Morgunblaðið - 28.05.2018, Side 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018
Nýr stór
humar
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja
SigfúsTryggviBlumenstein
rafvirki er fimm-
tugur í dag. Hann
hefur lengi haft
áhuga á stríðs-
árunum á Íslandi
og heldur úti
heimasíðunni
www.fbi.is „Ég
byrjaði að koma
heim með dót tíu
ára gamall. Ég
átti heima vestur í
bæ og þar voru
gömlu öskuhaug-
arnir sem við kölluðum peningafjöruna því þar var svo mikið af
gamalli smámynt. Svo fór ég að finna skothylki og fór að tína þau
frekar en peninga. Þannig byrjaði ég að safna þessu dóti. Svo var
til gamall hjálmur heima og síðan hefur þetta undið upp á sig.“
Tryggvi á þann draum að stofna stríðsárasafn utan um hlutina
sem hann hefur safnað, en hann hefur haldið sýningar á mun-
unum.
Tryggvi er í Skotfélagi Reykjavíkur og er varamaður í stjórn-
inni. „Ég hef haft byssuáhuga síðan ég var krakki, það voru
byssur til heima og ég lærði fljótt umgengni í kringum skotvopn.
Var búinn að kaupa mína fyrstu byssu löngu áður en ég fékk
byssuleyfi, en það var riffill frá árinu 1900. Síðan hefur byssunum
fjölgað.“ Tryggvi er síðan að gera upp herjeppa, Ford GPW mód-
el 42. „Svo tók ég upp á því að hlaupa á gamals aldri með kon-
unni,“ segir Tryggvi um fleiri áhugamál.
Tryggvi er rafvirki hjá Rafholti og er búinn að vera þar í níu
ár. „Ég er mest í viðhaldi og sinni aðallega stórum fyrirtækjum
og ríkinu. Ég ætla í vinnuna í dag og kem með köku í tilefni
dagsins, en svo fórum við konan mín í siglingu um Karíbahafið
með vini mínum og konunni hans en hann á líka stórafmæli á
árinu. Ég mæli með þessu, þótt farþegarnir hafi verið í eldri
kantinum. Þetta er allt öðruvísi ferðamáti; maður sefur á milli
hafna, og ég hef ekki farið á milli svona margra landa á þetta
stuttum tíma.“
Eiginkona Tryggva er Steinunn Kristjánsdóttir, lífeindafræð-
ingur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Synir þeirra eru Kristján Leif-
ur 16 ára, Ólafur Karl 12 ára og Sigmar Hrafn sex ára. Fyrir átti
Tryggvi soninn Hall Húma, 25 ára, og eignaðist nýlega sitt fyrsta
barnabarn.
Safnar munum
frá stríðsárunum
Tryggvi Blumenstein er fimmtugur í dag
Í Havana á Kúbu Tryggvi og Steinunn ásamt
vinahjónunum Jóhönnu Sveinsdóttur og Jóni
Inga Jónssyni með Che Guevara í bakgrunni.
J
ónas Guðmundsson fædd-
ist í Reykjavík 28.5. 1958.
Hann var fjögurra ára er
hann missti föður sinn og
ólst upp eftir það hjá
móður og yngri bróður á heimili
afa síns og ömmu við Bergstaða-
strætið, Theodór B. Líndal og Þór-
hildi Pálsdóttur Briem, auk móð-
urbróður, Sigurðar Líndal
lagaprófessors.
Jónas gekk í Ísaksskóla, Mið-
bæjarskóla, Austurbæjarskóla,
Hlíðaskóla og Vörðuskóla, lauk
stúdentsprófi frá MR 1979, emb-
ættisprófi í lögfræði frá HÍ 1986
og lauk námi í stjórnsýslu og
stjórnun við Endurmennt-
unarstofnun HÍ 1998.
Jónas var í sveit á Mánárbakka
á Tjörnesi tvö sumur. Hann var
sendill á Alþingi með námi síðustu
ár grunnskóla, vann nokkur sumur
í uppskipunar- og verkmanna-
vinnu, m.a. hjá Ísal, sinnti næt-
urvörslu öll námsárin í lok
menntaskóla og með háskólanámi
og vann tvö sumur við verk-
smiðjustörf í Sviss.
