Víkurfréttir - 03.12.1981, Blaðsíða 1
22. tbl. 2. árg. Fimmtudagur 3. desember 1981
fCÉTTIC
Tilfærslan á girðingunni var
aðeins byrjunaraðgerð
- segir Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra
Eins og greint var frá i siöasta tölublaöi og flestir hafa náttúrlega
tekiö eftir, þá er búiö að færa hluta af Vallargiröingunni mlllf Kefla-
vfkur og Njarövíkur. Hvort þetta sé fyrsta skrefiö f sameiningu þess-
ara bæjarfélaga skal ekkert fuilyrt. Hlns vegar er Ijóst, aö margir eru
þessari framkvæmd fegnir, ekki sfst þelr Njarövikingar sem sækja
nám i Fjölbrautaskólann. Samt sem áöur vöknuöu ýmsar spurningar
viö þessa framkvæmd, t.d. hvers vegna þessi bútur var færöur? Hvers
vegna var ekki girðfngin færö þannig, aö Ibúarfengju lóöirsinar sem
liggja innan girðingar?
Til þess aö leita svara viö þessum spurningum og fáelnum öörum,
spjölluöum viö viö Ólaf Jóhannesson, utanrikisráöherra.
Við byrjuðum á því að spyrja
Ólaf, hvers vegna girðingin væri
færð núna. Svaraði Ólafur því til,
að hér væri um byrjunaraðgerð
að ræða, sem haldið yrði áfram
með á næsta ári. Benti hann síð-
an á, að málið hefði verið tekið
upp sem ósk frá bæjarstjórn
Njarðvíkur.
Framh. á 7. siöu
Óánægja með hitaveðtuna
Að undanförnu hefur töluvert
borið á óánægju meðal við-
skiptavina Hitaveitu Suðurnesja
yfir lægra hitastigi á heita vatn-
inu en áður var.
Vegna þess gerðu Víkur-fréttir
könnun á hitastiginu meðal
íbúanna á svæði hitaveitunnar.
Fram kom að algengt er að vatns-
hitinn sé þetta 70°-72° með þeim
undantekningum þó, að á
einstaka stað í Vogum og Garði
fór hitinn niður i 60°-62°. I
Grindavík var hinns vegar hiti
algengur um 80°.
í öllum tilfellum kom fram, að
hiti hefur lækkað um 10° frá því í
vor.
(framhaldi af þessu hafði blað-
ið samband við Ingólf Aðal-
steinsson hjá H.S. til að fáaövita
hvað hér væri á feröinni.
Ingólfur sagði að fólk skyldi
varast að taka mark á inntaks-
mælum í húsum sínum, því al-
gengt væri að þeir væru ekki
nægjanlega nákvæmir. t.d. væru
dæmi um það að þar sem hita-
Mlölunartankarnir á Fitjum
Framh. á 9. siöu
Notum eingongu okkar hafnir
segir í samþ. nefndar
Eins ogfram hefurkomiðiVik-
ur-fréttum hefur fyrir frum-
kvæði stjórnar Landshafnar
Keflavíkur-Njarðvíkur veriö
kosin nefnd til að sporna við
þeirri uggvænlegu þróun sem
hefur átt sér stað að undanförnu
hvað varðar skipakomur til hafna
á Suðurnesjum.
n vandamál hafnanna
Mjög hefur færst í vöxt, með
tilkomu gámaflutninga með
skipum, að sjávarafuröum til út-
flutnings er ekið til höfuðborg-
arsvæðisins og skipað út þar.
Þessi þróun hefur marga
neikvæða hluti i för með sér fyrir
Suðurnesin, s.s. mjög minnk-
andi tekjur hafnanna, minnk-
andi atvinnuviölestunskipasem
orsakar mikla erfiöleika í manna-
haldi, mikinn aksturskostnað
fyrir framleiðendur, minni tekjur
sveitarfélaganna vegna minni
umsvifa og atvinnu, o.fl. í þess-
um dúr.
Það er því sýnt, að margir
aðilar á Suðurnesjum eiga
Framh. á 12. slöu
Njarðvíkurhöfn:
Grettir búinn
að grafa
Dýpkunarskipið Grettir hefur
nú lokið við að grafa fyrir nýja
þilinu í Njarðvíkurhöfn, en skipið
var hér um tveggja vikna skeiö.
Vonir standa til að Vita- og
hafnamálastjórn hefjist brátt
handa við að Ijúka frágangi þils-
ins, en með því myndi aðstaöa
stórra skipa batna til muna.
30 á atvinnu-
ieysisskrá
Sl. mánudagvoru 30áatvinnu-
leysisskrá hjá Vinnumiðlun Kefla
víkurbæjar og í Njarðvík, sem
skiptist þannig:
Njarðvík: 5 konur.
Keflavík: 20 konur + 5 karlar.
Eins og áður bitnar atvinnu-
leysið helst á konum, en nú eru
þær 25 atvinnulausar á móti 5
körlum. Þessi tala getur breyst
uppá við, þar sem uppsögn hjá
Hraðsfrystistöð Keflavíkurvarað
koma fram um það leyti sem
blaðið fór í prentun.
Fyrir rúmri viku, eða áður en
Hraðfrystihús Keflavíkur hf. fór í
gang að nýju, náði tala atvinnu-
lausra i þessum byggöarlögum
70.
Hraðfrysti
húsið aftur
ígang
Á miðvikudag í síðustu viku
hófst vinnsla á ný hjá Hraðfrysti-
húsi Keflavíkur hf., eftir margra
vikna stopp.
Fram að þeim tíma höfðu um
70 konur verið á atvinnuleysis-
skrá í Keflavík og Njarðvík, fyrir
utan töluverðan fjölda sem ekki
lét skrá sig. Taliö er að þessar
tölur megi að stærstum hluta
rekja til stöövunar Hraðfrysti-
hússins, þannig að nú ættu tölur
um atvinnulausa að hafa minnk-
að til muna, þó eflaust séu enn
einhverjir á atvinnuleysisskrá.
En þær tölur koma ekki fram
strax, þar sem breyting hefur
orðið á skráningu þannig að fólk
lætur nú aðeins skrá sig vikulega
í staö daglega áður.
Auglýsið í
jólablaðínu.
Það kemur út
17. desember.