Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.04.1981, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 09.04.1981, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 9. apríl 1981 VIKUR-fréttir Úr ársskýrslu Brunavarna Suðurnesja 1980: Fækkandi tiðni útkalla Á undanförnum árum hefur tiöni útkalla slökkviliös B.S. farið fækkandi og má e.t.v. segja að með tilkomu hitaveitu hafi eld- hætta minnkað nokkuð. Þó var það svo að áður en hitaveitan kom til, að ekki voru ýkja mörg útköll i kynditæki, því í flestum tilfellum voru komin tiltölulega örugg kynditæki í hús og yfirleitt vel frá þeim gengið. Annar þátt- ur í brunavörnum sem e.t.v. er ekki síðri en hitaveitan, er til- koma reykskynjara, sem hófst fyrir nokkrum árum þegar slökkviliðsmenn gengu í öll hús á svæðinu og seldu reykskynjara og slökkvitæki þeim sem hafa vildu, seldu þeir í þeirri ferð u.þ.b. 500 reykskynjara auk slökkvitækja. Nú er það svo, að reykskynjari uppgötvar reyk á byrjunarstigi og er þá auðvelt að slökkva þann eld og yfirleitt frétt- ir slökkviliðiö ekki af þeim eldum. Brunaútköll skiptast þannig á sveitarfélögin. Keflavik: allt liðiö kallað út 12 sinnum, minni útköll, fáir menn9 sinnum. AUGLÝSING um aðalskoðun bifreiða í lögsagnarum- dæmi Keflavíkur, Njarðvíkur, Grindavíkur og Gullbringusýslu 1981 Aðalskoðun bifreiða í Grindavík fer fram dagana 13., 14. og 15. apríl n.k. kl. 9-12 og 13-16 við lög- reglustöðina að Víkurbraut 42, Grindavík. Aðalskoðun í Keflavík hefst síðan 21. apríl n.k., sem hér segir: Þriðjudaginn Miðvikudaginn Föstudaginn Mánudaginn Þriðjudaginn Miðvikudaginn Fimmtudaginn Mánudaginn Þriðjudaginn Miðvikudaginn Fimmtudaginn Föstudaginn Mánudaginn Þriðjudaginn Skoðuninferfram að Iðavöllum4, Keflavík, milli kl. 8-12 og 13-16. Á sama stað og tíma ferfram aðalskoðun annarra skráningarskyldra ökutækja, s.s. bifhjóla og á eftirfarandi einnig við um umráðamenn þeirra. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Framvísa skal og kvittun fyrir greiðslu bifreiðagjalda og gildri ábyrgðar- tryggingu. Vanræki einhver að færa bifreið sína til skoðunar á auglýstum tíma, verður hann látinn sæta ábyrgð að lögum og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. 26. marz 1981. Lögreglustjórinn í Keflavík, Njarðvík, Grindavík og Gullbringusýslu 21. apríl ö- 1 - ö- 75 22. apríl ö- 76 - Ö-150 24. apríl Ö-151 - Ö-225 27. apríl Ö-226 - Ö-300 28. apríl Ö-301 - Ö-375 29. apríl Ö-376 - Ö-450 30. apríl Ö-451 - Ö-525 4. maí Ö-526 - Ö-600 5. maí Ö-601 - Ö-675 6. maí Ö-676 - Ö-750 7. maí Ö-751 - Ö-825 8. maí Ö-826 - Ö-900 11. maí Ö-901 - Ö-975 12. maí Ö-976 Ö-1050 Njarðvík: allt liðið kallað út 7 sinnum, minni útköll, fáir menn 2 sinnum. Hafnir: allt liðið kallað út 1 sinni. Garður: fáir menn , 1 sinni. Alls 33 útköll. Varðstöður við bensínlosun í Keflavíkurhöfn urðu 22 og brunavaktir og dælingar 17. Helgarvaktir voru um 12 helgar eins og á undanförnum árum, þar sem 10 menn voru hafðir á bakvakt yfir sumartímann. Æf- ingar voru haldnar á árinu eins og lög gera ráð fyrir í u.þ.b. 20 tíma pr. mann. Á árinu eignaðist slökkviliðið öfluga reyksugu sem kemur sér vel við aö reyklosa byggingar og minnka þannig reykskemmdir. Kom tæki þetta að mjög góðum notum þegar eldur varð laus í m.b. Keflvíkingi þar sem mjög mikill reykurvar niöri ískipinuog erfitt að komast að eldinum öðruvisi en að losna við reykinn. Er ekki vafi á því að það flýtti mjög fyrir slökkvistarfi og þar af leiöandi urðu minni skemmdir. Einnig eignaðist slökkviliðið litla handhæga rafstöð sem notast til þess að knýja reyksug- una á þeim stöðum þarsem ekki er hægt að ná í rafmagn frá raf- veitu. Líka kemur þessi rafstöð að góðum notum í framtíðinni til þess að knýja ýmis handverkfæri sem liðið þarf að eignast, svo sem sagir, dælur o.fl. Á árinu 1979 var stofnsetturaö frumkvæði slökkviliðsmanna fræðslusjóður fyrir slökkviliðs- menn í liðinu og er hann fjár- magnaður þannig aöslökkviliðs- menn leggja fram 5% af launum sínum og B.S. leggur sOmu upphæð á móti. Þessi sjóður var fyrst notaður 1980 til þess að kosta för þriggja manna á sýn- ingu sem haldin var í Hannover í Þýzkalandi sl. sumar og sóttu þessa sýningu slökkviliðsmenn víðs vegar af landinu, alls 24 menn. Frá slökkviliði B.S. fóru slökkvi liðsstjóri, vara-slökkviliðsstjóri og eldvarnaeftirlitsmaður. Á sýningu þessari var margt aðsjá, t.d. nýjungar á ýmsum sviðum auk æfinga og sýninga frá ýms- um slökkviliðum í Þýzkalandi. Sýning þessi er ein hin mesta sem haldin er í Evrópu og er ekki haldin nema á 8-10 ára fresti. Eftir því sem áhöldum og tækjum fjölgar er erfiðara að koma þeim fyrir í tækjabíl liðs- ins. Þvíverðuraðfara aðhugaað þvi aö fá stærri og burðarmeiri tækjabíl, en bíll sá er notaður er í dag er orðinn 20 ára gamall sendibíl! og farinn aö láta á sjá. Lögreglan í Keflavik sem annast hefur útkallskerfi slökkvi- liðsins, flutti á árinu í nýtt hús- næði. Útkallssíminn var fluttur um leið í hið nýja hús. Til þessað gangsetja brunalúðra sem staðsettir eru annars staðar I bænum og notaðireru til að kalla út slökkviliðsmenn á daginn, þurfti að fá lagðar tvær símalinur hjá Landssímanum með tilheyr- andi búnaði. Aukin þjónusta! Nú opnum við kl. 8 á morgnana. Opið í hádeginu. Eins og ávallt opið á laugardögum kl. 10-12. Nýkomnar KORKFLÍSAR ferhyrndar og ílangar. Sœnsk gœðavara. dropinn Hafnargötu 80 - Keflavík - Sími 2652

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.