Fréttablaðið - 08.09.2018, Blaðsíða 108
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H.
Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI
512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Lífið í
vikunni
02.09.18-
08.09.18
QOD Stóri Björn dúnsæng
50% dúnn & 50% smáfiður
og Stóri Björn koddi
15% dúnn & 85% smáfiður
Fullt verð samtals:
25.800 kr. 23%
AFSLÁTTUR
DORMA-haust
TVENNUTILBOÐ
Aðeins 9.540 kr.
Aðeins 19.900 kr.
40%
AFSLÁTTUR
DORMA-haust
SQUARE náttborð
Hvítt eða svart
Fullt verð: 15.900
KOMDU
NÚNA
September
tilboðin
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum)
Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi)
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI
Haustið
er komið í Dorma
Hugmyndum komið
á framfæri og í verk
Gulleggið fer í gang á sínu ellefta starfsári. Frumkvöðlakeppnin er
ætluð ungu fólki með hugmyndir sem það vill koma á framfæri.
Verkefnastjóri segir sprota blómstra best með smá umhyggju.
Þátttakendur í fyrra voru einbeittir á vinnusmiðjunum en allir sem skrá sig geta mætt í þrjár vinnusmiðjur og
hlustað á fyrirlestra frá þaulreyndum frumkvöðlum, meðal annars. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Markmiðið með Gullegginu er að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að koma hug-myndum sínum
á framfæri og gera úr þeim raun-
verulegar og markvissar áætlanir.
Að því sögðu þá geta allir skráð sig í
keppnina – einstaklingar, hópar og
fyrirtæki – sem eru með hugmyndir
á byrjunarstigi. Allir sem skrá sig
komast inn á fyrstu þrjár vinnu-
smiðjurnar sem byrja núna 15.
september og eru þrjá laugardaga í
röð. Á þessum vinnusmiðjum koma
fyrirlesarar með nýsköpunartengd
erindi sem miða að því að hjálpa
þátttakendum að láta hugmynd-
irnar verða að veruleika,“ segir Mel-
korka Sigríður Magnúsdóttir, verk-
efnastjóri hjá Icelandic Startups en
keppnin fer nú í gang í tólfta sinn
og er þetta jafnframt ellefta árið í
röð sem þessi frumkvöðlakeppni er
haldin. Melkorka segir skráninguna
mjög einfalda og allir þeir sem telji
sig eiga erindi í keppnina geti skráð
sig inn á gulleggid.is: „Í framhaldinu
af þessum vinnusmiðjum skila öll
teymin inn viðskiptaáætlunum
sem fara fyrir rýnihóp og út frá því
er valið í topp 10. Þau teymi fá tæki-
færi til að „pitcha“ fyrir dómnefnd
þar sem einn sigurvegari er valinn og
fær eina milljón í verðlaun.“
Þeir sem ekki hafa hugmynd en
langar samt að taka þátt geta líka
skráð sig í Gulleggið. „Við höldum
eins konar hraðstefnumót á fyrstu
vinnusmiðjunni þar sem þessir ein-
staklingar fá tækifæri til að kynna
sig – þau teymi sem eru að leita að
einhverjum með ákveðna sérþekk-
ingu geta svo nálgast þessa einstakl-
inga og kippt þeim inn í teymið sitt.
Það hafa oft orðið mjög skemmti-
legar samsetningar úr því.“
Melkorka segir að
nýsköpunarlandslagið
hérlendis sé ótrúlega
spennandi og þar sé
mikil gróska – þó
undirstrikar hún
að það sé ákaflega
mikilvægt að hlúa að
sprotasamfélaginu.
„Það er ótrúlega margt
spennandi að gerast í
nýsköpun á Íslandi. Það
er mikil gróska og hug-
myndaauðgi hér á landi og
mikil verðmæti í íslensku
hugviti. Þó er mikilvægt að hlúa að
sprotum og þeir bera alveg nafn með
rentu – þeir eru viðkvæmir og það
getur brugðið til beggja vona, þeir
þurfa stuðning úr nærumhverfinu,
hvort sem það er í formi fjármagns
eða fræðslu. Ég myndi segja að Gull-
eggið sé fullkomið fyrir þá sem eru
með hugmyndir á byrjunarstigi og
ég segi oft að frumkvöðlar þurfi að
prófa alveg eina, eina – tvær – þrjár
eða tíu hugmyndir áður en það
kemur ein hugmynd sem verður svo
eitthvað. Ég held að það sé eitthvað
sem er ekki talað nógu mikið um,
mistökin, og hversu mikilvægt það
er að læra af mistökunum í þessu
umhverfi. Það eru síðan ótrúlega
flott teymi sem hafa komist inn í
Gulleggið og unnið eða verið í topp
10 sem hafa öll slíkum sögum
að miðla.“ Melkorka bætir
við að 76% af þeim sem
hafa komist í topp tíu í
Gullegginu hafi stofn-
að fyrirtæki í kjölfar
þátttöku og yfir 70%
þeirra fyrirtækja séu
enn starfandi sem
hún segir ótrúlega
hátt hlutfall í þessu
starfsumhverfi. Sum
þessara fyrirtækja eru afar
þekkt eins og til að mynda
Meniga sem tók þátt mjög
snemma. „Það er sjaldnast
sem fyrsta hugmynd fer óbreytt í
framkvæmd að því leyti að þú ert
stöðugt að prufa þig áfram, ítra,
aðlaga og breyta á þessari vegferð
sem það er að stofna frumkvöðla-
fyrirtæki.“ Umsóknarfresturinn
rennur út á miðvikudaginn næsta,
12. september.
stefanthor@frettabladid.is
Vilja vekja fólk til
umhugsunar
Samtök grænmetisæta á Íslandi
og Vegan samtökin stóðu saman
að sýningu á myndinni Dominion
eftir Chris Delforce sem afhjúpar
öfgafullar aðstæður og slæma
meðferð á dýrum í landbúnaði í
Ástralíu.
Aron og Kristbjörg
eignuðust son
Aron Einar Gunnarsson,
fyrirliði íslenska
karlalandsliðsins
í knattspyrnu,
og eiginkona
hans, Kristbjörg
Jónasdóttir, af-
rekskona í fit-
ness, eignuð-
ust dreng í
vikunni. Barnið
er þeirra annað
barn en fyrir áttu
þau soninn Óliver.
Frægir 213 metrar
Vegna mistaka var Reykjavíkur-
maraþonið 213 metrum of stutt.
Af þessu tilefni tók Fréttablaðið
saman nokkra fræga 213 metra.
Veggurinn í Game of Thrones er til
dæmis akkúrat svona hár, Chelsea-
brúin er akkúrat svona löng og til
að ísjaki sé skilgreindur mjög stór
þarf hann að vera lengri en 213
metrar.
Reyndi að setja sig inn í
heim Magneu
Kristín Þóra Haraldsdóttir sýnir
stórleik í kvikmyndinni Lof mér að
falla þar sem hún leikur Magneu á
eldri árum. Leikur hennar og gervi,
sem nafna hennar Júlla sér um, er
nánast töfrum líkast.
Melkorka Sigríður
Magnúsdóttir er
verkefnastjóri Gull-
eggsins.
8 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r64 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
4
-4
D
2
8
2
0
C
4
-4
B
E
C
2
0
C
4
-4
A
B
0
2
0
C
4
-4
9
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K