Verslunartíðindi - 01.02.1925, Side 3
VERSLUNARTÍfllNGI
MÁNAÐARRIT GEFIÐ ÚT AF VERSLUNARRAÐI ÍSLANDS
PrentaO 1 IsafoldarprentsmltJJu.
8. ár.
Febrúar— mars 1925.
Nr. 2-3
V erglnnartiðindi koma út einu Binni i mánnði venjul. 12 blaðsíður. — Árgangurinn kostar kr. 4.50
Ritstjórn og afgreiðsla: Skrifstofa Yerslunarráðs Islands, Eimskipafjelagshúsið. Talsími 694. Pósthólf 514
Erindi til Alþingis.
Að vanda liggja ýms mál fyrir Alþingi,
er snerta verslun landsins, og eru sum
þeirra svo mikilsverð, að Verslunarráðið
hefur ekki getað látið hjá líða að láta álit
sitt um þau í ljósi í erindum til Alþingis,
og er hjer getið þeirra helstu.
Eitt af stjórnarfrumvörpunum, er lögð
voru nú fyrir Alþingi var frv. til laga
um verslunaratvinnu. I athugasemdum um
lagafrumv. þetta er þess getið, að það sje
öamið upp úr frv. því til atvinnulaga, er
lagt var fyrir Alþingi 1922, en upp í það
tekið úr frv. er Verslunarráðið hefur samið,
er fært hafi þótt.
Þetta umrædda frv. Verslunarráðsins er
tekið upp í 6 árg. Verslunartíðinda og þar
itarlega skýrt.
Verslunarráðinu þótti þetta stjórnarfrum-
varp að ýmsu gallað, og vart til bóta frá
núverandi fyrirkomulagi, ef það næði fram
að ganga óbreytt. Ritaði því Verslunar-
ráðið Alþingi brjef með allmörgum breyt-
ingartillögum og ósk um að alþingi sæi
8jer fært að taka þær til greina í öllum
aðalatriðum.
Að þessu sinni verður ekki hægt að
tara nánar út í þetta efni, þar sem þessar
hreytingar eru bæði margar og víðtækar,
enda mun þessa máls getið síðar, ef frum-
varpið nær að verða að lögum.
Þá er annað mál, er verslunina varðar,
og vakið hefur talsverða óánægju innan
verslunarstjettarinnar og það eru verðtolls-
lögin.
Lögin um bráðabirðaverðtoll á allmörg-
um vörutegundum voru afgreidd frá Al-
þingi 1924. Var með þeim lagt aðflutnings-
gjald. á þessar vörur, er nemur 20 °/o af
innkaupsverði þeirra.
Til þeirra töldust fyrst og fremst þær
vörur, er komast má af án, og í öðru lagi
þær vörur, sem nægar birgðir þætti af í
landinu.
Lög þessi er upphaflega áttu að giida
til ársloka 1925, vildi stjórnin nú fram-
lengja til 1. apríl 1926.
Þe8si hái verðtollur hefur að ýmsu þótt
ósanngjarn og ekki þótt koma rjettlátlega
niður, enda erfitt um framkvæmdir, þegar
greina á á milli nauðsynja- og ónauðsynja-
vara, og ennfremur álitamál um takmörkin,
þegar dæma á um vöTuforðann.
Verslunarráðið ritaði því Alþingi og ljet
þá skoðun í ljósi, að þó einstaka vöruteg-
und gæti þolað jafnháan toll eða jafnvel
hærri, þó gætu allflestar það ekki. Virtist
Verslunarráðinu það eðlilegast, að vörur
þær, er rjett þætti að leggja verðtoll á,
væru flokkaðar í fleiri flokka og lögð á-
kveðin tollhæð á hvern flokk. Ennfremur
benti það á þá hættu, er hár verðtollur
hefur i för með sjer, bæði er snertir smygl-
un og ýmiskonar yfirskinsreikninga, og