Víkurfréttir - 09.04.1981, Blaðsíða 14
l^Z^TBTTTIK
| Fimmtudagur 9. apríl 1981
SPARISJÓÐURINN
er lánastofnun allra
Suðurnesjamanna.
Nýtt ferðaskrifstofuumboð í Keflavík:
<rrc<wri*
Nýtt umboðferðaskrifstofunn-
ar Atlantik hóf starfsemi sína í
Keflavík í lok marz sl. Umboðs-
maður Atlantik ÍKeflavíkerPétur
Jóhannsson, og er umboöið
staðsett að Vatnsnesvegi 14, III.
hæð, sími 2900.
Atlantik Travel var stofnsett í
ársbyrjun 1978 af Böðvari Val-
geirssyni, sem er aðaleigandi
skrifstofunnar. ( fyrstu sá Atl-
antik um móttöku á erlendum
ferðamönnum, sem komu í hóp-
ferðum og einnig með skipum til
(slands, og sér ferðaskrifstofan
um ferðir þeirra hér á landi. T.d.
koma um 5-6 þúsund Þjóðverjar
til (slands með skipum i sumar,
og gefst íslendingum einnig
kostur á að ferðast með lúxus-
skipinu Maxim Gorki, sem siglir
um Svalbarða, Noreg og Þýska-
land.
Einnig hefur ferðaskrifstofan
Atlantik séð um Mið-Evrópu-
ferðir með langferðabílum, sem
reynst hafa mjög vel, kynnt
Jersey, Ameríkuferðir, Norður-
lönd o.fl.
Atlantik sér um alls konar út-
vegun á farseðlum, svosem fyrir
Flugleiðir hf., hefureinnig IATA-
leyfi, og hefur því umboðsskrif-
stofu fyrir öll helstu flugfélög í
heimi.
í vetur var ákveðið að hefja
sólarlandaferöir til Mallorca, og
er dvalið í nýju, glæsilegu íbúða-
hóteli, Royal Playa de Palma.
Hótelið er við ströndina Playa de
Palma, sem er um 8 km við
Palma, og er milli Arenal og Can
Pastilla. Fyrsta ferðin hefst um Veigar Óskarsson fararstjóri í
páskana, þ.e. 15. apríl, og er þeirri ferð.
Á umboðsskrifstofu Atlantik i Keflavik. Margrét Sigrún Jóhannsdóttir
(Lóló), og Pétur Jóhannsson, umboðsmaður.
Mismunandi
húsnæðis-
aðstaða
í stofnunum
S.S.S.
Fá sveitarfélög á landinu geta
státað af því að hafa eins mikinn
sameiginlegan rekstur og sveit-
arfélögin hér á Suðurnesjum. En
þrátt fyrir það góða samstarf sem
hér á sér stað, hefur það vakið at-
hygli ýmissa, hve mikill mismun-
ur er gerður varðandi húsnæði
þessara stofnana.
Þær stofnanir sem komnar
voru á fót áður en SSS var stofn-
að og starfa að öryggismálum,
virðast eiga mun erfiðara upþ-
dráttar hjá ráðamönnum varð-
andi aðstööu fyrir starfsfólk m.a.
Er hér einkum átt við Brunavarnir
( síðasta blaði var rætt um að-
komumannskapinn á Dagstjörn-
unni, sem nýlega er búið að
kaupa til Njarðvíkur. ( blaðinu
kom fram, samkv. viðtali við út-
gerðarmann skipsins, að fyrir
hvern aðkomumann sem hætti
yrði heimamaður ráðinn.
Vegna þessara orða útgerðar-
mannsins hafði maður einn sam-
band við blaðið og benti á að
þarna væri ekki farið með stað-
reyndir, því er skipið átti að fara í
fyrstu veiðiferðina var leitað til
Suðurnesja og Heilsugæsluna,
en báðar þessar stofnanir eru
komnar í hálfgerð vandræði
vegna aðstöðuleysis starfsfólks
til að sinna þeim ýmsu verkefn-
um sem þeim ber, svo og vegna
þrengsla almennt.
Svona vandamál viröast vera
svo til óþekkt í öðrum stofnun-
um SSS eða alla vega í miklu
minna mæli. Er því beint til ráða-
manna SSS sem þarna eiga hluí
að máli aö þeir kynni sér þessi
mál eöa all vega geri tilraun tilaö
samræma þetta milli stofnana.
1780 tonna minni marzafii I
Keflavfk í ár en I fyrra
Frá áramótum til marzloka hef-
ur af li landaður í Kef lavík verið 67
tonnum meiri en á sama tíma í
fyrra. Afli marzmánaðar er hins
vegar 1781 lest minni nú en á
sama tíma árið áður, en vertíöin
nú er ein sú lélegasta sem komið
hefur um árabil, þó það komi
ekki fram í þessum tölum varð-
andi heildarafla frá áramótum,
því í þeim tölum er afli sem t.d.
bátar frá Grindavík lönduöu hér í
* ársbyrjun. Þannig að fleiri bátar
hafa landað hér en gerðu í fyrra.
Aflahæstu bátarnir nú eru
Helgi S. með 577,2 tonn og Pétur
Ingi með 544,8 tonn frá áramót-
um. Varðandi Pétur Inga þá er
því við að bæta, aðað hann hefur
til viðbótar þessu landað um 30
tonnum í Sandgerði og Grinda-
vík í vetur.
Enn um aðkomumennina
á Dagstjörnunni
manns í Keflavík varðandi stýri-
mannspláss á skipinu, en er við-
komandi maður kom til skips, var
búið að ráðaannan mann í pláss-
ið og var þar um að ræða að-
komumann eins og fyrr.
Við athugun blaðsins á skips-
höfninni þessa veiðiferð kom
fram, að af 19 manna áhöfn eru
12 búsettir í Reykjavík, 2 í Kópa-
vogi og einn af hverjum eftir-
taldra staða: Akureyri, Seltjarn-
arnesi, Reykhólasveit, Búðardal
og Hafnarfirði. Enginn skipverji
er heimamaður og væri óskandi
að útgerðarmaðurinn stæði við
orð sín varðandi ráðningar á
skipið, eins og vera ber.
„Það er kominn gestur“
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir leikritið ,,Það er kominn gestur, n.k.
laugardag, 11. apríl kl. 21 í Félagsbíói. Myndin er af Þór Helgasyni og
Rósamundu Rúnarsdóttur í hlutverkum sínum.