Morgunblaðið - 15.05.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.05.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er svo sem allt í lagi að taka áhættu þegar líkurnar eru góðar og lítið liggur undir. Gefðu þér tíma til að vera með því fólki sem skiptir þig öllu máli. 20. apríl - 20. maí  Naut Samtöl við yfirboðara munu koma þér á óvart í dag. Þú færð tilboð sem þú fagnar. Ástamálin taka kipp núna í maí og þú munt innan fárra vikna þurfa að taka afdrifaríka ákvörðun. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú er rétti tíminn til þess að taka til hendinni heima fyrir, koma því fyrir sem þú hefur ekki þörf fyrir lengur í Sorpu. Ekki láta stoltið ráða för þegar talið berst að börn- unum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú færð oft góðar hugmyndir en gleymir þeim jafnóðum. Það væri ráð að skrifa þær niður. Símtal frá útlöndum litar næstu daga. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Eins og það er notalegt að búa að sínum gömlu og góðu vinum, þá er líka hollt að heyra hljóðið í nýjum félögum. Nýir vendir sópa best. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Tækifæri til þess að vera í sviðsljósinu bíða þín á næstunni og það skiptir sköpum að vera tilbúin/n. Hvað varð um loforðið sem þú gafst þér varðandi heilsuna? 23. sept. - 22. okt.  Vog Skemmtileg tækifæri berast upp í hend- urnar á þér og þú átt umfram allt að leyfa sköpunarkraftinum að njóta sín. Samræður þínar við aðra einkennast af óvenjumikilli til- finningasemi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ekkert er dýrmætara en heilsan svo þú skalt varast að ofbjóða þér. Ferð út í náttúruna væri tilvalin fyrir þig. Líttu á björtu hliðarnar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur orðið fyrir vonbrigðum og þarft því að gera þér grein fyrir hvaða væntingar þú gerir til annarra. Taktu til í geymslunni og gefðu dót sem þú notar aldrei. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það kann að kosta þig mikla vinnu að komast fyrir allar staðreyndir máls sem þú ert að vinna að. Vinur kemur færandi hendi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert hugsi þessa dagana og finnst eitthvað vanta í líf þitt. Reyndu að breyta þeim aðstæðum sem þú ert ósátt/ur við. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er fráleitt að kaupa eitthvað bara til þess að kaupa eitthvað. Reyndu að njóta þess sem þú átt og hefur. Þú kaupir ekki ham- ingjuna. Ég hef í höndum lítið kver ný-útkomið, – „Vorlaukar, ljóð og litlar sögur“, sem Ljóðahópur Gjábakka í Kópvogi gefur út. Þetta er 18. ljóðabókin sem þessi hópur gefur út og hefur verið skemmtilegt að fylgjast með hvernig skáldskapurinn hefur þroskast og þróast með árunum. Ritstjóri er Sigurlín Hermanns- dóttir og höfundar ellefu. Ég get ekki stillt mig um að grípa niður í bókinni og fyrir valinu verða „Sól- stafir“ eftir ritstjórann Sigurlínu, sem ég skil svo að halla taki ævi- deginum: Á vesturhimni er gluggi í skýjaglóðum, þar gylltir stafir sólar dofna óðum, því líður senn að lokum þessa dags. Ef fengið gæti staf frá hennar hlóðum, þá hjálp hann yrði ferðalangi móðum, er þokast æ í átt til sólarlags. Í ljóðinu „Ég er svo heppinn“ bregður Hafsteinn Reykjalín Jó- hannesson