Morgunblaðið - 15.05.2018, Side 33

Morgunblaðið - 15.05.2018, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2018 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður Sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is www.kvarnir.is 1996 2016 20 ÁRA RUSLAGÁMUR STEYPU SÍLÓ GEYMSLUBOX Galvaniseraðir ruslagámar Til á lager Auðveldar steypuvinnu. Til í ýmsum stærðum Frábær lausn til að halda öllu til haga á byggingarsvæði. Aukahlutir fyrir byggingakrana Kvarna-tengi 70 kr stk m/vsk. ICQC 2018-20 Hetjurnar í kvikmyndinni Aven- gers – Infinity War sitja á toppi listans yfir bestu aðsókn helgar- innar í kvikmyndahúsunum, rétt eins og í liðinni viku. Miðar hafa verið seldir á myndina fyrir meira en tólf milljónir króna og hafa tæplega 49 þúsund manns séð hana. Gamanmyndin I Feel Pretty með leikkonunni Amy Schumer er ný á lista en stekkur beint upp í annað sætið og fellir Varg, spennu- mynd Barkar Sigþórssonar niður í það þriðja en 3.600 manns hafa séð Varg. Bíóaðsókn helgarinnar Sitja sem fastast Hefnendur Hetjurnar vinsælu. Avengers – Infinity War 1 3 I Feel Pretty Ný Ný Vargur 2 2 Overboard Ný Ný Víti í Vestmannaeyjum 3 8 Peter Rabbit 4 7 The Guernsey Literary and Potato Peel Pie Society Ný Ný Duck Duck Goose / Önd önd gæs 5 4 Rampage 6 5 A Quiet Place 8 6 Bíólistinn 11.–13. maí 2018 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Hildur Guðnadóttir tónskáld og tón- listarkona hlaut í gær Langspilið, verðlaun sem STEF, Samband tón- skálda og eigenda flutningsréttar, veitir árlega. Langspilið er veitt höf- undi tónlistar sem þykir hafa skarað fram úr og náð eftirtektarverðum ár- angri á síðastliðnu ári, að mati STEFs. Verðlaunagripurinn er ís- lenskt langspil sem er sérstaklega smíðað fyrir STEF af Jóni Sigurðs- syni á Þingeyri. Langspilið var fyrst veitt árið 2015 og þá hlaut Ólafur Arnalds verðlaun- in. Ári síðar hlaut Ásgeir Trausti þau og Barði Jóhannsson í fyrra. Hildur er tónskáld, sellóleikari og söngvari. Hún vakti fyrst athygli með hljómsveitinni Múm en hefur síðan átt athyglisverðan sólóferil. Hún hef- ur gefið út fjórar sólóplötur og hefur allnokkrum sinnum verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Hildur hefur þó ekki síst vakið at- hygli vegna tónlistar sinnar fyrir leikhús, dansverk og fyrir kvikmynd- ir og sjónvarpsþætti. Hildur kom þannig meðal annars að gerð tónlist- ar fyrir kvikmyndirnar Sicario, Sol- dado, Mary Magdalene og Strong Island, sem var tilnefnd til Óskars- verðlauna, svo og gerð tónlistar fyrir Handmaid’s Tale sjónvarpsþáttarað- arinnar. Fyrir tónlist sína í kvik- myndinni Eiðnum hlaut Hildur Edduverðlaunin 2017. Nú í apríl hlaut Hildur sérstök verðlaun á Beij- ing-kvikmyndahátíðinni fyrir tónlist sína við bresku kvikmyndina Jour- neýs End. 26 styrkir til útgáfu Þá var tilkynnt hverjir hljóta styrki STEFS úr Nótnasjóði og Hljóðritasjóði en úthlutað er úr þeim tvisvar á ári, að þessu sinni alls 44 styrkjum að andvirði kr. 9.110.000. Alls styrkir STEF hin ýmsu verk- efni höfunda á ári hverju um u.