Fréttablaðið - 08.09.2018, Blaðsíða 26
máli, hvort það megi tala um hlut-
ina eða hvort allt sé þaggað niður.
Samskipti innan fjölskyldunnar
og uppeldisskilyrði sem börn búa
við eru áhrifaþáttur. Þá eru börn af
erlendum uppruna í áhættuhóp sem
mætti horfa betur til.
Geðrækt bjargar mannslífum
Sigrún fór fyrir öflugum starfs-
hópi sem skilaði aðgerðaáætlun til
ráðherra í apríl síðastliðnum um
að fækka sjálfsvígum á Íslandi og
dregur fram gagnreyndar aðferðir
og leiðir til þess. Samkvæmt slíkri
aðgerðaáætlun er skynsamlegra að
beina sjónum að æviskeiðinu í heild
þar sem tíðni sjálfsvíga hér á landi
er lægst meðal unglinga en annars
svipuð yfir öll fullorðinsárin. Á síð-
astliðnum áratug hafa flest sjálfsvíg,
eða um 22%, orðið í aldurshópnum
30-39 ára og um 17% í aldurshópn-
um 20-29 ára, 40-49 ára og 50-59 ára.
Sigrún segir mikilvægt að huga
að geðrækt og forvörnum í sam-
félaginu. Grípa þurfi inn í miklu fyrr
með snemmtækri íhlutun og segir
hún að geðrækt á öllum skólastigum
barna ætti að verða fastur liður í
skólastarfi. Einnig er mikilvægt að
efla þennan þátt í mæðravernd og í
ungbarnaeftirliti.
„Börn eru markvisst þjálfuð í
hreyfiþroska og þjálfuð í þoli og
styrk en það ætti líka að þjálfa þau
í félagsfærni og tilfinningafærni. Að
þekkja og skilja eigin tilfinningar,
kunna góð samskipti, kunna að
eignast og halda vinum, kunna að
leysa ágreining á góðan hátt og þar
fram eftir götunum. Þetta er færni
sem ekki allir eiga auðvelt með en er
alveg hægt að kenna. Við þyrftum að
vera með námsefni á hverju einasta
stigi en mikilvægt að þar sé notast
við gagnreyndar aðferðir,“ segir
hún.
Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnis-
stjóri hjá Embætti landlæknis, var
hluti af teyminu á bak við aðgerða-
áætlunina til ráðherra í apríl.
Hún segir mikinn barning hafa
verið um árið 2000 að innleiða geð-
rækt. Lífsleikni var komin víða inn
í skólakerfið, en sumir töldu það
vera uppfyllingu eða höfðu litlar
forsendur til að kenna. Miklar breyt-
ingar hafa orðið síðan hvað aðgengi-
legt námsefni í geðrækt varðar. „Það
er til dæmis frábært námsefni sem
heitir Vinir Zippýs og er kennt í 28
löndum og í nokkrum skólum hér
á landi. Ástralar og fleiri þjóðir eru
mjög framarlega á þessu sviði og við
horfum til þeirra,“ segir Salbjörg.
Fólkið á bak við einstaklinginn
„Annað sem við sjáum er að um
helmingur stúlkna og rúmur þriðj-
ungur drengja í framhaldsskólum
árið 2016 hefur upplifað að ein-
hver hafi sagt þeim frá því að hafa
íhugað sjálfsvíg. Við þurfum að
fræða krakka um það hvernig eigi
að bregðast við ef svona gerist,“ segir
Sigrún.
Á Íslandi eru í kringum 35-40
skráð sjálfsvíg á ári í heildina. Fjöl-
skyldunetið á bak við hvern ein-
stakling getur verið mjög stórt og
stór hópur fólks sem verður fyrir
áhrifum þegar einstaklingur því
nákominn fellur frá.
Ný skýrsla frá Emb-ætti landlæknis um sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraun-ir meðal íslenskra ungmenna kom út
fyrir helgi og verður kynnt á mál-
þinginu Stöndum saman gegn sjálfs-
vígum á mánudag, alþjóðlegum degi
sjálfsvígsforvarna. Niðurstöður
koma á óvart en þar kemur fram
að rúmlega 9% ungmenna á Íslandi
hafa gert tilraun til sjálfsvígs.
„Frá því um 2010-2012 höfum
við séð vaxandi vanlíðan meðal
íslenskra ungmenna. Þetta kemur
líka fram í þessari skýrslu í auknum
sjálfsvígshugsunum og gríðarlega
mikilli aukningu í sjálfsskaða meðal
stúlkna í framhaldsskólum. Þar er
þróunin frá 2010 úr 4% í 13%,“ segir
Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri
geðræktar hjá Embætti landlæknis.
„Miðað við þessar niðurstöður er
þetta eitthvað sem hefur aukist
meðal stúlkna. Það eru fleiri stúlkur
í dag sem segjast hafa hugleitt sjálfs-
víg en árið 2000 og sérstaklega er
aukningin mikil frá árinu 2010.“
Fleiri drengir en stúlkur eru á skrá
yfir dauðsföll vegna sjálfsvíga á þess-
um aldri, 16-20 ára. Hlutfall drengja
í framhaldsskólum sem hafa gert til-
raun til sjálfsvígs hefur hins vegar
haldist stöðugt í kringum 5-7% frá
2000-2016. Greina má breytingar
hjá stúlkum yfir tímabilið. Hlut-
fall þeirra sem höfðu gert tilraun
til sjálfsvígs var 9% árið 2000, 11%
árið 2004, 7% árið 2010 og hækkaði
í 12% árið 2016.
Tekið er tillit til skekkjumarka og
spurninga sem tengdust tilraunum
til sjálfsvígs, spurt á mismunandi
vegu til að draga úr efasemdum.