upp þessum myndum: Bátur í skýli man gráslepputímann, ósáttur stendur þar bundinn við stein. Nú læðist hér kisa, með villidýrs eðli, en bráðin rétt sleppur, kisan of sein. „Sumar“ nefnist þetta ljóð Huldu Jóhannesdóttur: Af blágresi ljómar brekkan senn, blánar í sunnanþeynum hugurinn litast af landinu enn, líkist blómum og steinum, kliður af fuglum, konur og menn kætast og pískra í leynum. „Ferðbúast“ eftir Ingu Guð- mundsdóttur: Samfelldur kliður, vængjatök og tíst í trjágróðrinum, smáfuglarnir safna forða fyrir langflug til fjarlægra landa. Hér kemur „Góður kostur!“ eft- ir Rögnu Guðvarðardóttur: Auðargrundin ástarfundi eiga vildi, engum bundin enn þó var, einatt hrundu vonirnar. Heimanmundinn hafði sprundin held- ur vænan, átti hund og hænur tvær, hest og stundum nokkrar ær. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vorlaukar Ljóðahóps Gjábakka „TILBOÐIÐ ER ENN Á BORÐINU, EN NÚ VIL ÉG AÐ ÞÚ BÆTIR STÓLUNUM VIÐ ÞAÐ.“ „VIÐ GLEYMDUM MATNUM!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... magakitl. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann FINNST ÞÉR ÉG FARA OF MIKIÐ ÚR HÁRUM? ELÍN, EF EITTHVAÐ ER, ÞÁ FERÐU EKKI NÓGU MIKIÐ ÚR HÁRUM KISU - RÓMANTÍK ÉG GERÐI SVOLÍTIÐ HRÆÐILEGT! NÚ ÞARF ÉG EINHVERN TIL ÞESS AÐ BÚA TIL SÖGU SEM MUN FORÐA MÉR ÚR KLÍPUNNI! EKKERT MÁL! ÉG ÞEKKI MANN! HRÓLFUR, ÞETTA ER SVENNI… HANN ER PR-MAÐUR KONUNGSINS! Samstarfskona Víkverja var aðtala um konu á fundi um dag- inn og hnýtti því við, til að setja konuna í skýrara samhengi, að hún væri kona Höskuldsstaða. Ha, kona Höskuldsstaða? spurði Víkverji hvumsa enda óvanur því að konur gangi að eiga heilt bónda- býli. Sísona. „Já,“ svaraði samstarfskonan eins og ekkert væri. Í eitt augnablik var Víkverji í myrkrinu en síðan kviknaði ljós; konan var vitaskuld ekki kona Hös- kuldsstaða, heldur Höskulds Daða. Það er allt önnur Ella. x x x Þetta minnir á söguna um pabb-ann sem sendur var til Egils- staða að sækja son sinn í afmæli. Hann muldraði eitthvað fyrir brjósti sér en lagði svo snúðugur af stað. Þegar komið var til Egils- staða kom hins vegar í ljós að drengurinn var í næstu götu í Reykjavík, á heimili vinar síns, Eg- ils Daða. Gaman hefði verið að sjá svipinn á pabbanum á leiðinni til baka. x x x Annars er Höskuldur helvíti gottnafn; kraftmikið og hljómfag- urt. Víkverji talar nú ekki um ef því fylgir ættarnafn, eins og hjá frétta- manninum knáa hjá Stöð 2 og Bylgjunni, Höskuldi Kára Schram. Mest heldur Víkverji raunar upp á tilbrigðið við nafnið sem Höskuldur Kári notar þegar hann hefur um- sjón með hádegisfréttum á Bylgj- unni: „Það er komið að hádegis- fréttum á Bylgjunni. Höskuldur Kári Schramles.“ x x x Schramles leiðir hugann aðShameless, einhverjum bestu sjónvarpsþáttum síðari tíma. Þar heitir að vísu ekki nokkur maður Höskuldur, enda sjaldgæft nafn í Bandaríkjunum, en þátturinn er ekki verri fyrir því. Í Shameless þarf enga undraheima, hobbita, álfa eða ofurhetjur til að halda manni við efnið. Þetta er bara fólk í venju- legum aðstæðum sem hefur þessa líka kostulegu sýn á tilveruna. vikverji@mbl.is Víkverji Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum sem leita hælis hjá honum. (Sálm: 18.31)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.