Morgunblaðið - 28.05.2018, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018
Íslenskt einangrunargler
í nýbygginguna, sumarbústaðinn
eða stofugluggann.
Fagleg ráðgjöf og öruggur afhendingartími.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi – sími 4889000– samverk.is
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Írar sneru við banni við fóstureyð-
ingum með miklum meirihluta í þjóð-
aratkvæði á laugardag. Þykir niður-
staðan söguleg í þessu rammkaþólska
landi.
Andstæðingar fóstureyðingar-
bannsins unnu kosninguna með 66,4%
atkvæða en 33,6% vildu áframhaldandi
bann, þ.e. að ekki yrði hróflað við svo-
nefndri áttunda grein stjórnarskrár-
innar.
Leo Varadkar forsætisráðherra
sagði að með kjörinu hafi Írar þurrkað
út þann smánarblett og aflétt byrðum
skammar af þúsundum kvenna sem
farið til Englands eða annarra landa til
fóstureyðinga frá því þær voru bann-
aðar með stjórnarskrárbreytingu
1983.
Varadkar sagði að Írland væri að
stíga út úr fortíðarskugga og fullorðn-
ast. „Þetta er sögulegur dagur fyrir Ír-
land. Þögul bylting hefur átt sér stað,“
sagði hann.
Þjóðaratkvæðið var haldið aðeins
þremur mánuðum áður en Frans páfi
kemur í heimsókn til Írlands til þátt-
töku í svonefndri heimsráðstefnu fjöl-
skyldunnar.
Samkvæmt útgönguspá blaðsins
The Irish Times studdu 70% kvenna
og 65% karla afnám bannsins við fóst-
ureyðingum. Af kjósendum 65 ára og
eldri kusu 60% áframhaldandi bann.
Meirihluti allra annarra aldurshópa
studdi afnám bannsins, þar á meðal
87% kjósenda 18 til 24 ára.
Með þessum niðurstöðum beinist nú
athygli yfir til Norður-Írlands sem er
að verða eina svæði Bretlands og Ír-
lands sem bannar fóstureyðingar.
Skorað hefur verið á Theresu May að
efna til samsvarandi atkvæðagreiðslu
þar. Hún er þó í erfiðri stöðu því stjórn
hennar stendur og fellur með stuðn-
ingi 10 þingmanna Sambandsflokksins
í breska þinginu, en þeir eru allir harð-
ir andstæðingar afnáms bannsins.
Írar snúa við fóstureyðingabanni
Aflétta forsmán og byrðum skammar af þúsundum írskra kvenna sem farið hafa á svig við bannið
AFP
Fögnuður Stuðningsmenn afnáms banns við fóstureyðingum í Írlandi fagna
niðurstöðu þjóðaratkvæðisins.
Þúsundum gesta skemmtigarðsins Europa-Park í
Rust í suðurhluta Þýskalands var bjargað út úr
garðinum eftir að gríðarlegur eldur braust út í
vöruhúsi í fyrrakvöld. Nokkur hundruð slökkviliðs-
manna börðust við bálið fram á nótt. Sjö þeirra
urðu fyrir reykeitrun. Árlega heimsækja 5,6 millj-
ónir manna garðinn og þar voru 25.000 manns er
eldur braust út.
AFP
Mikill eldsvoði varð í næststærsta skemmtigarði Evrópu
25.000 manns bjargað undan bálinu
Norðmenn sækjast eftir því að
semja um fiskveiðar og gas við
Breta áður en þeir hverfa úr Evr-
ópusambandinu (ESB). Stjórnvöld í
Brussel munu ekki leggjast gegn
því, að sögn norska utanrík-
isráðherrans, Ine Eriksen Søreide.
Hún segir að ráðamenn í Brussel
hafi sýnt merki þess að sætta sig við
að Bretar geri viðskiptasamninga
við önnur ríki meðan ólokið er
samningum um brottför þeirra úr
ESB. Slíkir samningar verði þó
ekki staðfestir fyrr en útgöngu-
samningar eru í höfn.
