Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.04.1981, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 09.04.1981, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 9. apríl 1981 VÍKUR-fréttir Verslunarfólk Suðurnesjum Aðalfundur Verslunarmannafélags Suðurnesja verður haldinn í húsakynnum þess, að Hafnar- götu 28 í Keflavík, miðvikudaginn 15. apríl 1981 kl. 20. Fundarsköp samkvæmt félagslögum Lagabreytingar. Félagar, fjölmennið! Stjórnin Bílstjóri Viljum ráða bílstjóra á sorpbifreið frá og með 1. maí 1981. Þarf að hafa meiraprófsréttindi og reynslu í akstri stærri bifreiða. Umsóknum um starfið sé skilað skriflega fyrir 20. apríl n.k. SORPEYÐINGARSTÖÐ SUÐURNESJA Brekkustíg 36 - Njarðvík Kartöflu- garðar Þeir leigjendur garðlanda í bæjargörðum, sem vilja nytja garða sína áfram á sumri komanda, greiði leigugjald sitt til Áhaldahúss Keflavíkur, Vesturbraut 10, fyrir 1. maí. Að öðrum kosti verður garðurinn leigður öðrum. Garðyrkjustjóri TIL SÖLU ER Billiardstofan Plútó ef viðunandi tilboð fæst. Upplýsingar í símum 2224 og 2511. Er Hitaveitan einkafyrirtæki? Fyrir nokkru síöan tóku Kefla- víkurbær og Njarövíkurbær upp þá góðu þjónustu aö gefa bæjar- búum kost á aö fá fundargerðir bæjarstjórnanna í áskrift, en með þessu móti eiga bæjarbúar kost á því aö fylgjast meö því sem gerist í hinum ýmsu nefndum og ráð- um bæjanna svo og í hinum ýmsu fyrirtækjum sem bæjarfé- lögin eiga aöild aö. Eitt hefur vakiö athygli varö- andi þessar fundargeröir, að aldrei koma fram fundargerðir stjórnar Hitaveitu Suðurnesja, eins og annarra sameiginlegra fyrirtækja SSS, heldur aðeins svokallaðar „framvinduskýrsl- ur." Erfitt eiga þeir bæjarbúar sem notfært hafa sér þessa þjónustu bæjarfélaganna, aö skilja hvers vegna umræddar fundargerðir HS séu ekki líka meö, því HS er ekki einkafyrirtæki heldur fyrir- tæki, sem á aö vera öllum opið, eins og er með öll önnur fyrir- tæki sem rekin eru af eöa í tenglsum viö bæjarfélögin. Væri ekki hægt að kippa þessu í lag sem fyrst? Helgi S. í árekstri Um þaö leiti sem síöasta blað var að koma út, varö það óhapp í Keflavíkurhöfn aö m.s. Ljósafoss sigldi á m.b. Helga S. KE 7, þar sem hann var viö bryggju í höfn- inni. Að sögn sjónarvotta var skipið að koma upp að hafnargarðinum og viröist svo sem ankeriö hafi ekki verið látiö falla nógu snemma til aö tekist heföi aö draga úr ferö skipsins áöur en það kom inn í höfnina og því fór sem fór og skiþiö sigldi beint á bátinn þarsem veriövarað landa úr honum og uröu þó nokkrar skemmdir á báöum skipum og þó nokkru meiri á Helga S. eins og sést á meöfylgjandi mynd. Er þaö taliö mikiö happ aö ekki skyldi hljótast slys af þessu, þvi á þilfari Helga S. voru menn að störfum. Hvað er að ske I Stapanum Mikil óánægja er nú ríkjandi meðal þeirra aöila er standa í fararbroddi fyrir hinum ýmsu félagasamtökum og hafa aö undanförnu átt viöskipti við Félagsheimiliö Stapa í Njarðvík. Stafar þessi óánægja m.a. af því aö þrátt fyrir þaö aö fram- kvæmdastjóri Stapans gefi lof- orö meö ársfyrirvara um húsið undir skemmtanahald, eru eins miklar líkur á að hann svíki þaö eins og hvaö annaö, alla vega er næstum öruggt aö hafi hann lofað laugardegi fyrir ári síðan eru miklar likur á aö viö- komandi félagasamtök fái nú föstudag. Þá hefur aö undanförnu oröið vart við margskonar aöra óánægju sem þessi aöili hefur skapaö viö viökomandi félaga- samtök, þannig að nú er orðið miklum erfiöleikum bundiö aö eiga viöskipti viö húsiö. Væri þvíekki rétt hjá eigendum Félagsheimilisins Stapa aö fara aö kanna þessi mál svo hægt veröi að eiga viðskipti viö húsiö á sama máta og áöur var. Fyrrverandl viðsklptavlnur. Nœsta blað kemur út 30. aprll

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.