Morgunblaðið - 28.05.2018, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 28.05.2018, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2018 ✝ Anna DagrúnMagnúsdóttir fæddist 21. ágúst 1919 á Halldórs- stöðum á Vatns- leysuströnd. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli 15. maí 2018. For- eldrar Önnu Dag- rúnar voru Magnús Jónsson, útvegs- bóndi á Sjónarhóli, Vatnsleysuströnd, f. 2.9. 1881, d. 17.2. 1963, og Erlendsína Helga- dóttir húsmóðir, f. 8.8. 1889, d. 2.8. 1994. Systkini Önnu Dag- rúnar voru Helgi f. 1910, d. 1962, Guðjón, f. 1912, d. 1913, Ragnhildur, f. 1913, d. 2007, Guðjón, f. 1918, d. 1983, Guðrún Lovísa, f. 1922, Guðlaug, f. 1924, urður Hallmann, f. 1962, Bjarni Ellert, f. 1972, og Valgeir Gunn- laugur, f. 1978. 3) Erla Rann- veig, f. 1949, gift Pálmari Guð- mundssyni, f. 1946. Börn þeirra eru Ólafía, f. 1966, Anna Dag- rún, f. 1968, og Guðmundur, f. 1976. 4) Gunnlaugur Kristján, f. 1951, kvæntur Guðríði Ágústs- dóttur, f. 1958. Dætur þeirra eru Sonja Dögg, f. 1981, og Heiða María, f. 1985. Börn Gunnlaugs frá fyrra hjónabandi eru Júlíus Geir, f. 1969, Jóhanna Hjördís, f. 1971, og Brynjar, f. 1972. Barnabörn og langömmu- börn Önnu Dagrúnar teljast nú 57. Seinni maður Önnu var Val- geir Gunnlaugur Vilhjálmsson, kennari og skólastjóri, f. 13.9. 1923 í Hátúni í Nesi í Norðfirði, d. 20.9. 2012. Anna Dagrún sinnti alltaf fyrst og fremst störfum hús- móður á heimili sínu. Útför hennar fer fram frá Seljakirkju í dag, 28. maí 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. d. 1943, Sigurveig, f. 1928, d. 2008, Sesselja, f. 1932, d. 1934. Samfeðra Þórður, f. 1929, d. 2004. Anna Dagrún giftist 25. desember 1937 Gunnlaugi Kristjánssyni skip- stjóra frá Bræðra- minni á Bíldudal, f. 31.5. 1911, d. 1.3. 1962. Börn Önnu Dagrúnar og Gunnlaugs eru: 1) Magnús Sæv- ar, f. 1937, d. 1984, ekkja hans er Sigríður Jónsdóttir, f. 1938. Dætur þeirra eru Anna Elísabet, f. 1969, og Gunnhildur Harpa, f. 1970. 2) Kolbrún, f. 1939. Synir Kolbrúnar eru Einar Ólafur, f. 1957, Gunnlaugur, f. 1960, Sig- Í dag kveðjum við Önnu Dag- rúnu tengdamóður mína sem lést 15. þ.m. 98 ára að aldri. Anna var hæglát, dagsfarsprúð kona og ákaflega listhneigð. Hún hafði ung að árum hafið nám hjá Ásmundi Sveinssyni en varð að gefa það upp á bátinn þegar hún var í þann mund að stofna heimili. Það tíðkaðist ekki í þá daga að húsmæður sinntu listsköpun ásamt því að halda heimili. Hún skapaði sín lista- verk í formi ýmiss konar handa- vinnu þar sem hún notaði óspart eigið hugmyndaflug og svo ræktaði hún falleg blóm í garð- inum sínum. Skömmu eftir að ég tengdist fjölskyldunni flutti Anna úr Garðabæ í Hafnarfjörð, þá var hún orðin ekkja aðeins 43 ára og yngri börnin tvö rétt um fermingu. Svo liðu árin og Anna, sem öðru hvoru fór sér til hress- ingar á heilsuhælið NLFÍ í Hveragerði, hitti þar seinni mann sinn Valgeir. Þau áttu yndisleg ár saman bæði á Djúpa- vogi og í Reykjavík. Það var bæði gott og gaman að heim- sækja þau og njóta gestrisni þeirra. Eftir að Valgeir kvaddi fyrir tæpum sex árum bjó Anna áfram í sinni íbúð og naut umönnunar barna sinna þar til í mars síðastliðnum að hún fór á dvalarheimilið Skjól. Þó að minnið væri