Fréttablaðið - 08.09.2018, Page 18
Valur - FH 4-0
1-0 Elín Metta Jensen (5.), 2-0 Hlín Eiríks-
dóttir (36.), 3-0 Hlín (84.), 4-0 Hlín (89.).
FH er fallið úr Pepsi-deildinni.
Stjarnan - KR 3-0
1-0 Megan Lea Dunnigan (76.), 2-0 Þórdís
Hrönn Sigfúsdóttir (82.), 3-0 Guðmunda
Brynja Óladóttir (85.).
Nýjast
Pepsi-deild kvenna
Þór - Selfoss 2-1
1-0 Ignacio Gil Echevarria (37.), 1-1 Hrvoje
Tokic (41.), 2-1 Jóhann H. Hannesson (82.).
Haukar - ÍR 1-1
0-1 Axel Sigurðarson (6.), 1-1 Gunnar Gunn-
arsson, víti (85.).
Fram - HK 1-4
0-1 Bjarni Gunnarsson (12.), 0-2 Máni Aust-
mann Hilmarsson (49.), 0-3 Brynjar Jónas-
son (52.), 0-4 Brynjar (70.), 1-4 Frederico
Bello Saraiva (90.).
Inkasso-deild karla
Afture./Fram - Keflavík 0-1
0-1 Natasha Moraa Anasi (58.).
Inkasso-deild kvenna
Þjóðadeildin
A-deild
Riðill 3
Ítalía - Pólland 1-1
0-1 Piotr Zielenski (40.), 1-1 Jorginho, víti
(78.).
B-deild
Riðill 2
Tyrkland - Rússland 1-2
0-1 Denis Cheryshev (13.), 1-1 Serdar Aziz
(41.), 1-2 Artem Dzyuba (49.).
C-deild
Riðill 1
Albanía - Ísrael 1-0
1-0 Taulant Xhaka (55.).
Riðill 4
Litháen - Serbía 0-1
0-1 Dusan Tadic, víti (38.).
Rúmenía - Svartfjallal. 0-0
D-deild
Riðill 3
Aserbaídsjan - Kósovó 0-0
Færeyjar - Malta 3-1
1-0 Jóan Edmundsson (31.), 2-0 René
Joensen (38.), 2-1 Michael Mifsud (42.), 3-1
Hallur Hansson (52.).
Fótbolti Breiðablik og Þór/KA
mætast í toppslag Pepsi-deildar
kvenna í knattspyrnu á Kópavogs-
velli klukkan 14.00 í dag. Breiðablik
getur þar stigið ansi stórt skref í átt
að því að hrifsa Íslandsmeistara-
titilinn frá Þór/KA sem er ríkjandi
meistari. Breiðablik situr fyrir leik-
inn makindalega í toppsæti deildar-
innar með 40 stig á meðan Þór/KA
er sæti neðar með 38 stig þegar þrjár
umferðir eru eftir af deildinni.
Fréttablaðið fékk Hólmfríði
Magnúsdóttur, margreynda lands-
liðskonu, til þess að spá um þennan
stórleik.
„Þetta verður mjög jafn leikur
og það er bara spurning um hvort
liðið á betri dag. Bæði lið hafa haft
betur í síðustu leikjum á sann-
færandi hátt. Breiðablik er sigur-
stranglegra að mínu mati þar sem
þær eru á heimavelli og í hefndar-
hug eftir tapið í leik liðanna fyrir
norðan í fyrri umferð deildarinn-
ar,“ segir Hólmfríður.
„Breiðablik hefur heillað mig mest
af öllum liðum í sumar. Þær hafa sýnt
stöðugleika á yfirstandandi leiktíð
þrátt fyrir að hafa misst Fanndísi
[Friðriksdóttur], Rakel [Hönnu-
dóttur], Ingibjörgu [Sigurðardóttur]
og Svövu Rós [Guðmundsdóttur]
sem eru allt landsliðsmenn og voru
lykilleikmenn hjá þeim í fyrra,“ segir
Hólmfríður þegar hún var beðin um
að nefna það lið sem hefur heillað
hana hvað mest í sumar.