Norðmenn, rétt eins og Íslend-
ingar, eiga aðild að hinum sameig-
inlega markaði ESB gegnum samn-
inginn um Evrópska
efnahagsvæðið (EEA).
Vilja semja
um fiskveiðar
Fiskveiðar Norðmenn vilja semja.
ESB SAMÞYKKT SAMNINGUM
Ljósmynd/Norwegian Seafood Coun
Það sem af er maímánuði hefur loft-
hiti á í austurhluta Noregs (Østland-
et) aldrei mælst hærri. Sólin hefur
skinið án afláts íbúunum til ánægju
en hlýindin hafa þó bæði haft áhrif á
lífsstíl fólks og truflað hátterni dýra.
Meðalhitinn það sem af er maí hef-
ur slegið öll met að sögn norsku veð-
urstofunnar. Vikum saman hefur
sólin skinið án afláts og segir veð-
urstofan hitastigið gera dýrum erfitt
fyrir og ungbörnum.
– Veðrið hefur áhrif á lífsins lysti-
semdir, viljann til vinnu, skapgerð-
ina og kynhvötina,“ skrifaði blaðið
Aftenopsten. Í samtali við blaðið
segir kynfræðingurinn og sálfræði-
prófessorinn Bente Træen við Ósló-
arháskóla, að fólk geti átt erfiðar
með einbeitinguna, vinnuna og að
komast á fætur á morgnana vegna
hlýindanna. Hún telur einnig að veð-
uröfgarnar í maí kveiki kynhvötina.
– Við sýnum meira af nöktu hör-
undi og lyktum öðruvísi. Í því liggur
kynferðislegt dulmál. Pínupils og
berar axlir hafa meiri áhrif á kyn-
hvöt karla en rúllukragapeysa,“ seg-
ir Træen. Þrátt fyrir skapgerðar-
breytingar í góðviðri segist hún ekki
trúa því að veðursældi breyti lífsvið-
miðunum Norðmanna.
Lögreglan verður vör við breyt-
ingar því mun fleiri kvartanir berast
inn á borð hennar þegar heitt er í
veðri. Það megi rekja til þess að fólk
dveljist lengur utandyra á kvöldin en
þá fjölgar kvörtunum undan tónlist,
öðrum hávaða og háværu tali.
Lögreglan hefur birt viðvaranir
og varað fólk við því að skilja börn og
ferfætlinga eftir í bílum með lokaða
glugga. Fleiri tilkynningar um slíkt
hafa borist lögreglunni undanfarið.
agas@mbl.is
Methiti raskar lífi
fólks í Austur-Noregi
Vikum saman hefur
sólin skinið á Austur-
Norðmenn án afláts
AFP
Methiti Víða hefur verið sumar-
veður undanfarnar vikur í Evrópu.
Giuseppe Conte hefur skilað umboði
sínu til stjórnarmyndunar á Ítalíu
eftir að Sergio Mattarella forseti
hafnaði í gær-
kvöldi tilnefningu
Conte á efna-
hagsráðherra.
Ekki hefur
tekist að mynda
nýja stjórn á
Ítalíu frá kosn-
ingunum 4. mars
sl. Gerði Conte
sér vonir um að
sér tækist að
rjúfa hina pólitísku sjálfheldu í gær
og gæti myndað stjórn Bandalags-
ins og hreyfingarinnar Fimm stjörn-
ur.
Mattarella forseti hafnaði hins
vegar því að Paolo Savona yrði
efnahagsráðherra landsins en hann
er harður efasemdamaður um
Evrópusamstarfið.
Synjun Mattarella fór illa í leið-
toga Bandalagsins og hreyfing-
arinnar Fimm stjörnur. Matteo
Salvini, leiðtogi Bandalagsins, krafð-
ist þess í gærkvöldi að efnt yrði til
nýrra kosninga.
Conte
gefst upp
Giuseppe Conte