Verslunartíðindi - 01.02.1925, Qupperneq 17
VERSLUNAHTlÐINDI
27
athuga olíumálin í samráði og samvinnu
með fulltrúum olíuiðnaðarins.
Forsetinn segir þar meðal annars: »Skort
á brensluoliu, smurningsoliu og einkum
gasolíu verður, að forðast, ef iðnaðurinn
hjá oss á ekki að verða fyrir óbætanlegu
tjóni. Olían ryður sjer meira og meira
til rúms í stað kolanna, en olíuforði vor
er takmarkaðnr. Stjórnin og iðnrekendur
verða því að hefjast handa til að athuga
þetta þýðingarmikla mál, þó meir sje þar
unnið fyrir fjarlægari framtið.c
Úr brjefi frá Noregi.
Febrúar.
Þorskaveiðarnar fara nú að byrja. En
tíðin hefur verið slæm, svo að jafn storma-
sarat hefur ekki verið í mörg ár á allri
strandlengjunni eins og nú hefur verið
siðasta mánuðinn. Þar af leiðandi hefur
ekki verið hægt nema aðeins endrum og
eins að leyta til fiskjar, en í þau fáu skifti
hefur orðið vel fiskvart. Fiskgæðin hvað
hvað snertir stærð, þunga og lifur er nokk-
uð mismunandi á hinum ýmsu veiðistöð-
um en virðist yfir höfuð vera svipað og
í fyrra. Þó er lýsisprocentan ef til vill
dálitið lægri.
Vegna gæftaleysins var aflinn 31. jan.
ekki nema 95.000 stk., en var 900.G00 stk.
á samá tíma í fyrra, og gufubrætt lýsi 174
hl, en 2422 hl. árið áður.
Vegna þess hve hátt verð er gefið fyrir
þorskinn — nú sem stendur frá kr. 2 —
2.20 fyrir stk. — má telja víst að þátttaka
í þorskaveiðum muni verða óvenjulega
ínikil í ár.
Bernh. Petersen
Rcykjavík.
Simar: 598 og 900. Simnefni: Bernhardo.
Kaupir allar tegundir af lýsi hæsta
verði. Móttekið á hvaða höfn sem
er. — — Greitt við útskipun.
Fryst kjöt á Italíu.
Hjá fiskkaupmönnum hlýtur það að vekja
eftirtekt, er Iönd þau er neyta saltfiskjar
fara að framleiða frosið kjöt, því aukin
neysla á frosnu kjöti, hlýtur aðallega að
verða á kostnað saltfiskjarins.
Þeir sem versla með frosið kjöt, hafa
upp á siðkastið snúið athygli sinni að
ítalska markaðinum og notað Genúa sem
aðalstöð. Hversu vel það hefur hepnast
sjest best á vaxandi innflutningi þessara
vörutegunda árið 1924, yfir 100,000 tonn
á móts við 20,000 tonn 1923 og minna
undanfarin ár. Þessi mikla aukning staf-
ar aðallega af því, að kjötútflytjendum
hefur loks hepnast, að framleiða og verka
kjötið. svo að Itölum falli það í geð, en
þeir vilja kjötið svo magurt sem unt er,
þar sem áður hafði verið sent kjöt með
venjulegum hlutföllum af fitu. Athugandi
er einnig, að kjötútflytjendur hafa fengið
stuðning í samkepni sinni í hinu háa fisk-
verði undanfarið.
Frosið kjöt hefur þann kost fram yfir
fisk frá sparnaðarejónarmiði að hægt er
að búa til tvo rjetti úr því í einu með
sömu kolaeyðslu, þar sem aftur á móti er
um fisk að ræða, verður að hella soðinu
burtu og nota olífuolíu með, sem er dýr,
öll helstu frystikjötsfjelög hafa útibú í
Genúa og töluverðu fje er varið til bygg-
inga, svo sem íshúsa o. fi. Það bendir þvi