þ.b. 35 milljónir í gegnum þá sjóði sem STEF rekur eitt eða með samstarfs- aðilum. Markmið Hljóðritasjóðs er að styrkja útgáfu íslenskra tónverka, þ.e. tónlistar með eða án texta, á hljómplötum, hljómdiskum og öðrum hljóðritum sem og á mynddiskum og öðrum myndritum, svo og að styrkja sambærileg verkefni. 82 umsóknir bárust að þessu sinni, en sjóðurinn styrkti nú 26 verkefni um 4,8 millj. kr. Eftirtaldir hlutu styrki: Egill Ólafsson, Sin Fang (Sindri Már Sig- fússon), Gunnar Þórðarson, Bjart- mar Guðlaugsson, Arnór Dan, Guð- mundur Steinn Gunnarsson, Kristín Anna Valtýsdóttir, Ingunn Huld Sævarsdóttir, Agnar Már Magnús- son, (Emmsjé Gauti) Gauti Þeyr Másson, Haukur Heiðar Hauksson, Lára Rúnarsdóttir, Michael Jón Clarke, Kristófer Rodriguez Svönu- son, Elín Eyþórsdóttir, Unnur Sara Eldjárn og hljómsveitirnar Rythma- tik, Hórmónar, Sturla Atlas, Vintage Caravan, Katla, Úlfur Úlfur, Agent Fresco, Amabadama, Nýdönsk og Valdimar. 14 styrkir úr Nótnasjóði Markmið Nótnasjóðs er að styrkja útgáfu íslenskra tónverka, þ.e. tón- listar með eða án texta, á nótum og á stafrænu formi, svo og að styrkja sambærileg verkefni sem samrýmast fyrrgreindu meginmarkmiði að mati sjóðsstjórnar. 20 umsóknir bárust að þessu sinni í Nótnasjóð og hlutu 14 styrki, samtals kr. 4,4 millj. Styrki hlutu: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Alexandra Chernishova, Áskell Más- son, Pamela De Sensi, Leifur Gunn- arsson, Tómas R. Einarsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hilmar Jensson, Lovísa Fjeldsted (vegna verkefnis um Jórunni Viðar), John A. Speight, Hafliði Hallgrímsson, Þuríður Jóns- dóttir og hljómsveitirnar Vintage Ca- ravan og Moses Hightower. Morgunblaðið/Hari Viðurkenning Hildur Guðnadóttir tók í gær við Langspilinu, viðurkenningunni sem STEF veitir. Hildur fékk Langspilið  Hildur Guðnadóttir tónskáld og sellóleikari hlaut árleg verðlaun STEFs  44 styrkir einnig veittir ýmsum höfundum úr Nótnasjóði og Hljóðritasjóði Stemning Fólk var kátt á viðburðinum, þeir sem fengu styrki og aðrir. Eftir röð uppboða alla síðustu viku, þar sem Christie’s uppboðshúsið seldi listaverk, húsbúnað og hönn- unargripi sem höfðu verið í eigu Davids og Peggy Rockefeller, er ljóst að ekki náðist að selja safnið fyrir milljarð dollara, nær hundrað milljarða króna, eins og einhverjir sérfræðingar höfðu spáð. Selt var fyrir um 833 milljónir dala, um 85 milljarða króna. Engu að síður er um að ræða verðmætasta dánarbú sem selt hefur verið á uppboði. Hæsta verðið fékkst fyrir mál- verk eftir Picasso, „Stúlka með blómakörfu“, 115 milljónir dala, og lánar óþekktur kaupandinn Orsay- safninu í París verkið. „Vatnaliljur í blóma“ eftir Claude Monet var selt fyrir 85 milljónir dala og „Odal- isque Couchée aux Magnolias“ eftir Henri Matisse fyrir 80,8 milljónit dala og er það metverð fyrir verk eftir báða. Málverk eftir Diego Riv- era var selt fyrir tæpar tíu milljónir dala og er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir suður- amerískan listamann. Málverk eftir eiginkonu Rivera, Fridu Kahlo, átti fyrra metið. Metverð Þetta verk eftir Diego Rivera var selt fyrir tíu milljónir dala og er það dýrasta eftir suður-amerískan listamann. Verðmætt safn Rockefellers selt fyrir 85 milljarða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.