Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 17
Endurspeglar vilja og
þarfir samfélagsins
Breytingar í Fjarðabyggð Niðurstaða í endurtalningu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eskifjörður Mikil umsvif eru í Fjarðabyggð.
atkvæði betur. Það varð til þess að umboðsmönnum allra
framboðanna var í gær gefinn kostur á að skoða og telja
kjörseðlana. Endurtalningin leiddi ekki til breytinga á bæj-
arfulltrúum.
Athugasemd var gerð við eitt atkvæði sem hafði verið
greitt D-lista Sjálfstæðisflokksins og var það úrskurðað
ógilt. helgi@mbl.is
„Það er greinilegt að fólk vill breytingar. Við lögðum mikla
vinnu í okkar stefnuskrá og höfðum samráð við íbúana. Hún
endurspeglar vilja og þarfir samfélagsins,“ segir Eydís Ás-
björnsdóttir, oddviti Fjarðalistans, sem bætti við sig manni í
kosningunum og er í lykilstöðu við myndun nýs meirihluta í
bæjarstjórn Fjarðabyggðar.
Miðflokkurinn kom einnig manni að og féll meirihluti
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Fjarðalistinn getur
myndað meirihluta með hverjum hinna flokkanna sem er.
Viljum vanda okkur
Fjarðalistinn er listi félagshyggjufólks í Fjarðabyggð.
Hann var stofnaður fyrir tuttugu árum og er því eldri en
bæði Samfylkingin og VG. Listinn var um tíma við stjórn
sveitarfélagsins en hefur nú verið í minnihluta í átta ár.
Eydís segir að forystumenn allra hinna flokkanna hafi
haft samband í gær. Erfitt var að vinna í málum þar sem
mjótt var á munum í kosningunum og þurfti að telja atkvæði
að nýju.
„Við gengum óbundin til kosninga og erum að fara yfir
okkar mál í Fjarðalistanum. Við viljum vanda okkur. Það fer
eftir stefnunni með hverjum við viljum vinna,“ segir Eydís.
Féll á örfáum atkvæðum
Meirihlutinn féll á örfáum atkvæðum. Þegar atkvæði á
bak við fjórða mann Fjarðalistans og þriðja mann Sjálfstæð-
isflokksins voru reiknuð kom í ljós að sá fyrrnefndi hafði einu
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.
Sólin skein á Akureyri á kjördag og fulltrúar tveggja framboða
voru líka litríkir; klæddu sig í stíl við liti flokkanna; L-listamenn
skrýddust appelsínugulu, sjálfstæðismenn bláu. L-listafólkið
er, frá vinstri: Þorsteinn Hlynur Jónsson, Maron Pétursson,
Sæbjörg S. Kristinsdóttir, Guðmundur Óli Hilmisson og Ró-
bert Freyr Jónsson. Límdir á rúðurnar eru Þorgeir Rúnar
Finnsson sem var í 4. sæti og Geir Kristinn Aðalsteinsson sem
skipaði 5. sætið. Kristján Þór Júlíusson ráðherra heilsaði upp á
Gunnar Gíslason, oddvita sjálfstæðismanna, og Þórhall Jónsson
sem var í 3. sæti og er nýr bæjarfulltrúi. Lengst til hægri bíða
þrjú efstu á lista Pírata eftir fyrstu tölum; frá vinstri: Halldór
Arason, Hans Jónsson og Guðrún Ágústa Þórdísardóttir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Litríkur kjördagur á Akureyri
Oddvitar fjögurra flokka í bæjar-
stjórn Árborgar, allra annarra en
Sjálfstæðisflokksins, hafa ákveðið
að hefja við-
ræður um mynd-
un nýs meiri-
hluta. Meirihluti
Sjálfstæðis-
flokksins féll í
kosningunum en
flokkurinn hefur
haft hreinan
meirihluta þar í
tvö kjörtímabil.
„Við erum
bara búin að
ákveða að ræða saman og ætlum
að láta reyna á hvort við getum
myndað fjögurra flokka meiri-
hluta,“ segir Eggert Valur Guð-
mundsson, oddviti Samfylking-
arinnar. Auk Samfylkingarinnar,
sem hefur tvo fulltrúa, taka þátt
fulltrúar Framsóknar og óháðra,
Miðflokksins og Áfram Árborg
sem eiga einn fulltrúa hvert fram-
boð.
