Morgunblaðið - 28.05.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
löndin að auka viðskipti og vöxt kín-
verskra fyrirtækja á alþjóðamörkuð-
um með því að reyna að skapa ný
samstarfstækifæri við erlend fyrir-
tæki.“
Andri telur að það sé eftir miklu
að slægjast fyrir íslensk fyrirtæki á
þinginu enda séu mörg kínversk
tæknifyrirtæki leiðandi á sínu sviði
og áhugasöm um ýmiss konar sam-
starf við íslensku fyrirtækin. Að auki
hafi þau áhuga á að skoða fjárfest-
ingar í fyrirtækjum og verkefnum
utan Kína. „Ef eitthvað er þá ætti
ávinningurinn að vera meiri fyrir
okkur en fyrir Kínverjana enda
rannsóknar-, þróunar- og fram-
leiðslugeta þeirra mikil – að ekki sé
talað um hvað kínverski markaður-
inn er margfalt stærri en sá ís-
lenski.“
Kallar á þolinmæði og úthald
Andri bendir á að Íslenskt at-
vinnulíf sé þegar búið að ná fótfestu í
Kína. „Í samstarfi við viðskiptaþjón-
ustu utanríkisráðuneytisins höfum
við boðið upp á öfluga viðskiptaþjón-
ustu í sendiráði Íslands í Peking þar
sem við höfum m.a. haft vel tengdan
viðskiptafulltrúa á staðnum í hálfan
annan áratug og eru núna ófá íslensk
fyrirtæki með starfsstöðvar í Kína.
Þrátt fyrir að fríverslunarsamningur
sé í gildi á milli landanna hafa fyr-
irtæki rekið sig á ýmsar viðskipta-
legar hindranir, en nú virðast Kín-
verjarnir vera að breiða út faðminn
sem fyllir mann bjartsýni um fram-
haldið.“
Íslenskir athafnamenn virðast líka
hafa lært betur á Kína. „Þann tíma
sem ég hef starfað hjá Íslandsstofu
hef ég orðið talsvert var við að fyr-
irtæki líti á útflutning sem sprett-
hlaup og oft að þau vilja komast helst
til hratt inn á erlenda markaði. Þró-
unin hefur sem betur fer verið í þá
átt að í dag held ég að fólk sé farið að
skilja það betur að það að markaðs-
setja inn á svæði eins og Kína er
langhlaup. Kínverjar leggja mikla
áherslu á persónuleg tengsl við þá
sem þeir gera viðskipti við og að
byggja upp traust á milli aðila. Tæki-
færin eru til staðar en til að menn
geti nýtt sér þau þarf bæði fjárhags-
leg bolmagn, þolinmæði og úthald.“
Þarf alltaf að sýna aðgát
En þurfa ekki íslensk fyrirtæki að
gæta sín á kínverska tæknigeiranum
sem hefur á sér það orðspor að
brjóta ítrekað á hugverkarétti vest-
rænna tæknifyrirtækja? „Ég held að
það skipti ekki máli hvaða land á í
hlut hverju sinni, íslensk fyrirtæki
eiga alltaf að vera með allt sitt á
hreinu og ekki fara með vörur sínar
inn á nýja markaði nema hafa fyrst
tryggt að hugverk þeirra séu nægi-
lega vel varin,“ segir Andri og bætir
við að skemmst sé að minnast þess
að nýlega vann svefnrannsóknafyr-
irtækið Nox Medical mál gegn
bandarísku tæknifyrirtæki sem
hafði með bíræfni brotið gegn hug-
verkarétti íslenska fyrirtækisins.
„Sem betur fer voru menn með sitt á
hreinu og öll leyfi og réttindi til stað-
ar því annars hefði getað farið illa.
Við eigum að draga lærdóm af þessu
og leita ráða áður en við festum okk-
ur í einhverjum samningum sem
geta verið okkur óhagstæðir þegar á
heildina er litið.“
Drekinn breiðir út faðminn
Fjölmennur hópur er kominn hingað til lands til að greiða fyrir samstarfi
íslenskra og kínverskra fyrirtækja Gætu verið áhugasöm um að fjárfesta
AFP
Afköst Starfsmaður fylgist með sólarselluframleiðslu í kínverskri verk-
smiðju. Framleiðslugeta Kínverja gæti nýst íslenskum fyrirtækjum vel.
Í tilkynningu sem Eimskip sendi
fjölmiðlum á laugardagskvöld seg-
ir að embætti héraðssaksóknara
hafi afhent félaginu rannsókn-
argögn vegna meints samráðs og
að með þeim hafi loks fengist upp-
lýsingar um meginsakarefni kæru
Samkeppniseftirlitsins til héraðs-
saksóknara árið 2013 vegna gruns
um brot á samkeppnislögum.
„Allt frá því að Samkeppniseft-
irlitið synjaði Eimskip um aðgang
að gögnum málsins 13. september
2013, eða fyrir tæpum 5 árum, hef-
ur félagið leitað eftir því að fá
haldbærar upplýsingar um grund-
völl þess,“ segir í tilkynningunni
en í kærugögnunum kemur m.a.
fram að Samkeppniseftirlitið telji
Eimskip og Samskip hafa stundað
samráð þar sem þau skiptu við-
skiptavinum á milli sín og tak-
mörkuðu flutningaframboð. Einnig
hafi verið vísbendingar um beint
verðsamráð og ólögmæta upplýs-
ingagjöf á milli fyrirtækjanna, og
til rannsóknar hvort tilteknir
stjórnendur hafi framkvæmt eða
hvatt til ætlaðs samráðs.
