Morgunblaðið - 28.05.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.05.2018, Qupperneq 2
2 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. ÚRSLIT SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 2018 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018 BAKSVIÐ Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Sjálfstæðismenn unnu kosningasig- ur í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík á laugardag og meiri- hluti Samfylkingar, Vinstri grænna, Pírata og BF féll. Viðreisn er í oddastöðu við myndun meiri- hluta í borginni með tvo fulltrúa og getur myndað meirihluta til hægri eða vinstri. Óformlegar þreifingar um myndun meirihluta hófust strax á kosninganótt. Fylgi Vinstri grænna dróst sam- an, en flokkurinn hélt sínum manni inni. Miðflokkurinn fékk einn borg- arfulltrúa kjörinn og Píratar tvo. Hlutur kvenna í borgarstjórn hefur aldrei verið meiri, en 65% nýkjör- inna borgarfulltrúa eru konur. Ákall um breytingar „Við settum okkur tvö markmið. Annars vegar meirihlutann og hins vegar að verða stærsti flokkurinn í Reykjavík. Þetta tókst og gott bet- ur, því meirihlutinn er ekki bara fallinn, heldur kolfallinn og vantar tvo menn,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna. „Skila- boðin eru skýr: Fólk vill breyt- ingar og Sjálfstæðisflokkinn til að leiða þær breytingar,“ bætir hann við. „Mér finnst ekki ólíklegt að það fari í gang frekari viðræður milli fólks á morgun, þegar það hefur náð góðum nætursvefni,“ segir Ey- þór sem telur rökrétt að stjórn- arflokkarnir haldi sig til hlés til að byrja með. „Það er ákall um breyt- ingar og því er eðlilegt og rökrétt framhald að þeir flokkar sem hafa verið að stjórna taki sér frí og nýju flokkarnir taki við stjórninni. Það er það sem íbúarnir vilja,“ segir Eyþór. Spurður hvort Sjálfstæðisflokk- urinn eigi að leiða viðræðurnar kveður hann já við. „Sjálfstæðis- flokkurinn er langstærsti flokkur- inn,“ segir Eyþór Arnalds. Málefnalegur meirihluti Samfylkingin hafði lengi mælst stærri en Sjálfstæðisflokkurinn í skoðanakönnunum. Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri segir að mögulega hafi fylgi Samfylkingar verið hjá hópum sem síður skiluðu sér á kjörstað. Spurður hvaða skilaboð felist í niðurstöðu kosninganna, svarar hann að stærstu tíðindin séu fram- gangur nýrra flokka. Línur skýrast betur á næstu dögum að sögn Dags, en hann telur að meirihluti sé um mörg helstu áherslumál Samfylkingarinnar. „Ég sé ekki betur en að það sé góður meirihluti í borgarstjórn fyrir áherslu á þétt- ingu byggðar, borgarlínu og önnur mikilvæg verkefni í þeim efnum,“ segir hann og nefnir að breiður meirihluti sé ákjósanlegur. Hann nefnir að óformlegar þreif- ingar hafi verið milli allra flokka „á alla kanta“ í gær og að oddvitar hafi leitað í baklönd sín. – En á einhver tilkall til þess að leiða myndun meirihluta? „Það eru engar skyldur í þessum efnum aðrar en að sveitarstjórn- arfólk myndi starfhæfan meiri- hluta. Þegar þingið er annars veg- ar hefur forsetinn ákveðið hlutverk í þessu, en á sveitarstjórnarsviðinu hefur enginn slíkt hlutverk, við berum ábyrgð á þessu sjálf. Meiri- hlutamyndunin gengur út á að ná meirihluta um mikilvægustu verk- efnin sem skipta máli fyrir Reykja- vík á komandi árum,“ segir hann. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sagði í gær að Viðreisn myndi „selja sig dýrt“. Spurður hvort möguleiki sé á að næsti borgarstjóri verði þá mögu- lega úr Viðreisn segir Dagur að þeir flokkar sem „selji sig dýrt“ muni frekar gera það á grundvelli málefnanna en borgarstjóraemb- ættisins. Eyþór Arnalds Hildur Björnsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Egill Þór Jónsson Marta Guðjónsdóttir Katrín Atladóttir Örn Þórðarson Björn Gíslason Dagur B. Eggertsson Skúli Helgason Hjálmar Sveinsson Guðrún Ögmundsdóttir Heiða Björg Hilmisdóttir Kristín Soffía Jónsdóttir Sabine Leskopf Sanna Magdalena Mörtudóttir Dóra Björt Guðjónsdóttir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Líf Magneudóttir Kolbrún Baldursdóttir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir Pawel Bartoszek Vigdís Hauksdóttir Barist um borgina  Sjálfstæðisflokkurinn ofan á hjá kjósendum  Línur skýrast á næstu dögum  „Eðlilegt að Sjálfstæðisflokkurinn leiði“  Meirihluti um málefnin, segir Dagur Kosningaúrslit í Reykjavík 2014 og 2018 og niðurstöður skoðanakönnunar Kjörnir voru 23 borgarfulltrúar í stað þeirra 15 sem fyrir voru. 12 fulltrúa þarf til að mynda meirihluta. Úrslit kosninga 31. maí 2014 Fylgi í % og fjöldi borgarfulltrúa Úrslit kosninga 26. maí 2018 Fylgi í % og fjöldi borgarfulltrúa Könnun 23. maí 2018* Fylgi í % og fjöldi borgarfulltrúa 30% 25% 20% 15% 10% *Skoðanakönnun Félagsvísinda- stofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgun- blaðið 1 4,9% 2 8,2% 1 5,9% 2 8,0% 2 7,7% 1 3,9% 1 6,4% 5 31,9% 8 31,8% 7 25,9% 1 6,5% 1 6,1% 1 8,3% 2 7,4% 1 4,6% 4 25,7% 7 26,3% 8 30,8% 0 3,4% 1 4,3% C Viðreisn D Sjálfstæðis-flokkur F Flokkur fólksins J Sósíalista-flokkurinn M Miðflokk-urinn P Píratar S Samfylkingin V Vinstri græn Bauð ekki fram 2014 Bauð ekki fram 2014 Bauð ekki fram 2014 Bauð ekki fram 2014 Kosningar í Reykjavík » Sjálfstæðismenn vilja leiða viðræður um myndun meiri- hluta í borgarstjórn. » Eyþór Arnalds telur að nið- urstaðan sé ákall um breyt- ingar. » Dagur B. Eggertsson segir að um áherslumál Samfylking- arinnar sé meirihluti. » Formlegar viðræður flokk- anna hefjast á næstu dögum. Sanna Magdalena Mörtudóttir, odd- viti Sósíalistaflokksins, er yngsti borgarfulltrúi sögunnar og sló hún met Davíðs Oddssonar í Sjálfstæð- isflokki frá árinu 1974. Bæði voru 26 ára gömul, Sanna þó nokkrum mán- uðum yngri. Allra augu beindust að Sönnu í oddvitakappræðum á RÚV á föstu- dag þegar hún var spurð um fortíð stofnanda flokksins, Gunnars Smára Egilssonar, og framgöngu hans sem atvinnurekandi gagnvart launafólki. „Ég held að þetta hafi hjálpað. Margir brugðust við á samfélags- miðlum og það skapaðist umræða,“ segir Sanna, spurð um vægi kapp- ræðnanna í fylgi flokksins. „Við náðum líka að koma skila- boðunum okkar vel á framfæri þrátt fyrir að við höfum lítið fjármagn á bak við okkur,“ segir Sanna. Sósíal- istar funda á morgun til að marka flokknum stefnu í meirihlutamynd- uninni. Sanna segir að þeir sem gangi erinda auðvaldsins séu and- stæðingar flokksins og því sé sam- starf með flokkum á borð við Sjálf- stæðisflokkinn mjög ólíklegt. Kappræðurnar hafi haft áhrif á fylgið Morgunblaðið/Árni Sæberg Yngst Sanna Magdalena Mörtudóttir er yngsti borgarfulltrúi frá upphafi. „Þetta verður snúið og gerist ekki einn, tveir og þrír eins og þegar við mynduðum fráfarandi meirihluta,“ segir Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna. Spurð hvort það liggi ekki beinast við að Viðreisn „taki sæti“ Bjartrar framtíðar í frá- farandi meirihluta, segir Líf að margar áherslur Viðreisnar eigi samhljóm með áherslum VG, t.d. kjaramál og áhersla á þéttingu byggðar. Önnur áherslumál eigi þó síður upp á pallborðið, t.d. útvistun verkefna borgarinnar. Líf telur VG hafa unnið varnar- sigur í borginni og að Sósíalista- flokkurinn hafi sótt mjög á. Hún segir að VG muni engu að síður fara í saumana á niðurstöðunni með grasrót flokksins og horfa inn á við. „Við þurfum að kjarna okkur.“ „Við þurfum að kjarna okkur“ „Við ætluðum að ná fleiri inn, en er- um sátt við úrslitin. Við erum rétt að byrja,“ segir Vigdís Hauks- dóttir, oddviti Miðflokksins. Hún telur að Sjálfstæðisflokkur eigi að leiða viðræður um myndun meiri- hluta. „Sá meirihluti sem var er kolfallinn og það er allt opið,“ segir hún. „Við útilokum engan, það er okkar skylda að mynda starfhæfan meirihluta því það verður ekki kos- ið upp á nýtt,“ bætir Vigdís við. „Þess vegna er það með ólík- indum að borgarstjóri, eini fulltrúi VG sem galt afhroð í kosningunum og Sósíalistaflokkurinn, skuli úti- loka samstarf við Sjálfstæðisflokk- inn,“ segir hún. Sjálfstæðisflokkur leiði viðræðurnar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kosningavaka Vigdís telur eðlilegt að stærsti flokkurinn leiði meirihlutamyndun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.