farið að gefa sig hélt hún reisn sinni og tók þátt í sam- tölum fram á síðustu daga. Ég kveð Önnu með þökk fyrir sam- veruna og bið guð að blessa minningu hennar. Ég læt fylgja brot úr ljóði eftir Guðmund Inga Kristjánsson: Og þó er ljúft og létt á það að minnast að lífið á sér fagran dularheim. Þú vitjar þaðan aftur allra þinna og ert með þeim. Sigríður Jónsdóttir. Nú hefur elskuleg tengda- móðir mín kvatt okkur eftir langa og viðburðaríka ævi. Það að fá að lifa í 98 ár og langmest- an hlutann við ótrúlega góða heilsu er ekki öllum gefið. Það er ekki lítið sem samfélagið hér á landi hefur breyst þau ár sem hún lifði. Fyrstu kynni mín af Önnu og Valgeiri voru fyrir 43 árum og strax var mér tekið opnum örmum, þegar Önnu er minnst er Valgeir ávallt nálæg- ur. Eftir fráfall Valgeirs fylltist hjarta Önnu tómi, söknuðurinn var mikill. Saman höfðu þau fet- að veginn í 44 ár. Mikil vinátta og kærleikur einkenndi sam- band þeirra alla tíð. Ég held að það hafi ekki farið framhjá nokkrum manni að þarna fór af- ar sérstök kona og þegar hugs- að er til baka og minningarnar streyma fram er svo margt sem hún vissi og sagði okkur hinum. Ekki var alltaf lagt við hlustir en seinna meir þegar árin liðu kom í ljós að hún hafði haft rétt fyrir sér með svo margt og þá sérstaklega flestu sem tengdist mataræði og heilsu, hún var ein- faldlega svo langt á undan sinni samtíð. Anna var afar sjálfstæð kona og vissi yfirleitt hvað hún vildi og oft dáðist ég að þeim innri styrk og ró sem hún bjó yfir, fátt var það sem raskaði þeim kostum. Ég fann líka hversu vænt henni þótti um uppruna sinn og fólkið sitt, oft voru minningar rifjaðar upp og sagðar sögur frá uppvextinum og lífsbaráttunni á Sjónarhóli við Vatnsleysu- strönd þar sem hún ólst upp í stórum systkinahópi. Minning- ar okkar um Önnu og Valgeir eru orðnar svo margar eftir all- an þennan tíma að erfitt er að taka út einhverjar sérstakar. Alveg er ég viss um að nú er hún búin að finna höndina hans Valla og saman ganga þau um í Sumarlandinu og syngja. Ég minnist hennar með þökk og hlýju. Þegar einhver fellur frá fyllist hjartað tómi en margur síðan mikið á í minninganna hljómi. Á meðan hjörtun mild og góð minning örmum vefur þá fær að hljóma lífsins ljóð og lag sem tilgang hefur. Ef minning geymir ást og yl hún yfir sorgum gnæfir því alltaf verða tónar til sem tíminn ekki svæfir (Kristján Hreinsson) Guðríður Ágústsdóttir. Elsku amma, Anna Dagrún, mig langaði að skrifa nokkur orð og þakka þér samfylgdina. Þú hefur alltaf átt sérstakan stað hjá mér, enda er ég nafna þín, og ákaflega stolt af því að vera nefnd eftir svona mikilli mann- eskju eins og þú varst. Glaðleg, einstaklega hnyttin í tilsvörum og æðrulaus eru nokkur orð sem lýsa þér, enda búin að eiga langa og viðburðaríka ævi. Núna ertu loksins komin til ,,Valla þíns“ og búin að bíða lengi eftir því. Valgeir afi lést 20. september 2012, eftir langa glímu við Parkinsonsjúkdóminn. Það kom berlega í ljós í veik- indum Valgeirs hversu mikill klettur þú varst, aldrei kvartað, veikindunum var mætt af miklu jafnaðargeði. Valgeir var frá Austfjörðum, hann bjó á Djúpavogi og eftir að hann og amma felldu hugi saman á miðjum aldri flutti amma til hans á