Verslunartíðindi - 01.08.1935, Page 12

Verslunartíðindi - 01.08.1935, Page 12
88 VERSLUNÁRTÍÐINDI kr. 801.273. (Þá var sparisjóður Reykja- víkur kominn inn í bankann). Langmest af fé bankans fór fyrst í stað til fasteigna- veðslána. Fyrsta tímabil í ævi bankans má telja til 1904, þegar Islandsbanki er kominn á stofn. Helstu viðburðir á því tímabili eru þeir, að Sparisjóður Reykjavíkur gekk inn í bankann 19. apríl 1887, að útibú voru sett á stofn á Akureyri 1902 og ísafirði 1904, að seðlaíúlga bankans var aukin upp í 750.000 kr., að bankanum voru falin störf landfógeta (landsféhirðis) 1904 og að bankinn fékk sinn eigin bankastjóra, sem ekki hafði öðrum störfum að sinna, 1892. Varð þá Tryggvi Gunnarsson banka- stjóri. I upphafi stóð mikill styr um fyrirkomu- lag bankans, en annars einkennist starf bankans á þessu tímabili af því, hve gæti- lega að öllu er farið. Jafnaðarreikningur bankans 31. des. 1904 er kr. 4.401.141. Þar af er mest í sjálfskuldarábyrgðarlánum (kr. 1.261.235), þá víxlum (kr. 722.817) og fasteignaveðslánum (kr. 573.585). Einn megin þáttur í starfsemi bankans á síð- ari parti þessa tímabils var stuðningur- inn við þilskipaútgerðina, og er hin mikla aukning sjálfskuldarábyrgðarlánanna í sambandi við það. Um aldamótin hefjast þær kröfur og þau tilboö, sem enduðu með stofnun Is- landsbanka. Hefir Landsbankinn aldrei verið hættara kominn en á Alþingi 1901, því að þá átti að leggja hann niður, og láta hann renna inn í nýja bankann. Var þessu breytt á síðustu stundu í efri deild þannig, að bankinn fékk að halda lífi og þeim landsjóðsseðlum, sem hann hafði starfað með, við hlið nýja seðlabankans. Er hjer vitanlega ómögulegt að rekja allar þær krókaleiðir og viðsjár, sem voru um banka- málin á þessum árum, meðan íslandsbanki var í burðarliðnum, og enginn gat vitað með vissu, hvort bankastofnunin myndi takast. Meðan Islandsbanki starfaði í fullu fjöri dró eðlilega úr þróun Landsbankans. Hann var „litli bróðir“, sem annaðist hin rólegri viðskifti. Drýgsta starfsfé hans var spari- sjóðsfjeð. I árslok 1913 er jafnaðarreikn- ingur hans liðlega 9 milj. og er spari- sjóðfjeð þá fullar 4 miljónir af því. Víxla- fúlga hans er þá ekki nema liðlega 1.8 milj., en verðbréfaeign hans álíka og inn- eign í erlendum bönkum nærri 1.9 milj. kr. Gefur þetta nokkra hugmynd um starf- semi bankans í stríðsbyrjun. Á þingi 1913 var samþykt, að leggja Landsbankanum 100.000 kr. á ári í 20 ár sem starfsfé, og var honum að því mjög mikið hagræði. Aftur á móti var bankanum ekki jafnmikið hagræði að þeim pólitísku stórorustum, sem háðar voru um hann á árunum 1909 —’ll, með útrekstri bankastjóra, rann- sóknarnefndum og eldhúsræðum á þingi. Þó beið bankinn ekki varanlegt tjón af því. Ófriðartímarnir, og fyrst þar á eftir, með allri sinni ólgu í peningamálum, sóp- uðu auðvitað fje að Landsbankanum líka, og vex velta hans mjög að krónutali. 1915 er jafnaðarreikningur bankans liðlega 12 milj. kr. og 1920 liðlega 33 milj. kr., þar af sparisjóðsfje liðlega 19y2 milj. Þó eru víxlaviðskiftin orðin meginstarfsgrein bankans, og er víxlafúlgan 1920 yfir 1714 milj. kr. En annars gerast þá ekki margir sögulegir viðburðir fyrir bankann. Einna merkilegast er það, að 1917 eru skipaðir 3 bankastjórar við bankann, en gæslustjór- ar hætta. Þá er og á því ári sett útibú á Eskifirði. En langmestu veðrabrigðin í bankasögu þessara ára hefjast með yfirfærslustöðvun íslandsbanka 1920 og þeim aðgerðum, sem þar fóru á eftir. Að vísu hafði áður komið til mála, að Islandsbanki slepti seðlaút-

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.