Víkurfréttir - 19.11.1981, Page 11
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 19. nóvember 1981
11
Lóðin sem ekki var föl undir byggingu íbúða fyrir aldraða
Rísa íbúðir fyrir aldraða
við Brekkustíg?
Nefnd sem hefur það verkefni
að vinna að ibúðarbyggingu fyrir
aldraða í Njarðvik hefur um
nokkurt skeið verið að leita að
lóð fyrir slika byggingu. Var
nefndin með í huga lóðina á móts
við Holtsgötu 4-6-8, og kannaði
hún hug lóðareiganda gagnvart
framkvæmdum og voru honum
kynntir málavextir. Tjáði eigandi
sig ekki endanlega um málið, en
kvaðst ætla að ræða við með-
eigendur sína að lóðinni.
Nefndin hefur nú fengið
neikvætt svar frá eigendum.
Nefndin hefur undanfarið rætt
við ýmsa bæjarbúa um væntan-
lega staðsetningu íbúða fyrir
aldraða og hefur áhugi fólks
mjög beinst að væntanlegu
skrúðgarðasvæði. Þó hefurkom-
ið fram að fólk er alls ekki mót-
fallið staðsetningu t.d. við Holts-
götu, en það svæði virðist ekki
liggja á lausu.
Þar af leiðandi hefur nefndin
farið þess á leit við bæjarráð
Njarðvikur að það taki fyrir á
fundi sínum i nóvember ábend-
ingu frá nefndinni um staðsetn-
ingu á væntanlegum ibúðum við
Brekkustíg, þar sem leikvöllurer
staðsettur, og tekur fram nokkur
atriði málinu til stuðnings.
1. Staðsetning er miðsvæðis i
byggðarlaginu í tengslum og
sjónroáli við eldri bæjarhlutann,
þar sem flestir væntanlegir íbúar
hafa átt heima.
2. (tengslum við væntanlegan
skrúðgarð og ekki aðþrengt
svæði.
3. ( nálægð við kirkjuna sem
auk þess þjónar sem samkomu-
staður fyrir eldri borgara.
4. I nálægð við sundstað.
5. Skjólgott fyrir norðanátt,
auk þess sem það erálit nefndar-
innar aö þarna mætti hanna
falleg hús sem myndu skapa fal-
legan baksvip fyrir væntanlegan
skrúðgarð o.m.fl.
Nefndarmenn lýsa sig sam-
mála þvi sem fram hefur komið i
viðræðum við byggíngafulltrúa
og Gylfa Guðjónsson arkitekt,
að ekki megi rýra það svæði sem
nu þegar er búið að skipuleggja
sem skrúðgarð.
Með staðsetningu væntan-
legrar byggingar á leikvallar-
svæði mun vera-komið á móts við
óskir flestra þeirra sem i ibúðum
þessum munu dvelja og þeirra
sem láta sig hag og málefni aldr-
aðra varða. Væntir nefndin þess
að niðurstaða um staðsetningu
liggi fyrir sem fyrst og eigi siðar
en í lok desember 1981, svo hægt
verði að hefjast handa um hönn-
un, en það má ekki dragast öllu
lengur, ef hefja á framkvæmdir
að vori.
10% afsláttur
Suöurnesjamenn! Geriö hagstæö inn-
kaup með 10% afslætti.
Nýir félagar fá 10% afsláttarkort.
Gerist félagar.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
Keflavík, Njarðvík, Grindavík,
Sandgerði og Garði
Reglubundin
viðskipti
-bókað lán!
Nú getur þú sem launþegi slegið tvær flugur i einu höggi með
því að láta greiða laun þín reglulega inn á reikning i Verzlunarbankanum
eða gert það sjálfur. Með því móti áttu sjálfkrafa kost á hinu nýja láni
Verzlunarbankans- Launaláninu.
Hagræðið er ótvirætt. Að uppfylltum einföldum og sjálfsögðum
skilmálum getur þú gengið að öruggu skammtimaláni þegar þér hentar -
engin bið eftir bankastjóra og engin óvissa um afgreiðslu.
Haföu samband, hringdu eða komdu og fáðu nánari upp-
lýsingar.
_______Dæmi um Launalán:_______________________________________
Eftir 6 mán. viðskipti .allt að 10.000 kr.
Eftir 12. mán. eða lengur .. allt að 20.000 kr.
LAUNALÁN
VÉRZIUNAR
BANKINN