Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 8

Morgunblaðið - 28.05.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018 Einhverjir vörpuðu öndinni létt-ar eftir kosninguna á laug- ardag og sögðu botninum náð. Þar var átt við kjörsóknina, en hún hefur fallið kosningar eftir kosn- ingar.    Árið 2002 varkjörsóknin í sveitarstjórn- arkosningum 82,5%, fjórum ár- um síðar 78,6%, árið 2010 73,2% og féll svo enn meira í kosning- unum fyrir fjórum árum, niður í 66,5%.    Á laugardag þokaðist hún uppum rúmt prósentustig í 67,6%, sem varð til þess að talað var um að botninum hefði verið náð.    Það kann að vera rétt, en erauðvitað ekkert víst til lengri tíma litið. Og jafnvel þótt botn- inum sé náð er fátt sem bendir til að kjörsóknin muni rísa hátt á nýj- an leik á næstunni. Ekki væri æskilegt ef kjörsóknin héldist í um það bil 2⁄3 atkvæðisbærra.    En hvað veldur þessu áhuga-leysi og hvað er til ráða? Sumir segja að ítrekaðar kosn- ingar valdi þreytu kjósenda og eitthvað kann að vera til í því, en varla er það ráðandi þáttur.    Líklegra er að fólk sjái ekkiástæðu til að mæta vegna þess að of lítið breytist þó að skipt sé um fólk og flokk í brúnni.    Stefnan er iðulega mjög keimlíkog flokkar forðast að láta skerast í odda. Það skyldi þó ekki vera að kjósendur yrðu duglegri að taka þátt ef þátttakan hefði meira afgerandi áhrif? Hvað ef atkvæðið skipti meira máli? STAKSTEINAR Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Veður víða um heim 27.5., kl. 18.00 Reykjavík 8 alskýjað Bolungarvík 7 alskýjað Akureyri 11 skýjað Nuuk 1 skýjað Þórshöfn 14 heiðskírt Ósló 27 heiðskírt Kaupmannahöfn 19 skýjað Stokkhólmur 20 heiðskírt Helsinki 20 heiðskírt Lúxemborg 24 heiðskírt Brussel 24 súld Dublin 14 þoka Glasgow 18 þoka London 24 léttskýjað París 27 heiðskírt Amsterdam 23 heiðskírt Hamborg 20 léttskýjað Berlín 25 heiðskírt Vín 25 skýjað Moskva 22 heiðskírt Algarve 21 léttskýjað Madríd 24 léttskýjað Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 23 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 25 léttskýjað Winnipeg 20 alskýjað Montreal 18 alskýjað New York 16 rigning Chicago 30 heiðskírt Orlando 25 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 28. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:33 23:18 ÍSAFJÖRÐUR 2:58 24:03 SIGLUFJÖRÐUR 2:39 23:48 DJÚPIVOGUR 2:53 22:57 Ljósadýrð Skip Landhelgisgæslunnar virkar smátt í samanburði við stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur í sumar. Skipið lá ljósum prýtt og speglaðist með varðskipinu á sléttum sjónum við Sundahöfn á kosninganótt. Skemmtiferðaskip á bjartri sumarnótt Morgunblaðið/Árni Sæberg Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gær. Um miðjan dag handtók hún karl- mann sem grunaður var um akstur undir áhrifum áfengis. Maðurinn hafði valdið umferðar- óhappi og reynt að yfirgefa vettvang óhappsins fótgangandi. Lögreglan náði manninum og færði hann í skýrslu- og blóðsýna- töku. Að því loku var hann vistaður í fangageymslu. Rétt fyrir fjögur í gærdag var karlmaður handtekinn í miðbæ Reykjavíkur. Hann hafði áreitt starfsfólk verslunar með ógnandi háttalagi og framkomu. Maðurinn var í annarlegu ástandi sökum fíkniefnaneyslu þegar hann var handtekinn. Hann var færður í fangaklefa þar sem hann fékk að gista á meðan mál hans voru skoðuð. Áreitti starfsfólk verslunar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.