Eggert reiknaði í gærdag með
því að oddvitarnir myndu funda
með sínu baklandi í gærkvöldi og
hefja viðræður í kvöld. Vonast
hann til að niðurstaða fáist í þess-
ari viku, hvort af þessu geti orðið.
Einhver áherslumunur
Hann segir að einhver áherslu-
munur sé á milli framboðanna en
forystumennirnir þekkist vel og
reyni að vinna vel úr málum. Frá-
veitumálin voru kosningamál í Ár-
borg og skipulag nýs miðbæjar. Í
báðum þessum málum eru
áherslur mismunandi. Eggert Val-
ur bendir á að á síðasta fundi frá-
farandi bæjarstjórnar hafi verið
ákveðið að efna til atkvæða-
greiðslu meðal íbúa um miðbæinn.
Því ætti ekki að brjóta á því máli í
meirihlutaviðræðum heldur verði
að vinna út frá niðurstöðum at-
kvæðagreiðslunnar, þegar þær
liggja fyrir.
Öll framboðin vilja auglýsa eftir
bæjarstjóra. helgi@mbl.is
Fjórir flokkar í
viðræður í Árborg
Auglýst eftir nýjum bæjarstjóra
Eggert Valur
Guðmundsson
„Við komum inn með alveg nýjan hóp, unga og hæfi-
leikaríka einstaklinga úr öllum áttum. Við smullum vel
saman og það fór vel í fólk,“ segir Gestur Þór Krist-
jánsson, húsasmíðameistari í Þorlákshöfn, oddviti
Sjálfstæðisflokksins sem vann hreinan meirihluta í
Sveitarfélaginu Ölfusi. Það gerðist þó að öll hin fram-
boðin sameinuðust, meðal annars Listi framfarasinna
sem hafði hreinan meirihluta.
„Við lögðum upp með það að gera stjórnsýsluna
gagnsærri. Setja innkaupareglur og bjóða öll verk út,“
segir Gestur og bætir við: „Svo höldum við áfram með
gott sveitarfélag.“ Auglýst verður eftir bæjarstjóra.
Höldum áfram með gott sveitarfélag
Gestur Þór
Kristjánsson
„Okkur hefur ekki þótt það gott að hafa pólitískan bæj-
arstjóra. Viljum auglýsa eftir ópólitískum bæjarstjóra,“
segir Marzellíus Sveinbjörnsson, oddviti Framsóknar-
flokksins í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. Framsókn
bætti við sig manni og felldi meirihluta Ísafjarðarlist-
ans. Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Ísafjarðarlistinn
buðu fram bæjarstjóraefni, Ísafjarðarlistinn Gísla Hall-
dór Halldórsson bæjarstjóra og Sjálfstæðisflokkurinn
Daníel Jakobsson, fyrrverandi bæjarstjóra. Marzellíus
sagði það ráðast af viðhorfi hinna flokkanna til kröfu
framsóknarmanna um ópólitískan bæjarstjóra hvaða
stefnu þeir taki í meirihlutaviðræðum.
Krafa um ópólitískan bæjarstjóra
Marzellíus
Sveinbjörnsson
Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og VG hófu í gær við-
ræður um myndun nýs meirihluta í Borgarbyggð.
„Viðræðurnar ganga vel. Við eigum eftir að hnýta
nokkra hnúta og við höldum áfram á morgun [í dag],“
sagði Lilja Björg Ágústsdóttir, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins, í gær. Framsóknarflokkur og VG unnu á í
kosningunum, bættu við sig einum manni hvort fram-
boð á kostnað Sjálfstæðisflokksins og Samfylking-
arinnar. Framsóknarflokkurinn er nú stærsti flokk-
urinn, með fjóra fulltrúa. Sjálfstæðisflokkur og
Samfylking voru í meirihlutasamstarfi. helgi@mbl.is
Þrír flokkar ræða saman í Borgarbyggð
Lilja Björg
Ágústsdóttir