„Þær fengu í staðinn unga og efni-
lega leikmenn auk þess sem uppaldir
leikmenn sem voru hjá félaginu fyrir
hafa axlað aukna ábyrgð með sóma.
Þær fengu stærra hlutverk hjá þjálf-
arateyminu og mig langar að hrósa
Þorsteini [Halldórssyni], þjálfara
Blika, sérstaklega fyrir það hversu
vel honum hefur tekist að þróa og
þroska þessa leikmenn. Hann veitir
þeim trú og færir þeim traust á að
þær geti spilað vel þrátt fyrir ungan
aldur,“ sagði Hólmfríður enn fremur
um Blikaliðið.
„Ég tel að Sonný Lára Þráinsdóttir,
markvörður Breiðabliks, verði lykill-
inn að sigri liðsins. Nái hún að halda
hreinu hef ég engar áhyggjur af því að
Blikaliðið skori ekki. Hinum megin
verður Sandra María Jessen að eiga
góðan leik ætli Þór/KA að fara með
sigur af hólmi. Þá er það mikilvægt
að Donni nái að halda leikmönnum
einbeittum á eitt verkefni í einu. Ég
hef engar áhyggjur af því þar sem
hann er afar fær þjálfari,“ sagði þessi
fyrrverandi framherji um það sem
lagt gæti grunn að sigri liðanna. – hó
Breiðablik getur sett níu fingur á bikarinn
Blikar hafa unnið alla sjö heimaleiki sína í Pepsi-deildinni. FRéTTABLAðIð/AnDRI
1 Hannes Þór Halldórsson 2 Birkir
Már Sævarsson 5 Sverrir Ingi Inga-
son 6 Ragnar Sigurðsson 23 Ari
Freyr Skúlason 19 Rúrik Gíslason
4 Guðlaugur Victor Pálsson 10 Gylfi
Þór Sigurðsson 8 Birkir Bjarnason
22 Jón Daði Böðvarsson 17 Björn
Bergmann Sigurðarson.
1
2
19
5
4 10
6
17
23
8
22
líklegt byrjunarlið Íslands
Fótbolti Tíð hins sænska Eriks
Hamrén með íslenska karlalands-
liðið hefst klukkan 18.00 að staðar-
tíma í St. Gallen í Sviss þegar heima-
menn taka á móti Strákunum okkar.
Hann flutti jákvæð tíðindi á blaða-
mannafundi liðsins í gær eftir að
hafa þurft að horfa upp á lykilleik-
menn meiðast í aðdraganda leiksins
– fyrir utan Emil Hallfreðsson eru
allir leikmennirnir klárir í slaginn.
„Staðan á leikmannahópnum
er góð, þetta var erfitt í byrjun
vikunnar þegar margir voru með
smávægileg meiðsli en starfsfólkið
hefur gert vel og það gátu allir æft á
fullu síðustu tvo daga. Emil er sá eini
sem getur ekki byrjað en aðrir eru
tilbúnir,“ sagði Hamrén sem virtist
afar hrifinn af starfsfólki KSÍ og leik-
mönnum við fyrstu kynni.
„Ég er orðinn mjög spenntur
fyrir leiknum en við vitum að þeir
eru með frábært lið sem tapar ekki
mörgum leikjum þó að þeir hafi
tapað, mér til mikillar gleði, fyrir
Svíþjóð á HM,“ sagði Hamrén léttur.
Hann talaði strax á fyrsta blaða-
mannafundi um það að hann myndi
ekki vilja breyta of miklu undir eins.
„Ég hef sagt það áður, ég mun reyna
að breyta einhverju hjá liðinu en
byggja á því góða starfi sem Heimir
og Lars unnu.“
Leikmennirnir virtust fegnir því
er þeir ræddu við fjölmiðla í vikunni
og tók Gylfi Þór Sigurðsson, fyrirliði
liðsins í leiknum í dag, undir það.