Auk þess svaraði ekki nema 71%
framhaldsskólanema könnuninni
árið 2016 en 29% voru fjarverandi.
Til dæmis var skólasókn 16 ára
nemenda 94,7% haustið 2016 sam-
kvæmt Hagstofu og því 5,3% sem
voru ýmist ekki í skóla, á vinnu-
markaðnum eða annað. Skekkjan
er því beggja vegna.
Þátttakendur í rannsókninni voru
framhaldsskólanemar sem voru
mættir þann dag sem könnunin var
gerð. Taka þarf mið af nemendum
sem voru fjarverandi, nemendum
sem mæta illa í skólann af ein-
hverjum ástæðum og nemendum
sem líður jafnvel svo illa að þeir vilja
ekki svara.
Sjálfsvíg annarra áhrifamikil
„Þessar niðurstöður komu mér á
óvart og mér finnst tölurnar slá-
andi,“ segir Ingibjörg Eva. „Þetta
er ekki eitthvað sem ég hef heyrt
mikið um. Við viljum ekki að það
sé til staðar eitthvert falið vanda-
mál. Hvað veldur vitum við ekki
nákvæmlega, því ekki var spurt
um það í rannsókninni og þyrfti
líklega að gera með viðtölum en
það er hægt að finna svona megin-
þemu. Ég hugsa að ástæðurnar séu
hins vegar ofboðslega margar og
ólíkar.“
Nemendur sem höfðu upplifað
það að einhver greindi þeim frá
sjálfsvígshugsunum voru tæplega
tvöfalt líklegri til að hafa gert til-
raun til sjálfsvígs og til að hafa í
alvöru hugleitt sjálfsvíg. Nemendur
sem áttu góðan vin eða einhvern
nákominn sem hafði gert tilraun til
sjálfsvígs voru tæplega þrefalt lík-
legri til að hafa sjálf gert tilraun til
sjálfsvígs og 1,5 sinnum líklegri til
að hafa í alvöru hugleitt sjálfsvíg.
Aðrir sterkir áhrifaþættir fyrir til-
raun til sjálfsvígs voru þunglyndi,
reiði, af hafa orðið fyrir kynferðis-
ofbeldi og að hafa reykt kannabis
um ævina.
Sterkustu sjálfstæðu áhættu-
þættirnir fyrir sjálfsvígshugsanir
voru einkenni þunglyndis, reiði,
sjálfsvígshugsanir annarra, það er
ef einhver hafði sagt viðkomandi
frá hugleiðingum um sjálfsvíg, kyn-
ferðisofbeldi, og lítill stuðningur
foreldra, í þessari röð.
Fjölskyldumynstur skiptir miklu
Málþing á mánudag
Mánudaginn 10. september er
alþjóðlegur dagur sjálfsvíga og í
tilefni þess verður haldið málþing
í húsnæði Decode við Sturlugötu
8, milli kl. 15.00–17.00 sem er opið
öllum.
Kyrrðarstundir til minningar um
þá sem hafa fallið fyrir eigin hendi
verða í Dómkirkjunni, Akureyrar-
kirkju, Egilsstaðakirkju og Ísafjarð-
arkirkju að kvöldi mánudagsins
10. september og í Útskálakirkju að
kvöldi sunnudagsins 9. september.
Embætti landlæknis, Geðhjálp,
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis-
ins, Hugarafl, geðsvið Landspítal-
ans, Minningarsjóður Orra Ómars-
sonar, Ný dögun, stuðningur í sorg,
Pieta samtökin, Rauði krossinn
og Þjóðkirkjan standa að dagskrá
dagsins.
Heilsugæslan býður nú upp á
ókeypis sálfræðiviðtöl fyrir börn
og unglinga, og sums staðar full-
orðna. Ef vandinn er bráður má
leita bæði á bráðamóttöku BUGL
og göngudeild geðsviðs Land-
spítalans.
Sláandi tölur
um tilraunir
ungmenna
til sjálfsvígs
350 drengir og 613 stúlkur sögðust hafa
gert tilraun til sjálfsvígs einhvern tímann á
ævinni samkvæmt nýrri skýrslu Embættis
landlæknis. Sérfræðingar kalla á geðrækt á
öllum skólastigum barna og aukið aðgengi
að heilbrigðisþjónustu í nærumhverfi.
„Þetta er færni sem ekki allir eiga auðvelt með en er alveg hægt að kenna. Við þyrftum að vera með námsefni á hverju einasta stigi en mikilvægt er að þar
sé notast við gagnreyndar aðferðir,“ segir Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis. FréttaBLaðið/Ernir
71%
er svarhlutfall fram-
haldsskólanema sem
voru mættir í skólann
og svöruðu könnun-
inni árið 2016.
55%
stúlkna þekkja ein-
hvern sem hefur
reynt sjálfsvíg.
38%
drengja þekkja ein-
hvern sem hefur
reynt sjálfsvíg.
1/10
átti góðan vin eða ein-
hvern nákominn sem
hafði svipt sig lífi. Lítil
breyting hefur orðið á
þessu hlutfalli yfir tíma.
2.828
12%
stúlkna höfðu gert
tilraun til sjálfsvígs
árið 2016.
7%
drengja höfðu
gert tilraun til
sjálfsvígs árið
2016.
nemendur höfðu í alvöru hug-
leitt sjálfsvíg árið 2016, 56%
höfðu sagt einhverjum frá því.
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
8 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r26 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-6
A
C
8
2
0
C
4
-6
9
8
C
2
0
C
4
-6
8
5
0
2
0
C
4
-6
7
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K