Djúpavog. Það var mikið ævintýri fyrir okkur frænkurnar að fá að fara í heimsókn, í stóra fallega húsið þeirra, Véberg. Við fengum meira að segja að vera í heila viku í þessari para- dís. Valgeir var alltaf að fara með okkur í heimsóknir og kaupfélagið var ótrúlega spenn- andi staður. Seinna fluttu þau í bæinn til að þau gætu verið nær sínu fólki, þá vorum við svo heppin að geta verið í nánari samvistum við þau. Amma hafði gaman af blóm- unum og vorinu, og lifnaði öll við þegar fór að vora. ,,Ég sakna vorsins“ sagði hún oft þegar hana lengdi eftir hlýrri dögum og blóma í haga. Núna á vordög- um eru hún og Valgeir loks sam- einuð aftur. Himneskt er að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. Því hamingjan felst í því að vera með himininn í hjartanu. Lifi lífið! (Sigurbjörn Þorkelsson) Ég og fjölskylda mín erum einstaklega lánsöm að hafa feng- ið að njóta svo lengi samvista við ömmu og erum þakklát fyrir hvað henni auðnaðist góð heilsa og langir lífdagar. Við kveðjum ömmu með söknuði og yljum okkur við góðar minningar. Anna Dagrún Pálmarsdóttir. Mikið erum við systur heppn- ar að hafa fengið að eiga þig að í öll þessi ár. Þangað til rétt eftir síðustu jól hélt maður jafnvel að árin yrðu miklu fleiri. Samfylgdin með þér nær yfir langt tímabil. Fyrstu minning- arnar eru af Hverfisgötunni þegar þú giftist honum Valgeiri sem tók okkur barnabörnunum sem sínum eigin. Á sumrin þeg- ar við dvöldum hjá ykkur á Djúpavogi kenndir þú okkur að tína skarfakál og blóðberg í te. Þegar við vorum að komast á fullorðinsárin spurðir þú reglu- lega hvort við værum trúlofaðar og nefndir oft hversu heppin þú værir með lífsförunaut. Með aldrinum varðstu léttari í lund og lást ekki á skoðunum þínum, við fjölskyldan eigum ótrúlegan fjársjóð minninga um hnyttnar athugasemdir þínar. Síðustu mánuðina heyrðum við oft sögur um Vatnsleysu- ströndina, uppvaxtarár þín og árin á Hverfisgötunni. Það var okkur dýrmætt að heyra þær sögur. Þið Valgeir áttuð tæp 40 ár saman og síðan hann kvaddi fyr- ir tæpum sex árum hefur þú tal- að um að bráðum munið þið hitt- ast aftur, haldast í hendur og dansa saman um himininn. Það er við hæfi að kveðja þig með bæninni sem þú kenndir okkur: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Anna Beta og Harpa. Ást karlmanns til konu er hið eina sanna í lífinu. Það sannaðist vel í lífi Önnu Magnúsdóttur og Valgeirs Vilhjálmssonar föður- bróður míns. Sú ást var sönn því hún var stuttorð. Nú er Anna látin og vert að færa henni þakk- ir fyrir þá endurgoldnu ást sem hún sýndi föðurbróður mínum. Einhverjum kann að þykja það ofmælt að ást geti kviknað þegar fólk er komið fram yfir miðjan aldur en svo var í tilfelli þeirra hjóna. Þau áttu einstak- lega gott og fallegt líf í 36 ár. Erfiðleikar gerðu vart við sig, sonarmissir Önnu og hjartveiki Valgeirs. Það vannst á hjart- veikinni með því að Valgeir varð fyrsti sjúklingurinn sem skorinn var í opinni hjartaaðgerð hér á landi. Sú aðgerð heppnaðist ein- staklega vel. En sonarmissinn báru þau í hljóði. Þau vissu að það var kærleikur að finna til með öðrum. Anna færði Valgeiri gott líf og elskulega fjölskyldu. Hún jafn- vel gerði Valgeir kurteisan mann með því að hann