Morgunblaðið - 28.05.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018
Laugavegi 29 • sími 552 4320 • www.brynja.is • verslun@brynja.is
Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16
Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
Öxi Carpenters
19.910 kr.
GÆÐAAXIR FYRIR KRÖFUHARÐA
Öxi Ekelund
9.910 kr.
Öxi Hatc
mini
16.770 k
Ný
vefverslun
brynja.is
1
et
r.
Öxi Hultan
17.820 kr.
Öxi Qvarfot
19.910 kr.
Maður um sjötugt lést í eldsvoða
sem varð í Gullsmára 7 í Kópavogi á
laugardagskvöldið. Eiginkona
mannsins var flutt á slysadeild með
snert af reykeitrun. Eldurinn kom
upp í íbúð á sjöundu hæð í fjölbýlis-
húsi með íbúðum fyrir eldri borgara.
Allt tiltækt slökkvilið var sent á
staðinn og mikill viðbúnaður var hjá
slökkviliði og lögreglu. Varðstjóri
slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu
tjáði fréttastofu RÚV að mikill eldur
hefði verið á svölum hússins.
Sjöunda hæð hússins var rýmd en
ekki var talin ástæða til að rýma hús-
ið í heild sinni.
Slökkviliðsmenn náðu fljótt að
slökkva eldinn og húsið var reykræst
í kjölfarið. Gunnar Hilmarsson, aðal-
varðstjóri lögreglunnar í Kópavogi,
segir að rannsókn á eldsvoðanum
standi yfir og eldsupptök séu enn
ókunn. Að sögn Gunnars er tjón ekki
umtalsvert og einungis bundið við
íbúðina sem kviknaði í.
ragnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lögreglan Greiðlega tókst að slökkva eldinn, upptök hans eru ókunn.
Einn lést í elds-
voða í Kópavogi
Eldur í fjölbýlishúsi eldri borgara
Mikill viðbúnaður hjá slökkviliðinu
Bjarni Ármann Atlason útskrifaðist
úr Verzlunarskóla Íslands um
helgina með 9,9 í meðaleinkunn og
sló þar með fjögurra ára gamalt met
Mörtu Jónsdóttur, sem útskrifaðist
með meðaleinkunnina 9,8.
Morgunblaðið greindi frá því í
apríl sl. að Bjarni hefði fengið já-
kvætt svar um styrki frá þremur af
sex bestu háskólum í Bandaríkj-
unum, Harvard, MIT og Columbia.
Hann fór í formlegar heimsóknir í
alla skólana áður en hann gerði upp
hug sinn en loks varð draumaskól-
inn, Harvard, fyrir valinu.
Kaus Harvard
Bjarni segir ekkert sérstakt hafa
valdið því að hann kaus Harvard.
„Ég endaði heimsóknaferðina mína
þar og kunni strax gríðarlega vel við
mig. Auk þess hentar námsfram-
boðið og námsfyrirkomulagið í Har-
vard mér mjög vel og aðstaðan var
til fyrirmyndar í alla staði.“
Bjarni tekur þó fram að hinir skól-
arnir séu engir eftirbátar Harvard.
,,MIT og Columbia skara einnig
fram úr á flestum sviðum, en á end-
anum var það bara heildarpakkinn
við Harvard sem heillaði mig frekar
en einhver einn þáttur.“
Bjarni hefur nám í Harvard nú í
ágúst. Hann hefur hugsað sér að
leggja stund á einhverskonar raun-
greinar og þá helst taugalíffræði eða
líffræðilega verkfræði.
ragnhildur@mbl.is
Sló met í meðal-
einkunn Verzló
Útskrifaðist með 9,9 í meðaleinkunn
Morgunblaðið/Valli
Metnaðarfullur Bjarni fékk jákvæð
svör um styrk frá þremur skólum.
Hreyfivika UMFÍ hefst í dag og
stendur til 3. júní næstkomandi.
Þetta er í sjöunda sinn sem
hreyfivikan er haldin og þjófstart-
aði UMFÍ átakinu í Mosfellsbæ í
gær með hressilegu gúrkuhlaupi.
Fjölga þeim sem hreyfa sig
Hreyfivikan er árleg lýðheilsu-
herferð og samevrópskt verkefni
þar sem markmiðið er að fjölga
þeim sem hreyfa sig reglulega í 30
mínútur á dag og hjálpa þeim sem
vilja byrja að hreyfa sig að finna
hreyfingu sem hentar.
Í hreyfivikunni á síðasta ári tóku
43.000 þátt í 490 viðburðum á Ís-
landi. Hreyfivikan verður árlega til
ársins 2020 og er stærsta lýðheilsu-
herferð í Evrópu með yfir milljón
þátttakendum.
Upplýsingar um viðburði í
hreyfivikunni er að finna á ice-
land.moveweek.eu/events/.
Hreyfivika UMFÍ hófst með gúrkuhlaupi
Hreyfivika Öllum er hollt að hreyfa sig.
Sund er holl, góð og skemmtileg hreyfing.
Persónuverndarmál og fjármála-
áætlun eru þau mál sem munu að öll-
um líkindum taka mest pláss á Al-
þingi nú eftir hlé. Þetta segir Helgi
Bernódusson, skrifstofustjóri Al-
þingis. Þingið tók stutt hlé vegna
sveitarstjórnarkosninga en kemur
saman á ný í dag. Helgi segir daginn
vera dæmigerðan mánudag og að
dagskráin verði í styttra lagi.
,,Bæði undirbúnar og óundirbúnar
fyrirspurnir til ráðherra eru á dag-
skránni, ásamt fundum formanna
þingflokka og fundum forsætis-
nefndar,“ segir Helgi. Nokkur mál
eru á lokastigi og bíða þess að vera
kláruð.
Þrátt fyrir að Helgi segi dag-
skrána vera í styttri kantinum þá er
samt sem áður ýmislegt sem verður
tekið fyrir á Alþingi þennan fyrsta
dag eftir hlé. Þar má nefna tillögu að
breytingum á siðareglum fyrir al-
þingismenn. Tillagan er sprottin af
umræðum kvenna og karla á þingi
um kynferðisofbeldi og -áreitni.
Verði hún samþykkt þá bætast við
siðareglurnar ákvæði sem snúa að
því að hafna einelti og kynferðislegri
áreitni á milli þingmanna. Sömuleið-
is verður frumvarp til laga um
breytingar á lögum um almanna-
tryggingar rætt í velferðarnefnd.
Inga Sæland er flutningsmaður þess
ásamt öðrum. Í frumvarpinu er lagt
til að greiðslur til ellilífeyrisþega
verði ekki skertar vegna atvinnu-
tekna.
ragnhildur@mbl.is
Persónuvernd í brennidepli
Alþingi kemur saman í dag Nokkur mál á lokastigi