Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 6

Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 6
6 Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is vor í lofti Eigum á lager mikið úrval varahluta í jarðvinnslutæki af eftirtöldum gerðum: Pöttinger, Vogel & Noot, Kverneland, Howard, o.fl ÚRSLIT SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 2018 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar hélt í Kópavogi en Björt framtíð bauð sameiginlega fram með Viðreisn. Samfylking og Framsóknarflokkur héldu hvor sín- um bæjarfulltrúa og Píratar komu manni inn. Ármann Kr. Ólafsson, bæjar- stjóri í Kópavogi, segist afskaplega ánægður og sáttur með að Sjálf- stæðisflokkurinn skyldi halda fimm mönnum. Hann vildi lítið tjá sig um meirihlutaviðræður seinni partinn í gær en ætlaði að funda með sjálf- stæðismönnum og fara yfir málin. „Málið er ekki lengra komið en það,“ sagði Ármann. Sjálfstæðismenn fyrsti kostur Theodóra S. Þorsteinsdóttir, oddviti Bjartrar framtíðar og Við- reisnar, segir framboðið þakklátt fyrir stuðninginn. Mikil liðsheild sé í hópnum og hann sterkur. „Við hittumst í dag [gær] og ræddum framhaldið en það eru eng- ar formlegar meirihlutaviðræður hafnar,“ segir Theodóra sem segir að framboðin hafi lýst því yfir í kosn- ingabaráttunni að þau myndu setj- ast niður og ræða áframhaldandi samstarf ef þau héldu meirihluta. „Ég túlka niðurstöður kosning- anna þannig að Kópavogsbúar vilji þennan meirihluta áfram og því hlýt- ur það að vera fyrsti kosturinn að Björt framtíð og Viðreisn tali við Sjálfstæðisflokkinn af virðingu fyrir lýðræðinu,“ segir Theodóra. Ómar Stefánsson, fyrrverandi oddviti framsóknarmanna, sem leiddi nýtt framboð, Fyrir Kópavog, segir vonbrigði að ná ekki inn manni þar sem lítið hafi vantað upp á. Hann segir að það segi sitt að í mesta góð- æri í sögu Kópavogs skuli meirihlut- inn ekki auka fylgi sitt. Engar viðræður hafnar Morgunblaðið/Golli Samstarf Theodóra S. Þorsteins- dóttir og Ármann Kr. Ólafsson.  Sami meirihluti áfram í Kópavogi Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta er auðvitað alveg ótrúlegur sigur og það er greinilegt að kjós- endur kunna vel að meta þá hluti sem við höfum verið að gera,“ seg- ir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, um niðurstöðu kosn- inganna á laugardag. Þar bætti Sjálfstæðisflokkur við sig einum manni og er nú með átta menn í bæjarstjórn. Alls hlaut flokkurinn 62% at- kvæða en auk Sjálfstæðisflokks náði Garðabæjarlistinn inn þremur mönnum með 28% atkvæða. Gunnar segir niðurstöðuna hafa verið vonum framar og í raun óvænta. „Ég átti ekki von á því að við myndum vinna jafn afgerandi sigur og við gerðum, ég verð að viðurkenna það. Ég bjóst við því að við myndum halda okkar sjö mönnum en þetta er frábær kosn- ing,“ segir Gunnar. Afsalar sér líklega launum Líkt og í sveitarstjórnarkosning- unum fyrir fjórum árum er Gunn- ar bæjarstjóraefni Sjálfstæð- isflokks. Nú hefur sú breyting þó orðið á að Gunnar er auk þess að vera bæjarstjóri orðinn bæj- arfulltrúi. Aðspurður segist Gunn- ar munu sitja sem bæjarfulltrúi en hann muni þó líklega ekki þiggja laun sem slíkur. „Mér myndi ekki finnast neitt óeðlilegt við að allar greiðslur sem eru tilkomnar vegna starfsins sem bæjarfulltrúi myndu detta út. Ég þarf hvort sem er að mæta sem bæjarstjóri á bæjarstjórnarfundi og svara ákveðnum spurningum,“ segir Gunnar og bætir við að það standi honum ekki til boða að hætta sem bæjarfulltrúi. „Samkvæmt stjórnsýslureglum get ég bætt þess í stað við níunda manninum. En líkt og ég sagði áð- an kemur hins vegar vel til greina að þiggja ekki laun fyrir störf mín sem bæjarfulltrúi,“ segir Gunnar. Stærri sigur en búist var við  Gunnar áfram bæjarstjóri í Garðabæ  Líklega launalaus bæjarfulltrúi Garðabær Sigurinn var stærri en Gunnar Einarsson átti von á. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Nýr meirihluti verður myndaður í Hafnarfirði. Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur með fimm bæjarfulltrúa og þarf einn til liðs við sig til að mynda meiri- hluta. Samfylk- ingin tapaði ein- um manni og Björt framtíð, sem var í meiri- hluta, bauð ekki fram. Miðflokkur- inn, Bæjarlistinn og Viðreisn eru nýir flokkar í bæjarstjórn með einn fulltrúa hver. Framsókn og óháðir náðu inn einum manni, Ágústi Bjarna Garðarssyni, sem er aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra. Rósa Guðbjartsdóttir er hæst- ánægð með úrslit kosninganna og þakklát Hafnfirðingum fyrir góðan stuðning. „Við lítum á niðurstöðuna sem við- urkenningu á störfum okkar og þeim árangri sem við höfum náð,“ segir Rósa. Hún segir margar kosti í stöð- unni við myndum meirihluta í Hafn- arfirði. „Það er alveg nýtt landslag í póli- tíkinni í Hafnarfirði. Við erum í sterkri stöðu og vantar aðeins einn bæjarfulltrúa með okkur til að mynda nýjan meirihluta. Það er allt opið og fjölmargir góðir kostir í stöð- unni,“ segir Rósa og bætir við að mikilvægt sé að mynda traustan og samhentan meirihluta þar sem vand- að er til málefnasamnings. Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði hittust í gær og reikna með að ræða við fulltrúa annarra flokka í dag. Sig- urður Þ. Ragnarsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins, var brattur og brosti framan í rigninguna daginn eftir kjördag. Hann telur að mesti mál- efnalegi samhljómurinn sé milli Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknar. „Það hafa engar formlegar við- ræður farið fram um samstarf við Sjálfstæðisflokkinn en við erum tilbúin svo framarlega sem sátt næst um helstu stefnumál Miðflokksins, málefni aldraðra og að þrýstingur verði settur á úrbætur í samgöngu- málum,“ segir Sigurður. Hann segir Sjálfstæðisflokkinn með pálmann í höndunum með fimm fulltrúa kjörna en allt sé opið þegar komi að meiri- hlutaviðræðum í Hafnarfirði. „Fyrst og síðast munu málefnin ráða með hverjum við förum í sam- starf,“ segir Sigurður. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kampakát Stuðningsmenn Miðflokksins fagna með nýjum bæjarfulltrúa í Hafnarfirði, Sigurði Þ. Ragnarssyni. Fimm bæjarfulltrúar  Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Hafnarfirði  Nýtt landslag Rósa Guðbjartsdóttir „Ég lít fyrst og fremst á þetta sem gríðarlega sterkan varnar- sigur,“ segir Ás- gerður Halldórs- dóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæð- isflokksins á Sel- tjarnarnesi, um niðurstöður kosn- inganna í gær. Alls fékk flokkurinn 1.151 atkvæði eða um 46,3% atkvæða sem er talsvert fylgistap frá síðustu kosningum. Þá fékk flokkurinn ríf- lega 52% greiddra atkvæða. Aðspurð segir Ásgerður úrslitin nokkuð góð í ljósi þess að flokkurinn þurfti að taka á móti árásum úr mörgum áttum. „Við vorum auðvitað með klofningsframboð og það gerir baráttuna ekki auðveldari þegar sjálfstæðismenn bjóða sig fram gegn flokknum. Maður hefði frekar viljað sjá þá taka þátt í prófkjöri sem fram fór fyrr á árinu. Það var því vegið að okkur úr nokkrum áttum og við kom- umst vel frá því,“ segir Ásgerður. Spurð um hvort til greina komi að bæta við öðrum flokki til að styrkja stöðu meirihlutans segir hún svo ekki vera. „Við erum með meirihluta líkt og áður og munum nú koma sam- an til að vinna að góðum málum fyrir bæinn,“ segir Ásgerður. Sjálfstæðismenn héldu meirihluta  Ánægð með úrslitin þrátt fyrir fylgistap Ásgerður Halldórsdóttir Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna hélt meirihluta sínum í Mos- fellsbæ. Vinir Mosfellsbæjar og Viðreisn náðu inn manni í fyrsta sinn en það var á kostnað Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Haraldur Sverrisson, bæjastjóri í Mos- fellsbæ, er ánægður með að meirihlutinn hafi haldið velli. „Þetta voru mjög sérstakar kosningar, margir listar í boði og innan við 1.000 kjör- gengir á hvern lista. Það voru 8 listar í boði og það samsvarar því að 80 listar hefðu verið í boði í Reykjavík,“ segir Har- aldur sem hitti oddvita Vinstri grænna í gær í þeim tilgangi að ræða áframhaldandi meirihlutasamstarf á grunni nýs mál- efnasamnings. „Vinstri græn eru okkar fyrsti valkostur og ég á ekki von á því að það verði mynd- aður meirihluti án sjálfstæðismanna í Mos- fellsbæ,“ segir Haraldur ennfremur. Sáttur við að meirihlutinn hélt Haraldur Sverrisson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.