hætti að bölva kommúnistum og góðu íhaldi. Eitt sinn var þó Valgeiri ofboðið; þegar Tíminn talaði vel um kommúnista. Þá sagði hann blaðinu upp. En til að gera Val- geiri lífið bærilegt gerðist Anna bara nýr áskrifandi. Valgeir dreymdi eitt sinn fugl með fjóra unga í hreiðri. Það lá í augum uppi eftir á að þar voru Anna og börn hennar. Nú er þessi góði og elskulegi fugl flog- inn í aðra heima. Það eru vatnaskil. Föður- systkini mín eru nú öll látin og einnig makar þeirra. Þau voru öll gott fólk og báru mikla umhyggju fyrir hvert öðru, eins og umhyggja Önnu og Valgeirs bar vott um. Að leiðarlokum þakka ég góð kynni við Önnu og fjölskyldu hennar. Góð kona er gengin. Verði hún Guði falin. Sé minningin um Önnu Magn- úsdóttur heiðruð í vitund þinni. Vilhjálmur Bjarnason. Anna Dagrún Magnúsdóttir Kæri frændi, nú er ég nauðugur að kveðja þig. Ég reiknaði með að við hefðum lengri tíma, en enginn veit víst um það fyrir- fram. Við vorum bæði frændur og vinir en hittumst ekki svo oft, bjuggum hvor á sínu landshorni lengi. Áttum þó sitthvað saman og oft hvarflaði hugurinn til þín. Allt- af var fagnaðarfundur þegar við hittumst. Afi og amma okkar sáu fyrir því. Enginn okkar barna- barna hans líktist afa meira en þú. En í honum ræktaðist hógværðin og á sjó varð hann aldrei meira en bátsmaður þó enginn hafi dregið meiri þorsk á handfæri á einni ver- tíð í allri Íslandssögunni en hann. Þetta var sá metnaður sem okkur var innrættur í bernsku. Það beit að vísu ekki mjög á mig þó ég hafi verið stoltur af afa okkar en það er eins og þú hafir nokkuð gengið eft- ir fyrirmyndum af þessu tagi í æsku okkar. Þið mamma þín komuð mörg Bragi Þór Stefánsson ✝ Bragi Þór Stef-ánsson fæddist 14. ágúst 1949. Hann lést 2. maí 2018. Útför hans fór fram 16. maí 2018. sumur heim á Bíldu- dal og það varð til þess að við tengd- umst, og fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Ég er ekki viss um að aðrir drengir á Bíldudal hafi fagnað því eins og ég geri nú með sjálfum mér. Hug- leysismaðurinn ég tók umsvifalaust hlutverk Björns að baki Kára kappans sem þú varst og við réð- umst að þessum rólegheitapiltum með tiltæk vopn úr kjallaranum hans afa. Þeir voru langhræddast- ir við öxina hans. Það var fallegt að sjá til ömmu og afa að búa sendingu til ykkar á haustin að þið mættuð njóta af- urða búrekstursins eins og við hin: Slátur, hangiket, rúllupylsu, lundabagga … Eitt sumarið fékk ég að fylgja ykkur norður til Húsavíkur með Esjunni og fékk að sjá prýðilega heimilið ykkar og fal- legu systur þína sem þá var í heim- sókn hjá pabba ykkar. Gaman að hitta vini þína og skoða leiksvæði ykkar. Mér þótti Húsavík afar fal- legur staður og var ánægður fyrir þína hönd og hef síðan fagnað því að koma þangað. Eitt vakti athygli mína umfram margt annað athygl- isvert og það var að pabbi þinn bað þig aldrei um meira en að vera sæmilegur. Mér þótti það ekki til mikils mælst en á þessu æviskeiði var það líkast til alveg nóg við- fangsefni. Svo komu menntaskólaárin á Akureyri. Hafði hvor okkar sinn umgengnishóp enda þú í tvöfalt lægri bekk, en sáumst þó flesta daga. Við fórum nokkrar ferðir í heimsókn til Húsavíkur og fengum þessar óviðjafnanlegu móttökur hjá foreldrum