Morgunblaðið - 15.05.2018, Síða 31

Morgunblaðið - 15.05.2018, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018 Formkröfur leikrita og for-sendur nemendaleikhússfara ekki frábærlega sam-an. Gangverk hefðbund- inna leikverka virkar alla jafnan best þegar örlög einnar, eða í mesta lagi þriggja persóna eru í forgrunni, og aðkoma annarra ræðst af gagn- semi þeirra til að segja þá sögu og gefa henni safa og líf. Á hinn bóginn er það verkefni leikskálds sem skrif- ar fyrir útskriftarhóp leikarabrautar LHÍ að gefa öllum verðug verkefni, því sem næst jafngild að umfangi og erindi þar sem öll eru leidd til lykta á jafnræðisgrundvelli. Fyrir utan að persónurnar mega gjarnan vera á sama aldri. Það er ekki tilviljun að það verk sem mér virðist einna líf- vænlegast af þeim sem ég hef séð frumsamin af slíku tilefni er Maríu- sögur, sem Þorvaldur Þorsteinsson skrifaði fyrir ‘95 árganginn, en þau voru einungis fimm. Það munar ansi mikið um þessa þrjá sem bætast við í meðalári. Það sem þessar takmarkanir gefa á móti færi á er að lýsa einhverskon- ar ástandi, einhverjum samnefnara, tíðaranda, menningu. Kjartan Ragn- arsson leysti það mjög skemmtilega árið 1981 í Peysufatadegi sínum og skapaði eftirminnilega mynd af Íslandi í aðdraganda heimsstyrj- aldar. Í Aðfaranótt hellir Kristján Þórður Hrafnsson sér í reykvíska djammið og opnar nokkurskonar sýnisbók áskorana og þrauta sem ungt fólk þarf að glíma við í leit sinni að fótfestu í lífinu og færni í að lifa í samfélagi við aðra, sátt í eigin skinni. Hann gleymir heldur ekki að jafnvel fólk á byrjunarreit á sér for- tíð, sem bankar ekki síst upp á þegar hömlurnar leysast upp í alkóhóli og danssvita. Eins sérkennilega og það hljómar þá gefur hin ágæta sonnettubók Kristjáns, Jóhann vill öllum í húsinu vel, vísbendingar um hvernig hann gæti nálgast svona verkefni, og leyst það smekklega. Mörg ljóðin þar eru byggð upp af hliðskipuðum smá- myndum, ein til tvær línur helgaðar persónu og bjástri hennar, sem fær síðan dýpri merkingu í samspili við næstu sjálfstæðu mynd. Bygging- arlag Aðfaranætur er ekki óskylt. Ungt fólk á bar, sumt komið til að halda upp á afmæli eins í hópnum, önnur í öðrum erindagjörðum. Hvert þeirra er mætt með sinn djöful að draga. Frjálshyggju- spaðinn (Júlí Heiðar Halldórsson) sem breiðir hroka yfir óöryggi sitt, sem brýst líka út í afbrýðisemi. Kærastan hans (Ebba Katrín Finns- dóttir) sömuleiðis með harða fram- hlið af sjálfsánægju og það má líka segja um náungann (Árni Beinteinn Árnason) sem eitt sinn var bekkjar- foringinn og finnst hann enn eiga til- kall til gegnheilu grunnskólakærust- unnar (Þórey Birgisdóttir), þrátt fyrir að hún sé sæl með sínum hæfi- leikaríka en viðkvæma kærasta (Hákon Jóhannesson). Útsmogin frænka frjálshyggjuspaðans (Eygló Hilmarsdóttir) nær að draga vin- konu sína (Elísabet Skagfjörð Guð- rúnardóttir) út á lífið með fölskum upplýsingum, en Reykjavík er smá- bær og fyrrverandi sambýlismaður systur hennar (Sigurður Þór Ósk- arsson í gestaleik hjá útskriftar- bekknum) afgreiðir á barnum og á sitthvað vantalað við sína fyrrver- andi fjölskyldu. Í kringum gleðskap- inn sveimar svo samanbitið eineltis- fórnarlamb í hefndarhug (Hlynur Þorsteinsson). Við vitum frá upphafi að þetta mun enda með skelfingu. Það er síð- an áréttað jafnt og þétt í stuttum eintölum – algengt formbragð í „jafnræðisleikritum“ á borð við Aðfaranótt. Nákvæmlega hvernig það gerist kemur á endanum á óvart, ýmsir möguleikar eru lengst af opnir um hver muni liggja í valnum og fyr- ir hendi hvers. Niðurstaðan er kannski ekki fyllilega fullnægjandi, en einnig það gerir verkið trúverð- ugra, meira eins og dæmigert djammkvöld sem lýtur ekki lög- málum um dramatíska nauðsyn. Annars eru samtöl lipur og gang- verk leikritsins skýrt, þó fátt sé um óvæntar vendingar eða kitlandi spennu. Á stundum mætti Kristján líka ganga örlítið nær persónum sín- um, vera grimmari í að afhjúpa þær, eða láta þær koma betur upp um sig í samtölunum. Það leynast held ég í upplegginu ónýttir möguleikar á bæði fyndni og dýpt, auk þess sem spennustigið lækkar upp úr miðbiki verksins. En svo nær það sér á strik og grípur áhorfandann aftur áður en yfir lýkur. Uppsetningin ber sterk höfundar- einkenni Unu Þorleifsdóttur. Skýr- leiki er hennar aðalsmerki og sem sviðsetjari fótar hún sig sem leik- stjóri best á næstum auðu sviði. Þó verkið sé nánast allt byggt upp af tveggja til þriggja manna samræð- um gengur mjög lipurlega upp að nýta aðra í hópnum sem lifandi leik- mynd meðan þær samræður fara fram. Auk þess byggir þetta á raunsæisgrunni; er þetta ekki ein- mitt svona á djamminu – allir saman en þó einir