„Vikan hefur verið mjög fín, svip-
uð og við höfum vanist undanfarin
ár. Erik kom með nokkra nýja hluti
inn en engar stórvægilegar breyt-
ingar sem var gott fyrir okkur leik-
mennina. Það verður gaman að sjá
hvort strákunum sem hafa verið inn
og út úr liðinu undanfarin ár tekst
að grípa tækifærið,“ sagði Gylfi og
hélt áfram:
„Það var erfiðara að koma niður
á jörðina eftir EM en núna. Í Frakk-
landi gekk betur og það var strax
gerð krafa um að komast á næsta
stórmót. Við þekkjum það betur
að byrja í nýrri keppni svona strax.
Við ætlum okkur á næsta stórmót og
Þjóðadeildin er leið inn á EM.“
Gylfi talaði um mikilvægi þess að
stöðva Xherdan Shaqiri, leikmann
Liverpool og eitt þekktasta nafn
andstæðinganna.
„Þeir eru með frábært lið, erfitt að
spila gegn þeim og liðsheildin sterk.
Þeir eru snöggir fram á við og með
öflugan sóknarleik þar sem Shaqiri
er hættulegur, við þurfum að hafa
góðar gætur á honum.“
Talið er nokkuð víst að Guðlaugur
Victor Pálsson muni byrja leikinn á
miðjunni við hlið Gylfa og fylli í það
gríðarstóra skarð sem Aron Einar
Gunnarsson skilur eftir sig.
Það hefur verið vandamál hjá lið-
inu að finna staðgengil Arons þegar
þess hefur þurft en Guðlaugur virð-
ist vera tilbúinn að axla þá ábyrgð.
Hann hefur þurft að bíða eftir
tækifæri sínu í langan tíma og er
undir honum komið að grípa það
með báðum höndum.
Þá er líklegt að Ari Freyr taki sér
stöðu á ný í vinstri bakvarðarstöð-
unni sem Hörður Björgvin hefur
leikið í undanfarin ár en Hörður
kvaðst sjálfur vera tilbúinn ef kallið
kæmi.
Allir klárir í slaginn
Erik Hamrén stýrir íslenska landsliðinu í fyrsta sinn í dag gegn sterku liði Svisslendinga. FRéTTABLAðIð/SIgTRygguR ARI
gylfi Þór Sigurðsson verður fyrirliði í
St. gallen í dag. FRéTTABLAðIð/STEFán
Íslenska karlalandsliðið
í knattspyrnu mætir
Sviss í fyrsta leik sínum í
Þjóðadeildinni og fyrsta
leik liðsins undir stjórn
Eriks Hamrén. Eftir að
hafa misst marga leik-
menn í meiðsli í aðdrag-
anda leiksins eru allir
klárir í slaginn og segir
Gylfi að leikmenn séu
komnir niður á jörðina
eftir HM í Rússlandi.
Kristinn Páll Teitsson
skrifar frá St. Gallen
kristinnpall@frettabladid.is
Ólafía sautjánda
golF Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er
í 17. sæti eftir fyrstu tvo hringina á
Lacoste Ladies Open de France mót-
inu sem er hluti af LET-mótaröðinni
í golfi.
Ólafía er á þremur höggum undir
pari. Hún var á pari eftir fyrsta
hringinn en lék á þremur höggum
undir pari í gær.
Valdís Þóra Jónsdóttir lék einnig
á þremur höggum undir pari í gær.
Það dugði henni þó ekki til að kom-
ast í gegnum niðurskurðinn.
Valdís lék fyrsta hringinn á sjö
höggum yfir pari, endaði á fjórum
höggum yfir pari og lauk leik í 75.
sæti. Niðurskurðurinn miðaðist við
tvö högg yfir pari. – iþs
8 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 l A U g A r D A g U r18 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sport
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-3
4
7
8
2
0
C
4
-3
3
3
C
2
0
C
4
-3
2
0
0
2
0
C
4
-3
0
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K