Morgunblaðið - 28.05.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.05.2018, Blaðsíða 10
10 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á nau tið ÚRSLIT SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 2018 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018 Það eru ófá handtökin þegar kemur að undirbúningi og framkvæmd kosninga. Frambjóðendur eru á þeysispretti um allar þorpagrundir að hitta kjósendur, safna atkvæðum og takast á um málefni. Á bak við frambjóðendur er hópur manna sem vinna vikum saman að því að koma stefnumálunum og sínu fólki til áhrifa í sveitarstjórnir. Ýmsar hefðir hafa skapast í kringum kosningar og enn búa hópar kjósenda sig upp áður en þeir mæta á kjörstað. En tímarnir breytast og menn- irnir með. Formaður kjörstjórnar á Ísafirði gladdi sjónvarpsgesti þegar hann tilkynnti tölur frá Ísafirði í töluvert sumarlegri skyrtu en hing- að til hefur tíðkast hjá formönnum yfirkjörstjórna. Þegar kosningabaráttunni lýkur bíður frambjóðenda mislöng nótt þar sem beðið er eftir því hvort markmiðið hafi náðst, hvort meiri- hlutinn haldi eða hvort nýr starfs- vettvangur sé orðinn að veruleika. Til þess að stytta biðina eftir úr- slitum kosninga og njóta þess að eiga góða stund saman eftir stranga kosningabaráttu safnast frambjóð- endur og stuðningsmenn saman á kosningavökum og skemmta sér. Sumir fagna á meðan aðrir sleikja sárin. En flestir fara heim sáttir við að hafa lagt sitt af mörkum. Stemning í baráttunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Gleði Eyþór Arnalds stígur gleðidans við fögnuð félaga sinna úr Sjálfstæðisflokknum á kosninganótt. Morgunblaðið/Eggert Barátta Dóra Björt, Sanna Magdalena og Dagur á leið í útsendingu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sumarlegur Björn Davíðsson, formaður kjörstjórnar á Ísafirði, les tölur. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Kjörsókn í Árneshreppi sl. laugardag var 93,5% en 43 íbúar af 46 sem voru á kjörskrá greiddu atkvæði. Enginn listi var boðinn fram og þar af leiðandi voru allir íbúar hreppsins í kjöri nema þeir sem báðust undan því. Hart var tekist á um Hvalárvirkj- un á síðasta kjörtímabili og klofnaði heppsnefndin meðal annars af þeim sökum. Virkjunarsinnar unnu sigur og skipa öll sæti hreppsnefndar Ár- neshrepps. Þetta staðfestir Eva Sig- urbjörnsdóttir, oddviti Árneshrepps. „Ég vona að okkur takist að stilla til friðar eftir frekar erfiðan tíma. Vilji meirihluta íbúa hreppsins er al- veg skýr og það hefur alltaf verið meirihluti fyrir virkjuninni,“ segir Eva sem er sátt við afgerandi niður- stöðu „Við ætlum ekki að sitja með hend- ur í skauti, það verður haldið áfram í því ferli sem virkjunarmálin eru í og svo erum við að fara að vinna á næstu vikum í verkefni sem heitir Áfram Árneshreppur. Verkefnið sem snýr að brothættum byggðum er unnið í samvinnu við Byggðastofnun. Við væntum mikils af verkefninu og að það geri eitthvað gott fyrir sveitarfé- lagið,“ segir Eva sem telur að úlfúðin fyrir kosningar hafi komið að mestu utan frá og hún leyfir sér að vona að íbúum hreppsins auðnist að vinna saman. Að loknum kosningum skipa þau Júlía Fossdal, Arinbjörn Bernharðs- son, Guðlaugur Agnar Ágústsson, Björn Guðmundur Torfason og Eva Sigurbjörnsdóttir hreppsnefnd Ár- neshrepps. Þrír hreppsnefndar- fulltrúar voru kosnir með 24 atkvæð- um hver eða 55,81% atkvæða og hinir tveir með 23 atkvæðum eða 53,49% atkvæða. Virkjunarsinnar unnu í Árneshreppi  Vill stilla til friðar  Vonast eftir sam- starfi  93,48% kusu Morgunblaðið/Golli Á vaktinni Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti hreppsnefndar Árneshrepps. Litlu munaði á kjörsókn í sveitar- stjórnarkosningunum nú og fyrir fjórum árum þegar hún var í sögu- legu lágmarki. Einungis munaði um einu prósentustigi á kosningunum nú og þá. Kjörsóknin í ár var um 67,6% en hún var 66,5% fyrir fjórum árum. Kjörsókn í Reykjavík jókst tals- vert frá því í borgarstjórnarkosning- unum fyrir fjórum árum. Í ár var kjörsókn um 67% en var 62,8% árið 2014. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2002 sem aukning verður á kjörsókn í borgarstjórnarkosningum. Alls nýttu 60.422 manns atkvæðarétt sinn af þeim 90.135 sem á kjörskrá voru. Í Kópavogi voru 25.790 á kjörskrá en alls létu 16.357 manns sjá sig á kjörstað. Kjörsókn var því örlítið betri en árið 2014 þegar hún var 60,8% en hún var 63,4% í ár. Á Sel- tjarnarnesi var kjörsókn mjög góð þar sem ríflega 75% greiddu at- kvæði. Í Garðabæ greiddu alls 7.768 manns atkvæði en á kjörskrá voru 11.598. Kosningaþátttakan var því um 67% sem er nánast sama hlutfall og fyrir fjórum árum þegar kjör- sóknin var um 66%. Í Reykjanesbæ var kjörsóknin einna verst en ein- ungis 6.494 íbúar af alls 11.400 íbú- um á svæðinu nýttu sér atkvæðarétt sinn. Það jafngildir um 57% kjör- sókn en kjörsókn á svæðinu hefur verið á mikilli niðurleið undanfarin ár. Í Hafnarfirði var svipað uppi á teningnum en þar voru 20.786 á kjörskrá en einungis 12.058 manns greiddu atkvæði sem er svipað hlut- fall og í síðustu kosningnum eða um 58%. Kjörsókn talsvert betri í Reykjavík Kjörsókn í Reykjavík 2002-2018 2002 2006 2010 2014 2018 83,9% 77,0% 73,4% 62,9% 67,0% „Það komu upp einhver ágrein- ingsefni en ekk- ert þó sem gæti komið til með að breyta úrslitun- um,“ segir Eva B. Helgadóttir, formaður yfir- kjörstjórnar í Reykjavík, spurð um hvort einhver vafamál hafi kom- ið upp við talningu kjörseðla. Nokk- ur minniháttar mál komu upp við talninguna, en Eva segir að það hafi að mestu verið af hinu góða. „Ég held að það sé afar gott að tekin sé umræða um ákveðin mál enda gefur það okkur, sem förum yfir kjörseðlana, fleiri fordæmi til að fara eftir þegar atkvæði eru metin. Svo ég taki nú dæmi voru at- vik sem komu upp þar sem fólk hafði fyllt í boxið í stað þess að krossa við og þar með er atkvæðið ógilt,“ segir Eva sem telur að um- ræða um þessi mál sé af hinu góða. a ronthordur@mbl.is Fáar kvartanir bár- ust til kjörstjórnar  Ekkert sem breytir niðurstöðunum Eva B. Helgadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.