Víkurfréttir - 09.04.1981, Blaðsíða 11
VÍKUR-fréttir
Fimmtudaaur 9. apríl 1981 11
Sökk í Sandgerðishöfn
Mánudaginn 30. marz sl. vildi
það óhapp til í Sandgerðishöfn,
að lítill þilfarsbátur, Hjörtur NS
98, sökk í höfninni. Bátur þessi,
sem er 9tonn að stærð, varsmíð-
aður í Stykkishólmi 1978 og
var nýlega keyptur frá Vopna-
firði af tveimur ungum mönnum
á Vatnsleysuströnd, og höfðu
þeir verið daginn áður að steina
niður netin og voru því ekki farnir
í fyrsta róður, er óhappið átti sér
stað.
Orsök óhappsins eru talin þau,
að leki hafði komið með botn-
ventli og fylltist báturinn því af
sjó og sökk, en honum varsíðan
náð upp samdægurs. Ljóst er að
þó nokkurt tjón varð á honum,
skipta þarf um öll tæki og raf-
lögn auk þess sem hreinsa þarf
upp vél o.fl.
Kvikmyndaleiga stofnuð í
Keflavík
Nú nýlega stofnaði Hólmar
Magnússon, Vesturgötu 15 í
Keflavík kvikmyndaleigu, sem
leigir út 8 mm filmur svo og
sýningarvélar. Filmur þessar eru
tilvaldar til afnota í barnaaf-
mælum, svo og til afþreyingar,
t.d. nú um páskana.
Sýningartími á filmum þeim
sem á boðstólum eru, eru frá 10
mínútum og upp í 1 klukkustund
hver mynd. En meðal efnis eru,
ýmsar barnamyndir s.s. bæði
teikni- og gamanmyndir þá eru
myndir fyrir fullorðna t.d. sannar
heimildamyndir, sakamála-
myndir og þöglar myndir t.d.
myndir með Chaplin og ýmsum
öðrum frægum leikurum.
Kosninga-
skjálfti
En eins og lesendum er
kunnugt um hefur verið hægt að
fá á leigu snældur fyrir
myndsegulbandstæki og hefur
það verið mjög vinsæl þjónusta
og því er ekki að efa að þessi nýja
þjónusta, kvikmyndaleiga á eftir
að verða einnig mjög vinsæl
meðal fólks.
Húsbyggjendur, athugið
Tökum aö okkur sérsmíði á timburhúsum, eftir
hugmyndum hvers og eins. Erum einnig með
staðlaðar teikningar. Gerum föst verðtilboð.
Trésmiðja Þórðar, Vestmannaeyjum.
Uppl. í síma 98-1756 og á kvöldín í símum
98-2057 og 98-2102.
Útivistar-
tími barna
Samkvæmt lögum um útivistartíma barna á tíma-
bilinu 1. maí til 1. september, er börnum 12 ára og
yngri ekki leyfilegt að vera á almannafæri eftir kl.
22, nema í fylgd með fullorðnum.
Sömuleiðis er börnum yngri en 15 ára óheimil úti-
vist eftir kl. 23, nema í fylgd með fullorðnum eða á
heimleið frá viðurkenndri æskulýsstarfsemi.
Barnaverndarnefnd Keflavíkur
NJARÐVlK
Fasteigna-
gjöld
Ekki er laust við að íbúar hér
syðra sjái fram á að kosninga-
skjálfti sé kominn í stjórnmála-
flokkana hér. Allavega virðast
flokkarnir vera farnir að vakna og
leggja mikla áherslu á að koma
út málgögnum sínum eins og
gert er fyrir kosningar.
Alþýðuflokkurinn reið á vaðiö
og hefur nú gefið út 3 tölublöð af
Alþýðublaði Keflavíkur, og
næstu daga er von á Ármanni,
blaði Alþýöubandalagsins. Bíöa
menn nú spenntir eftir því að
verkiö verði fullkomnað og hinir
flokkarnir komi sínum málgögn-
um út, þannig að ekkert vanti á
nema sjálfar kosningarnar.
Annar gjalddagi fasteignagjalda af þremur
var 15. marz sl.
15. apríl n.k. falla þau í eindaga og verða þá
reiknaðir 9.5% dráttarvextir á alla skuldina.
Greiðið reglulega til að forðast kostnað og
frekari innheimtuaðgerðir.
Bæjarsjóður - Innheimta