Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 23

Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í Undirritaður um- gengst rafmagn að mestu á þann hátt að ganga að vegg, ýta á takka og kveikja ljós. Þetta er orðið svo inngróinn vani, að aug- að er farið að aðlagast birtunni áður en hönd- in snertir takkann á veggnum og líf án raf- magns er bara ekki til. Í sambandi við raf- magn eru bara þrjár kröfur. Að það sé þarna, að maður þurfi ekki að hugsa um það og að verðið sé viðráð- anlegt. Undirritaður hrökk upp úr þessu ástandi þegar honum var sagt frá ACER og þeim átökum sem stæðu um málið í Noreg og farið var í að kynna sér málið. Fljótlega kom í ljós að málið snýst um meira en bara rafmagn. Það snýst um lífsafkomu Íslendinga, því raforka er sú auðlind sem einna helst mun halda uppi lífskjörum þjóðarinnar. Málið snýst um ásælni fyrrverandi nýlenduþjóða í auðlindir á sama hátt og „vanþróuð ríki“ þurftu að búa við áður og búa jafnvel við enn í dag. Rökstuðningurinn hjá sumum er meira að segja hinn sami „við höfum hvorki vit né þekkingu til að gera þetta sjálf“. Ásælnin er síð- an falin í fallegum búningi sam- vinnu. Þekking, sem byggð hefur verið upp innan íslenskrar stjórn- sýslu, færi úr landi og fljótlega yrðu Íslendingar algerlega háðir þessu erlenda valdi þegar kæmi að upp- byggingu raforkukerfisins á Íslandi. Þekking er forsenda auðlindanýting- arinnar. Þekking, bæði á orku- vinnslu og dreifingu. Fullt forræði á auðlindinni glatast með tilheyrandi áhrif á lífskjör þjóðarinnar. En hvað er ACER? ACER er ein- hvers konar samband reglugerð- arsmiða fyrir rafmagn í löndum Evr- ópusambandsins (ESB). Viðamikið embætti sem heldur utan um þetta samband. Einhvers konar Orku- stofnun Evrópu. Sá aðili sem fær það hlutverk að vera reglugerð- arsmiðurinn hér og halda sambandi við ACER er Orkustofnun á Íslandi. Þetta ágæta vel metna fyrirtæki sem áratugum saman hefur haldið uppi rannsóknum í orkumálum á Íslandi og veitti ríkisstjórnum góð ráð skal nú fá nýtt hlutverk. Það fyrsta að yfirtaka vald ráð- herra til að samþykkja eða hafna reglum Landsnets um flutn- ingsnetið. Samkvæmt þeirri tilskipun Evrópusam- bandsins (ESB), sem setur allt þetta mál í gang (þriðja orku- málapakkann ásamt ACER) skal Orkustofnun vera al- gerlega sjálfstæð og óháð öllum öðrum stofnunum á Íslandi, hvort sem er opinberum stofnunum eða einkastofnunum. Orkustofnun skal vera svo sjálfstæð, að starfsfólk hennar má ekki spyrja eða hlusta á einn eða neinn þegar kemur að því hvernig hún gegnir reglugerð- arskyldum sínum eða fer með vald sitt. Hvert er svo þetta vald? Nefna má dæmi: Orkustofnun skal laga eða sam- þykkja gjaldskrár fyrir flutnings- net landsmanna, tryggja að þeir sem reka dreifikerfi eða rafmagns- fyrirtæki fari að viðeigandi lögum ESB, hafa samstarf við ACER og hlíta bindandi ákvörðunum þess og stjórnarnefndar ESB, virða samn- ingsfrelsi svo lengi sem það sam- rýmist lögum og reglum ESB og svo má áfram telja. Og hvað með þá vernd sem tveggja stoða kerfið hefur veitt gegn lögum og reglugerðum frá ESB? Ber ESA (eftirlitsstofnun EFTA) að fara eftir úrskurði ACER og hefur ACER aðfararhæfi gagnvart íslenskum stjórnvöldum? Svarið við báðum þessum spurn- ingum er sennilega já og hvað er þá orðið um þetta kerfi, sem er byggt á þeirri grunnhugsun að um tvo jafn- réttháa aðila er að ræða, Evrópu- sambandið (ESB) annars vegar og EFTA-ríkin hins vegar? Það er í raun einskis virði. Hvers á þessi gamla góða stofn- un, Orkustofnun, að gjalda. Stofnun sem hefur sinnt ótal orkuverkum og fóstrað í röðum vísindamenn sem selja þekkingu okkar víða um heim. Hvað verður um þessa þekkingu ef áform um ACER á Íslandi ná fram að ganga? Þessi stofnun á að verða eins