Víkurfréttir - 09.04.1981, Blaðsíða 1
7. tbl. 2. árg. Fimmtudagur 9. april 1981
rEÉTTIR
B.V. ERLINGUR GK 6:
3 skipverjum sagt upp í hefndarskyni
Eins og sagt var frá í lesenda-
bréfi hér i síðasta blaði, hafa
menn undrast mjög framkomu
útgerðarmanns bv. Erlings, varð-
andi uppgjör til áhafnar, en i
þeim efnum hefur hann dregið
uPPgjör í allt að 54 daga, en má
mest draga það í 15 daga eftir
hverja veiðiferð. Og í framhaldi
af þessum gerðum útgerðar-
mannsins var gerður strækur um
borð í skipinu er það kom inn til
löndunar og fékkst þá lausn á
málinu.
Blaðið hefur fregnað, að út-
gerðarmaðurinn haft í hótunum,
og vegna þessara aðgerða skip-
verja þá muni hann ná sér niðri á
B.V. Erllngur I Njarðvikurhöfn
þeim, með þvíaðgrisjaþannhóp
sem á skipinu nú er, og til að
standa við orð sín hefur hann
sagt upp þremurskipverjum, þ.e.
tveim hásetum og 1. vélstjóra,
auk þess sem hann hefurlátiöað
því liggja að næst muni hann
segja upp netamanni skipsins.
Skipverjar telja að með þessu
sé hann að gera þá hrædda og i
framtíöinni geti hann hagað upp-
gjöri að eigin vild.
Furðulegt er að framkoma út-
gerðar eins og þarna, skuli eiga
sérstaðáseinni hlutatuttugustu
aldar, því svona vinnubrögö
hljóta að tilheyra fornaldar hugs-
unarhætti.
Slmstöðin í Keflavfk uppi-
skroppa með símanúmer
Um 1-2 ára bið getur orðið eftir síma
Hitaveitan
brást
I kuldanum
f kuldakastinu um daginn átti
Hitaveita Suðurnesja fullt i fangi
með að sinna þörfum notenda
fyrir heitt vatn. Þurfti því að grípa
til þess að stööva vatnsrennslið
af og til meðan kaldast var. Af
þessum sökum varð víða kalt í
húsum og einnig ervitað um örfá
tilfelli þar sem vatnskerfi frost-
sprungu af þessum völdum.
Orsakir þess að ekki var um
nægjanlegt vatn að ræða má
rekja til bilanna í Svartsengi, svo
og að þar er aöeins búið að
byggja einn miðlunargeymi af
þeim þrem sem ætlunin er að
hafa þarna til að nægjanlegur
vatnsforði sé ávallt til í svona
kuldaköstum. Þá bætir ekki úr
skák að 2. áfangi orkuversins í
Svartsengi hefur enn ekki verið
tekinn í notkun.
Er nú vonandi aö Hitaveitan
komi þessu öllu í lag fyrir næsta
kuldakast, því slæmt er að hún
skuli einmitt bregðast þegar
helst er þörf á henni.
Vegna þessa hefur töluvert
borið á óánægju meðal þeirra
notenda, er urðu fyrir því að
missa hitann hjá sér þegar þeir
þurftu virkilega á honum að
halda og finnst því mörgum
þeirra að Hitaveitan hljóti að
verða fljót að lækka afnotagjald-
ið fyrir viökomandi tímabil og
benda á í því sambandi aö þar sé
eðlilegt, því ef notandi dregur aö
greiða fyrir afnot sín af heita
vatninu, standi ekki á Hitaveit-
unni að loka fyrir vatnið. Því
hljóti þaö að vera gagnkvæmt og
nú lækki þeirtaxtann meðtilliti til
þessa.
Ljóst er nú að Símstöðin i
Keflavík hefur nú fullnýtt þau
símanúmer sem hún hefurtil um-
ráða, og nú blasir það við að nýir
simnotendur geta þurft aö bíða
eftir síma í 1-2 ár, að öllu ó-
breyttu, samkvæmt upplýsing-
um sem blaðið fékk hjá Björgvin
Lútherssyni símstöðvarstjóra.
,,Nú er veriö að athuga hvort
möguleiki sé á lausum númer-
um vegna einhverra sem ekki
hafa tekið númer sem úthlutað
var fyrir ári siðan," sagði Björg-
vin, „vegna flutnings i burtu eöa
af öðrum orsökum, en sá sem
flytur hingað annars staðar frá
og hefur haft síma þar, getur
þurft að bíða eitthvað, en samt
gengur hann fyrir. Nokkur hreyf-
ing er á fólki hér og um leiö og
einhver flytur burtu þá losna
númer jafnóðum."
Fjöldi númera í stöðinni eru
3000 og hægt er að bæta við 1000
númerum í núverandi húsnæði
stöövarinnar, en hvort það verð-
ur gert á næstunni gat Björgvin
ekki svarað, það yrði að taka
ákvörðun um þaö mjög fljótlega,
þvi svona stórt svæði gæti ekki
verið lengi í númerasvelti.
„Síðasta stækkun var talin
duga til ársins 1984, en í Ijós
hefur komið, því miður, að sú
áætlun hefur verið misreiknuð,"
sagði Björgvin að lokum.
Fádæma sóðaskapur
Þessi mynd var tekin i síðustu viku og sýnir umgengni hjá fyrirtækinu Miðnes hf. í Sandgerði. Rusl má
finna víðar í eigu fyrirtækisins, og þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir hreppsyfirvalda til að fá þaðfjarlægt,
hefur það ekki tekist. - Sjá fleiri myndir inni í blaðinu.