„Félaginu hefur ekki borist
andmælaskjal frá Samkeppniseft-
irlitinu vegna málsins sem bendir
til þess að málið sé enn ekki full-
rannsakað hjá Samkeppniseftirlit-
inu. Samkvæmt yfirlýsingum hér-
aðssaksóknara er verið að vinna í
málinu og síðan verði að koma í
ljós hvað komi út úr því,“ segir í
tilkynningunni. „Félagið fagnar
því að sakborningar hafi fengið
gögn og að loksins sé sakarefnið
varðandi 10. gr. samkeppnislaga
komið fram. Enginn starfsmaður
félagsins hefur verið ákærður.“
ai@mbl.is
Eimskip fær
gögn vegna
rannsóknar
Christine Lagarde, stjórnandi AGS, sagði á fundi
um helgina að „dekkstu skýin“ út við sjóndeild-
arhring efnahagslífsins væru „sá staðfasti ásetn-
ingur sumra aðila að skekja það kerfi sem hefur
tekist að skapa í kringum viðskipti, og sem við höf-
um öll tekið þátt í og notið góðs af í marga ára-
tugi“.
Hún varaði við hættunni af viðskiptastríði og
sagði verndarstefnu vera úrræði sem skemmir
fyrir þeim þjóðum sem til þess grípa.
Fundurinn fór fram í Sankti Pétursborg í Rúss-
landi á föstudag og lét Lagarde ummælin falla í
pallborðsumræðum með þjóðarleiðtogum á borð
við Vladimír Pútín, Shinzo Abe og Emmanuel
Macron.
„Góðu fréttirnar eru þær að í dag skín sólin
skært á alþjóðahagkerfið. Við fórum í gegnum erf-
iðan áratug en búum núna við hagkerfi sem vegn-
ar vel,“ sagði hún jafnframt.
Að sögn Bloomberg tilgreindi Lagarde einnig
mikla skuldsetningu ríkja og atvinnulífs sem
áhyggjuefni, og að herðing peningastefnu – sér í
lagi í Bandaríkjunum – væri farin að þrengja að
fjármálaumhverfi nýmarkaðslanda. ai@mbl.is
Lagarde varar við verndarstefnu
AFP
Áhrif Vel fór á með þeim Vladimír Pútín og
Christine Lagarde á fundinum í Rússlandi.
Recep Tayyp Erdogan Tyrklands-
forseti hvatti samlanda sína á laug-
ardag til að skipta því sparifé sem
þeir eiga í dölum og evrum yfir í
tyrkneskar lírur til að styrkja gjald-
miðilinn.
Erdogan ávarpaði stuðningsmenn
sína á fundi í borginni Erzurum í
austurhluta Anatolíu þar sem hann
sagði: „Bræður mínir, sem eigið dali
og evrur undir koddanum; farið og
skiptið þeim fyrir lírur. Saman mun-
um við vinna þessa rimmu.“
Boðað hefur verið til þing- og for-
setakosninga í Tyrklandi þann 24.
júní næstkomandi.
Líran lækkaði skarplega í síðustu
viku og hefur, að sögn Reuters,
veikst um hér um bil 20% gagnvart
bandaríkjadal það sem af er þessu
ári. Líran hefur verið á niðurleið
jafnt og þétt undanfarinn áratug og
er í dag rösklega 70% verðminni
gagnvart körfu helstu gjaldmiðla en
hún var fyrir áratug.
Veiking lírunnar síðustu misseri
hefur einkum verið rakin til þeirrar
stefnu Erdogans að halda stýrivöxt-
um lágum til að örva hagkerfið, og
sér í lagi til að fjármagna umfangs-
miklar byggingarframkvæmdir af
ýmsum toga. ai@mbl.is
Erdogan biður
Tyrki um að
kaupa lírur
AFP
Vandi Erdogan undirbýr kosningar.
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Risastór sendinefnd kínverskra
tæknifyrirtækja er komin til Íslands
og efnir í dag til kínversk-íslensks
hátækni- og nýsköpunarþings á Hil-
ton Reykjavik
Nordica. „Á við-
burðinn koma
fulltrúar frá um
það bil sjötíu kín-
verskum fyrir-
tækjum og er
þetta stærsti við-
burðurinn af
þessu tagi sem
við höfum átt
þátt í að skipu-
leggja,“ segir
Andri Marteinsson, forstöðumaður
hjá Íslandsstofu.
Að sögn Andra er Ísland fyrsti
viðkomustaður Kínverjanna á ferð
þeirra um Norðurlöndin og tilgang-
urinn með viðburðinum að efla og
styrkja viðskiptaleg tengsl á milli ís-
lenskra og kínverskra fyrirtækja.
Ráðstefnan, sem hefst kl. 9.30, er
öllum opin og segir Andri von á átta-
tíu fulltrúum frá íslenskum fyrir-
tækjum og stofnunum á viðburðinn.
„Sendinefndin kemur hingað undir
merkjum China Hi-Tech Fair sem
er mjög stór og öflugur hátæknivið-
burður sem haldinn er í nóvember
og hefur stuðning tíu kínverskra
ráðuneyta, sem sýnir hversu mik-
ilvægur viðburðurinn er í augum
Kínverjanna. Þeir líta á Norður-
löndin sem eitt markaðssvæði og er
markmið ferða þeirra um Norður-
Andri
Marteinsson