og einhver Trójuhestur ESB í íslenska stjórnkerfinu og reka erindi þess hvað sem okkar fólk segir. Ef þessi pakki er samþykktur, er það ekki þá staðreynd að næstu orku- pakka þarf einnig að samþykkja, en þegar er verið að vinna að pakka númer 4? Margar fleiri spurningar vakna þegar málið er reifað og flestar ef ekki allar óþægilegar, eins og t.d. spurningin um raforkuverð á íslandi. Mun það hækka og þá hversu mikið? Þegar haft er í huga að einn til- gangur með þessum orkumálapakka er að jafna raforkuverð í Evrópu og að raforkuverð er lægst hér á landi, er nokkuð ljóst hvert svarið verður. Önnur spurning ekki síður mikilvæg en lýtur að orkustreng sem hug- myndir eru um að leggja til Evrópu. Verður fullt forræði yfir honum í höndum íslenskra stjórnvalda? Svarið er nei, enda hlutverk ACER að tryggja tengingar á milli landa og fær stofnunin til þess ýmsar vald- heimildir. Enginn hefur enn getað bent á hagsmuni Íslands af því að sam- þykkja þennan orkumálapakka og áróður fyrir honum hefur einkum falist í hræðsluáróðri um afleiðingar fyrir EES-samstarfið ef honum yrði hafnað. Margir hafa þó bent á að samningurinn gerir einmitt ráð fyrir að þingið á Íslandi þurfi að sam- þykkja lög frá ESB sem tekin eru upp í EES-samninginn áður en þau öðlast gildi hér. Í ljósi þess hversu miklir hagsmunir eru undir fyrir framtíðarvelmegun þjóðarinnar verða þingmenn okkar að átta sig á hvar skylda þeirra liggur og stöðva innleiðingu þriðja orkumálapakka ESB í EES-samninginn. Trójuhestur í stjórnkerfinu Eftir Birgi Örn Steingrímsson » Innleiðing á þriðja orkumálapakka Evrópusambandsins getur haft alvarlegar af- leiðingar fyrir lífskjör þjóðarinnar í náinni framtíð. Birgir Örn Steingrímsson Höfundur er fjármálafræðingur. born@islandia.is Fjórða iðnbyltingin Á þeim tíma sem liðinn er, 40 ára sögu, hefur margt breyst. Hefð- bundin fagstéttarfélög sem voru ráðandi við upphaf þessarar göngu eru vissulega enn fyrir hendi, en þau félög sem starfa á breiðari grunni eru nú fjölmennari. Svoköll- uð fjórða iðnbylting er hafin (4IR), en hún felur í sér fjölda nýrra af- urða tækniþróunar sem leiðir til samruna efnislegra, stafrænna og líffræðilegra heima, en það leiðir síðan til breytinga á öllum fag- stéttum, hagkerfum og í raun allri sýn okkar á samspil vinnu og sam- félaga. Það blasir við að háskólamennt- aðir starfsmenn, sem eru okkar fé- lagsmenn, munu í vaxandi mæli taka þátt í „gig economy“ (sem er skilgreint sem vinnumarkaður sem einkennist af skammtíma- eða verk- efnatengdum samningum frekar en varanlegum, föstum störfum). Við horfum fram á breytingar í starf- semi stéttarfélaga í ljósi þessa, þar sem starfsmenn munu í vaxandi mæli semja um sín kjör sjálfir, en fá viðmið, upplýsingar og þjálfun til slíkra verka frá stéttarfélögum, auk þess sem þáttur stéttarfélaga í dag- legri hagsmunagæslu getur farið mjög vaxandi. Nýtt íslenskt launamynd- unarkerfi Í umræðu um nýtt íslenskt launamyndunarkerfi er nauðsynlegt að gleyma ekki þeim grunni vel- ferðarkerfis sem hefur verið mót- aður hér á landi að norrænni fyr- irmynd. Því má heldur ekki gleyma, að háskólamenntaðir starfsmenn og raunar allir mennt- aðir starfsmenn sem þurfa að taka tíma í að afla sér menntunar eiga að njóta umbunar vegna þess og það á að blasa við þegar ævitekjur eru teknar saman. Umfram allt þarf að ná um þetta breiðri sátt, þar sem kjörnir fulltrúar lýðveld- isins fylgi sama ramma og aðrir launþegar. Höfundur er formaður Fræðagarðs, stéttarfélags háskólamenntaðra. Þegar röksemdir þrýtur freistast sum- ir til að „fara í mann- inn en ekki boltann“. Sú er raunin með Kristin H. Gunn- arsson, ritstjóra frí- blaðsins Vestfjarða, í grein sem hann birti í blaði sínu og Morg- unblaðinu í byrjun