Kiwanisfréttir - 01.12.2002, Síða 10
10
Prag - Kutna Hora - Sedlec
Fljótlega upp úr áramótun-
um fóru Setbergsfélagar að ía
að því að skemmtilegt væri
að fara túr til útlanda. Undir-
ritaður ásamt eiginkonu,
dóttur og fjölskyldu hennar
höfðu dvalið í Prag yfir jólin í
góðu yfirlæti. Þessa jóladaga
í Prag nutum við leiðsagnar
Silviu tékkneskrar vinkonu
dóttur okkar, en Silvia talaði
nokkuð góða íslensku.
Það var tillaga mín að við
færum með Heimsferðum til
Prag í 4 daga, notuðum tvo af
af þrem dögum í Prag en einn
dag færum við til bæjar sem
heitir Kutna Hora og liggur
70 km fyrir austan Prag.
Þangað færum við undir leið-
sögn Silviu, en þangað höfð-
um við og fjölskyldan farið
um jólin.
Kutna Hora er gamall og
merkur háskólabær, þar sátu
áður konungar og fyrirmenn,
þar voru einnig frægar og
miklar silfurnámur og vegna
þeirra var þar mikil mynt-
slátta ekki aðeins fyrir Tékk-
land heldur mörg önnur ríki í
Evrópu á þeim tíma. Um það
bil 2 km frá Kutna Hora er lít-
ið þorp sem heitir Sedlec, en
þar er hin fræga beinakirkja.
Nú var farið að skipuleggja
ferðina. 10 félagar + eigin-
konur ákváðu að fara. Milli
undirritaðs og Silviur fóru nú
ótal bréf á milli á netinu varð-
andi skipulag dvalarinnar og
sérstaklega varðandi ferð
okkar til Kutna Hora og Sed-
lec en í þeirri ferð ætlaði hún
að vera leiðsögumaður okk-
ar. Hluti af skipulaginu var að
útvega litla rútu til fararinnar
til K.H. Endirinn varð sá að
Silvia fékk rútu sem sótti
okkur á flugvöllinn og flutti
okkur á hótelið og svo einnig
aftur út á flugvöll. Einnnig
rútu til að keyra okkur til
K.H.
Flogið var frá Keflavík um
eftirmiðdaginn 21. apríl og
beint til Prag. Þangað var
komið um kvöldið og var því
ekki mikið gert það kvöld en
að koma sér fyrir á hótelinu
og ná áttum. Morgunin eftir
voru allir snemma á fótum og
nú var stefnan tekin fótgang-
andi á Hradcany (kastala-
hverfið). Þar var skoðað sig
um og t.d. farið í „Gullnu göt-
una“ sem er með vinsælustu
svæðum kastalans. Hér tvís-
traðist hópurinn nokkuð en
undirritaður og hans kona
drifu sig niður í Mala Strana
(Litlu borgina) yfir Karls-
brúna og alla leið upp að
Týnský chrám (Týn-kirkju)
til að ganga frá og borga fyrir
rúturnar. Þökk sé „Gemsun-
um“ náði hópurinn aftur sam-
an. Var nú verið að „hringla“
um Gömlu borgina (Staré
Mésto) þann dag og fram á
kvöld.
Þriðjudaginn 9.00 var lagt
af stað til Sedlec og Kutna
Hora. Nú var Silvia með okk-
ur.
Á leiðinni í gegnum Prag
fræddi hún okkur um sögu
Tékklands og var erindi henn-
ar mjög áhugavert og fróðlegt.
Var nú ekið í austurátt og ekki
stansað fyrr en komið var að
beinakirkjunni í Sedlec. Það
kom mér ekki á óvart við-
brögðin hjá fólkinu þegar það
kom inn í kirkjuna. Fyrst
varð fólkið orðlaust en eftir
að það var búið að jafna sig á
undruninni hafði það nóg að
skoða og tala um. Sagan á bak
við beinakirkjuna er of löng til
að segja hana í þessari stuttu
ferðasögu, en í stuttu máli eru
geymd bein af um það bil
40000 manneskjum í kirkj-
unni. Öll skreyting í kirkjunni
er úr mannabeinum.
Það er ólýsanleg tilfinning
að standa á miðju gólfinu
innan um öll þessi bein og
maður verður djúpt snortinn.
Nú var ekið til K.H. og
stansað við St. Barböru kirkj-
una, sem er önnur stærsta
dóm- kirkja í Tékklandi.
Kirkjan er byggð í há-síðgot-
neskum stíl. Byrjað var að
byggja kirkjuna síðast á 14.
öld og var því lokið á fyrri-
hluta 16. aldar. Nú var gott
að hafa Silviu með því nú
fræddi hún okkur um allt
sem fyrir augu bar í kirkj-
unni. Um altarið, allar hliðar
kapellurnar, styttur og dýr-
lingamyndir, og var það mjög
fróðlegt og skemmtilegt.
Næst var gengið niður í bæ-
inn og var þá gengið framhjá
bústað eiganda silfur-
námunnar, þaðan var gengið
að vatnsþrónni, niður á bæj-
artorgið og þar í hliðar- götu
hafði Silvía pantað borð fyrir
allan hópinn á litlu og snotru
veitingarhúsi. Var það þreytt-
ur en sæll hópur sem settist
þar niður og fór yfir allt sem
fyrir augu hafði borið og sem
Silvia hafði sagt okkur frá.
Var góð stemmning í hópnum
og allir nutu góðra veitinga í
mat og drykk.
Þegar fólk hafði hvílst og
hafði satt hungur sitt var far-
ið niður í höllina þar sem
konungarnir höfðu búið og
þar sem myntsláttan hafði
farið fram. Vorum við frædd
Frá beinakirkjunni í Sedlec.
Frá beinakirkjunni í Sedlec.