í þvögunni? Leikmynd Rebekku A. Ingimundardóttur sam- anstendur af níu málmklappstólum og þremur hreyfanlegum málm- bekkjum. Einn fær strax hlutverk bars en hinir verða nokkuð utan- veltu. Að öðru leyti sér leikhópurinn um að mynda umgjörðina, með hjálp vídeókameru sem varpar nær- myndum af höndum, hári og öðrum líkamshlutum á bakvegg: nútíma- leikhúslausn sem er á góðri leið með að verða klisja eða klassík, eftir því með hvaða gleraugum er horft. Bún- ingar Rebekku eru mikið augnayndi og hugkvæmir mjög, byggðir á end- urunnum galla- og jakkafötum og myndu sóma sér á tískufataslám í raunveruleikanum, að svo miklu leyti sem ég er dómbær á slíkt. Sam- spil búninganna og lýsingar Jóhanns Friðriks Ágústsonar er verulega áhrifaríkt, sérstaklega þegar honum tekst að gera leikhópinn nánast svarthvítan á ögurstundu. Tónlist Gísla Galdurs er fullkomlega viðeig- andi og fyrir vikið hæfilega óþolandi fyrir allsgáðan sitjandi (miðaldra) áhorfanda. Það er alveg hægt að leyfa sér að sakna aðeins sterkari drátta, jafnvel meiri áhættu, meiri ýkja, í karakter- smíðinni, bæði í textanum og túlk- uninni. Á móti einkennist sýningin af áhrifaríkum skýrleika og heildarsvip á framgöngu leikhópsins. Aftur höf- undareinkenni Unu, auk áhrifanna af áralangri náinni samvinnu leikar- anna flestra. Sem viðfangsefni fyrir einmitt þennan hóp í því samhengi sem hann er, er Aðfaranótt ágæt- lega heppnað og unnið verk. Það er góður siður að fara ekki djúpt í saumana á frammistöðu einstakra leikenda í nemendasýningum. Hér nægir alveg að segja að allir komast vel frá sínu og óska þessum unga og flotta hópi til hamingju með áfang- ann og velfarnaðar í framtíðinni. Ljósmynd/Leif Wilberg Orrason Áfangi „Allir komast vel frá sínu og skal þessum unga og flotta hópi óskað til hamingju með áfangann og velfarn- aðar í framtíðinni,“ segir í dómi um lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Út í kvöld Þjóðleikhúsið Aðfaranótt bbbmn Eftir Kristján Þórð Hrafnsson. Leik- stjórn: Una Þorleifsdóttir. Leikmynd og búningar: Rebekka A. Ingimundardóttir. Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson. Tón- list: Gísli Galdur Þorgeirsson. Leikarar: Útskriftarnemendurnir Árni Beinteinn Árnason, Ebba Katrín Finnsdóttir, Elísabet Skagfjörð Guðrúnardóttir, Eygló Hilmarsdóttir, Hákon Jóhannes- son, Hlynur Þorsteinsson, Júlí Heiðar Halldórsson og Þórey Birgisdóttir. Gestaleikari frá Þjóðleikhúsinu: Sigurður Þór Óskarsson. Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar Lista- háskóla Íslands í samstarfi við Þjóðleik- húsið. Frumsýning í Kassanum föstu- daginn 11. maí 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Peaky Blinders hlaut verðlaun sem besta dramatíska þáttaröðin á BAFTA-verðlaunahátíðinn um helgina þar sem verðlaun voru veitt fyrir besta efni í sjónvarpi og út- varpi á Bretlandseyjum. Athygli vakti að þáttaraðir streymisveitna á borð við Netflix voru hunsaðar að mestu. Saga þernunnar, The Hand- maid’s Tail, var valin besta alþjóð- lega þáttaröðin og Three Girls besta stutta þáttaröðin. Molly Windsor var valin besta leikkonan fyrir frammistöðu sína í Three Girls og Sean Bean besti karlleikar- inn fyrir frammistöðuna í Broken. Vanessa Kirby fékk verðlaun sem besta aukaleikkonan fyrir frammi- stöðuna í The Crown og besti karl- kyns aukaleikarinn var valinn Brian F O’Byrne fyrir Little Boy Blue. This Country var verðlaunað fyr- ir að vera besta gamanefnið í sjón- varpi og Daisy May Cooper var val- in besta gamanleikkonan. Besti gamanleikarinn var hins vegar Toby Jones fyrir leikinn í The Detectorists. Fótboltalýsandandinn John Mot- son hlaut sérstök heiðursverðlaun en hann hætti störfum sökum ald- urs um helgina. Peaky Blinders valin besta þáttaröðin Svalir Peaky Blinders, sem BBC framleiðir, fékk helstu verðlaunin. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Fim 17/5 kl. 20:00 31. s Lau 19/5 kl. 20:00 33. s Sun 27/5 kl. 20:00 35. s Fös 18/5 kl. 20:00 32. s Fös 25/5 kl. 20:00 34. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 16/5 kl. 20:30 aukas. Lau 19/5 kl. 20:30 aukas. Lau 26/5 kl. 20:30 aukas. Fim 17/5 kl. 20:30 23. s Fim 24/5 kl. 20:30 aukas. Fim 31/5 kl. 20:30 aukas. Fös 18/5 kl. 20:30 24. s Fös 25/5 kl. 20:30 aukas. Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Hin lánsömu (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 20:00 4. s Kraftmikil og kómísk saga 8 systkina sem lifa velmegunarlífi Slá í gegn (Stóra sviðið) Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Aðfaranótt (Kassinn) Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 16/5 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.