maí. Þar lemur hann á Skipulagsstofnun af miklum móð fyrir að vilja fara varlega gagnvart áformum um Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði og Ey- vindarfirði, og vegagerð um Teigs- skóg. Kristinn ræðst á Skipulags- stofnun fyrir að setja fram „alls konar athugasemdir og mótbárur“ við þessi áform. Þar sem Kristinn starfaði á árum áður við að setja lög á Alþingi, þá ætti hann að vita að engin stofnun ríkisins hefur það hlutverk að gera „alls konar athugasemdir“. Skipulagsstofnun hefur mjög skýrt markað hlutverk í lögum og reglugerðum. Varfærni ber að fagna, ekki fordæma Í grein sinni kvartar Kristinn undan því að Skipulagsstofnun hafi ekki greitt fyrir framgangi Hvalárvirkjunar. Það er ekki hlut- verk stofnunarinnar að flýta fyrir framkvæmdum á ósnortnum víð- ernum. Þvert á móti er það skylda Skipulagsstofnunar að skoða alla slíka þætti vel og vandlega, ekki síst ef framkvæmdir leiða til veru- legra og óafturkræfra umhverfis- áhrifa. Varfærnislegri meðferð Skipulagsstofnunar ber því að fagna. Lygarnar um ávinning Vestfjarða Rökþrot Kristins eru engu að síður skiljanleg. Til að mynda stendur ekki steinn yfir steini varðandi virkjanaáform í Ófeigs- firði og Eyvindarfirði. Allar full- yrðingar um ávinning Vestfjarða hafa reynst lygar. Þess vegna fer Kristinn í manninn en ekki bolt- ann. Hann kvartar undan því að auðmenn vogi sér að vilja vernda umhverfið, en lætur þess ekki get- ið að erlendir auðmenn standa að baki áformum um að raska ósnort- inni náttúru á Ströndum. Ítalskur auðmaður á svo að fá hundruð milljóna króna fyrir nýtingu vatns- réttinda í Eyvindarfirði. Virkjunin er ekki saklaus heimilisiðnaður sem Skipulagsstofnun er að trufla heldur ósvífið gróðabrall auð- manna á kostnað okk- ar allra. Aðeins þarf að minna á nokkur atriði til að sýna hversu vondan málstað Krist- inn hefur að verja. HS Orka, sem er að meirihluta í eigu fjár- festa í Kanada, stend- ur að áformaðri Hval- árvirkjun í Ófeigsfirði og Eyvindarfirði í gegnum dótturfyr- irtæki sitt Vesturverk. Virkjunin stuðlar á engan hátt að bættu afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum. Það vantar ekki rafmagn, heldur tryggari flutn- ingslínur á Vestfjörðum. Milljarða króna myndi kosta að leggja há- spennulínur yfir Ófeigsfjarðarheiði inn á nýjan tengipunkt á Nauteyri við Djúp. Til að skapa hringteng- ingu um Vestfirði þyrfti sæstreng þaðan til Ísafjarðar. Hinir útlendu eigendur Hvalárvirkjunar myndu ekki greiða þá milljarða, heldur ís- lenskir skattgreiðendur. En HS Orka leggur ekki áherslu á hring- tengingu, heldur pressar á að raf- magnið fari með háspennulínum yfir í Geiradal eða áfram frá Naut- eyri í Kollafjörð – að sjálfsögðu á kostnað skattgreiðenda. Þar verð- ur hægt að selja rafmagnið hvert á land sem er. Enda þurfa Vest- firðir aðeins brot af þeirri orku sem til stendur að framleiða með virkjun í Ófeigsfirði og Eyvind- arfirði. Engin störf skapast á svæðinu við virkjunina. HS Orka mun ekki stuðla að vegabótum eða auknum snjóruðningi norður í Árneshrepp. En að vísu ætlar HS Orka að beita sér fyrir því að þriggja fasa raf- magn og ljósleiðari verði lagt í hreppinn – ef virkjanaleyfið fæst. Einhverjum þætti það lítið endur- gjald fyrir að fá að leggja 300 fer- kílómetra Ófeigsfjarðarheiðar undir áhrifasvæði Hvalárvirkjunar með stórfelldum náttúruspjöllum. Barist um í lygavefnum Eftir Pétur Húna Björnsson Pétur Húni Björnsson » Virkjunin er ekki saklaus heimilisiðn- aður sem Skipulags- stofnun er að trufla heldur ósvífið gróða- brall auðmanna á kostn- að okkar allra Höfundur er stjórnarmaður í Rjúkanda, samtökum um verndun umhverfis, náttúru og menning- arminja í Árneshreppi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.