Jónas var fulltrúi sýslumannsins
í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu,
í Stykkishólmi 1986-90, var bæj-
arfógeti í Bolungarvík frá 1990,
sýslumaður þar frá 1992 og hefur
verið sýslumaður á Vestfjörðum,
með aðsetur á Ísafirði frá 2015:
„Ég átti ekki von á að verða lengi
hér fyrir vestan en örlögin hafa
hagað því svo til að hér uni ég mér
vel og er ekki á förum.
Jónas sat í stjórn Sýslumanna-
félags Íslands 2006-2014. Hann
hefur sinnt félagsmálum fyrir vest-
an, einkum því er lýtur að sögu og
samgöngum: „Móðurbræður mínir
voru áhugamenn um sögu og eins
og flestir vita koma Vestfirðingar
yfirleitt ekki saman nema ein-
hverjar hliðar samgöngumála beri
á góma. Ég kom að stofnun félags-
ins Leið ehf., árið 2001, til að
þrýsta á samgöngubætur hér um
slóðir. Félagið hóf m.a. undirbún-
ing að lagningu vegar um Arn-
kötludal (Þröskulda) og flýtti því
líklega þar með fyrir loka-
framkvæmdum um nokkur ár, rétt
fyrir hrun. Nýlega stóð það svo
fyrir uppsetningu búnaðar til út-
sendinga útvarps í Bolungarvík-
urgöngum. Þá er ég í forsvari fyrir
lítið áhugamannafélag, Samgöngu-
félagið, sem hefur afskipti af ýmsu
þáttum samgangna, einkum á sviði
stjórnsýslu, með fyrirspurnum, rit-
un umsagna til Alþingis og ann-
arra stjórnvalda. Á vegum félags-
ins er rekinn vefurinn
www.samgongur.is.
Ég var félagi og í nokkur ár for-
maður Lionsklúbbs Bolungarvíkur
og nú er ég í Oddfellowstúkunni
Jónas Guðmundsson, sýslumaður á Vestfjörðum – 60 ára
Ferming Einars Geirs F.v.: Þórhildur, Halldóra, Sólrún, Einar Geir, Jónas, Helga og Jónatan Leó og Daði Heiðar.
Er nú meiri Vestfirð-
ingur en Reykvíkingur
Börnin í 2.S í Grunnskóla Hornafjarðar voru í haust í samfélagsverkefni þar sem
m.a. var fjallað um mismunandi aðbúnað barna í hinum ýmsu löndum, sjálfbærni
og endurvinnslu og það hvernig við almennt umgöngumst jörðina okkar. Í fram-
haldi af þessum umræðum ákváðu börnin að safna peningum og gefa í Rauða
krossinn og ein stúlka í bekknum bjó til söfnunarbauk úr notuðum djúsbrúsa og
skreytti með endurunnum pappír.
Krakkarnir í 2.S óskuðu eftir því að peningarnir færu í hjálparstarf þar sem þörfin
væri mest og renna þeir því til verkefna Rauða krossins í Malaví og verða meðal
annars nýttir til þess að kaupa skólagögn.
Krakkarnir söfnuðu samtals 6.807 kr. og voru peningarnir afhentir Karli Lúðvíks-
syni skyndihjálparleiðbeinenda sem er með þeim á myndinni.
Í 2.S. eru þau Alex Leví Gunnarsson, Ari Reynisson, Arnar Ingi Arens Sigfússon,
Bergur Ingi Torfason, Björg Kristjánsdóttir, Björg Sveinsdóttir, Bryndís Jóna
Valdimarsdóttir, Elías Bjarmi Eyþórsson, Emilía Ósk Jóhannsdóttir, Eydís Arna
Guðnadóttir, Freyja Dís Tjörvadóttir, Gísli Ólafur Ægisson, Guðrún Vala Ingólfs-
dóttir, Hlynur Ingi Finnsson, Ívar Goði Bragason, Jón Birkir Stefánsson, Lejla
Mujkic, Oliver Ævar Björgvinsson, Ólafur Steinar Helgason, Reynir Þór Páls-
son, Rijad Zahirovic, Sóley Eir Eymundsdóttir, Sunna Dís Birgisdóttir og Þor-
gerður Jónsdóttir.
Kennarar: Styrgerður Hanna Jóhannsdóttir og Jónína Aðalbjörg Baldvinsdóttir.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.