Það var díll sem hentaði
báðum vel og ekki fylgdi kvöð um
að sækja þau aftur. Ég lagði mig
þó fram um að vera til taks að
skila þeim heim, mér fannst það
eðlilegt. Mér fannst það gaman.
Þá hitti ég vini þeirra, og kynntist
þeim enn betur, heyrði af þeim
sögur frá gamalli tíð. Ég veit núna
að það var einstakt. Þegar árin
færðust yfir fékk amma mig
stundum til að koma og ganga frá
eftir veisluhöld, og stundum til að
elda matinn. Þannig gat hún hald-
ið áfram að gera það sem henni
þótti skemmtilegast, eiga góða
stund með sínu fólki. Það fannst
mér líka sjálfsagt og eðlilegt. Og
gaman.
Það er stutt síðan við spiluðum
síðast yfir fordrykk, þá á Grund-
inni. Fyrir það, og allar okkar
stundir, er ég þakklát.
Þórdís Jóhannesdóttir.
Anna amma var glæsileg,
greind og skemmtileg kona. Þeg-
ar ég var að alast upp voru ófá
skiptin sem ég fékk að vera í
„Hvassó“ með afa og ömmu, og
áttum við amma sérstaklega
skemmtilegar og huggulegar
stundir þar. Þar sem hún var
heimavinnandi var ég auðvitað
meira með henni í þessum heim-
sóknum. Hún var nokkuð vanaföst
og það var ákveðin regla á hlut-
unum, án þess maður endilega átt-
aði sig á því. Allt sem hún gerði
var líka á einhvern hátt meira „er-
lendis“, elegant. Að borða ristað
brauð með osti og marmelaði var
meira eins og á fínu hóteli. Leif-
arnar frá kvöldinu áður urðu að
veislumat. Að loknum morgunmat
var gjarnan spilað, oftast rommí,
og það var ekki leiðinlegt að fá að
spila við hana ömmu. Það var líka
spilað af alvöru og enginn afslátt-
ur gefinn. Það var mikil ró og yf-
irvegun yfir heimilishaldinu og
það líkaði mér vel. Samband henn-
ar og afa, sem lést fyrir um 18
mánuðum, var líka mikið fyrir-
myndarsamband. Mikil virðing
sem þau báru hvort fyrir öðru og
ég hef oft hugsað hversu lánsöm
þau hafa verið með hvort annað.
Þau voru vinamörg og skemmti-
legasta sem ég vissi voru boðin
sem þau héldu, sem voru „alltaf“,
svona í minningunni. Svona lang-
aði mig að verða þegar ég yrði
stór. Nú eru þau Tómas afi sam-
einuð á ný. Maður huggar sig við
það.
Góða ferð, amma mín, takk fyr-
ir allt.
Helgi Jóhannesson.
Anna Jóhannesdóttir, ná-
grannakona okkar til margra ára,
er látin, síðust af frumbyggjunum
í Hvassaleiti 69-85. Það var gott að
búa í nágrenni við Önnu og Tóm-
as, þau voru indæl hjón og ein-
stakir nágrannar.
Þegar við keyptum húsið okkar
1975 vissum við ekki hvað við vær-
um komin í einstakt samfélag. All-
ir sem bjuggu í þessum tveimur
raðhúsalengjum þekktust frá
fyrri tíð. Þau voru flest skóla-
systkin frá menntaskólanum á
Akureyri og mikill samgangur var
á milli húsa. Þrátt fyrir tuttugu
ára aldursmun á milli okkar og
hinna íbúanna var okkur einstak-
lega vel tekið og við boðin velkom-
in í hópinn. Sá siður var í lengj-
unum að bjóða öllum nágrönnum
til veislu á stórafmælum. Stuttu
eftir að við fluttum var okkur því
boðið í margar veislur þegar flest-
ir í lengjunni urðu sextugir sama
árið. Þannig kynntumst við þessu
skemmtilega og góða fólki sem
allt er nú fallið frá.
Flestar konurnar í raðhúsun-
um voru heimavinnandi húsmæð-
ur enda með stóra barnahópa.
Þær voru ósparar á að miðla okk-
ur unga fólkinu af reynslu sinni og
kunnu allt. Það var sama í hvaða
hús var komið; borðin svignuðu
undan heimatilbúnum kræsingum
sem þessar myndarlegu húsmæð-
ur hjálpuðust að við að búa til.
Þegar voraði færðist líf í götuna,
konurnar sátu með kaffibolla á
tröppunum og spjölluðu saman.
Stundum sást Lísa á 79 skjótast á
slopp til Önnu á 81 með kaffibolla í
hendi eða Anna fara til Lísu.
Stundum gengu þær á milli með
sykur, hveiti eða egg sem þær
voru að lána hvor annarri. Þegar
ég kom heim úr vinnu um hádegið
var mér oft boðið í kaffisopa á
tröppurnar hjá Lísu eða á flötina
hjá Önnu. Aldrei fannst mér þær
iðjulausar, þær voru síprjónandi
eða með aðra handavinnu. Anna
og Tómas og Lísa og Gunnar sem
bjuggu í okkar lengju og urðu sér-
stakir vinir okkar sem við minn-
umst með gleði. Anna var í nánu
sambandi við barnabörn sín og
bar fyrir þeim mikla umhyggju og
þau voru henni náin. Nokkrum ár-
um eftir að Anna og Tómas fluttu
úr Hvassaleitinu buðu þau okkur
gömlu nágrönnum sínum í kvöld-
mat á Grandaveginn. Sonardæt-
urnar Anna og Þórdís elduðu dýr-
indis mat, gengu um beina og
gengu frá á eftir. Það var einstak-
lega fallegt að sjá hvernig þær
systur launuðu ömmu og afa um-
hyggjuna.
Við kveðjum Önnu Jóhannes-
dóttur, okkar góður grannkonu,
með virðingu og þakklæti fyrir
samveruna. Við sendum fjöl-
skyldu hennar innilegar samúðar-
kveðjur.
Margrét Hrefna Sæmunds-
dóttir og Þorkell Erlingsson.