þínum. Á háskólaárum okkar kom í ljós að við höfðum báðir krækt okkur í meiriháttar kvenkosti á Akureyri, Svölu þína og Auði mína. Við átt- um gott saman þá og ávallt og ég fékk að skíra frumburði okkar allra á vígsludegi mínum til prests. Síðan hafa árin liðið og fleiri börn bæst við en allt of fáar samveru- stundir. Systur mínar minnast þess hversu gott var að hafa þig nærri þegar afi okkar dó 96 ára og öll erum við glöð að heyra hversu vel skjólstæðingar þínir láta af þjónustu þinni, enda manna fús- astur að leysa vanda þeirra og eft- ir langa þjónustu á Dalvík að fara út á land að sinna um þær heilsu- gæslustöðvar sem Heilsugæslan á Suðurnesjum styður. Vertu kært kvaddur elsku frændi minn og Guð blessi fallega fólkið þitt. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Óvænt og skyndilegt dauðsfall hans Braga okkar var okkur, sam- starfsfélögum hans á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja, mikil harma- fregn. Við höfum flest starfað með honum megnið af okkar starfs- ferli. Við þekktum Braga sem frá- bæran lækni, sem hlustaði á sjúk- lingana sína og var hann afar vinsæll meðal skjólstæðinga stofnunarinnar. Hann var reynslumikill, fumlaus og fagleg- ur í sínum störfum. Hann barðist fyrir hagsmunum skjólstæðinga sinna, fylgdi meðhöndlun þeirra eftir og læknaði jafnt sem líknaði. Við erum þess fullviss að margir Suðurnesjabúar munu sakna hans. Bragi var góður félagi, trúnað- arvinur, og kom iðulega við og settist í sófann hjá okkur á slysó þegar færi gafst. Hann sýndi ný- liðum í faginu mikinn stuðning og þolinmæði og var alltaf tilbúinn til að hjálpa til þegar mikið var að gera. Bragi var einnig mikill húm- oristi og svolítið stríðinn. Þegar fólk starfar við okkar fag, þar sem við erum stundum þátttakendur í erfiðustu stundum einstaklinga og fjölskyldna og kynnumst bæði bestu og verstu hliðum mannlegs eðlis, þá reynir það óhjákvæmilega á. Okkar helsta bjargráð er þá að ræða málin og vera saman. Við slíkar aðstæður myndast alveg sérstök vinátta og erum við þakklát fyrir að hafa átt Braga að í öll þessi ár. Við vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð á erfiðum tímum. Fyrir hönd starfsfólks slysa- og bráðamóttöku HSS, Guðrún Ösp Theodórsdóttir. Ástkær eiginkona mín, systir, mágkona og frænka, HILDUR EÐVARÐSDÓTTIR frá Brautartungu, Skagabraut 48, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi, 13. maí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 29. maí klukkan 13. Eiríkur Sveinsson Margrét Kristjánsdóttir Helgi Hannesson Sveinn Gunnar Eðvarðsson Anna E. Rafnsdóttir Guðni Eðvarðsson Halldóra Ingimundardóttir og systkinabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, J. FRIÐRIK JÓHANNSSON (Friggi Jó) frá Sútarabúðum í Grunnavík, varð bráðkvaddur mánudaginn 21. maí, útför hans fer fram í Digraneskirkju föstudaginn 1. júní klukkan 13.00. Reynir Friðriksson Jón Sverrir Friðriksson Drífa Steindórsdóttir Ásgeir Hólm Elsa G. Borgarsdóttir Berglind Friðriksdóttir Sigurður Sverrisson Ingi Þórarinn Friðriksson Jóna H. Pálsdótttir Sigríður Brynja Friðriksdóttir Árni Freyr Elíasson Jóhann Jakob Friðriksson Inger E. Thomsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.